Tíminn - 21.08.1951, Page 2
2.
TÍMINN, þriðjudaginn 21. ágúst 1951.
187. blað.
Utvarpib
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,20 Tónleikar (plötur).
20,40 Erindi: Úr Eldlandsför;
síðara erindi (Sturla Friðriks-
son magister). 21,05 Tónieikar
(plötur). 21,35 Upplestur: „Fiðla
Gyðingsins", smásaga eftir
Anton Tsjekov (Edda Kvaran
leikkona). 22,00 Fréttir og veður
fregnir. 22,10 Vinsæl lög (plöt-
ur). 22,30 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,30 Útvarpssagan: „Upp
við Fossa“ eftir Þorgils gjall-
anda; IV. (Helgi Hjörvar). 21,00
Tónleikar: Sönglög eftir Helga
Helgason og fsólf Pálsson (plöt
ur). 21,20 Frásöguþáttur: Land-
nám íslendinga í Alberta-héraði
(Lárus H. Blöndal bókavörður
flytur). 21,50 Tónleikar (plötur).
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22,10 Danslög (plötur). 22,30
Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Ms. Hvassafell er á Vopna-
firði. Ms. Arnarfell er í Stettin.
Ms. Jökulfell fór frá Valparatso
14. þ. m. áleiðis til Guayaquil,
með viðkomu í Talara.
i. ' i*_ a.JLJSl
Ríkisskip:
Hekla er væntanleg til Rvík-
ur árdegis í dag ,frá Glasgow.
Esja er á Austfjörðum á suður-
leið. Herðubreið er í Reykjavík.
Skjaldbreið er á leið frá Húna
flóa til Reykjavikur. Þyrill er
Norðanlands.
Eimskip:
Brúarfoss kom til Pireaus 17.
8. Dettifoss er í New York. Goða
foss var væntanlegur til Stykkis
hólms um hádegi í dag 21. 8.,
fer þaðan á Sand og Ólafsvík.
Gullfoss fór frá Reykjavík 18. 8.
til Leith og Kaupmannahafnar.
Lagarfoss fór frá Leith 18. 8.,
væntanlegur til Reykjavíkur kl.
9,00—10,00 á morgun 22. 8. Sel-
foss er í Reykjavík. Tröllafoss
fór frá Reykjavík 15. 8. til New
York. Hesnes kom til Reykja-
víkur 16. 8. frá Hull.
hafi til
Heitar pylsur á Kambabrún.
Það var allsvalt á Kamba-
brún í fyrrakvöld, því að norð
angustur var. En dugiegir
kaupsýslumenn láta slíkt ekki
á sig fá. Tveir piitar höfðu
reist strigaskýli við veginn og
seldu þar heitar pylsur og ís,
svo að vegfarendur gátu valið
um það, hvort þeir viidu fá
eitthvað, sem hitaði eða kældi,
eftir því hvernig þeim var inn
an um sig.
Flugferdir
Flugfélag islands:
Innanlandsflug: 1 dag er ráð
gert að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), Vestmannaeyja, Blöndu
óss, Sauðárkróks og Siglufjarð-
ar. Á morgun eru áætlaðar flug
ferðir til Akureyrar (2 ferðir),
Vestmannaeyja, Egilsstaða,
Hellissands, ísafjarðar, Hólma-
víkur og Siglufjarðar. Millilanda
flug: Gullfaxi fór til London kl.
8,00 í morgun og er væntanleg-
ur aftur til Reykjavíkur kl. 22,30
í kvöld.
Loftleiðir h.f.
í dag er ráðgert að fljúga til
Vestmannaeyj a (2 ferðir), isa-
fjarðar, Akureyrar, Hólmavíkur,
Bíldudals, Þingeyrar, Flateyrar
og Keflavíkur (2 ferðir). Frá
Vestmannaeyjum verður flogið
til Hellu og Skógasands. Á morg
un er áætlað að fljúga til Vest
mannaeyja, ísafjarðar, Akureyr
ar, Siglufjarðar, Sauðárkróks og
Keflavíkur (2 ferðir).
Arnab heúlo
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlof
un sína ungfrú Sigurborg Jóns-
dóttir, Mávahlíð 22, og cand.
agr. Ólafur Guðmundsson,
Hvanneyri.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trú-
lofun sína í Kaupmannahöfn
ungfrú Helga Jónasdóttir,
Sveinssonaf læknis, og stud.
polyt. Jóhann Indriðason, Helga
sonar á Akureyri.
Úr ýmsum áttum
Kominn heim.
Séra Þorsteinn Björnsson,
Fríkirkjuprestur er kominn
í bæinn. Hann er til viðtals alla
virka daga nema laugardaga
kl. 5—6 e. h. í skrifstofu safnað
arins í Fríkirkjunni.
Fjölleikasýnlng
(Framhald af 1. síðu./
reið blindandi um bæinn I
fylgd með lögregluþjónum.
Að lokinni þessari sérkenni-
legu ökuför, sem ekki er
ætluð íslenzkum bifreiða-
stjórum til eftirbreytni,
munu lögregluþjónarnir
handjárna hann og fjötra
og varpa hönum þannig í
fangageymsluna í lögreglu-
stöðinni, bak við lás og loku.
En Svíinn ábyrgist á hinn
bóginn, að hann skuli kom
ast úr fjötrunum og varð-
haldinu hjálparlaust á
tveimur mínútum.
Fegurðar-
drottningin
(Framhald af 1. tslðu.)
þessu. Ég hef engan frið haft
í dag.
— Þú stundar nám í
menntaskólanum ?
— Já, ég vona að setjast í
6. bekk í haust. Gallinn er
bara sá, að ég á eftir að taka
próf i tveim greinum og verð
ég að gera það í haust. Ég
varð að vinna fram í febrúar
i vetur og þess vegna varð ég
að fresta prófi i tveim náms-
greinum.
— Og þú ætlar að sigla
strax?
— Já, ég hef ákveðið að
fara á laugardaginn, því að
annað hvort er að hrökkva
eða stökkva. Ég hef aldrei far
ið utan og hlakka því mjög
tii, en ef ég á að komast í
haust, verð ég að fara strax,
svo að ég komi nógu snemma
til að ljúka prófunum og setj
ast i skólann.
—Ætlarðu að ferðast eitt-
livað meira en til Kaupmanna
hafnar?
— Veit það ekki, áætlunin
er ekki samin enn, en auðvit-
að langar mig til að sjá mig
meira um og geri það ef hægt
er. Ég fæ auk farseðilsins báð
ar leiðir fjárhæð, sem á að
duga til uppihalds í 14 daga.
— Ég óska góðrar ferðar, og
farðu nú ekki að hugsa um
próf eða próflestur á meðan
skemmtiferðin varir.
— Það er víst óþarfi að
vara mig við því.
Samkoman í Tívolí.
Áhorfendur að fegurðarsam
keppninni í Tívolí voru geysi-
margir, enda var veður hið
bezta. Sveinn Ásgeirsson,
framkvæmdastjóri hátíðarinn
ar setti samkomuna með
! ræðu og gerði grein fyrir þátt
töku í fegurðarsamkeppninni
og tilhögun hennar. Mjög illa
gekk að fá stúlkur til að taka
þátt í henni eins og í fyrra.
og sagði hann, að þeir, sem
i íyrir henni stóðu, hefðu orð-
jið að ganga á eftir stúlkun-
' um með grasið í skónum. Að
lokum hefðu þó verið valdar
úr þeim ,sem bent hefði verið
á 10 stúlkur, sem þátt tækju
í lokakeppninni.
Dómnefndin tók síðan sæti
ó sviðinu í Tívolí og stúlkurn-
ar gengu inn. Gengu þær síð-
f.n ein af annarri upp á hækk
aðan pall, hneigðu sig fyrir
áhorfendum en fáar brostu,
enda var viðhorf áhorfend-
anna varla uppörvandi fyrst
í stað. Framkoma áhorfend-
anna batnaði þó er á leið. —
Eftir það gengu stúlkurnar
út af sviðinu og dómnefndin
sett’st á rökstóla og hálfrij
stundu síðar kvað hún upp
dóminn. Hver hinna stúlkn-
anna hlaut titilinn „ein af 10
fegurstu stúlkum Reykjavík-
ur 1951.“
Það var eftirtektarvert,hve
|kvenþjóðin var í miklum
meirihluta í Tívolí meðan á
fegurðarsamkeppninni stóð,
einkum stúlkur innan við tví-
tugt. Sýndi það, hve geysi-
mikinn áhuga stúlkurnar
höfðu á fegurðarsamkeppn-
inni, þótt þær væru svo treg-
ar til að gefa sig fram til
þátttöku. En þess er að vænta,
að þessi nýbreytni sé nú kom
in yfir erfiðasta hjallann, og
léttara verði að fá stúlkurn-
ar til þátttöku næst.
Greiðsluáskorun
frá skrifstofu tollstjórans
I Reykjavik ;,vi
' ' ; t'xf 1* r'
Tekjuskattur og önnur þinggjöld ársins 1951, féllu
í gjalddaga 31. júli s. 1.
Reikningar yfir gjöldin hafa verið sendir út og er
skorað á gjaldendur að greiða þá hið fyrsta.
Kaupgreiðendur verða bráðlega krafðir um gjöld
þeirra manna, sem ekki hafa greitt gjöldin sín sjálfir.
TOLLSTJÓRASKRIFSTOFAN
Hafnarstræti 5
ttnu
Drengir handsama
yrðling í haganum
, Tveir drengir frá Munka-
(þverá í Eyjafirði voru á dög-
| unum að sækja kýr í haga.
Sáu þeir þá stálpaðan yrð-
ling þar í móunum, og hófst
nú allmikill eltingaleikur, og
urðu lyktir þær, að drengirn-
ir handsömuðu yrðlinginn. —
Vöfðu þeir peysu utan um yrðl
inginn og báru hann heim í
henni.
Nokkrar skeinur höfðu
drengirnir þó hlotið í viður-
eigninni við yrðlinginn, sem
varði sig af fremsta megni
með klóm og kjafti.
Forðizí eldinn og
eigoatjón
Framleiðum og seljurn
flestar tegundlr handslökkvi
tækja. Önnumat endurhleðslu
á slökkvitækjum. Leltlð upp-
lýsinga.
KoisýrubleBslan a.f Slml 338)
Tryggvagötn 10
TILKYNNING
frá Síl darverksmiðj u m ríkisins
um verð á síidarmjöli
Ákveðið hefir verið að verð á 1. flokks síldarmjöli
á innlendum markaði verði krónur 203,10 fyrir 100
kíló fob. verksmiðjuhöfn, ef mjölið er greitt og tekið
fyrir 15. september næstkomandi. Eftir þann tíma bæt-
ast vextir og brunatryggingarkostnaður við mjölverð-
ið. Allt síldarmjöl þarf að vera pantað fyrir 30. sept-
ember og greitt fyrir 1. nóvember næstkomandi.
OTncrocffitmmia
ilðnskólinn í Reykjavík
Innritun í Iðnskólann í Reykjavík hefst fimmtudag-
inn 23. ágúst kl. 5—7 síðdegis. Skólagjöldin kr. 750.00
og kr. 650.00 greiðist við innritun.
Námskeið til undirbúnings inntökuprófum og milli-
bekkjarprófum byrja laugardáginn 1. september kl. 8
árdegis.
Skólastjórnn
Áætlunarferðir
frá Kaupféfagi Árnesinga
Stokkseyri
Eyrarbakki
Selfoss
Hveragerði
Alla daga sumar og vetur
Reykjavík
Frá Stokkseyri kl. 9,30 f.h.
— Fyrarbakka — 10,00 —
— Selfossi — 10,30 — og kl. 4,00 e.h.
— Hveragerði — 11,00 — og — 4,30 e.h.
Frá Reykjavík tvisvar á dag kl. 9. f.h. og 6,30 e.h.
Kvöldíerðir frá Stokkseyri alla sunnudaga kl 9 e.h. yfir
sumartímanm
Fljótar ferðir. — Traustir og góðir bílar.
Afgreiðsla í Reykjavík hjá Frímanni, Hafnarhúsinu.
Afgreiðsla austan fjalls í útibúum vorum og á Selfossi
í Ferðaskrifstofu K. Á.
Kaupfálag Árnesinga
Auglýsingasími Tímans 81300