Tíminn - 16.09.1951, Page 2
2.
TÍMINN, sunnudaginn 16. september 1951.
209. blað,
Útvarpið í dag:
8.30—9.00 Morgunútvarp. —
10.10 Veðurfregnir. 11.00 Messa
í Dómkirkjunni (Séra Jón Auð-
uns dómpróf.). 12.15—13.15 Há-
degisútvarp. 15.15 Miðdegistón-
leikar (plötur). 16.15 Fréttaút-
varp til íslendinga erlendis. 16.
30 Veðurfregnir. 18.30 Barna-
tími (Þorsteinn Ö. Stephensen).
19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tón-
leikar. 19.45 Auglýsingar. — 20.
00 Fréttir. 20.20 Sinfóníuhljóm
sveitin; Paul Pampichler stjórn
ar. 20.35 Erindi: Frá Noregi;
fyrra erindi (Steindór Steindórs
son menntaskólakennari). 21.00
Tónieikar: Lög eftir Hallgrím
Helgason (plötur). 21.30 Upp-
lestur: ,,Árni á Arnarfelli og
dætur hans“, sögukafli eftir
Símon Dalaskáld (Andrés Björns
son). 22.00 Fréttir og veðurfregn
ir. 22.05 Danslög (plötur). —
23.30 Dagskrárlok.
ÍTtvarpið á morgun:
Fastfr liðir eins og venjulega.
20.20 Útvarpshljómsveitin; Þór-
arinn Guðmundsson stjórnar.
20.45 Um daginn og veginn
(Benedikt Gíslason frá Hof-
teigi). 21.05 Einsöngur: Tito
Gobbi syngur (plötur). 21.20 1-
þróttaþáttur (Sigurður Sigurðs-
sonson). 21.40 Tónleikar: Victor
Sylvester og hljómsveit hans
leika (plötur). 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. 22.10 Létt lög (plöt
ur). 22.30 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Hvassafell er á ísafirði. Arnar
fell lestar saltfisk fyrir norður-
landi. Jökulfell fór frá Valparai
so 8. þ.m. áleiðis til Guyaquil og
New Orleans, með viðkomu í
Antofagasta Tocopilla.
Ríkisskip:
Hekla fer frá Reykjavík á
morgun austur um land í hring
ferð. Esja fór frá Akureyri í gær
austur um land. Herðubreið er á
Austfjörðum á norðurleiö.
Skjaldbreið fór frá Skagaströnd
fgær á leið til Reykjavíkur. Þyr-
ill er í Reykjavík.
Éimskip:
Brúarfoss fór frá Antwerpen
F2.9. til Reykjavikur. Dettifoss
er í Reykjavík. Goðafoss er í
Gautaborg fer þaðan til Reykja
víkur. Gullfoss fór frá Reykja-
vík kl. 12.00 á hádegi í dag 15.9.
til Leith og Kaupmannahafn-
ar. Lagarfoss fór frá Reykjavík
8.9. til New York. Reykjafoss fór
frá Genúa 14.9. til Sete í Suður-
Frakklandi, fermir þar málm-
grýti til Hollands. Selfoss er í
Reykjavík. Tröllafoss fór frá
Halifax 10.9. til Reykjavíkur.
Flugferðir
Loftleiðir:
í dag er áætlað að fljúga til
Akureyrar. Á morgun á að
fljúga til ísafjarðar, Akureyrar,
Hellissands.
Úr ýmsum áttum
Gwyn Jones prófessor
í enskum fræðum við háskól-
ann í Aberystwyth í Wales mun
fiytja þrjá fyrirlestra við há-
skólann hér um miðaldaþjóð-
sögur frá Wales.
1. Almennt yfirlit yfir sögurn-
ar.
2. Sögurnar fjórar frá Wales.
3. Sagnabálkurinn um Arthur
kbnung.
Prófessorinn mun gera sam-
anburð á þessum gömlu sögum
frá Wales og íslenzkum riddara
sögum.
hafi til
Fyrirlestrarnir verða fluttir í
I. kennslustofu háskólans, sá
fyrsti þriðjudaginn 18. septem-
ber., annar föstudaginn 21. sept.
og sá þriðji þriðjudaginn 25.
sept., allir kl. 6,15 e.h.
Öllum heimill aðgangur.
I Ranghermi leiðrétt.
I í blaðinu í gær var birtur út-
I dráttur úr fréttatilkynningu frá
I varnarliðinu á Keflavíkurvelli,
i þar sem frá því var skýrt, að her
menn þar syöra hefðu gefið blóð
i vegna móður Þorgríms Jóhanns
sonar, íslenzks manns, sem bar-
izt hefir í Kóreu. Var í þessari
fréttatilkýnningu meðal ann-
ars sagt, að konan hefði verið
skorin upp við krabbameini.
Læknir sjúklingsins hefir borið
þetta til baka og beðið blaðið
að leiðrétta þetta, þar sem far-
ið hafi verið með algerlega stað
lausa stafi um sjúkdóm sjúk-
lingsins. — Tíminn biður fyrir
sitt leyti afsökunar á birtingu
þessa ranghermis.
Útför
I Guðmundar Guðmundssonar
I fyrrum bónda að Kvisthöfða, er
; lézt í Borgarnesi, 88 ára að
aldri, fór fram að Borg á Mýr-
um í gær.
Árnað h.eil[a
Hjónaband.
í gær voru gefin saman í
hjónaband af séra Emil Björns-
syni ungfrú Katrín Guðjóns-
dóttir, Ránargötu 9A, og Bjarni
Jósefsson, verkamaður, Hring-
braut 45. Heimili þeirra verður
að Hringbraut 45.
Ennfremur voru gefin saman
í hjónaband^f séra Emil Björns
syni ungfrú Þórhildur Karls-
dóttir, Bragagötu 33A og Þor-
steinn Sigurðsson námsmaður,
Bergstaðastræti 61. Heimili
þeirra verður að Langholtsvegi
Hafnargerð í Rlfi
(Framhald af 1. slðu.)
aka öllu grjótinu út á grand-
ann, sem stendur upp úr sjó.
Samgönguerfiðleikar valda
Söndurum miklum ányggjum
um þessar mundir. Flugið eru
svo til einu öruggu samgöng-
urnar, þar sem fjörubrautin
undir Ólafsvíkurenni er ó-
fær að kalla.
Líta menn úti á nesinu von
araugum til þeirrar stundar,
er lokið verður við þann 20
km. kafla, sem ógerður er af
veginum undir jöklinum, en
þá verður bílfært vestur vet-
ur jafnt sem sumar.
Þýzkalaml
(Framhald af 8. síðu.)
enn milli fjórveldanna í því
skyni að reyna að ráða þessu
máli til lykta.
Breyting á ítölsku
samningunum.
Þá var einnig samþykkt að
verða við þeirri beiðni ítala
að gera nokkrar breytingar á
ítölsku friðarsamningunum
á þann veg, að þeim verði
gert kleift að taka fullan
þátt í varnarstarfi Vestur-
Evrópu þjóðanna.
Ráðstefna Atlanzhafsland-
anna í Ottawa hefst í dag og
er gert ráð fyrír, að hún
standi í viku.
heila j
hrif á vatnið, að það er miklu
steinefnaríkara. Útstreymi
hennar hefir leyst upp stein-
efni, sem koma með vatninu.
Vatnið verður hart sem kall-
að er, og þess vegna freyðir
sápan ekki í þvottinum.
Þegar kemba verður
sápuna úr kollinum.
Það er til dæmis ekki ráð-
legt fyrir þá, sem ætla að þvo
á sér hárið, að bera í það
mikla sápu, því að þegar þeir
ætla að fara að þvo hana úr
klessist hún í hárið og situr
föst, svo að kemba verður
hana úr aftur, ef menn vita
ekki rétt ráð.
Verður að nota sóda.
Gísli Þorkelsson efnfræð-
ingur hefir ráðlagt fólki á
þessu svæði, sem hefir verið
í vandræðum með að þvo úr
vatninu eftir Heklugosið að
nota sóda í þvottana, en við
það fellur kalkið úr og sápan
byrjar að freyöa. Hefir þetta
gefizt vel.
Þetta steinefnaríka vatn er
hvergi nærri eins ljúffengt
til drykkjar eins og vatn var
áður á þessmu slcjium og
narðara við tunguna en til
dæmis hið ferska Gvenda-
brunnavatn.
Hlutaveltu
hcldur Bræðrafélag Óháða
Fríkirkjiisafnaðarins
Sunnudaginn 23. þ. m. á Röðli. Og er því hérmeð skor
að á alla velunnara félagsins, að bregðast vinsamlega
við, og styðja að því á allann hátt að hún verði sem
glæsilegust.
Munum á hana verður veitt móttaka á Bergastaða-
stræti 3, kl. 6—8 e. m. miðvikudaginn 19. og fimmtu-
daginn 20. þ. m.
Styðjið gott málefni það borgar sig.
NEFNDIN
::
Sjúkraflug Björns
Pálssonar eykst
stöðagt
i
Björn Pálsson, flugmaður
hefir farið mjög mörg sjúkra
flug að undanförnu siðan
hann fékk hina nýju flugvél,
sem reynist í alla staði vel til
þeirra nota. Hefir Björn .lent
á fjölmörgum nýjum lending
arstöðum. Tekst honum oft-
ast að finna einhvern blett
til lendingar skammt frá
þeim stað, er sj úklingurinn
dvelur á.
í fyrradag sótti Björn síð-
ast vestur að Ólafsvík sjúkan
mann, sem unnið hafði þar
að brúarsmíði. Lenti Björn
þar á fjörusandi skammt frá 1
og tókst hið bezta. Þannig
lendir Björn á nýjum stöð-
um annan hvern dag;
ryðvarna- og ryðhre insunarefni ♦
Fyrir 8C aura getið þér varið 6 feta ryðgaða þakjárns- \
plötu gegn eyðileggingu ryðsins, — meö Ferro-Bet. — <>
Ef þér gjörið það ekki, verðið þér fljótlega aö útvega j
yður nýja þakjárnsplötu. Sú aðgjörð kostar kr. 70,00 — -
sjötíu krónur.
♦
r_. ? :
n= t
RAFKERTI
í allar tegundir bifreiða.
BRÆÐURMR ORMSSON
Vesturgötu 3.
Nýju og gömlu
dansarnlr
í G. T.-húsinu í kvöld kl. 9
Aðgangur aðeins 10 kr.
Aögöngumiðar í G. T.-húsinu kl. 6,30 -
Sími 3355
Neyzluvatnið og
Ileklngosið
(Framhald af 1. síðu.)
þvottabalanum.
Kolsýran hefir haft þau á-
Vegagerð í Laxár-
dal í S.-Þing.
í sumar hefir dálítið verið
unnið að vegagerð í Laxárdal
í Suður-Þingeyjarsýslu, enda
var það hauðsyn, þar sem
sveitin hefir verið að mestu
| vegalaus. Gamall vegur lá frá
Brúum vestan árinnar fram
í Halldórsstaði, en hann var
orðinn mjög lélegur. Þjóðveg-
urinn nær nú fram að Þverá,
og vegna þess, að þar fremra
var eini nothæfi ofaníburð-
inn í dalnum, var fyrir nokkr
um árum byrjað á vegagerð
þar fremra og haldið norður.
Er sá nýi vegur nú kominn
norður að Birningsstöðum,
en ólagður kafli þar á milli
norður að Brúum.
•.W.V.Y.V.V.V,
".V.V.V.V.V.V
»:»»»»»
.♦■v.v.v
»
::
::
»
»
♦♦
»
::
♦♦
::
::
Góð jörð til sölu \
Jörðin Skaftafeil (ISöltiitis) í Örsefiuu ;I
i
er til sölu, með húsum og öllum mannvirkjum, svo og
lifandi fé, ef óskað er. Jörðin er mjög vel hýst, íbúð- í
arhús svo til nýtt, meö öllum nútíma þægindum. Jörð-
inni fylgir eigin rafstöð. — Vatnsleiðsla og raflýsing I;
er í öllum peningshúsum.
Jörðinni fylgir stór og rekasæl fjara. 'I
Frekari upplýsingar gefur ábúandi jarðarinnar, frú
Ingigerður Þorsteinsdóttir, eða Oddur Sigurbergsson, í
kaupfélagsstjóri í Vík.
v.v.v.v.'.v/.v.v.vv.v.v.v.vv.v.’.v.v.vw.v.v.v.v!
£xmm;rHTXI*XXXTX**X~*si*X*?I*I****?TreXXXiniIIIITXIXTXXXXT*XIXXITTntIXXIIITTITnxxiI**
Sundhöil Reykjavíkur |
VERÐUR LOKUÐ í DAG OG MORGUN
vegna viðgerðar.