Tíminn - 22.09.1951, Page 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
e—--------------------------
Skrifstofur í Edduhúsi
Fréttasímar:
81302 og 8130-3
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasimi 81300
Prentsmiðjan Edda
35. árgangur.
Reykjavík, Iaugardaginn 22. september 1951.
214. blað.
Síðasti Rússinn
slapp með á-
minningu
Samkvæmt upplýsingum,
scm blaðið féltk í gærkveldi
frá Alfreð Gíslasyni, bæjar-
fógeta í Keflavík, lauk máli
síðasta rússneska síldve'ði-
skipsins, sem tekið var í land
helgi, i gærkveldi.
Bæjarfégetinn kvaðst
hafa farið með málsskjöl n
eftir hádegj í gær til dóms-
málaráðuneytisins og hefði
ráóuneytið ákveðið að höfða
ekki mál heldur sleppa skip- j
stjóra skipsins með áminn- ;
ingu en greiða verður hann
BÆNAHUSIÐ A NUPSSTAÐ
&
í; „ ■ .-"Flipl
hl / : f f,: , íl . ii
' ta ;«*■
Z
fi
Bifreið steypist út
af brúnni á Rauðalæk
Tvo niemi, sem í heimi voru, saknði ekki
Frá fréttaritara Tímans í Holtum.
Rétt cftir hádegi í gær steyptist vörubíll úr Rangárþingi
út af brúnni á Rauðalæk og féll niður í farveginn með tveim-
ur mönnum í. Var það allkátt fall, en eigi að síður siuppu
báðir mennirnir lieilir á húfi.
Bifreiðin, L-178, eign Þor-
steins Runólfssonar á Beru-
stöðum x Ásahreppi, kom
austan veginn. Var í henni
með Þorsteini Guðmundur
Hannesson á Arnkötlustöðum,
og ók hann bifreiðinni.
mennina, sem í því voru, sak
aði ekki. Annar þeirra hróml-
aöist aðeins örlítið á hendi,
en á hinum sá alls ekki neitt.
— Bifreiðin er aítur á móti
mjög sködduð.
allan sakai'kostnað.
Skipstjóri hafði ekki greitt
þann kostnað í gærkveldi, og
lá enn úti fyrir Kcflavík.
í máli skipsins, sem strauk
frá netunum hef.xr ekkcrt
gerzt. Bæjarfógetinn í Kefla
vík tók skýrslu af skipverj-
um á Andvará, sem sagði til
skipsins, en síðan var rúss-
neskum yfirvöldum tilkynnt
um netin. Á skipið þá um
það að velja að sækja netin
og ganga undir dóm eða
missa- þau að öðrum kosti.
Mál skipherrans á Tung-
us kemur fyrir í dag kl. 1
en þá flytur verjandi hans,
vörn sína.
Gert við brúna
á Fjarðará
Frá fréttaritara Tímans
Borgarfirði eystra.
Vinna er hafin við uppfyll-
ingu að Fjarðarárbrú, er
skemmdist um mánaðamótin.
Fyllt verður upp í farveg
þann, er áin gróf sunnan brú
arinnar. Er dýpt farvegarins
allt að fimm metrar og breidd
in fimmtán til tuttugu metr-
ar. —
Árni Pálsson, verkfræðing-
ur hjá vegagerðinni, kom hér
fyrir síðustu helgi, og taldi
hai'-n brúna færa öllum minni
bifreiöum, en nánari athug-
un mun fara fram á burðar-
þoli brúarinnar. — Fjarðar-
árbrú er 42 metra löng, byggð
árið 1945. —
Lokið hirðingu í
Borgarfirði eystra
Frá fréttaritara Tímans
Borgarfiröi eystra.
Síðustu þrjá daga hefir ver
ið þui'rkur og mikið náðst af
iéyjum, og munu flestir hafa
hirt upp í gær.
Heyskapur er þó enn léleg-
ur, þótt eitthvað gæt’i rætzt
úi, ef tíð verður hagstæð fram
yfjtr mánaðamótin.
Fiskilaust er hér, nema
helzt á dýpstu miðum, sem
héðan eru sótt.
Teikning cftir Þjóðverjann dr. Haye Hansen
únasteinn frá Núpssta
sendur þjóðminjasafninu
Nú fyrir nokkrum dögum voru sænskir ferðamenn staddir
að Núpsstað í Fljótshverfi, og komu þar auga á laglegan
stein við bænahúsið. Höfðu þeir ágirnd á síeininum og vildu
hafa hann með sér til Svíþjóöar.
Fallið hálfur
fimmti metri.
Er bifreiðin kom að bi'únni,
rakst hún af einhverjum á-
stæðum á handriðið og braut
það aö nokkru, en steyptist
síðan yfir það og niður í far-
veginn, og var falliö hálfur
fimmti metri.
Húsið brotnaði,
sá ekki á mönnunum.
Húsiö á bifreiöinni brotn-
aði og liðaðist sundur, en
lagðist þó ekki saman, en
Frumsýning á Lénharði
fógeta verður í kvöid
í kvöld verður frumsýning á Lénharði fógeta eftir Einar
H. Kvaran í þjóöleikhúsinu, og verður leikstjóri Ævar Kvar-
an, sem jafníramt leikur fógetann.
Hannes bóndi á Núpsstaö
og þýzki fornleifafræðingur-
inn og málarinn, dr. Haye Han
sen, sem þar var staddur og
sá, að hér var um allmerkan
grip að ræða, vildu hins veg
ar ekki, að ferðafólkið hefði
steininn á brott með sér, og
verður hann nú sendur þjóð-
minjasafninu hér.
Máðar og fornlegar rúnir.
Á steini þessum voru nefni-
lega máðar og foi'nlegar rún
ir, sem fornleifafi'æöingur-
inn gat þó ekki að svo stöddu
lesið, sökum þess hve slitnar
þær voru orðnar, auk þess
sem brotiö var af steininum.
Bænahúsið, þar sem steinn
inn var, er gamalt, og er lík-
legt, að þessi staður hafi ver
ið tengdur lcristninni í land-
inu frá elzsu timurn hennar
hér. Kann að vera. að steinn
þessi sé allmerkur, ef rúnir
þær, sem á honum eru, reyn-
ast fornar.
Aðrir leikendur verða Jón
Aöils, Þóra Borg, Valur Gísla-
son, Elin Ingvarsdóttir, Gest-
ur Pálsson, Róbert Arnfinns-
son, Valdimar Lárusson,
Yngvj Þorkelsson, Karl Sig-
urðsson, Klemenz Jónsson,
Arndis Bjöi'nsdóttir, Gerður
H. Hjörleifsdóttir, Lúðvík
Hjaltason, Haraldur Adolfs-
son, Guðmundur Pálsson og
Loftur Magnússon.
160 sýningar áður.
Lénharður fógeti var fyrst
sýndur af Leikfélagi Reykja-
víkur um jólin 1913. Upp úr
því var leikurinn sýndur tutt
ugu sinnum í Reykjavík. —
1918—1919 var hann sýndur
tólf sinnum í Reykjavik. Enn
var hann tekinn til sýningar
hér 1929—1930 og 1943—1944.
Auk þessa hefir hann verið
sýndur á Akureyri þrívegis,
tvisvar á Akranesi, á ísafirði,
Sauðárkróki, Dalvík, Siglu-
firði, Vestmannaeyjum, Eyr-
arbakka, í Hrunamanna-
hreppi og Winnipeg. — Alls
eru sýningar á Lénharði fó-
geta orðnar 160, áður en þjóð
leikhúsið byrjar nú að sýna
leikinn.
Ibúðarhús flutt 35 km
30 hindranir á veginum
Á miðvikudagskvöldið var
Iagt af stað frá Ósabakka á
Skciðum með einkcnnileg-
an flulning — sem sé sex-
tíu fermetra timburhús með
risi. Var ferðinni heitið um
þrjátíu og fimm kílómetra
leið að Selfossi. Hafði Sig-
urjón Jóhannsson, bifvéla-
virki á Selfossí, keypt húsið
af Sveini Gestssyni á Ósa-
bakka, er nú hefir reist sér
nýtt ibúðarhús.
Við flutninginn var margt
manna, og er gert ráð fyrir,
að hann hafi kostað um átta
þúsund krónur. Var verið í
7—8 klukkusíundir með hús
ið í sjálfum flutningnum,
en á leiðinni voru eigi færri
en þrjátíu hindranir af
ýrasu tagi — þröngar brýr,
þar sem lyfta varð húsinu
yfir handriðin, símalínur og
rafmagnslínur, sem varð að
taka niður, og fleira, er til
trafala var. Voru bæði raf-
virkjar og símamenn í för-
inni. —
Nú verður húsinu komið
fyrir á nýjum grunni að
Selfossi. —
Varð undir g'ang-
stéttarhciSn og
niciddist
Urn klukkan 1,30 í gær vildi
svo til ,að drengur, sem var
á gangi fyrir utan húsið
Bankastræti 12, varð undir
gangstéttarhellu með fótinn
og meíddist. Hellan hafði ris
ið á rönd við húsvegginn og
féll á fót drengsins. Var
hann fluttur á Landsspitala
og kom i ljós, að hann var
tábrotinn. Eftir læknisaðgerð
var hann fluttur heim. Dreng
urinn heitir Bragi Gai'ðars-
son, Lönguhlíð 23.
Ellefu farast í
járnbrautarslysi
í Bretfandi
Hraðlestin frá Liverpool til
London fór í gærmorgun út
af sporinu i Mið-Englandi og
valt niður sex metra háá
brekku. Ellefu menn létu lífið
en rúmlega fimmtíu meidd-
ust svo mikiö, að flytja varð
þá i sjúkrahús. Sumir þeirra
eru mjög alvarlega meiddir og
jafnvel í líl'shættu.
Rússneski síldar-
flotinn í miðjura
Faxaflóa
Meginhluti rússneska sild
veiðiflotans hér við suðvest-
urlandið er nú kominn inn
í miðjan Faxaflóa, og máttl
gerla sjá skipin úr landi af
Suðurnesjum í gær eða jafn
vel af Seltjarnamesi. Halda
skipin sig þar skammt fyrir
utan landhelgi. Það er þó að
sjálfsögðu allt annað en
fagnaðarefni fyrir síldveiði-
sjómenn að hafa svo stóran
flota í nábýli á miðunum
enda nógu þröngt fyrir.
Ágengni rússneska veiði
flotans cr okkur íslending-
um að mörgu leyti holl lexía,
og vonandi vakna menn til
raunhæfari aðgerða í land-
helgismálum. Þessi ágengni
sýnir að menn geta ekki einu
sinni vænzt þess, að stórþjóð
eins og Rússar vilji hlíta
þeim reglum, sem þeir setja
öðrum þjóðum og ætla öðr-
um þjóðum minni rétt en
sér sjálfum, þar sem þeir
verja með oddi og egg 12
mílna landhelgi sína en geta
ekkj séð okkar þriggja mílna
landhelgi i friði. Þetta sýnir
einnig, að verði grunnmiðin
ekkj tryggð íslenzkum fiski-
mönnum og síldveiðiskipum,
getur svo farið að þeim verði
jafnvel bolað burt af sínu
eigin landgrunni af stórflot-
um erlendra þjóða.