Tíminn - 22.09.1951, Síða 2
2
TÍMTNN. laugardaginn 22. september 1951.
214.' blað.
kafi til héiía
Messur á morqun
Útvarpíð
Útvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,30 Útvarpstríóið: Einleik-
ur og tríó. 20,45 Leikrit: „Brúð-
kaupssjóðurinn", gamanleikur
eftir Peter Egge. Leikstjóri:
Brynjólfur Jóhannesson. 22,00
Fréttir og veðurfregnir. 22,10
Danslög (plötur). 24,00 Dagskrár
lok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 11,00 Messa i Dómkirkjunni
(séra Óskar J. Þorláksson). 18,30
Barnatími (Baldur Pálmason).
20,20 Einsöngur: Stefán Islandi
óperusöngvari syngur. 20,50 Er-
indi: Frá Noregi, siðara erindi
(Steindór Steindórsson mennta
skólakennari). 21,20 Sinfóníu-
hljómsveitin; Albert Klahn
stjórnar. 21,45 Erindi: Um feg-
urð íslenzkrar tungu (Sigurður
Skúlason magister). 22,00 Frétt
ir og veðurfregnir. 22,05 Danslög
(plötur). 23,30 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Ms. Hvassafell er væntanlegt
til Reykjavíkur í kvöld frá Borg
arnesi. Ms. Arnarfell lestar salt
fisk fyrir Suð- og Vesturlandi.
Ms. Jökulfell er í Guayaquil.
Ríkisskip:
Hekla var á Akureyri í gær-
kveldi á vesturlið. Esja er í Rvík
og fer þaðan á mánudaginn aust
ur um land í hringferð. Herðu-
breið fer frá Reykjavík í kvöld
til Vestfjarða. Skjaldbreið er á
Skagafirði á leið til Akureyrar.
Þyrill var i Hvalfirði í gærkveldi.
Ármann fór frá Reykjavík í
gærkveldi til Vestmannaeyja.
Eimskip:
Brúarfoss kom til Reykjavík-
ur 18. 9. frá Antverpen. Detti-
foss r í Hull, fer þaðan til Lond-
on, Boulogne, Antverpen, Ham-
borgar og Rotterdam. Goðafoss
fór frá Gautaborg 18. 9., vænt
anlegur til Reykjavíkur á morg
un 22. 9. Gullfoss fer frá Kaup-
mannahöfn á hádegi í dag 22.
9. til Leith og Reykjavíkur. Lag
arfoss er í New York, fer þaðan
væntanlega 26. 9. til Reykjavík
ur. Reykjafoss fór frá Sete í
Suður-Frakklandi 20. 9. til Dor-
dreiht í Hollandi. Selfoss er í
Reykjavík. Tröllafoss kom til
Reykjavíkur 18. 9. frá Halifax.
Flugferdir
Flugfélag fslands.
Innanlandsflug: í dag er á-
ætlað að fljúga til Akureyrar
(2 ferðir), Vestmannaeyja,
Blönduóss, Sauðárkróks, Isa-
fjarðar, Egilsstaða og Siglufjarð
ar. Á morgun eru ráðgerðar flug
ferðir til Akureyrar og Vest-
mannaeyja. — Millilandaflug:
Gullfaxi fór í morgun til Kaup
mannahafnar og er væntanleg-
ur aftur til Reykjavíkur kl. 18,15
á morgun.
Loftleiðir.
1 dag er ráðgert að fljúga til
ísafjarðar og Akureyrar. Á morg
un verður flogið tii Akureyrar.
Árnað heilia
Hjúskapur.
í dag verða gefin saman í
hjónaband af séra Emil Björns
syni ungfrú Hallfríður Stefáns
dóttir, Stórholti 43, og Helgi
Sesselíusson prentari, Óðinsgötu
4. Heimili þeirra verður að Stór
holti 43. — Ennfremur ungfrú
Sigríður Þórunn Jónsdóttir og
Guðmundur Böðvarsson, Urðar
stíg 11.
Óháði fríkirkjusöfnuðurinn.
Messa í Aðventkirkjunni kl.
tvö eftir hádegi á morgun. Séra
Emil Björnsson.
Laugarneskirkja.
Messa klukkan ellefu fyrir há-
degi á morgun. Séra Garðar
Svavarsson.
Ðómkirkjan.
Messa klukkan ellefu á morg
un. Séra Óskar J. Þorláksson.
Hallgrímskirkja.
Messa klukkan ellefu á morg
un. Séra Jakob Jónsson. Ræðu-
efni: Kærleiksskuldin.
Nesprestakall.
Messa í Fossvogskirkju klukk
an tvö á morgun. Séra Jón Thor
arensen.
Úr ýmsum áttum
Fimmtugsafmæli
átti í fyrradag Jóhann Eiríks
son, fyrrum bóndi á Þönglaskála
við Hofsós. Var gestkvæmt á
heimili hans á afmæli hans.
Einkaskóli í teikn-
un tekur til starfa
Þýzkur fornleifafræðingur
og málari, dr. Haye Hansen
að nafni, hefir dvalizt hér á
landi um þriggja ára skeið
og ferðazt mikið um lanlið og
málað. Hefir hann tekið ást-
fóstri við íslenzka náttúru og
hefir í hyggju að dveljast hér
á landi enn um nokkurt skeið.
Dr. Hansen hefir á veturna
stundað hér kennslu í teikn
un og listmálun, og ætlar nú
um mánaðamótin að opna
einkaskóla í þessum greinum,
vegna áskorana frá ýmsum
aðilum, sem kynnzt hafa hand
bragði hans og tilsögn.
Verður skólinn til húsa í
Borgartúni 7 og starfar í
tveimur deildum — fyrir börn
á tímanum kl. 5—7 og eldri
kl. 8—10 að kvöldinu. Kennslu
gjaldið verður 20 krónur fyrir
kennslustundina.
Þessi þýzki listamaður hef
ir málað margar eftirtektar-
verðar myndir af íslenzku
landslagi, staðháttum og
byggingum. Hefir hann í
úyggju að efna til sýningar
á þessum verkum í Þjóðminja
safninu innan skamms.
Skoðanakönnun
virðist brezkum í-
haldsmönnum
hagstæð
Skoðanakannanir í Bret-
landi virðast benda til þess,
að íhaldsflokkurinn muni
sigra í kosningunum og hafa
20% meira atkvæðamagn en
verkamannaflokkurinn. Slík-
ar skoðanakannanir hafa áð
ur sýnt yfirburði íhaldsflokks
ins fyrir kosningar, þótt önn
ur hafi orðið raunin í kosn-
ingunum sjálfum.
Miðstjórnir verkamanna-
flokksins og frjálslynda flokks
ins héldu fundi í gær, og mið
stjórn íhaldsflokksins heldur
fund í dag.
Gráni úr Bárðardal
kominn suður
yfir fjöll
Það stóð ekkj lengi á því,
að fregnir bærust af því, hvar
steingrái hesturinn úr Bárð-
ardal, sem sagt var frá í Tím
anum í fyrradag, er niður
kominn. Fréttaritari Tímans
á Selfossi skýrði blaðinu svo
frá, að hann hefði komið
fram í Tungnaréttum og væri
nú geymdur í Vatnsleysu í
Biskupstungum. Hefir Gráni
því lagt á öræfin og haft sig
suður yfir í áttina til heim-
kynnanna.
Tveir ungir lista-
menn efna til
sýningar
í dag opna tveir ungir lista
menn sýningu á verkum sín
um í Listvinasalnum við
Freyjugötu. Eru það þeir Bene
dikt Gunnarsson frá Akra-
nesi, 22 ára, og Eiríkur Smith
úr Hafnarfirði, 26 ára. Þessir
ungu listamenn hafa um skeið
dvalið vð nám erlendis og
hyggjast í vetur að hverfa aft
ur til dvalar í París, ef sýning
in fær góðar undirtektir. Hafa
þessir ungu listamenn ekki
fjármunj þessa heims, nema
af skornum skammti, en
treysta á guð og lukkuna og
eru ákveðnir að halda áfram
á listabrautinni.
Fyrstu myndlistarmenntun
sína fengu þeir i Handíðaskól
anum og útskrifuðust þaðan
fyrir nokkrum árum. Síðan
dvöldu þeir í tvö ár við mynd
listarnám í skóla danska lista
safnsins í Kaupmannahöfn. í
fyrravetur lvöldu þeir svo við
framhaldsnám í París, en
þóttj dvölin þar alltof stutt
og þrá aftur að komast til
þeirrar heimsborgar listanna
til að menntast og þroskast
á sviði myndlistarinnar.
Þessir ungu listamenn eru
áræðnir og duglegir. Þannig
lögðu þeir í vor upp í langt
og fróðlegt ferðalag félitlir,
en komust þó heilu og höldnu
leiðar sinnar. Fóru þeir suður
allan Spán og yfir sundið til
Afríku.
Myndirnar, sem þeir Eirík
ur og Benedikt sýna í List-
vinasalnum, eru um 40 tals-
fyrravetur dvöldu þeir svo við
vatnslitamyndjr.
Það er óhætt að hvetja fólk,
sem áhuga hefir fyrir listum,
að skoða verk þessara ungu
manna, því myndirnar þeirra
eru talsvert frábrugðnar því,
sem fólk hefir átt að venjast
á sýningum hér.
Sýningin verður aðeins op-
in til fimmtudagskvölds, þar
sem á laugarlag verður opn-
uð önnur sýning í Listvina-
salnum. Aðgangurinn kostar
fimm krónur, en er ókeypis
fyrir styrktarmeðlimi List-
vinasalarins.
Dilkakjöt
Alikálfakjöt
Liindi
Rjiipur
Lax
Mysuostur
30% ostur
40% ostur
Smjör
Snijörlíki
Kokossnijör Kiikufeiti
Heildsölukirgðir hjá:
HERÐUBREIÐ
Sími 2678
o
o
< >
o
o
O
o
O
'»
< I
o
O
o
o
o
o
o
O
O
O
o
o
o
O
O
O
o
O
o
NÝKOMNAR
1» Hinar margeftirspurðu og þekktu HOLLAND ELECTRO < >
i , ryksugur. (►
K. Þorsteinsson & J. Sigfússon, s.f. •
(, Aðalstræti 16. — Sími 7273. T
o (Gengið inn frá bílastæðinu). 2
V.V.W.'.V.V.VAV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.'.V.V.V.V.V.'J
Duglegur matsveinn \
óskast, sem fyrst til að veita mötuneyti fyrir 130 manns
forstöðu. Vinnuskilyrði ágæt og 1. flokks rafmagns- 2«
vélar í eldhúsi. Ráðningartími rúmt ár. — Upplýsingar I;
síma Neðra-Sogi. !■
!■■■■■■!
I J ■ _■ ■ ■_■ • ■ I
>■■■■■ I
n
::
Tilkynning frá Húsmæðra-
skóla Reykjavíkur
Kvöldnámskeið í matreiðslu byrja 1. okt. Kennari verð
ur frk. Vilborg Björnsdóttir, húsmæðrakennari.
Skriflegar umsóknir þarf að senda til forstöðukonu
skólans. — Skrifstofa skólans er opin alla virka daga
nema laugardaga frá kl. 1—2 síðdegis. Sími 1578.
1
1
::
::
::
WAV/.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V
HOLLENSKT
\ BÚÐINGSDU FT, \
S í
■; Eftirtaldar tegundir af búðingsdufti nýkomnar: j.
í HOWIG’S :■
:■
Romm, Vanilla, Hindberja, ■■
■: í
:: joii> hioir’s, ::
*: ■:
Súkkufaði, Huttcrschoteli, Ávaxta :>
Eggert Kristjánsson & Co. h.f. •:
V.V.
Útför dóttur minnar
INGIBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 25. september
kl. 1,30 e. h.
Athöfninni verður útvarpað.
Helga Finnsdóttir