Tíminn - 26.09.1951, Qupperneq 2
2.
TÍMINN, miðvikudaginn 26 september 1951.
217. blað.
jtá kafi til
Utvarpib
Útvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.30 Útvarpssagan: „Upp við
Fossa“ eftir Þorgils gjallanda;
XIII. (Helgi Hjörvar). 21.00 Tón
leikar: Lög eftir Þórarinn Jóns-
son (plötur). 21.15 Dagskrá
Menningar- og minningarsjóðs
kvenna. 21.45 Tónleikar (pöt-
ur). 22.00 Fréttir og veðurfregn
ir. 22.10 Danslög (plötur). 22.30
Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.30 Einsöngur: Pierre Bernac
syngur lög eftir Duparc og
Poulenc (plötur). 20.45 Erindi:
Fjárskipti og samgöngubætur
(Gísli Kristjánsson ritstjóri).
21.05 Tónleikar (plötur). 21.15
Frá útlöndum (Jón Magnússon
fréttastjóri). 21.30 Sinfónískir
tónleikar (plötur). 22.00 Frétt-
ir og veðurfregnir. 22.10 Framh.
sinfónísku tónleikanna. 22.35
Dagskrárlok.
Hvar eni skipin?
Eimskip:
Brúarfoss kom til Reykjavík-
ur 18.9. frá Antwerpen. Detti-
foss kom til London 22.9., fer
þaðan væntanlega í dag 25.9. til
Boulogne, Antwerpen, Hamborg
ar og Rotterdam. Goðafoss kom
til Reykjavíkur 22.9. frá Gauta-
» borg. Gullfoss fór frá Leith 24.9.
til Reykjavíkur. Lagarfoss er í
New York, fer þaðan væntan-
lega 26.9. til Reykjavíkur.
Reykjafoss fór framhjá Gibralt
ar 23.9. á leið til Dordrecht í
Hollandi. Selfo^s er í Reykja-
vík. Tröllafoss fer frá Reykja-
vík kl. 24.00 í kvöld 25.9. til New
York. Roskva fór frá Antwerp-
en 24.9. til Gautaborgar og
Reykjavíkur.
Ríkisskip:
Hekla er í Reykjavík. Esja er
á Austfjörðum á norðurleið.
Herðubreið er í Reykjavík. Þyr
ill er á Austfjörðum á suður-
leið. Ármann fer frá Reykjavík
í dág til Vestmannaeyja. Skjald
breið er væntanleg til Reykja-
víkur seint í kvöld eða nótt að
vestan og norðan.
Flngferðir
Loftleiðir:
í dag verður flogið til ísa-
fjarðar, Akureyrar, Siglufjarð-
ar og Sauðárkróks. Á morgun
er áætlað að fljúga til ísafjarð
ar og Akureyrar.
Flugfélag íslands:
Innanlandsflug: í dag er ráð
gert að fljúga til Akureyrar (2
ferðir, Vestmannaeyja, Hellis-
sands, ísafjarðar, Hólmavikur
og Siglufjarðar. Á morgun er á-
ætlað að fljúga til Akureyrar
(2 ferðir), Vestmannaeyja, Ól-
afsfjarðar, Reyðarfjarðar, Fá-
skrúðsfjarðar, Blönduóss, Sauð-
árkróks og Siglufjarðar.
Millilandaflug: Gullfaxi kom
frá London í gærkveldi.
Úr ýrnsum áttum
Haustfermingarbörn,
í Hallgrímssókn eru vinsam-
legast beðin að koma til viðtals
í kirkjuna á morgun, fimmtu-
dag. Fermingarbörn séra Jakobs
Jónssonar kl. 4 e.h. og ferming-
arbörn séra Sigurjóns Þ. Árna-
sonar kl. 5 e.h.
f sunnudagsblaði
Timans urðu þau mistök, að
mynd af Ævari Kvaran í leik-
búningi var birt yfir frásögn af
því, er Stefán íslandi fór með
hlutverk hertogans í Rígóle'ttó
í 100. sinn. Myndamót þetta var
seint á laugardagskvöldið sent
Tímanum af Þjóðleikhúsinu fyr
ir meðalgöngu prentmyndagerð
ar þeirrar, sem Þjóðleikhúsið
skiptir við. — Tíminn biður af-
sökunar á þessum mistökum
fyrir sitt leyti.
Óskar bréfaviðskipta.
Ungur Þjóðverji, sem annast
erlendar bréfaskriftir í skrif-
stofum stórrar verksmiðju í
Vestur-Þýzkalandi, óskar eftir
bréfaskriftum við íslending,
einna helzt búsettan í Reykja-
vík. Þjóðverji þessi hefir áður
nokkur kynni af íslandi, og geta
bréfaskiptin átt sér stað á
dönsku, þýzku eða ensku, eftir
því sem óskað er. Meðal áhuga-
mála hans er saga, íslenzkar
bókmenntir, landafræði, þjóð-
lög, list, norræn málfræði og
trúarbrögð. En allt, sem snert-
ir stjórnmál frábiður hann sér
umræður um. Hann tekur það
einnig fram, að hann vilji ekki
skrifast á- við stúlku. Utaná-
skrift hans er: Heinz Ortwein,
(22 a) Duisburg-Wanheimerort,
Reschenstrasse 19, part., West-
Deutschland.
Skólamót Í.F.R.N.
Skólamót íþróttabandalags
ramhaldsskóla í Reykjavík og
nágrenni í frjálsum íþróttum,
fer fram á íþróttavellinum dag-
ana 5. og 6. okt.
I Keppt verður í eftirtöldum
greinum: 100 m hl., 400 m.
hl., 1500 m. hl., 110 m. gr.hl.,
! 4x100 og 1000 m. boðhl., kringlu
. kasti, spjótkasti, kúluvarpi,
stangarstökki, hástökki, lang-
J stökki.
j í kvennagreinum, sem verða
á mótinu verður keppt í: 100 m.
hl., langstökki, kúluvarpi og 4x
j 100 m. boðhl.
| Mótið er fram eins og lög í.F.
R.N. gera ráð fyrir. Þátttökutil-
kynningar skulu sendar Inga
Þorsteinssyni Faxaskjóli 24
' (sími 80969) fyrir 3. okt.
l.M.
I.O.G.T. 100 ára.
Eins og kunnugt er átti Góð-
templarareglan 100 ára afmæli
á þessu ári. í tilefni af því verð
ur efnt til samsætis í Góðtempl
arahúsinu n.k. föstudagskvöld
kl. 8,30. Þar flytur ræðu fyrir
minni reglunnar Kristinn Stef-
ánsson stórtemplar, og ávarp
umboðsmaður hátemplars á ís-
landi, Jón Árnason prentari,
Sigrííjur Sæland flytur ræðu
fyrir minni Islands og Indriði
Indriðason segir frá för sinni
til Vesturheims á 100 ára há-
tíðahöld reglunnar þar í sum-
ar. Ennfremur flytur Emilía
I Jónasdóttir leikkona skemmti-
þátt og Guðmunda Elíasdóttír
óperusöngkona syngur einsöng
með undirleik Fritz Weisshapp-
el, að því búnu verður dansað.
Ljósavél
32 volta, 1000 vatta, ásamt
fimm lampa „Philips" við-
tæki, fyrir sama straum, er
.til sölu á Núpum í Ölfusi. —
*Nánari upplýsingar hjá Karli
Jónassyni, Selfossi.
TENGILL H.F.
HeiSi viB Kleppsvej
Sími 80 694
annast hverskonar ranagn
Ir og viðgerðir svo sem: VerJ
smiðjulagnlr, húsalagnlr
skipalagnir ásamt viðgerðuir
->g uppsetningu & mótorum
ontgentækjum og heimllls
téluru.
Kabarett sjómanna-
dagsins hefst á
«
mánudaginn
Næstkomandi fimmtudag 27.
þ.m. fer fram knattspyrnu-
j keppni á íþróttavellinum í
Reykjavík og rennur allur ágóð-
i inn til byggingarsjóðs dvalar-
| heimilis aldraðra sjómanna.
Keppa þar hið fræga knatt-
spyrnulið m.s. Gullfoss við úr-
valslið knattspyrnumanna frá
Hafnarfirði. Dómari verður Sig
urjón Jónsson formaður Félags
j árniðnaðarmanna.
Kabarett sjómannadagsins
hefst n.k. mánudag, og verður
frumsýningin kl. 9. Síðan verð-
ur á hverju kvöldi til 15. okt.
tvær sýningar, kl. 19.00 og kl.
23.15, auk þess sem einni sýn-
ingu verður bætt við á laugar-
dögum og sunnudögum.
Ákveðið hefir verið að kynnir
á kabarettnum verði Pétur Pét-
ursson útvarpsþulur og svo mun
hljómsveit Kristjáns Kristjáns-
sonar leika á milli atriða, svo
og aðstoða fjöllistamennina.
Fólk ætti að athuga, að fjöl-
listamennirnir eru hér aðeins
skamma stund, og er ekki rétt
að draga til síðustu stundar að
sjá listamennina, því reynzlan
frá síðasta sjómannakabaretti
vai'ð sú, að fjöldi manns komst
ekki að, þar sem fjöllistarmenn
irnir þurftu að fara á ákveðnum
degi.
Smíðum
eldhúsinnréttingar og alls
konar húsgögn:
Borff
stóla
bókahillur
stofuskápa
Sængurfataskápa
skrifborð o. fl.
fyrirlyggjandi
lEúsgagna-
viniiiistofan
Austurvegi 40 — Selfossi
Sími 38
1851
I.O.G.T.
1951
Samsæti
í tilefni af 100 ára afmæli Góðtemplarareglunnar verð-
ur í G. T.-húsinu n. k. föstudag 28. september og hefst
kl. 8,30 e. h. stundvíslega.
1. Samkoman sett, Róbert Þoi'björnsson.
2. Minni Reglunnar, séra Kristinn Stefánsson stór-
templar.
3. Tvöfaldur kvartett syngur.
4. Minni íslands, frú Sigríður Sæland.
5. Ávarp, Jón Árnason, Umboðsmaður Hátemplars.
6. Frá hátíðahöidunum í Bandaríkjunum, Indriði
Indriðason.
7. Skemmtiþáttur, frú Emilía Jónasdóttir leikkona.
8. Einsöngur, Guðmúnda Elíasdóttir óperusöngkona,
undirleik annast Fritz Weisshappei.
9. DANS.
Almennur söngur milli atriða undir stjórn Friðriks
Hjartar skólastjóra. Samsætisstjóri frú Sigþrúður
Pétursdóttir Stórvaratemplar.
Aðgöngumiðar vrða afhentir á morgun, fimmtudag,
í G. T.-húsinu frá kl. 5 til 7 e. h.
Undirbúningsnefndin
roai»m;iinaiaiu»a;i!iim}i:iii»aia«iiiii;iainn;inim«nwiam»
Ármann
fer frá Reykjavík í dag til
Vestmannaeyja. Vörumóttaka
til Vestmannaeyja alla virka
daga.
MERKJASOLUDAGUR
Menningar og minningarsjóðs kvenna
er á morgun. Sjóðurinn hefir starfað í 6 ár og hafa ||
verið veitt úr honum röskar 85 þús. krónur til efni- H
legra lista- og menntakvenna. Kvenréttindafélag Is-
lands skorar á konur að styðja gott málefni með því »
að hjálpa til við merkjasöluna. Merkin verða afhent
á skrifstofu félagsins Skálholtsstíg 7 frá kl. 9,30. »
STJÓRNIN ||
Vatnsveitupípur frá Póilandi
Þau bæjarfélög og aðrir, sem ætla að kaupa vatns-
veitupípur á næsta ári eru beðnir að hafa tal af okkur
sem fyrst.
SINDRI H.F
Jarðarför föður okkar,
JÓNS sigurðssnar,
frá Minni-Völlum,
fer fram laugardaginn 29. þ.m. og hefst með húskveðju
að Stórholti 23 kl. 8,30 f. h. Jarðsett verður að Skarði
á Landi, kl. 14 sama dag.
Blóm og kransar afbeðið. — Þeir, sem vildu minnast
hans, eru beðnir að láta Barnaspítalasjóð Hringsins
njóta þess. —
Börn hins Iátna.
Hjartans þakkir til allra, er auðsýndu okkur samúð
og vinsemd við andlát og útför
RICÍIARDS KRISTMUNDSSONAR
læknis
Sérstaklega þökkuni við starfsfólki og sjúklingum
á Kristneshæli og sendum þeim ásamt öðrum vinum
og velunnurum okkar beztu kveðjur.
Elísabet Jónsdóttir og börn.
Auglýsingasími Tímans 81300
GERIST ASKRIFEMHR AÐ
IÍMANUM. - ÁSKRFFTASÍMI 3323.