Tíminn - 26.09.1951, Blaðsíða 3

Tíminn - 26.09.1951, Blaðsíða 3
213. blaff. . t?,0 « n -t O í; *j L' /'* /Yf i >,T TÍMINN, miðvikudaginn 26 septehibiei? 1951. Um kirkjudag Eftir sr. Halldór Jónsson frá Reynivölliim I. í sunnudagsblaði Tímans, 16. þ. m., er ritgerð eftir séra Árelíus Níelsson á Eyrar- bakka, sem hann nefnir Kirkjudagur. En þar hvetur hann söfnuði l&ndsins til að helga kirkju sinni, hverri um sig auðvitað, einn dag á ári hverju til að sameinast um að prýða hana og umhverfi hennar með litlu fjárfram- lagi frá hverjum einstökum, eða til þess að gleðja ein- hvern, sem söfnuðurinn veit bágstaddan eða gleðivana og með því að f jölmenna til kirkj unnar þennan dag til guðs- þjónustu-halds. Um leið legg ur hann ríka áherzlu á, að allir viðstaddir taki þátt í söngnum og hvern helgan dag, og hvetur alla til að gera það. Leyfi ég mér að ráða fólki til að lesa þessa fallegu rit- gerð séra Árelíusar, sem ber fagurt vitni um lifandi áhuga hans fyrir eflingu kirkju og trúarlífsins í landinu. Og eigi sízt vil ég þakka honum fyrir, hve drengilegt liff hann legg- ur þar hinum almenna safn- aðarsöng. í áminnstri grein getur séra Árelíus þess, að sumir söfnuð ir hafi tekið upp þann sið, að helga kirkju sinni einn dag árlega með sérstökum hætti. í þessu sambandi má minna á það, að nýlega var stofnað til kirkjudags hér í Reykja- vík til ágóða fyrir byggingu nýrrar kirkju meðal annars og til að treysta safnaðar- starfið. Stóð til að hafa úti- guðsþjónustu þann dag, en veöurs vegna var horfið frá þeirri ákvörðun að því sinni. Á fleiri vegu var reynt að vinna fyrir þetta málefni og vekja áhuga fyrir því nauð- synjamáli og hefir það efa- laust borið einhvern árangur. Þetta sýnir lofsverðan áhuga préstsins, séra Emils Björns- sonar og safnaðar hans og mætti vissulega vera öðrum prestum og söfnuðum til um hugsunar og eftirbreytni. Þó veður hafi hamlað í þetta sinn, að framfylgt yrði áætl- un til fulls, er þess að vona og vænta, að betur takist til næst. Og ef þessi siður yrði almennt upptekinn, sem ósk- andi væri, mundi hann á- samt öðru líklegur til þess að minna á kirkjurnar, aff þær eru til, og skyldu safnaðanna til þess að sýna þeim meiri sóma, en verið hefir fram til þessa. Ber því af alhug að fagna, hvar sem einhvers á- huga verður vart í þá átt að hlynna að kirkjunum með ást og umhyggju og að efling hins kirkjulega og kristilega starfs. Er þess sízt vanþörf í öllu því hörmulega tómlæti, sem of víða á heima í þessum málefnum og um kristnina í okkar landi. í II. En vel á minnzt. Hér hefir verið rætt um Kirkjudag. En er í eðli sínu Kijrkjudagur og í sérstökum skilningi hver helgur dagur. sem presti safn aðarins ber að messa og því verður við komið? Með þeim hætti gera söfnuðurnir hvern helgan dag minnilegan að þeir fjölmenni til kirknanna svo sem auðið er, að svo miklu leyti sem fólksástæður leyfa á hinum einstöku heimilum; ennfremur með þeim hætti, að helzt allir, allir, sem geta, taki þátt í söng safnaffarins, hver með sinni rödd, hverjum einstökum til gleði og hugg- unar og Guði til dýrðar. Tel ég fullvíst, að með auk inni rækt af hálfu safnaðanna við kirkjurnar sjálfar og hina opinberu guðsþjónustugerð al mennt séð, mundi úr mörgum meinum bætt í þjóðlífi voru og má benda á, að slíkt yrði líklegt til að eyða kala, úlfúð og sundurlyndi, þar sem söfn uðirnir væru samtaka í að unna og hlynna að þeim mál- efnum, sem mestri blessun eiga að valda, þar sem menn eru samtaka um að virða orðiff, hiff heilaga orð, orð hans og sjálfan hann, sem varð hold og bjó og býr með oss, fullur náðar og sann- leika. Heill sé hverjum þeim, sem gæddur eldi áhugans þreytist ekki í að vísa veginn til hans, sem einn getur úr öllum mein um bætt og einn getur vísað veginn til hins fyrirheitna lands dag frá degi og þegar komið er að leiðarlokum hins jarðneska lífs. Og leiðarlokin geta fyrir hvern mann að höndum borið, jafnt í æsku, á fulltíða aldri og í elli. III. Hér í höfuðborginni, þar sem flest fólk er saman komið og maður býr að kalla má við manns hlið, ætti að vera auð- veldast að koma Kirkjudegi í líkingu við það, sem séra Árelíus bendir á, og í öðrum söfnuðum, þar sem fjölmenni er mest. Einn söfnuður hér í höfuðborginni, auk þess, sem að var vikið, vantar enn kirkju og hefir svo verið eitt- hvað á annan áratug. Og þar sem kirkjur eru til, má sýna’ þeim sérstakan sóma af hálfu safnaðanna með ýmsum hætti Almennur Kirkjudagur einu sinni á ári hverju ætti að hjálpa til þess að koma kirkju upp, þar sem hana enn vant- ar og til að vekja áhuga safn aðanna fyrir safnaðarstarfinu einnig aðra helgidaga ársins, meðal annars með aukinni kirkjusókn. Naumast er það vansalaust, að eigi sé húsfyllir við iaverja guðsþjónustu hér í höfuðborg inni, þar sem eigi þar verður neins staðar borið við teljandi fjarlægðum. Þó allar væru kii-kjurnar fullskipaðar i hvert sinn, væri það aðeins brot af söfnuðunum, sem hlýddi messu í hvert eitt sinn, í stað þess, að aðeins fáar sálir að tiltölu eru þar saman komnar hvert sinn, og jafn- vel margsinnis sárafáar. Ætti nú ekki í þessum efn- um að verða þáttaskil og byrj un nýs lífs, er beri vitni um nýjan og lifandi áhuga fyrir því málefni, sem mestu varðar til heilla vorri þjóð og honum, sem einn getur úr öllum mein um bætt. Munum öll, að enginn getur annan grundvöll lagt en þann, sem lagður er, Drottinn Jesús Kristur. frelsari og endur- lausnari allra manna. Honum einum ber vegsemd, lofgerð og trúnaðartraust. 18. 9. 1951. Utan úr heimi Hættulegt fyrir starfsfólkiff. Nýtt sigursælt knattspyrnufélag Þróttur sigraði í liaustmóti 4. flokks Dilkakjöt Alikálfakjöt Liutdi Rjiipur Lax Kokossmjör Mysuostur 30% ostur 40% ostur Smjör Suijörlíki Kökufeiti Heildsölubirgðir hjá HERÐUBREIÐ Minkapelsar í hættu. í fyrra var stolið í Bretlandi pelsum að verðmæti 200,000 pundum, og það lítur helzt út fyrir að pelsa-þjófar líti ekki við öðru en minkaskinnum. Vá tryggingarfélagið Loyds hefir þess vegna hækkað vátrygg- ingargjöldin fyrir minkaskinn um 5%, en engar breyt- ingar hafa orðið á öðrum pelsa tegundum. Scotland Yard álít- ur að þjófarnir hafi skrár yfir allar þær konur, sem sýna sig á minkapelsum. ★ Dýrir fílar. Frá því er skýrt í New York, að nú sé tími til að setja há- marksverð á fila. Fíll frá Afríku kostar í dag um 100,000 krónur, sem er um helmingi meira en var fyrir 10 árum. Einnig hefir verð á öðrum dýr um hækkað mikið. Hvítir nas hyrningar, ef hægt er að út- vega þá, kosta um 250,000 krón ur, flóðhest er hægt að kaupa fyrir 75 þús. krónur, og gíraff- ar kosta um 70 þús. krónur. En ef þú vilt eignast tígrísdýr verður þú að greiða fyrir það um 50 þús. krónur. En dýrastur er þó björn frá Himalaja, sem hækkaði mjög í verði, þegar kommúnistarn- ir í Kina bönnuðu útflutning á þessari sjaldgæfu dýrateg- und. Fyrir stríð kostaði björn- inn um 90 þús. krónur, en síð- an hefir verðið þrefaldazt. Konungur dýranna, ljónið, hefir aftur á móti lækkað mjög í verði. Fallegan ljónsunga er nú hægt að á fyrir 2500 krón- ur. ★ Tvisvar ekkja vegna eldingar. Frú Mayme frá Laporte í Indiana-fylki, varð fyrir stuttu síðan ekkja í annað skipti. Báðir menn hennar létust, er eldingu sló niður. Fyrri maður hennar, Walter James, lézt, er eldingu sló niður, er hann var við vinnu í búgarði sínum í Kalamazoo og var það árið 1945. Seinni maður hennar lézt, er elding hitti hann, er hann stundaði fiskveiðar við Hudsonflóa, og skeði það fyrst í þessum mánuði. ★ Knattspyrnusaga. Allir þekkja getu Arsenal í enskri knattspyrnu. í leik, sem liðið lék í fyrra, kom hin fræga enska þoka og læddist grá og þykk yfir völlinn. Hver á fæt- ur öðrum hurfu leikmennirnir augum áhorfenda. Dómarinn stöðvaði leikinn og allir yfir- gáfu völlinn — nema mark- maður Arsenal, sem gleymdist. Eftir drykklanga stund kemur vallarvörðurinn út úr þokunni og finnur markmanninn á verði í markinu. Það er aldeil- is að liðið okkar sækir núna, segir markmaðurinn, ég hef ekki séð votta fyrir þeim síð- asta hálftímann! Sigurvegarar Þróttar í 4. flokki. Efri röð taliff frá vinstri: Gunnar Eydal, þjálfari, Jón Pétursson, Birgir Björgvinsson, Páll Pétursson, Eðvar Geirsson, Kristján Guðmundsson, Ein- ar Erlendsson, og Halldór Sigurffsson, formaffur Þróttar. — Neffri röð: Halldór Halldórsson, Haraldur Baldvinsson, Guð- jón Odsson, Ægir Benediktsson og Helgi Árnason. Hið nýja knattspyrnufélag hér í Reykjavík, Þróttur, er samanstendur mest af íbúum Grímsstaðaholts og Skerja- fjarðar, sigraði í haustmóti 4. flokks, drengja 12 ára og yngri, og er það fyrsta knatt- spyrnumótið, sem Þróttur vinnur. Fimm félög tóku þátt í mótinu, og vann Þróttur þrjú, KR, Fram og Víking, en gerði jafntefli við Val. Urðu félögin -því að keppa aftur og sigraði Þróttur þá með 3—2, eftir óvenju skemmtileg an leik, þar sem hinir litlu drengir sýndu mikinn skiln- ing á knattspyrnunni. Þrótt- ur skoraði 17 mörk, en fékk fjögur. Þetta er mjög glæsileg frammistaða hjá hinu unga félagi, og það sem meira er vert, að þeir hafa gert rétt með því að byggja upp félagið á yngri flokkunum, og eitt er víst, að ef þessir drengir halda áfram að æfa knatt- spyrnu, þarf Þróttur ekki að kvíða framtíðinni, og félagið getur innan fárra ára mætt til keppni í meistaraflokki. Tíminn óskar félaginu til hamingju ineð sigurinn. WAY.WVV.V.V.V.V.V.’.V.V.VAY.V.V.VAW.V.V.V.V VANDLÁTAR húsmæður biðja um hið bragðgóða og ljúffenga l FLÖRUSMJÖRLÍKI j :■ £aiml>ah4i Ut. Aatnfimlifelacja ij VWV.V.V.V.VV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VV.V.W.VAV í Bandaríkjunum hefir ver- ið fundið upp tæki, sem gerir forstjórum kleift að fylgjast með afköstum starfsfólksins, þó að þeir snúi baki að því. Tækið er líkt venjulegum for- stjórasímum, sem notaðir eru á hinum stærri skrifstofum.' f tækið er sett fjarsýnisrör, | og þegar forstjóranum finnst þörf að fylgjast með starfs- j fólki sínu, getur hann stillt tækið á hin ýmsu herbergi, og fylgzt með vinnunni. Ekki er þess getið í fréttinni, hyort tækið sé vinsælt hjá starfsfólkinu. Frestið ekki lengur, að gerast Vtbreiðið Tímanii Auglýsið í Tímannm áskrifendur TÍMANS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.