Tíminn - 31.10.1951, Blaðsíða 6

Tíminn - 31.10.1951, Blaðsíða 6
iiniiniimiiiiuiiii.nttiiiMiiiiiiiiimiiiiiitiii'niiiiiiiinnuiiiiiiiiiiiinnnnnnnnimiiiiniiiiiiuiniiiiiinMiiimimiiimiiiiiimiiminimiiiiiiniiiiimiimiiiiniiiiiin nnliumiiiliniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiuiiiliiiiiimiiiiiiiiiiiiiimmilinimiimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiininiltHimiimimnmmnimiiiliiiiiiiinmiliiiiiiiiimiiimiiiiiniiiiiniii mnmimtiiiiimiiiiimmimmiiimiiiiiimimmiiimmiimuiiimmiiimmmmiiiiimmiummimmuum TÍMINrv, miðvikudaginn 31. október 1951. 246. blað íjisltáon íiiYiin Aukamynd, TÖFRAFLASKAN látbrosSsIcikur Sýnd kl. 5, 7 og 9. rrrllllllllllt - .1111 iiimiiiii 11111111111111111111111111111111111 iimmiimi - NÝJA BÍÓ ( Það skeSur margt í i Ceníral Park (Up in Central Park) Bráðskemmtileg ný amerísk j músíkmynd. . j Aðalhlutverk: Deanna Durbin Dick Haymes Vincent Price Sýnd kl. 5, 7 og 9. j BÆJARBIO) - HAFNARFIRDI - Winchester 73 1 Mjög spennandi ný amerísk I stórmynd um harðvítuga bar 1 áttu upp á líf og dauða. James Stewart, | Shelley Winters, Dan Duryea. Sýnd kl. 7 og 9. < i Mimlð að greiða Maðgjalðið Útvarps viðgerðir Radiovixmusfofan LAUGAVEG 166 Bergur Jónsson Málaflutningsskrifstofa Laugaveg 65. Sími 5833 Heima: Vitastíg 14 di*tuAjusr£So£tjjAjLaA míu. tíeSlaJO \ &Cta/eUíXfid % uiiiiiiujiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiuiim .iiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimmmmiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiii | Austurbæjarbíó | | Stolnar liamingustundir |_______Sýnd ki. 7 og 9._____ i Trigger yngri | 1 Sýnd kl. 3 og 5. 1 Sala hefst kl. 11 f.h. j TJARNARBÍÓ |Bom verður pabbi! (Pappa Bom ! Sprenghlægileg ný sænsk i gamanmynd. i Aðalalhlutverk: Hinn óvið- !jafnlegi Nils Poppe j skemmtilegri en nokkru sinni i fyrr. Sýnd kl. 5, 7 og 9. GAMLA BÍÓ Johnny Eayer Framúrskarandi spennandi i og vel leikin amerísk „gangst í er“-mynd. Robert Taylor, Lana Turner, Van Heflin. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð innan 16 ára HAFNARBÍÓj Saya t reyyjja kvenna (Tvo kvinner) i Spennandi og sérkennileg ný i i sænsk kvikmynd um furðuleg i i örlög tveggja ólikra kvenna. i Eva Dalhbeck, Ceile Ossfahr, Gunnar Björnstrand. Bönnuð innan 16 ára Sýnd kl. 5, 7 og 9. TRIPOLI-BÍÓ San Francisco i Hin fræga sígilda Metro i Goldvvin Mayer-kvikmynd, i og einhver vinsælasta mynd, j sem hér hefir verið sýnd. i Aðalhlutverk: Clark Gable Jeannette Mac Donald Spéncer Tracy Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnúð innaii 12 ára. Auglýsingasími T í M A X S cr 81 300. tlm mánaðamótin (Framhald af 5. síðu.) alþýðustéttirnar taka völdin í sínar hendur og skapa sér aðstöðu til að fara sem mest með verzlunina. Erlendir atburðir. í alþjóðamálum má telja úrslit brezku þingkosning- inganna mestu tíðindin í mán., sem er að líða. Úrslitin urðu þau, sem búist var við, að íhaldsmenn báru sigur úr býtum. Sigur sinn eiga þeir sennilega mest að þakka þeirri venju brezkra kjósenda, að skipta um stjórnarforustu með hæfilegu millibili. Ósig- ur Verkamannaflokksins varð stórum minni en almennt hafði verið spáð. Veldur sennilega mestu um það, að kjósendur hafa talið hann vænlegri til að afstýra styrj- öld. Sá ótti er nokkuö almenn ur í Bretlandi, að Churchill sé ekki nógu gætinn í utan- ríkismálum. Vonandi reynist sá ótti Þó ástæðulaus og munu margir telja það aukna trygg- ingu þess, að Eden fer með utanríkismálin í hinni nýju stjórn. Á þessu stigi er ann- ars erfitt að spá því, hvað leiða kunni af stjórnarskipt- unum í Bretlandi, þar sem óséð er, hvernig hin nýja stjórn hyggst að taka á mál- unum. Eftir því fer það, hve örlagarík þessi stjórnarskipti kunna að reynast. Margir og miklir örðugleik- ar bíða hinnar nýju stjórnar Churchills bæði innanlands og utan. í utanríkismálum veldur afstaða Egipta Bretum nú mestum erfiðleikum, og geta deilur þeirra haft viðtæk ar afleiðingar, einkum ef Egyptum tekst að fá önnur Arabaríki til’ stuðnings við sig. Tilkall Eg-ypta til Súd- ans veldur þeim þó nokkrum erfiðleikum í því sambandi. Hinsvegar virðast nú horfur á, að lausn oliudeilunnar í Iran sé ekki langt undan vegna milligöngu Bandaríkj- anna. í kalda stríðinu milli aust- ur og vesturs hefir það helst gerst, aö kommúnistar hafa fallist á að hefja aftur vopnahlésviðræður í Kóreu eftir að hafa tafið þær um tveggja mánaða skeið. Þeir féllust á að hefja þær aftur eftir að sýnt var, að þeir gátu veldur afstaða Egypta Bretum ar til neinnar undanlátssemi með töfinni. Ekki þykir lík- legt, að samningar um vopna hlé takist fyrst um sinn, þótt viðræður séu hafnar að nýju. Kommúnistar munu halda á- fram þófinu meðan þeir telja sér nokkra von um, að það geti leitt til tilslökunar hjá hinum aðilanum. Orðrómur gengur um það, að Rússar hyggj á nýja friðar sókn, þar sem þeir hafa farið heldur hallloka í kalda stríð- inu að undanförnu, og muni þeir jafnvel bjóða til nýrra stórveldaráðstefnu. Sennilega kemur þaö í Ijós á þingi Sam \ einuðu þjóðanna, sem er nú í þann veginn að hefjast, hvaö hæft er í þessum orðrómi. Sigge Stark: I leynum skógarins 37 (ELDURINN1 : gerir ekki boð á undan sér. | í Þeir, sem eru hyggnir, f tryggja strax hjá | Samvinnutryggingum | iiiiiiiJiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin HIIBI ím WÓDLEIKHÚSID »» D Ó R I “ Sýning: Miðvikudag kl. 20,00. Lénharður fógeti Aukasýning fimmtudag kl. 20,00 Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 13,15 til 20,00. Kaffipantanir í miðasölu. — Hvenær farið þið heim aftur? spurði Andrés. Irma skildi, hvaö hann var að fara. — Á morgun, sagði hún. Það liggur ekki á fyrr. Fyrst hann er ekki strokinn, fer hann ekki að hlaupa burtu nú. — Getur þú ekki verið nokkrum dögum lengur? Ég fer heim með hinum stúlkunum og tala við Nóreníus og kem síðan aftur. — Hvers vegna ætti ég að verða eftir? — Það væri svo góð átylla fyrir mig að koma aftur, án þess að það vekti nokkra tortryggni. Irma laut höfði. — Ef þú getur haft gagn af því, að_ég sé hér dálítið leng- ur.... — Og þú hefir opin augu og eyru, hélt hann áfram. — En gætir þess þess að loka munninum, bætti hann við. IX. Andrés njósnar Morgunlnn eftir fór Andrés heim með Irenu, Emmu og Tildu. Þau höfðu kynstrin öll af berjum meðferðis. Hann hafði fengið lánaðan hest og vagn hjá Jóni, svo að þau þyrftu ekki að bíða eftir vagni frá Holti, er væntanlegur var síðari hluta dagsins. Þau mættu honum á leiðinni, og þá fluttu stúlkurnar sig yfir í hann, því að hann var þægi- legri en vagn Jóns í Norðurseli. írena lét sér það lynda. Annars var hún ekki ánægð með skógarferðina. Irma hafði verið allt of umsvifamikil eins og hennar var vandi, og Andrés, sem taldi sig bera ábyrgð á þeim systrunum báð- um, hafði litinn tíma haft aflögu til þess að skemmta írenu. Á heimleiðinni var Andrés líka mjög fámáll, og írena fór að hugsa sem svo, að hann væri ekki eins skemmti- legur og henni hafði fyrst þótt. Hann var meira að segja hálf-leiðinlegur þegar til lengdar lét. Seint um kvöldið kom Andrés til baka upp brekkurnar hjá Norðurseli. Það var kyrrt og hljótt við bæina og dimmt í öllum gluggum. Það var einnig mjög dimmt úti. En Andrés var búinn að aka í gegnum skóginn, þar sem enn var dimm- ara en.á bersvæði, og augu hans voru vön myrkrinu. Hann þurfti því ekki að kveikja á lukt sinni, er hann spennti hestinn frá vagninum og tók af honum aktygin. í jötu hans voru bæöi hafrar og hey, og í horni bássins var vatn í fötu. Andrés batt hestinn við stallinn, hengdi upp aktygin og lét fótapokann í vagninn. Síðan ætlaðj hann að halda heim að Garði. Hann hætti samt við það í bili. Þetta var laugardagskvöld, og honum flaug í hug aö leggja lykku á leið sína og skreppa að Mýri fyrst, og vita ,hvort nokkuð bæri þar til tíðinda þessa sunnudagsnóttina. j En þegar hann gekk yfir hlaðiö, varð hann var við ein- hverja hreyfingu við húshornið. Þetta var Irma. Hann sá hana bera við vegginn, og yfir henni sogaðist ljóst glugga- tjald út um opinn glugga. — Andrés! kallaði hún lágt. — Það er gott, að þú ert á fótum enn, svaraði hann og gekk til hennar. Það er dálítið, sem ég vil segja þér, svo að þaö komi þér ekki á óvart. Sýslumaðurinn kemur hingað snemma í fyrramálið til þess að handtaka Friðrik í Efra- Ási. , — Vesalings fólkið, stundi hún. ! — Já. Hann hefir komizt að ýmsu til viðbótar því, sem áður hefir komið fram. Hann hefir alltaf tortryggt Friðrik, og hann sagði, að allir hér hefðu haldið, að Friðrik hefði verið úti í skógi í fyrradag. En í þess stað var hann hjá lækni langt í burtu og lét 'tina mikið af höglum úr skrokkn- um á sér. En hraustur hlýtur hann að vera. Flestir aðrir hefðu legið heima og látiö lækninn koma til sín. | — Það er kannske óttinn, sem hefir gefiö honum þrek til þess, sagði Irma. Vesalings Friðrik! Mér hefir aldrei getizt að honum, heldur verið hálfhrædd við hann, þó að hann hafi aldrei gert mér mein. En nú vorkenni ég honum. — Hugsaðu um Eirík — og Jón og Maju. — Það geri ég líka. En að vera hundeltur svona.... — Farðu nú að sofa, sagði Andrés í svipuðum tón og hann talaði við barn. Vertu ekki að hugsa um þetta, svo að þú verðir ekki andvaka. Ég kem í fyrramálið og sæki þig, og svo förum við út í skóg og reynum að gleyma öllu leiðin- legu og mótdrægu. Irma hefði gjarnan viljað, aö hann staldraði lengur við, í«A'.tí*L IOj •ta fia.'rf! Aiiúíl ,£óíhi uól .*í;jlób

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.