Tíminn - 06.03.1952, Síða 2
2.
TÍMINN, fimmtudaginn G. marz 1952.
54. bla&
■q
Friðlýst svæði í Sognhlíð í Nor-
egi verður paradís fugla og dýra
Fram að þessu hafa Norð-
menn ekki átt neinn þjóðgarð
eða friðlýst svæði, eins og hinar
Norðulandaþjóðirnar eiga og
iumar þeirra mörg. Til dæmis
aiga Svíar fimm stór, friðlýst
svæði.
En nú verður úr þessu bætt í
Moregi, og er fyrirhugað, að hið
friðlýsta svæði verði í Sognhlíð
. Suður-Þrændalögum, og voru
taup á þessu landi samþykkt
einróma í stórþinginu. Land
petta var áður eign veiðifélags.
áændi að hirtina.
Aðeins mjög lítill hluti lands-
;.ns er ræktað, um þriðjungur
larr- og laufskógur, en hitt mýr
tr, vötn og lítt gróið land.
En í Sognhlíð er stór hjartar
aofn. Fyrir sextíu árum sáust
3ar aðeins fáeinir hirtir á reiki,
m maður, sem þá eignaðist land
ð, lét ryðja bletti í skóginum
)g sá þar korni handa hjörtun-
ím, byggði opnar hlöður, er
iafnað var í heyi handa þeim
,il vetrarins og lét leggja vatns
eiðslur og gera vatnsþrær
íanda þeim.
Hirtirnir hændust að, og þeim
tjölgaði óðum. í einum dal voru
:i00 hirtir á haustin. Fyrir styrj
jldina var stærsti hjartastofn
andsnis í Sognhlíð.
indaeldi.
Þessi maður lagði einnig mikla
iherzlu á það að hæna endur
ið vatninu, vernda hreiöur
peirra og unga, og einnig þar
3ar starf hans árangur. Öndun
un fjölgaði, svo að vatnið er
iumarheimkynni margbreyti-
! egra andategunda.
Ágæt skilyrði til rannsókna.
, Dýrafræðingar telja, að í
Sognhlíð §é hin ákjósanlegasta
aðstaða til rannsókna og athug
ana á lífi og háttum fugla og
ýmsra dýra. Að vísu hefir ekki
j hin síðustu ár verið haldið á-
fram við að búa í haginn fyrir
fugla og dýr, gæzla hefir verið
léleg og leyniskyttur hafa verið
skæðar hjörtum og fuglum. En
verði nú komið á strangri frið
un, vænta Norðmenn, að skjótt
verði breyting á, og fugla- og
dýralifið blómgist á ný, þótt til-
tölulega sé nú mikið af flestum
tegundum.
Landið verður alfriðað.
Alfriðun verður komið á,
nema náttúrufræðingum kann
að verða leyft að skjóta einn og
einn fugl, og það eru þegar uppi
hugmyndir um ýmsar tilraunir
í því skyni að stuðla að aukinni
fjölgun, til dæmis hjarta, héra,
skógarfugla, rjúpna og anda.
Meðal annars verður lögð á-
herzla á að sá þar til ýmsra
jurta, sem veita fuglum og dýr
um fæðu og skýli gegn óvinum,
og verður ef til vill stofnsett
föst tilraunastöð á þessu sviði í
Sognhlíð, þar sem ungir menn,
er vinna vilja að náttúruvernd
og öðru slíku sæki námskeiö.
j Ósnortið land.
Á hinn bóginn verður svo eitt-
hvað af þessu svæði varðveitt
sem ósnortið land, þar sem allt
ber þann svip, er náttúran sjálf
skapar, þar sem mannshöndin
kemur hvérgi nærri. Það vill
líka svo til, að stór svæði í Sogn
hlíð hafa um langt skeið aldrei
verið nytjuð mönnum, svo að
þau bera sinn upprunalega svip.
Ótti, sem var
ástæðulaus
Grafarinn í þorpinu Margret-
hausen við Stuttgart var að taka
gröf í kirkjugarðinum. Heyrði
hann þá greinilega högg frá
næstu gröf. Voru högg þessi end
utekin með jöfnu millibili.
Grafarinn varð skelkaður, og
bæjarstjórinn var kallaður á
vettvang. Hann heyrði einnig
höggin mjög greinilega. Komst
nú allt í uppnám í þorpinu, því
að fregnin flaug eins og eldur
í sinu. Höggin hlutu að stafa frá
konu á níræðisaldri, er þarna
hafði verið jörðuð fyrir fáum
dögum.
Lögreglumenn voru nú kvadd
ir til, og þá kom fljótt í ljós,
hvernig í þessu lá. Konan var
dáin, eins og vera bar. Frosin
mold var að þiðna, og féllu mold
arkögglar við og við niður á
j kistulokið. Moldinni hafði ekki
verið þjappað nógu vendilega, er
mokað var í gröfina.
Marglitu skyrturn-
ar
Útvarpið
Ötvarpið í dag:
Kl. 8,00 Morgunútvarp. — 9,10
'/eðurfregnir. 12,10—13,15 Hádeg
sutvarp. 15,30—16,30 Miðdegis-
itvarp. 18,25 Veðurfregnir. 18,30
Dönskukennsla; II. fl. — 19,00
Snskukennsla; I. fl. 19,25 Tón-
eikar: Danslög (plötur). 19,40
Lesin dagskrá næstu viku. 19,45
Auglýsingar. 20,00 Fréttir. 20,20
islenzkt mál (Björn Sigfússon
aáskólabókavörður). 20,35 Tón-
eikar (piötur). 21,00 Skólaþátt-
rrinn (Helgi Þorláksson kenn-
;iri). 21,25 Einsöngur: -Erling
Krogh syngur (plötur). 21,45
Samtalsþáttur: Daði Hjörvar tal
ír við Albert Guðmundsson
knattspyrnukappa. 22,00 Fréttir
)g veðurfregnir. 22,10 Passíu-
salmur (22). 22,20 Sinfónískir
.ónleikar (plötur). 23,15 Dag-
nkrárlok.
Ötvarpið.
Kl. 8,00 Morgunútvarp. — 9,10
Veðurfregnir. 12,10—13,15 Hádeg
sútvarp. 15,30—16,30 Miðdegis-
itvarp. 18,15 Framburðar-
rennsla í dönsku. 18,25 Veður-
regnir. 18,30 íslenzkukennsla;
fl. 19,00 Þýzkukennsla; II. fl.
19,25 Tónleikar: Harmonikulög
plötur). 19,45 Auglýsingar. 20,00
Fréttir. 20,30 Kvöldvaka: a) Séra
Óskar J. Þorláksson flytur er-
ndi: Siglufjörður að sumri og
/etri. b) Karlakórinn Vísir á
Siglufirði syngur; Þormóður
Eyjólfsson stjórnar (plötur). c)
Upplestur: Kvæði eftir Kristján
Jónsson. d) Aðalbjörn Arngríms
son frá Þórshöfn flytur frásögu
þátt: Hvammsundrin. 22,00
Fréttir og veðurfregnir. — 22,10
Passíusálmur (23). 22,20 „Ferðin
til Eldorado“, saga eftir Earl
Derr Biggers (Andrés Kristjáns
son blaðam.) — XX. 22,40 Tón-
leikar: Marek Weber og hljóm-
sveit hans leika (plötur’). 23,10
Dagskrárlok.
CHICAGO Á
GLÆPAMETIÐ
Chicago á enn metið sem glæpa
mannabær. Skýx-slur lögreglunn
ar þar sýna, að árið 1951 var
stolið þar verðmætum, sem
nema rösklega 21 milljón doll-
ara. Þar er glæpur framinn ní-
undu hverja mínútu.
Smyglarar á
nærbuxunum
Snjórinn á landamærum
Þýzkalands og Niðurlanda hefir
valdið smyglurunum óþægind-
um. Tollverðir og landamæra-
lögreglan eiga auðveldara með
að sjá til ferða þeirra. Tóku
smyglararnir þá upp á því að
fara úr utanyfirfötunum, og ætl
uðu að læðast yfir landamærin
í nærfötunum. Eix samt sem áð-
ur voru þeir teknir höndum, og
voru reknir skjálfandi af kulda
í fangelsið í Vals.
Klæðaburður þeirra vakti
mikla kæti.
Samkvæmt bandarískum
skýrslum hafa á síðustu misser-
| um orðið ekki færri en 112 hjóna
j skilnaðir, 81 taugaflog og 22
önnur minni áföll í Bandaríkj-
unum af völdum hinna marglitu
skyrtna, sem nú eru þar í tízku.
Fjöldi kvenna getur ekki af-
borið þessa skæru og æpandi
liti.
Nýjasta dæmið um þær ógnir,
sem af þessum skyrtum stafa,
segir í erlendum fréttum af
þessu, er mál, sem nú er fyrir
x-étti. Yfirforingi einn í hernum
var ákærður fyrir manndráp.
En hann sagðist hafa álitið, að
hann væri að skjóta á fasan.
Það sé ekki unnt að greina sund
ur fasana og menn í þessum
marglitu skyrtum.
2 miljónir ítala
í hellum
Það er talið, að nú búi tvær
milljónir ítala í hellum og jarð-
hýsum og undir bogum gamalla
vatnsleiðslna. Um 130 þúsund
búa í neðanjarðarklefum og hell
um í sjálfum borgunum.
^VAV.V.V.V/AV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.W
? i
■: SKAGFIRiÐINGAFELAGIÐ I REYKJAVIK.
Ádalskem.m.tun.
félagsins vei-ður haldin í Tjarnarcafé laugardaginn 8.
marz klukkan 8,30.
TIL SKEMMTUNAR VERÐUR: V
Söngur — Gamanvísur
Upplestur — Dans. jj
Aðgöngumiðar verða seldir í Söluturninum við
Hverfisgötu á fimmtudag. íj
Skagfirðingar, fjölmennið.
V.VA
AVAVAVAVAV,
AVAV.V.VAVAVAVA
5
Trésmiðafélag Reykjavíkur \
heldur aðalfund laugardaginn 8. marz í Breiðfirð- í
ingabúð kl. 2 e. h. I;
Dagskrá fundarins: íj
Venjuleg aðalfundarstörf. ■;
Stjórnin \
VAVAVAVAVAVAVAVAVAVAVAVAVAV.V.VAV)
Vegna jarðarfarar
< > verður skrifstofum vorum og heildsölu lokað allan dag-
inn á morgun (föstudag 7. marz).
Sláturfélag Siiðurlands
Miljónir fyrir
alisilung
Síðastliðið ár fluttu Danir út
silung fyrir þrjár milljónir
danskra króna. Meginhluti þessa
útflutnings mun vera silungur,
sem alinn hefir verið í tjörn-
um.
ÞRUMA
ÚR HEIÐSKÍRU LOFTI.
Blaðamaður í Kaupmanna-
höfn var við vinnu sína í skrif
stofunni, og það hringdi til
hans maður, sem nafngreindi
sig, og sagðist vera að drepa
sig á eitri. Og blaðamaðurinn
hringdi óðar til læknis, sem
fór á vetfvang með blaðamann
inum. Þeir fundu manninn,
sein ætlaði að fremja sjálfs-
morðið, og eitrinu var dælt
upp úr honum.
Blaðamanninum varð svo
mikið um þetta, að hann,
gleymdi að segja frá því.
tfuglijAi! í Tíntahum
Jarðarfarar- og minningarathöfn um þá
Benedikt Kristjánsson
Marvin Ágústsson,
Erlend Pálmason,
Guðmund Kr. Gestsson,
Vernharð Eggertsson,
Sigurð Gunnar Gunnlaugsson, og
Guðmund Sigurðsson,
sem fórust með m.s. Eyfirðingi við Orkneyjar, mánu-
daginn 11. febrúar, fer fram frá Dómkirkjunni fimmtu-
daginn 6. marz kl. 14,30. Húskveðjuathöfn hefzt frá
heimili Benedikts Kristjánssonar, Skipasundi 19, kl. 13,
30. — Athöfninni í kirkjunni verður útvarpaö.
Fyrir hönd aðstandenda
Njáll Gunnlaugsson.
Fundur í Fél. Fram-
sóknarkvenna
í
Félag Framsóknarkvenna í
Reykjavík heldur fund í Aðal-
stræti 12 í kvöld, og hefst hann
klukkan hálf-níu.
Rætt verður um iðnaðarmál,
og er Rannveig Þorsteinsdóttir
málshefjandi. Síðan verður
sögð ferðasaga og sýndar
skuggamyndir.
*
Nýr Islendingur bæt
ist í varnarliðið
Þorvaldur Friðriksson, son-
ur Friðriks Þorvaldssonar frá
Borgarnesi, kom heim frá
Bandaríkjunum í gærmorg-
un. Tekur Þorvaldur nú við
störfum í varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli.— Eins og
kunnugt er af fyrri frásögn-
Pineau tekur að sér
stjórnarmyndun
Pineau skýrði Frakklands-
forseta frá því í gær, að hann
tæki að sér að reyna stjórn-
armyndun og mundi leita
trausts þingsins til þess. í gær
ræddi hann við foringja jafn-
aðarmanna en talið er að
hann hafi ekki fengið öruggt
fylgi þeirra. Talð er þó, að
hann mun fá samþykki þings-
ins til stjórnarmyndunar <-n
hætt við, að honum gangi
illa að mynda stjórn, sem hafi
traust þingfylgi. Þingflokkur
De Gaulle hélt fund í gær og
er ekki enn vitað um afstöðu
hans.
um blaðsins, var Þorvaldur
í Bandaríkjaher undir fána
Sameinuðu þjóðanna i Kóreu
og gat sér þar framúrskar-
andi orð fyrir dugnað og
hraustlega framgöngu.