Tíminn - 10.07.1952, Side 3
152. bJað.
TÍMINN, fimmtudagrinn 10. júlí 1952.
S.
I sléndingaþættir
Helgi Benediktsson:
Dánarminning: Bergþóra DaVíðsdóttir
Póstsjóðþurðin í Vestmannaeyjum
Hver vi§8 kasta fyrsta sfeiiiinum?
Það var haustið 1929, sem
lei'ðir okkar Bergþóru lágu
saman. Við vorum þá ungling
ar, á leiö til Laugaskóla. Esia
var að koma að vestan, á
hverri höfn stækkaði hópur -
inn. Á Borðeyri kom ég á. skips
fjöl. Þar hitti ég fyrst vin
minn Guðmund Inga og Torfa
Einarsson. Á Blönduósi bætt-
ust í hópinn „Húnaflóa hrund
ir þrjár“, „þær Hulla, Júdda,
Imma“.
Á Akureyri hittum við Berg
þóru. Vakti hún strax athygli
okkar fyrir glæsiieik sinn og
þroska, enda tók hún þá brátt
forustuna í hópi kvennanna,
sem hún hélt siðar í skólan-
um ailan veturinn.
Flestir, sem þekkja til á
Laugum, telja að þessi vetur
hafi verið sá bezti, sem skól-
ínn hafi starfað. Nemendur
og kennarar skólans munu
seint gleyma þessum vetri.
Stúlkunum var stýrt frá
„Niðarósi“, þar sem Bergþóra
bjó, og piltunum frá „Sigtún-
um“, en þar bjó Guðmundur
Ingi. Þau voru sjálfkjörnir
leiðtogar í skólalífinu, þótt
margir ættu þar góðan hlut.
Á þessum vetri urðu flestir
skáldmæltir í skólanum. Það
var ort við öll tækifæri. Þeir,
sem áttu afmæli, fengu kvæði,
sumir heilar rímur, svo sem
Konráð Erlendsson kennari
(„Konræða" 45 vísur).
Þegar skólablaðið hóf göngu
sína, var sent út ljóöabréf.
Þar var þettá m. a.:
Bergþóru ég biðja vil,
bónin sú er fögur.
Mér að gera skálöleg skil
og skrifa góöar sögur.
Þessi kveðja var send frá
Sigtúnum til Niðaróss:
Öll er hugsun okkar ljós,
efnið verður nóg í hrós. j
Ef við hefðum eina ros, j
yrði hún send á Niðarós. j
Um vorið skildust leiðir á
ný. Fyrir margan var sú stund
erfið. |
Fyrsta sunnudag í sumri
fylgdum við, sem síðar fórum,
stórum hóp úr skólanum, m.a.'
j
Bergþóru, á brún Fljótsheið-'
ar. Þá var þetta ort og sungið
að skilnaði:
Æskan hló á brekku brún,
brosti snjór og grjót.
Yfir Einarsstöðum
urðu vegamót.
Vor í hug, vor í hönd, vor í
hverri sál.
Sólarylur, sunnudagur, sumar
mál.
Bcrgpóra var fædd 22. ces-
ember 1909 á Stóru-Hámund-
arstöðum á Árskógsströnd
dóttir Davíðs Sigurðssonar og
Maríu Jónsdóttur. Hún gift-
ist 1932 Þorgeiri Sveinbjörns-
syni íþróttakennara á Laug-
um og voru þau þar við skól-
ann til 1944, er hann var skip-
aður forstjóri við Sundhöll
Reykjavíkur. Þau eignuðust
þrjú börn, tvö eru á lífi, María
Halldóra 11 ára og Þorgeir 18
ára. Bergþóra lézt 4. þ. m.
í dag kveðja Laugamenn
þig, Bergþóra, og munu minn
ast þín og þess vetrar, sem þú
tókst þá'tt í aö skapa okkur
öllum.
Hjálmtýr Pétursson.
Blööin Varðberg og Mánu-
dagsblaðið, sem Jóhann Þ.
Jósefsson og Gunnar A. Páls-
son eru taldir standa að, öðr-
um þræði, hafa undanfarið
verið að geypa um sjóðþurð
hjá Pósthúsinu í Vestmanna-
eyjum, og gert lævíslegar til-
raunir til þess að láta liggja
að því, að Helgi Benediktsson
og Sparisjóður Vestmanna-
eyja séu við sjóðþurðina riðn-
ir.
Helgi Sæmundsson, blaða-
maður hjá Alþýðublaðinu, er
látinn stílfæra illmælgina í
Varðbergi, með Ásbjart bróð-
ur sinn, meðdómara Gunnars
A. Pálssonar, og Pál Þorbjarn-
arson sem heimildarmenn, en
andi Jóhanns Þ. Jósefssonar
svífur yfir sannleiksvötnun-
um, svo Gunnar Einarsson
getur verið sæll í sínu hjarta
yfir því að kosta slíka sagna-
ritun.
Þaö hefir aldrei þótt drengi
legt að hrinda hinum hrap-
andi, enda ekki í samræmi við
íslenzkan hugsunarhátt. En
eins og málum er nú komið,
verður ekki hjá því komist að
leiðrétta rangan söguburð
framangreindra aðilj a.
Það hefir árum saman
verið á vitund póststjórnar-
innar, að fjárreiður pósthúss-
ins í Vestmannaeyjum væru
ekki í lagi. Björn Ólafsson
póstmálaráðherra lýsti því yf
ir í viðtali við undirritaðann
26. apríl, að sér hefði fyrir
tveimur árum verið tilkynnt
um fjárþurð hjá pósthúsinu í
Vestmannaeyjum. Ráðherr-
ann hefði þá viljaö skipta um
mann, en féð verið talið end-
urgreitt, svo ekki hefði orðið
úr mannaskiptum, en viðkom
andi póstmaður var þá einka
umboðsmaður J. Þ. J. í Eyjum.
Um líkt leyti lét póstmála-
stjórnin 20 menn í Eyjum á-
byrgjast fjárskil póstaf-
greiðslumannsins, og er það
nú upplýst í sambandi við
innheimtu ábyrgða þessara,
að þessarar ábyrgðar var kraf
ist til tryggingar fjárþurð sem
þá var orðin til.
Þá hefir hinn reglusami1
endurskoðandi ríkisstjórnar-1
innar, Frgnz Andersen, sem
átti mj ög innangengt á póst- j
húsinu meðan hann dvaldi í
Eyjum, sagt frá því, að hann
hafi fyrir ca. tveimur árum'
sannreynt um 170 þúsundaj
sjóðþurð hjá umræddu póst-i
húsi, án þess að gera húsbænd |
um sínum aðvart, en þó er
það fullvíst, að Gunnari Páls- j
syni hefir verið þetta allt full
kunnugt.
Tilefni árásanna á Helga
Benediktsson er það, að þeg-
ar póststjórnin lét fram-,
kvæma endurskoðun hjá póst!
afgreiðslunni í Eyjúm í marzj
s.l., þá hafði Sparisjóður Vest;
mannaeyja keypt ávísanir af
pósthúsinu á bankareikning
pósthússins, en áður en ávís-
unum þessurn varð framvís-
að, þá hafði póstmálastjórn-
in tæmt umræddan banka-
reikning og látið loka honum
samkvæmt umsögn póstaf-
greiðslumannsins, og varð
nokkur dráttur á, að póst-
stjórnin greiddi ávísanir þess
ar, og var gerð tilraun til þess
af Gunnari Þorsteinssyni fyrr
verandi bæjarfógeta að koma
þeirri sögu á loft, að spari-
sjóðsstjórnin eða Sveinn Guö-
mundsson, starfandi stjórn-
arformaður, hefðu keypt ávís
anirnar. En póstafgreiðslu-
maðurinn kveður sig undir á-
hrifum víns. hafa sagt Gunn-
ari þessum, að hann hafi feng
ið peninga hjá Sparisjóðnum,
og að framangreindu tilefni
(Framhald á 5. siðu.)
Bókamarkaðurinn
hefir verið haldinn
vítt um landið
Bókamarkaður hinna fimm
bókaútgáfufélaga, fsafoldar,
Helgafells, Draupnis- og Iðunn
arútgáfunnar, Pálma H. Jóns-
sonar og Hlaðbúðar, hefir nú ver
ið haldinn víða á landinu. Sala
á bókunum hefir verið nokkuð
mismunandi; en fólk hefir
kynnt sér hvaða bækur hafa
veri ðá boðstulum. Margar af
bókunum, sem á bókamarkal-
inum eru, eru gefnar út áður en
hin gífurlega verðhækkun varð
á þeim, en þessar eldri bækur
hafa ekki fengizt í bókaverzlun-
um, því flestar þeirra hafa ver-
ið kallaðar inn, til að rýma fyrir
hinym nýrri, og fólk því ekki
átt kost á að kynna sér þær,
oöruvísi en á bókamarkaði, sem
(Framha.ld á 4. síðu.j
Blikksmiðjan
GLÓFAXI
Hraunteig 14. — Síml 7236
>♦»♦♦♦♦♦<
WltV-^u*»«|||||||||ti|M||i||||||I||,||||U||ii|||||||||,||l|||,v
| Gerisí áskrifendur að
oov
:
ÞVOTTAVELEN
Örugg — Vandvirk — Ódýr
Eitt allra vinsælasta heimilistæki nútímans
Hingað til hefir ekki tekizt að fullnægja nema broti af eftirspurninni eftir
H O O V E R þvottavélinni, en vonir standa til, að úr rætist á næstunni,
þar sem stórar sendingar eru væntanlegar í júlí og ágúst.
Eftirtaldir útsölumenn HOOVER tækjanna, svo og skrifstofa okkar,
taka við pöntunum og afgreiða vélarnar svo fljótt sem unnt er:
Reykjavík:
Verzl. B. H. Bjarnason, Aðalstræti
Verzl. Guðm. Gunnlaugssonar,
Snorrabraut.
Ljósafoss, Laugavegi 27.
Ljós & Hiti, Laugavegi 79.
Rafvirkinn, Skólavörðustíg 22.
Raflampagerðin, Suðurgötu 3.
Véla- & Raftækjaverzlunin,
Bankastr. 7.
a
Utan Reykjavíkur:
Verzl. London, Akureyri.
Valdimar Long, Hafnarfirði.
Vatnsnes h.f., Keflavík.
Haraldur Böðvarsson & Co., Akranesi.
S. Ó. Ólafsson & Co., Selfossi.
Verzl. Reykjafoss, Hveragerði.
Kaupfélagið Þór, Hellu.
Verzlunarfélagið Borg, Borgarnesi.
Verzlunin Björninn, ísafirði.
Sig. Ágústsson, verzlun, Stykkishólmi.
Verzl. Georgs Gíslasonar, Vestmannaeyjum.
Verzl. Pálma Péturssonar, Sauðárkróki.
Signar & Helgi, Þórshöfn.
Verzl. Ásmundar Olsen, Patreksfirði.
Lárus Blöndal, Siglufirði.
Sigurður Sölvason, Skagaströnd.
Verzlunarfél. V.-Skaftfellinga, Vík i Mýrdal
Óskar Árnason, Seyðisfirði.
Markús Jensen h.f., Eskifirði.
Björn Björnsson h.f., Neskaupstað.
Verzlun Brynjólfs Sveinssonar, Ólafsfirði.
imctnum
Áskriftarsími 2323
Eiiikaiinihoð á fslaiicli:
MAGNÚS KJARAN, um boðs- og heildverzlun
atiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiuimiiiiiiiiiiiiiiiiinii
,;i