Tíminn - 24.12.1952, Blaðsíða 7

Tíminn - 24.12.1952, Blaðsíða 7
293. blað. TÍMINN, miðvikudaginn 24. desember 1952 7. SIGURÐUR EINARSSON: St j ö r n u - Oddi I. Frá fyrstu œsku einn og sér og öðru vísi, en börnin hin: Nam hyorki íþrótt eða leik og átti tœpast nokkurn vin, var fálátur um flesta daga, en feimulaus, án hiks og klökkva. — En' það var eins og augun œttu sér undraskyggni, er tók að rökkva. Þú fœddist ei til skarts né skrauts, þér skein ei nokkur liefðarvon, barst snpðna treyju, snjáðan stakk, þú snauðrar móður óskason. Því er%u þrátt í fiskiferðum, við fé ]á heiði, slátt á engjum og vinjiur iðinn vetur, sumar þitt verk með öðrum kaupadrengjum. • V-; En þér varð oft, er aðrir heim frá önnum dagsins gengu í ró að staidra við um stiliu kvöld, er stjörnubliki um liiminn sló. Og leifturskarans leyndu vegu þú last um hvolfsins óra víddir og skýggnum huga heimsins gátu af hnáttgbrautum réðst og þýddir. íí! n. Þig dreymdi ei forráð, frœgð og völd né fagrar konur, gull og vín. Þú beiðst þess eins, að kæmi kvöld og kveiktu stjörnur blysin sín. Og þegar aðrir ungir sveinar við ísábrot úr höfnum létu í blóðs- og víga frœgðarfarir, þér fanúst, sem állar stjörnur grétu. Og þér úarð hvolfið bogabratt þinn bústaður og andans skjól. Á himfii og jörðu hœlislaus, ef hverjg stjörnu í skýjum fól. Og ýmsum fannst um atferð þína sem annað vœri starf og betra, en váka um nætur, ráða og rýna þá rún, sem himins stjörnur letra. En það er aðall einfarans, sem á sér skyggna snillings-sjón að hafa að engu hollráð manns, sem hevmsins vizka gerir flón. — En hitt fékk engu auga dulizt, þótt ýrrísum þœtti kynlegt vera: Þú kunnir aðeins satt að segja og sýndist ávált rétt að gera. En morgum virtist verra en allt að vitg é dýpstu rökum skil, að kunna að hugsa hvasst og snjállt, en hafa jafnframt einurð til að þegja stoltur þunnu hljóði cr þytur .fór um rjáfur sala af háu skrafi hversdagsmanna, sem hámast við það eitt — að tala. III. Þú kunnir eigi kvœðamál, með köppum áldrei sást í för. Án íþróttar og orðaskrauts féll öll þín rœða dul og vör. Gekkst ei með hirð í hefðarklœðum viö hylli konungs, ástir meyja. í dagsins harki, liófsins gleði þú hafðir manna fœst að segja. í nœturlíkn og draumadáð þér dagsins fátœkt bœttist öll; þín bundna tunga fleyg og frjáls þá féll þín rœða hátta snjöll. Þín snilld sig drap úr dagsins fjötri og dróma þinna vökustunda, sem ísa sprengi, ómaþungar þær eldur, sem í klaka blunda. Og falinn neisti framadraums, sem fölskvaður í brjósti lá úr fjötrum brauzt, sem funábál, þá fékk hún vœng þín bundna þrá. Þá varðstu kappinn konungs líki jafn kœnn í raun á sœ og láði. þá drýgðir þú í Dagfinns gervi þá dáð, sem Oddi leyndast þráði. Og vizka sú, sem unnin er í einveru með kvöl og þraut og lokar heimi hlífðarlaust þeim hug, sem fetar slíka braut varð hlutur þinn, er einn um óttu í órafirrð frá bœjarhaga þú breyttir margri niðanóttu í nýrra sálna furðudaga. í ári morgunns állt sem fyrr hið ytra var um haginn þinn, en draumsýnin dvaldi Jcyrr, brá dularljóma á himinninn. Er húma tók, varð hver ein stjarna að hvatri snekkju á vegum strauma. — Þar fórstu hœrra himinn skautum með Hlaðreið, brúði þinna drauma. Hún gildir lítið draumsins dáð á dægurkvarðans naumu vog. En þú fannst heimi stað og stund við stjörnudýrð og hnattalog. Og þó að hagar hendur byggi sér hállir skrauts með glœstum línum, það stendur oftast öldum lengur, sem yrkir þú í draumum þínum. Því yfir breiðu aldahafs sér eydda tíð og hniginn vál og orpin gleymsku allra nöfn, — en yfir Múla í Reykjadál skín ennþá stjarna stillt og fögur og stafar Ijósi á fjallabrúnir: Þín minning Oddi, — er augun áttir hin einu skyggnu á himin rúnir. (5.-7. des. 1952) Htiðvikud. 24. des. Jólin Til hvers er jólahátíð hald- in? Margir munu hafa til- hneigingu til þess að svara, að hún sé haldin til að full- nægja gróðalöngun vissrar stéttar, sem búin er að gera jólahaldið að álitlegri fé- þúfu. Þvi er ekki að neita, að öll kaupmennskan og ann- ríkið, sem fylgir jólunum, dregur athyglina um of frá hinum raunverulega tilgangi þeirra. Þeim mun meiri á- stæða er til þess að rifja hann upp og stuðla að því, að hon- um verði náð. Tilgangur jólahaldsins er að minnast þess manns, sem flutt hefir fegurri og áhrifa- meiri kenningu um betra mannfélag en nokkur maður fyrr eða síðar. Þessi minning- arathöfn á ekki aðeins að vera haldin til þess að fagna komu hans í mannheim og þeim kenningum, er hann flutti, heldur á hún jafn- framt að vera hvatning um að fylgja þeim fram og vinna enn betur fyrir þær en áður hefir verið gert. Kenningar Krists stefna all ar að því að skapa bræðralag og frið á jörðu. Engum var þó ljósara en honum, að það myndi kosta mikla baráttu að gera þessa kenningu að veruleika. Það varð að rísa gegn gömlum kreddum og siðalögmálum og það mátti aldrei sætta sig við ranglæti og ofríki, Bíslarvættisdauð- inn var betri en að beygja sig fyrir því, sem rangt var. Friður getur ekki náðzt, nema hann byggi á réttlæti — hann getur aldrei byggzt á því, að menn þoli ranglæti og kúg- un. Þá er um falskan og hættulegan frið að ræða. Það virðist því miður enn langt í land þangað til mann- kynið -hefir til fullnustu til- einkað sér kenningar Krists um bræðralag og frið á jörðu. Hinu er samt ekki að neita, að mikið hefir áunnizt. Þrátt fyrir öll þau mistök, er hinir mannlegu leiðtogar kristninn ar hafa gert sig seka um, hef ir hún óneitanlega haft mikil áhrif í þá átt að skapa betri heim. Sá vísir að réttarskipu- lagi, er hinn vestræni heimur býr við í dag er fyrst og fremst ávöxtur kristninnar. Hins vegar ríkir nú mest kúgun í þeim hluta heimsins, þar sem kristin trú hefir orðið að víkja fyrir nýjum kenning- um og einræðisherradýrkun hefir verið leidd til öndvegis. Þaðan stafar nú sú stríðs- hætta, sem mannkyni öllu stendur ógn af. Leiðin úr þeim ógöngum, sem mánnkyniö er statt í, er engin önnur til en ’su, sem Kristur vísaði. í stað hinnar grimmlyndu síngirni verður að. koma bróðurlegur kærleik ur. í stað hinnar hörðu og til- litslausu samkeppni um lífs- gæðin verður að koma sam- vinna, er tryggir hverjum rétt an hlut. Enn getur verið langt í land að þessu marki, en samt miðar óneitanlega í rétta átt. Það má enginn missa vonina og trúna, þótt hægt virðist miða stundum. Þvi háleitara, sem markið er, því meiri baráttu og meira starf kostar það að ná því. Þá baráttu þurfa einstakling arnir líka ofjtast að heyja við sig sjálfa með því að neita sér um þá'.ÍÖngun eða feng, sem getur oröið öðrum að meini. ' Um jóláieytiö fyrir 108 ár- um gerðist atburður, sem meira en flestir aðrir styrkir þá trú, að riki Krists — ríki jafnaðar, réttlætis og frið- ar — sé engin draumsjón, heldur geti sannarlega orðið veruleiki. Rúmlega tuttugu vefarar komu þá saman í smá bæ einum á Englandi og sór- ust í bræöi’alag um að bæta kjör sín á grundvelli sam- vinnu og jafnaðar. Þeir voru í fyrstu hæddir og hraktir fyr ir tiltæki sitt og félag þeirra var svo vanburða, að því var ekki hugað nema fárra daga líf. En það stóð af sér alla hrakspádóma og storma. Af grunni þess er nú sprottin ein áhrifamesta félagshreyf- ing samtíðarinnar. Hún hef- ir sýnt betur en nokkuð ann- að, hve miklum og gæfurík- um árangri er hægt að ná með samstarfi og bræðra- lagi frjálsra manna. Fyrir þá, sem kunna að vera efagjarnir um að hug- sjón bræðralags og friðar sigri að lokum, hlýtur jóla- sagan, er gerðist í Rochdale fyrir 108 árum, að vera mikil uppörfun og hvatning. Hún er sönnun þess, að hugsjón jólanna — hugsjón bræðra- lags og friðar — er sigursæl, ef hún er borin fram af nógu mikilli einlægni og fórnar- lund. í þeirri von, að slíkum jóla- sögum muni stöðugt fjölga, óskar Tíminn lesendum sín- um gleðilegra jóla. Fréttir frá starf- semi S. Þ. Hvalkjötið má ekki van- meta. Þótt sulturinn sé tíður gestur í Asíu og unnið sé af kappi að því að auka matvælaframleiðsluna í heiminum, fara þó árlega til ó- nýtis hundruð þúsundir smálesta af kjöti. Og þetta kjöt hefir mikið næringargildi vegna þess. hve mik- ið er af eggjahvítuefni í því. Hér er um hvalkjötið að ræða. Árið 1950 veiddust 45.000 af þess- um risum hafsins. Það voru meira en 2 milljónir tonna af spiki, kjöti og beinum. En 325.000 tonn af hval kjöti fóru til ónýtis. Þetta sam- svarar því, að ónýtt hefði verið kjöt af 1,8 milljónum nautgripa. — Þegar á það er litið, hve marg ir í heiminum svelta, þá hafa menn ekki efni á, að öllu þessu kjöti sé fleygt. Þannig er komizt að orði í skýrslu frá FAO (Mat- j væla- og landbúnaðarstofnun S.Þ.). , Hvalkjötið hefir mikið næringar- gildi, jafnvel þegar það er borið . saman við nautakjöt. í hvalkjöti er minna af vatni, minna af fitu og langt um meira af eggjahvítu- efni en í nautakjöti. Vona menn, að þessir kostir geri aö verkum, að hvalkjöt verði eftirsóttur matur. Þessi 325.000 tonn af hvalkjöti, sem fleygt var árið 1950, hefðu get að fullnægt eggjahvítuefnisþörf 14 milljóna manna. í nokkrum löndum, sérstaklega i Japan, hafa menn árum saman borðað hvalkjöt. Eftir stríðið var byrjað að sjóða það niður. 10.000 tonn hafa verið fryst eða soðin nið ur á íslandi, í Kanada, Noregi og Bretlandi. Matvælasérfræðingar vinna nú að endurbótum á niður- suðuaðferðunum. Fólksflutningar frá Evrópu til Suður-Ameríku. Nokkur Suður-Ameríkulönd. þar sem efnahagslegar framfarir upp á siðkastið hafa verið miklar, hafa áhuga fyrir fólksflutningi í stór- um stíl frá Evrópu til þessara landa. Með þessu væri hægt að draga úr of miklum fólksfjölda i Evrópu, en mönnum telst svo til, að íbúum í Evrópu þurfi að fækka um 3—4 milljónir fjölskyldna, ef íbúatala álfunnar ætti að vera hæfi leg. Þetta mál hefir verið rætt í efna hagsnefnd S.Þ. Angel Maria Cus- ano frá Uruguay tók þá fram, að nokkur Suður-Amerikulönd séu reiðubúin til að taka við útflytj- endum frá Evrópu. Benti hann á7 að efnahagslegar framfarir í Suð- ur-Ameríku fyrr á tímum hefðu staðið í sambandi við fólksflutn- inga þangað frá Ítalíu og Spáni. Sem stendur eru Suður-Ameríku- lönd að framkvæma víðtæk við- reisnaráform. Vinnuafl frá Evrópu væri því æskilegt. En alþjóðleg fjárhagshjálp er nauðsynleg til þess að hægt sé að flytja Evrópubúa hópum saman til Suður-Ameríku. Leita menn því aðstoðar Alþjóðabanka S.Þ. og vísa til þess, að bankinn hafi áður veitt hjálp, þegar um svipað við- fangsefní var að ræða, nefnUega þegar Ástralía fékk álitlegt lán til þess að kosta menntun og búsetn- ingu útflytjenda. Réttarstaffa flóttamanna. Danmörk hefir fyrst allra landa staðfest „Magna Charta“ flótta- mannanna, þ.e.a.s. nýja alþjóða- sáttmálann um réttarstöðu flótta- manna. Þessi sáttmáli var gerður í Geneve í júní 1950 að tilhlutan S.Þ. og hefir verið undirritaður aír 20 löndum, en öðlast ekki gildi fyrr en 6 lönd hafa staðfest hann. Áður en þessi sáttmáli var gerð- ur, höfðu menn engar samhljóða alþjóðareglur um afstöðu ríkjanna til flóttafólks. Byggðu menn á venj um, sem stöfuðu frá hjálparstarfi Friðþjófs Nansens. Flóttamannasáttmálinn er yfir- gripsmesta skrá, sem gerð hefir verið um réttindi flóttamanna. Mið ar hann -að því að tryggja þeim lagalega vernd og mannúðlega með ferð. (Framhaló á &. sISu.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.