Tíminn - 14.04.1953, Blaðsíða 6

Tíminn - 14.04.1953, Blaðsíða 6
TÍMINN, þriffjudaginn 14. apríl 1953. 83. blað. ju.'ui 1 r.'. PJÖDLEIKHÚSID Sinfómuhljóm- | sveitin | í kvöld kl. 20,30. SK.UGGASVEÍNN Sýning miðvikudag kl. 20. Fáar sýningar eftir. Landið gleymda Sýning fimmtudag kl. 20. Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 13,15 til 20. Tekið á móti pönt- unum. Símar 80000 og 82345. * Sími 81936 Astir Carmenar (The Loves of Carmen) Afar skemmtileg og tilþrifamik 11. ný, amerísk stórmynd í eðli- legum litum, gerð eftir hinni vin sælu sögu Prospere Marimées um Sigaunastúlkuna Carmen. Rita Hayworth, Glenn Ford. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð innan 12 ára. NÝJA BÍÖ » Bréf tU þriggja lcvenna (A Letter to three Wives) Bráðskemmtileg og spennandi amerísk gamanmynd. Aðalhlutverk: Linda Darnell Jeanne Crain Ann Sothern Kirk Douglas Sýnd kl. 5, 7 og 9. BÆJARBIO — HAFNARFIRÐI — Borg gleðinnar Stórfengleg frönsk dans- og söngvamynd. Roland Alexandre Genevieve Page Ennfremur koma fram í mynd- inni: — Neijla Atjes og Janine Monin frá Casino de Paris og fjöldi listamanna frá Folies Bergéres og Moulin Rouge. Sýnd kl. 7 og 9. Sími 9184. Myndin hefir ekki verið sýnd í Reykjavik. i LEIKFÉIAG REYKJAVfKDlC Góðir eiginmenn sofa hcima Sýning í kvöld kl. 8. Aðgöngumiðasala i dag frá kl. 2. Fáar sýningar eftir. Eftir Victor Hugo Vesalingarnir eftir Victor Hugo Sýning annað kvöld kl. 8. Aðgöngumiðasala kl. 4—7 I dag. Sími 3191. Sýningu lýkur kl. 12 I HAFNARBÍÖ SómaUonan bersyndugu (La P Respectnense) Áhrifamikil og djörí, ný, írönsk stórmynd, samin af Jean Paul Sartre. Leikrit það eftir Sartre, sem myndin er gerð eftir, hefir verið flutt hér í ríkisútvarpið undir nafninu: „í nafnl vel- sæmisins". Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kL 5, 7 og 9. X SERVUS GOLD X ___itv'xji irvyi/-—irwnJ 0.10 H0LL0W GROUND 0,10 mm ' YELIOW BlflDE mni *—:—- - -■. ~ - ■ ’ —> SERVUS GOLD rakblöðln helmsfrœgu —I-.CHIM—■■■■<» AUSTURBÆJARBfÓ Æshusöngvar (I dream of Jeanie) Skemmtileg og falleg, ný, amer- ísk söngvamynd í eðlilegum lit- um um æskuár hins vinsæla tónskálds Stephen Foster. í myndinni eru sungin flest vin- sælustu Fosters-lögin. Aðalhlutverkið leikur vestur- íslenzka leikkonan: Eileen Christy, ennfremur: Bill Shirley, Ray Middleton. Sýnd kl. 5, 7 og 9. TJARNARBÍÖ Nóttin hefir þúsund augu (The Nigth has a thousand Eyes) Afar spennandi og óvenjuleg, ný amerísk mynd, er fjallar um dulræn efni. Sýnd kl. 5, 7 og 9. ♦.♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< GAMLA BÍÖ Drottning Afríku (The African Queen) Fræg verðlaunamynd I eðlileg- um litum, tekin í Afríku undir stjórn John HustonS. Snilldarlega leikin af Katharine Hepburn Sýnd kl. 5, 7 og 9. ♦♦♦♦♦♦♦♦ TRIPOLI-BÍÖ Kisinn og stein- uldurkonurnar (Prehistoric Women) Spennandi, sérkennileg og skemmtileg, ný, amerísk litkvik mynd, byggð á rannsóknum á hellismyndum steinaldarmanna, sem uppi voru fyrir 22.000 ár- um. í myndinni leikur Islending urinn Jóhann Pétursson Svarf- dælingur risann Guaddi. Aðalhlutverk: Laurette Luez, AUan Nixon, Jóhann Pétursson. Sýnd kl. 5, 7 og 9. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< RANNVEIG ÞORSTEINSDÖTTER, héraBsdómslögmaður, Laugaveg 18, slmi 80 205. Skrlfstofutíml kl. 10—1*. »♦♦♦♦♦♦♦♦« ►♦♦< 'Gerist askrifendur að l nwctnum n, ^ Jli Afglöp (Framhald af 6. síðu). út um land, eins og sam- þykkt seinasta búnaðarþings bendir til. Lögreglustjórnin á Keflavíkurflugvelli. Þá er ráðherrann einnig næsta fáorður um lögreglu- stjórnina á Keflavíkurflug- velli. Hann ber þó ekki á móti því, að nauðsynlegt muni vera að hafa sérstakan lögreglustjóra á Keflavíkur- flugvelli, eins og Tíminn hef ir lagt til, í stað þess að láta undirtyllu fjarstadds emb- ættismanns annast lögreglu- stjórnina. Það gæti áreiðan- lega hjálpað mjög til þess að breyta andrúmsloftinu þar, ef slíkt embætti væri stofnað og settur í það traust ur og einbeittur maður. Ráðherrann afsakar að- gerðaleysi sitt í þessum efn- um helzt með þvi, að Ey- steinn Jónsson sé ekki fús til að fallast á fjölgun embætta. Þetta er vissulega alveg rétt. Hins vegar er óhætt að segja það, að ekki mun standa á E. J. að vera með fjölgun emb- ætta, ef það gæti komið betri skipan á sambúðina við varn arherinn. Rétt er svo að geta þess.'aö ekki spurði ráðherr- ann um samþykki E. J., þeg- ar hann gerði hina allsóþörfu og hættulegu breytingu á stj órn landhelgisgæzlunnar, sem hefir stofnun fleiri emb- ætta í för með sér. Réttarfar, sem þarfnast endurbóta. Hér hafa þá verið rakin nokkur atriði úr dómsmála- stjórn Bjarna Benediktsson- ar, er hann hefir einkum gert að umtalsefni í varnarskrif- um sínum. Mörg fleiri svipuð mætti nefna, en það myndi taka oflangt rúm, enda nægir að nefna þessi til að sýna blæ- inn á dómsmálastjórninni. í stuttu máli er hann sá, að lög- unum er beitt sitt á hvað eftir því, hvort andstæðingar eða samherjar ráöherrans eiga hlut að máli. Ef andstæðingar eiga hlut aö máli er þeim beitt með fyllsta harðræði (sbr.mál Helga Benediktssonar), en sé um samherja ráðherrans að ræða, er þeim beitt með mik- illi mildi og þau gerð mjög eft irgefanleg (sbr. mál Magnús- at í Höskuldarkoti og Jóhanns Þ.). Á öðrum sviðum réttar- farsmálanna ríkir svo full- komin vanræksla, sbr. stjórn ríkislögreglunnar og lögreglu stjórnina á Keflavíkurflug- velli. í öllum embættaveit- ingum ríkir fullkomin póli- tísk hlutdrægni. Fyrir þá menn, sem vilja tryggja heilbrigt réttarfar í landinu, er ekki hægt annað en að víta slíka dómsmála- stjórn og gera kröfu til þess að réttarfarið verði betur tryggt framvegis. Á þessum grundvelli var umrædd álykt- un flokksþingsins byggð. Þáttur stjórnar- andstæðinga. Stjórnarandstæðingar hafa reynt að gera sér mat úr þess- ari ályktun og jafnvel reynt að túlka hana sem hræsni, þar sem Framsóknarflokkur- inn styðji núv. stjórn og beri því ábyrgð á Bjarna Bene- diktssyni. Vitanlega er þetta fjarstæða. Eða vilja kommún- istar telja sig bera ábyrgð á réttarsættinni í málinu, sem reis út af faktúru, er fannst í tunnu, en hún var gerð með- an Brynjólfur og Áki sátu í stjórninni? Eða vill Alþýðu- imiamiiMiiiiiiuiBiiiiiiiiiiiiimnniiiiimiiiiiiimiiiimmmimmiiinmmn MARY BRINKER POST: Anna Jórdan 77. dagur. tók upp vasaklút sinn og þurrkaði sér um munninn. „Máske hefði ég heldur átt.að verða Sívas“. „Allt bragðast vei á ströndinni, þegar þú ert svangur og hamingjusamur“, sagði Anna. „Og ástfanginn“, sagði Hugi lágt, en hún heyrði það og roðnaði. Þau hentu úrganginum fram í flæðarmálið, svo það bær- ist í burtu með næturflóðinu. Eldurinn var löngu dauður, og sólin var að sökkva í Ægi úti á flóanum. Það var orðið mjög aðfallið nú, og varla nokkur rönd eftir af sandi fyrir þau til aö ganga eftir. Hugi hélt á fötunni og hlújárninu, en Anna hélt á skónum sínum. Ljós höfðu ver- ið kveikt í bænum, þegar þau komu á veginn og Anna stanz- aði til að fara i skóná sína og sokkana. „Þeir mundu ekki hleypa mér inn í gistihúsið berfættri, býst ég við.“ Hún hló. Hugi sagði ekki neitt, aðeins brosti til hennar og á and- liti hans mátti sjá þau svipbrigði, sem hún hafði tekið eft- ri hjá honum síðastliöinn sunnudag hjá höfninni í Seattle. Allt í einu fór hríslingur um hana alla, og henni Jannst eins og hendi væri þrýst að brjósti hennar. Hún dró and- ann djúpt og fylgdi honum upp troðninginn. Þau skildu fötuna og hlújárnið eftir í verzluninni og lögðu síðan af stað upp brekkuna að gistihúsinu og leiddust. Er þau voru komin að gistihúsinu og ætluðu að fara áð ganga upp tröppurnar, snéri Hugi sér allt í einu að henni, ein- kennilegur á svip. „Anna,“ hvíslaði hann. „Hvað er það, Hugi? Því lítur þú svona út? „Ég sagði þeim að viö værum gift. Þau hafa látið okkur hafa sama herbergið.“ Anna virti hann fyrir sér. Augu hans voru dimm og ástríðufull. Hann bærði varirnar, eins og hann kenndi :til. „Ef þú vilt ekki fara inn, þá skal ég finna þér annan stað til gistingar,“ sagði hann bældri rödd. Hún lagði hönd sína á arm hans. „Hvað elskarðu mig mikið^ Hugi?“ „Meira en allt annað, Anna,“ hvíslaði hann og á þessari stundu var honum alvara. Hún var í blóði. hans, eins og sterkt vín. Hann þráði hana mjög heitt, en honum haföi fundizt skylt að gefa henni tækifæri til að taka ákvörðun. „Þannig elska ég þig líka, Hugi,“ sagði Anna og gekk upp tröppurnar á undan honum. Hún bar rauðgyllt höfuðið hátt. ..........;....... Drettúndi kafli. Fuglarnir vöktu hana í dögun; þeir fuglar, sem hafa vak- ið elskendur i borgum og byggðum í öllum löndum frá fyrstu tíð; þeir fuglar, sem heilögum Franz heyrðist vera að syngja ljóð til dýrðar guði skapara sins, en sem Önnu fannst nú, er hún lá vakandi í myrku herberginu, með hár- ið eins og loga elds á hvítum svæflinum, að fuglar þessir væru að segja öllum heiminum, að hún var elskuð, að hún elskaði, að lífið var helgað ástinni, að ástin var upphaf og endir. Það var enn nær myrkt af nótt. Sólin var ekki komin upp, en fuglarnir vissu, að það var dögun; þeir höfðu haft veður af henni og því hafið óðmál sitt. Það var líkast því, að þeir fylltu herbergið með söng sínum. Fuglarnir sungu og létu það berast að nöttin var liðin, og að hinir einmartá líðendur, hverra dimmar næturstundir er kvöl, gætu horfið frá leiða sínum, og einnig létu þeir boðskap sinn berast til þeirra, sem búa viö svo stutta nótt, að hún er eins og augnablik milli andvarps og koss, að hún væri liðin; að nú væri mál að slíta faömlögum, að nú yrði að horfast í augu við þá köldu veröld. Anna lá kyrr og- hlustaði, og hálffalinn leiði settist að í brjósti hennar. Það V'ar dögun. Nótt stormsins, hins hlýja myrkurs ástríðanna og fegurðarinnar var liðin. Bráðlega skylli dagurinn á þeim með kvaðir sínar. Það var aðeins þessi stutta stund, þessi vaka, þessi söngþrungni tími sam- verunnar, er þau gátú horft í augu hvors annars, og hvíslað orðum, sem þau myndu aldrei segja í skírri vöku, þá sól var hátt á lofti. Anna sneri sér og léft á Huga. Hann lá á grúfu með höfuðið bvílandi á örmum. sér. Og sem hún leit á hann, rumskaði hann og sneri sér-frá henni. Ó, ástin mín, sagði hún með sjálfri sér, snúðu þér ékki frá mér. Allt í einu fann hún til ótta, henni fannst<sera það mundi aldrei skipta miklu máli, blaðið taka á Alþýðuflokkinn ábyrgð á öllum gerðum núv. dómsmálaráðherra meðan hann sat í stjórn Stéfáns Jó- hanns? Þá segja blöðin, áð flokks- þingið hefði heldur " átt að krefjast þess, að stjórnin segði af sér en að sámþykkja þessa tillögu. Flokksþingið samþykkti einmitt áð stjórn- in segöi af sér að kosningum loknum eða strax og hægt verður að vinna að nýrri stjórnarmyndun. Að sjálf- sögðu mun þingflokkur og miðstjórn flokksins þá taka fyllsta tillit til ummræddrar ályktunar flokksþingsins og gera sitt ítrasta til þess, að í framtíðinni ríki hér heilbrigt og óspillt réttarfar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.