Tíminn - 29.04.1953, Síða 1
Ritstjórl:
Þórarlnn Þórarlnsson
Préttaritstjórl:
Jón Helgason
Útgeíanái:
Pramsókn arílokkurinn
Skrifstofur i Edduhúsi
Préttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
87. árgangur.
Reykjavík, miðvikudaginn 29. apríl 1953.
95. blað.
Hægt að láta kýr stálma
og gefa nyt, án burðar
Á-fundi Atlanzhafsráðsins
Dýralæknirinn á Hellu notar
hormónaefni, við kýr, er ekki
eru með fangi og alveg geldar
Bændur í Rangái'vallasýslu hafa orð'ið vitni að þeim
undrum, að kýr geta stálmað og farð að mynda mjiólk, án
þess að fá fang og bera. Ekki gerist þetta þó að sjálfu sér,
lieldur er notað í þessu skyni hormónaefni, sem hefir svip-
uð áhrif á kýrnar og fósturmyndun og burður.
Á Hellu starfar þýzkur dýra
læknir, Helmuth Bruckner, og
það er hann, sem komið hefir
með þessa nýjung, sem mun
veravera þýzk að uppruna.
Hormónaefnið, sem hann not
ar, er fast í sér, og er því stung
ið undir skinnið á hálsi
kúnna. Hver skammtur er sem
’næst eins og hálf eldspýta
að stærð. Þessa aðferð má
nota við allar tegundir dýra.
Mjólkandi eftir þrjár vikur.
Þegar hormónarnir eru
komnir í kúna, byrja þær þeg
ar að stálma, og eftir svo sem
þrjár vikur er komin í hana
mjólk. Þetta er þó ekki hægt,
nema kýrin sé orðin alveg
geld, er .efnið er sett í hana.
Síðan mjólkar hún í sjö til
níu mánuði. Gjald það, sem
bændur í Rangárvallasýslu
hafa greitt fyrir þetta, er 150
krónur á kúna.
Reynt við þrjár kýr.
Þetta hefir verið reynt við
að minnsta kosti þrjár kýr í
Rangárþingi og gefizt vel.
Fyrst mun þetta hafa verið
gert í Álfhólshjáleigu í Vestur
Landeyjum, en síðan á tveim
stöðum í Þykkvabæ, hjá Agli
Friðrikssyni í Skarði og Jóni
Jónssyni á Skinnum.
Þetta var reynt á kúm, sem
ekki héldu, annarri fyrir
tveim mánuðum, en hinni fyr
ir þrem mánuðum. Kýr Egils
var roskin, og mjólkar hún
nú 11—12 merkur í mál, en
kýr Jóns, sem er kvíga, er
aldrei hefir borið, er í 6—7
mörkum í mál.
Feitari en venjuleg mjólk.
Það er og athyglisvert, að
mjólkin, sem fæst úr kúm, er
örvaðar eru til mjólkurmynd
unar með þessum hætti, er
mun feitari en venjuleg
mjólk. Mun sú og hafa orðið
raunin á í Þykkvaþænum.
Hins vegar halda kýrnar ekki
alveg eins vel á sér og þegar
þær hafa gengið með kálf
með eðlilegum hætti.
Mjög umrætt mál.
Þetta nýrræli er mjög um-
rætt manna á meðal eystra
og þykir hið merkilegasta,
enda talsvert hagsmunamál,
að hægt sé að örva kýr, sem
ekki fá fang, til þess að
mjólka og gefa arð, svo að
ekki þurfi að ala þær geldar
um langan tíma.
Geðvernd á
vinnustöðum
Á funtíi Geöverndarfélags-
ins, sem haldinn var í sjöttu
kennslustofu háskólans í gær
kvöldi, flutti dr. Helgi Tóm-
asson yfirlæknir, erindi um
geðvernd á vinnustöðum, en
um slík mál hefir harla lítið
verið rætt og ritað hér á
landi, enda þótt þau séu í
eðli sínu mikilvæg.
Jón Kjartansson
í kjöri í Siglufirði
Framsóknarmenn í Siglu-
firði hafa skorað á Jón Kjart
ansson bæjarstjóra, að verða
þar í kjöri við kosningarnar
í sumar af hálfu Framsókn-
arflokksins. Jón hefir ákveð-
ið að verða við þessari áskor-
un. —
ur
norðlenzku kaup-
stöðunum
Sífellt fleira fólk úr kaup-
stöðum og sjávarþorpum'
norðan lands hverfur nú suð-'
ur á land í atvinnuleit, eink- j
um á Suðurnes. Fólk þetta erj
frá Húsavík, Akureyri og.yf-
irleitt úr flestum norðlenzk-'
um kaupstöðunum. Mest er
þetta ungt fólk, sem freistar
þess að afla sér meiri tekna
í fjarlægð við átthaga sína. |
Allmargir af þeim, sem
fóru suður í atvinnuleit þeg-
ar í haust, hafa komið aftur
norður til þess að sækja fjöl-'
Skyldur sínar og flytja þær
einnig suður. Þykir viðbúið,
að ekki muni nema sumt af
þessu fólki flytja aftur heim,
þótt atvinna á Suðurnesjum
kunni að dvína snögglega. 1
Glæsilegur stjórnmála-
fundur Framsóknarm.
300 manns í sóknarhug í Breiðfirðingahúð
f fyrrakvöld hélt Framsóknarfélag Reykjavíkur félags-
fund í Breiðfirðingabúð í tilefni af næstu alþingiskosning-
um. Fundarstjóri var Hannes Pálsson frá Undirfelli, en
fundarritari Kristján Benediktsson, kennari.
Mynd þessi var tekin af fulltrúum íslands á fundi Atlants-
hafsráðsins í París. í gær gerði Bjarni Benediktsson utan-
ríltisráðherra grein fyrir umræðum og ályktunum á fund-
inum í útvarpserindi, sem hann flutti. Sagði hann, að ráðið
hefði verið sammála um, að halda uppi sameiginlegum
vörnum, en öll þátttökuríkin myndu fagna einlægum tilraun
um til þess að draga úr því hættuástandi, sem nú ríkir.
Námsmeyjar greiddu at
kvæði um háttvísi pilta
Alþýðuskólaimm á Eiðum slitið um helgfna
Alþýðuskólanum á Eiðum var slitið síðastliðinn sunnu-
dag, og luku þá sextán nemendur alþýðuskólaprófi og 26
ársprófi fyrsta bekkjar. Alis voru nemendur í skólanum um
níutíu, þar af um helmingur í þriðja bekk, sem skiptist í
verknámsdeiid og landsprófsdeild, en þær tvær deildir
halda áfram og lýkur prófum í þeim í maí.
Skólaslitin hófust með því,.
að gengið var til kirkju og'
! hlýtt messu hjá sóknarprest
jinum, séra Sigurjóni Jónssyni
í Kirkjubæ. Önnuðust nem-1
J endur þriðja bekkjar söng við
' guðsþjónustuna. Sjálf skóla- j
( slitin fóru fram í leikfimisal j
skólans.
I fundarbyrjun voru sam-
þykktar 20 inngöngubeiðnir
frá mönnum, er gengu i fé-
lagið.
Ræðumenn.
Eysteinn Jónsson flutti ít-
arlega og skörulega fram-
söguræöu, er var fagnað
mjög eindregiö af fundar-
mönnum. Næst á eftir flutti
Rannveig Þorsteinsdóttir
snjalla ræðu, sem einnig var
ágætlega fagnað. Ennfremur
tóku til máls Hannes Páls-
son, Daníel Ágústínusson og
Hannes Jónsson og var að
því búnu fundartíminn á
enda.
Fundarsalurinn var troð-
fullur áheyrenda eða um 300
manns.
Sóknarhugur og eindrægni.
Kom þarna fram ákveð-
inn sóknarhugur og ein-
drægni að vinna að áfram-
haldandi sigri Framsóknar-
flokksins i Reykjavik, eins
og kom svo greinilega einnig
fram á dögunum á fundi
jngra Framsóknarmanna, er
þeir héldu á sama stað.
Á öllu kjörtímabilinu und-
CPramn. á 2. s£Su>.
Kvillasamt framan af.
Skólastjórinn, Þórarinn Þór
. arinsson, greindi frá störfum
í skólanum í vetur. Allkvilla-
samt var fyrri hluta vetrar,
en þá bárust í skólann misl-
ingar, hlaupabóla og fleiri
kvillar, en ofanverðan vetur
var heilsufar hins vegar mjög
; gott.
| Meðalþyngdarauki var 5,7
kg. og fæðiskostnaður pilta
| reyndist 18,95 á dag, en
stúlkna 16,75, og er það að-
eins sextíu aurum dýrara en
j árið áður. j
^ Beztu einkunnir.
j Bezta einkunn í bóklegum'
greinum á alþýðuskólaprófi
, fékk Pétur Stefánsson frá!
Flúðum í Hróarstungu, 9,41,1
en í verklegum greinum Geir,
laug Þorgrímsdóttir frá Breið
dalsvík, 8,53.
Við árspróf fyrsta bekkjar
Impressjönistar í
Listvinasalnum
Sýning stendur nú yfir í
Listvinasalnum á verkum eft
ír helztu impressjónistana
litprentuðum. Eru þarna Ut-
prentaðar myndir eftir Gaug-
in, van Gogh og fleiri meist-
ara þessara stefnu. Litprent-
unin virðist vera mjög góð,
en hún er hollenzk, og er það
hollenzkur maður, sem er með
þessar myndir hér. Sýningin
er opin daglega frá kl. 2—0
fram á sunnudag. Myndirnar
eru til sölu og kosta frá 65 til
100 krónur.
fékk hæsta einkunn í bókleg-
(Pramh. á 2. síðu).
Akureyrarrevýa
í uppsiglingu
Innan skamms verður byrj
að að sýna á Akureyri Akur-
eyrarrevýu, og er það Skjald
borgarbíó, sem gengst fyrir
þessu. Revýan fjallar um.
menn og málefni á Akureyri.