Tíminn - 27.04.1954, Síða 7
93. blaff.
TÍMIXN', þriðjudaginn 27. apríl 1954.
11
Frá hafi
til heiba
Hvar eru skipin
Sambandsskip:
Hvassafell er á Reyðarfirði. Arfiar
fell er á Seyðisfirði. Jökulfell fór
frá Leith 25. þ. m. áleiðis til Rvíkur.
Dísarfell er á Húnaflóahöfnum. Blá
fell er í Gautaborg. Litlafell fór frá
Hvalfirði í gærkveldi áleiðis til Ak-
ureyrar með olíu.
Ríkisskip.
Hekla fer frá Rvík á fimmtudag
austur um land í hringferð. Esja fór
frá Rvík í gærkveldi vestur um land
í hringferð. Herðubreið fer á morg-
un austur um land til Bakkaf jarðar.
Skjaldbreið fer á morgun vestur
um land til Akureyrar. Þyrill var í
Hvalfirði í gærkveldi. Baldur á að
fara frá Rvík í dag til Gilsfjarðar-
hafna.
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Hull 23. 4. til
Rvíkur. Dettifoss kom til Rvíkur 23.
4. frá Sandi. Pjallfoss fer frá Akur-
eyri í kvöld 26. 4. til Flateyrar og
Rvíkur. Goðafoss kom til Rvíkur
26. 4. frá N. Y. Gullfoss kom til
Kaupmannahafnar 1 morgun 26. 4.
frá Leith. Lagarfoss kom til Vent
spils 21. 4. Fer þaðan til Aabo, Hels
ingfors og Hamina. Reykjafoss kom
til Bremen 25. 4. Fer þaðan til Ham
borgar. Selfoss er í Rvík. Tröllafoss
kom til N. Y. 22. 4. Fer þaðan vænt
anlega 29. 4. til Rvíkur. Tungufoss
fór frá Antverpen 23. 4. til Rvíkur.
Katla fór frá Rvík 21. 4. til Ham-
borgar og Antverpen. Skern kom
tii Rvíkur 24. 4. frá Antverpen. Kat-
rina fer væntanlega frá Antverpen
27. 4. til Hull og Rvíkur. .
Úr ýmsum áttum
Edda, millilandaflugvcl Loftleiða,
er væntanleg til Rvíkur kl. 11 í
fyrramálið frá New York. Gert er
ráð fyrir að flugvélin fari héðan
áleiðis til' Stafángurs, Oslóar, Kaup-
mannahafnar og Hamborgar.
Millilandaflug.
Flugvél frá Pan American er vænt'
anleg til Keflavíkur frá Helsinki uin
Stokkhólm og Osló í kvöld kl. 18,45
og heldur áfram til New York.
Munið fund
Kvenréttindafélags íslands
að Aðalstræti 12 kl. 20,30 í kvöld. i
Einar Sæmundsscn skógarvörður!
flytur erindi um skógrækt og sýnir
kvikmynd.
Esperantistafélagið Auroro
heldur fund i Breiðfirðingabúð
(uppi) í kvöld kl. 8,30. Félagið minn
ist á þessum fundi 10 ára afmælis
síns, sem er um þessar mundir.
Happdrætti íslenzkra getrauna.
Úrslit leikjanna á happdrættis-
seðlunum urðu þessi:
Bunrley 1 — Bolton 1 x
Cardiff 0 — Blackpool 1 2
Charlton 1 — Manch. Utd. 0 1
Liverpool 4 — Middlesbro 1 1
Manch. City 1 — Chelsea 1 x
Portsmouth 1 — Arsenal 1 x
Sheff. Utd. 1 — Sunderland 3 2
Tottenham 2— Preston 6 2
Birmingham 2 — Nottingham 2 x
Derby 2 — Doncaster 0 1
Leeds 2 — Luton 1 1
Lincoln 1 — Everton 1 x
Vinningar veröa greiddir fyrir 12,
11 og 10 rétta leiki. Skrá yfir vinn-
inga veröur birt næstu daga.
1330 kr. fyrir 11 rétta.
Bezti árangur í 16. leikviku varð
11 réttir leikir, sem komu fyrir x
kerfisseðli, sem hlýtur alis 1330 kr.
Vinningar skiptust þannig:
1. vinningur 925 kr. f. 11 rétta (1)
2. vinningur 61 kr. fyrir 10 rétta (15)
3. vinningur 10 kr. f. 9 rétta (89)
Á næsta seðli nr. 17 eru 10 norskir
og ssænskir leikir og er staðan í
Noregi og Svíþjóð birt á bakhlið
seðilsins þátttakendum til hagtæöis.
Sveitir Árraanns
sigruðu í sveit-
arkeppnum
Síðastliðinn sunnudag fóru
fram sveitarkeppnir. í þriggja
manna sveitarkeppni sigraði
A-sveit Ármanns með átta
sttigum, áttu fyrsta, annan
og fimmta mann. Hlaut sveit
in bikar, sem Eggert Krist-
jánsson hefir gefið. Önnur
varð sveit ÍR, hlaut fjórtán
stig. í fimm manna sveitar-
,keppni sigraði sveit Ármanns
með fimmtán stigum og
jhlaut bikar, sem Jens Guð-
j björnsson gaf, \f;galeíigd
var 2,2 km.
I rslitin í Indó-Kina
verða afdrifarík
Washington, 26. apríl. Eis-
enhower forseti sagði í
ræðu, sem hann hélt á
fundi bandarískra kaup-
sýslumanna, að úrslit styrj-
aldarinnar í Indó-Kína
gætu haft hinar afdrifarík-
ustu afleiðingar fyrir
Bandaríkin. Ef kommúnist-
ar vinna landið, mun það
hafa áhrif á örlög milljóna
manna í þeim hluta heims.
Framtíð Japans er nátengd
framvindu mála í Suðaustur
Asíu. Þar eru helztu við-
skiptalönd þess og hvernig
gæti lýðræðisleg stjórnskip
un þróazt í Japan, ef þessi
lönd verða kommúnistum að
bráð, spurði forsetinn.
Varnir gegn kjarn-
orkuárásum
NTB—Osló, 26. apríl. Á fundi
í félagi hermanna í Osló,
sem haldin var í kvöld, hélt
Auðunn Öfjörð, verkfræðing
ur, ræðu um varnir gegn
kjarnorkuárásum. Fyrirles-
arinn sagði m. a. að í Noregi
hefði lítið verið gert til
verndar fólki gegn hugsan-
legri kjarnorkuárás. Orsök
þessa . er annars vegar sú,
að margir teldu slika árás
lítt sennilega og hins vegar
sú trú, að varnir séu gagns-
lausar. Hvort tveggja er þó
rangt, sagði fyrirlesarinn. Að
vísu væri þeim dauðinn vís,
sem væru mjög nálægt
sprengjustaðnum, en þegar
fjær dregur kæmu ýmsar
varnir að haldi. Hættan staf
ar þar aðallega af tvennu:
Hinum feiknalega loftþrýst-
ingi og geislaverkunum.
Beztu vörnina gegn þessu
hvort tveggja taldi fyrirles-
arinn nægilega öflug loft-
varnabyrgi.
Fyrsta ferðin
(Framhald al 8. síðu.)
benzín og olíu með sama
hætti. Einnig fara bifreiðar
landssímans með efni til við-
gerða í Öræfum og Suðursveit
og vegagerð ríkisins hyggst
flytja efni í brýr þessa sömu
daga. Munu því verða um tíu
bílar með drif á öllum hjólum
í þessum flutningum næstu
daga. Takist þeir sæmilega,
lækkar það flutningskostnað
Öræfinga verulega. Nokkur
hætta er þó talin stafa af hlý
indunum þessa daga og getur
vaxið í vötnum. ÓJ.
Brctar neiia
(Framhald af 8. BÍðu.)
veitt Frökkum öllu meiri að-
stoð í Indó-Kína, nema hún
gerist beinn hernaðaraðili, en
það vill hún að minnsta kosti
ekki fyrr en vonlaust er um
samkomulag á Genfarráðstefn
unni.
Bretar neita um hjálp.
Brezka stjórnin tilkynnti
formlega í morgun, að hún
gæti ekki orðið við þéirri
beiðni að veita Frökkum hern
aðaraðstoð í Indó-Kína. Lítur
út fyrir, að Dulles hafi farið
þess á leit við Eden, er þeir
ræddust við í París fyrir helg-
ina, að Bretar tækju þátt í
styrjöídinni i Indó-Kína á svip
aðan hátt og þeir gerðu í Kór-
eustyrjoidinni. Væri þetta
fyrst og frernst gert til að
sýna kommúnistum, að hinar
frjálsu þjóðir stæðu einhuga
um að hindra framgang þeirra
í Asíu.
Vopnahlé til að koma
brott særðum.
Bidault utanríkisráðherra
sendi í dag út áskorun til allra
þjóöa heims, um að þær stuðl-
uðu að því að uppreisnarmenn
féllust á að gera vopnahlé meö
an særðir menn væru fluttir
brott frá virkinu. Mörg hundr
uð særðra manna liggja í neð
anj arðarskýlum við hinn
versta aðbúnað. Krafðist Bid-
ault þess, að uppreisnarmenn
færu að alþjóðalögum í þessu
efni.
Ðro að sér athygliua
(Framhald af 2. slðu.)
Adolfs torgi lagði sólin sig fram.
Þetta var eins og hásumardagur,
þótt stinningskaldi þendi fánana.
Þar var ekki margt fólk að sjá.
Húrrahrópin heyrast um alla Norr
bro, en þar fólkið svo fátt eða feimið
til að taka við. Skrúöfylkingin ekur
fram hjá þöglum Stokkhólmsbúum
alveg heim að höllinni. En forsetinn
brosir og heilsar. Hann er berhöfðaö
ur. Þykkt, grátt hár hans er sem
skreyting við hlið fjaðrahatts kon-
Ungsins.
Drottningin veifar. Hún ber fá-
breyttan búning, gráa kápu og dimm
(bláan hatt. Dóra Þórhallsdóttir for
setafrú er klædd brúnum loðfeldi og
gráum hatti. Hún er indæl og svo-
! lítið hikandi að sjá.
) Við Skepsbron er fleira fólk. Við
Logardstrappan leikur hljómsveit
hersins. Á Slottsbacken hafa bygg
ingaverkamennirnir gert hlé á störf
um við símahúsið. Þeir horfa á þetta
föruneyti frá vinnustöðum sínum.
Skrúðfylkingin sveigir heim að
vestri hallarálmunni. Hljómsveit líf
varðarins leikur íslenzka þjóðsöng-
inn. Fánarnir blakta og sólin skín.
Nú er komið á leiðarenda. Nú er
kominn tími til að skipta um föt eft
ir ferðina og fá sér svolitla hvíld,
því að klukkan 13 býður konungur
upp á hádegisverð.
í Aftonbladet þennan dag er bver
síðufyrirsögn: Lítil stúlka dró að
sér athyglina við móttökurnar á
járnbrautarstöðinni. Er þar átt við
litlu dóttur Helga P. Briem, sendi-
herra, sem færði forsetafrúnni bló:n
vönd, „lítil, brúnlokkuð stúlka í fögr
um íslenzkum þjóðbúningi með skær
um litum“.
Vorblómiit
(Framhald af 8. síðu.)
blómskrúð mikið sumar
hvert. Síðustu tvö árin hefir
bærinn látið setja þar upp
spjöld með nöfnum skraut-
jurtanna. Er það mjög til
bóta, því að margir vilja vita
hvað blómin heita og læra
að þekkja þau. Spjöldin hafa
að vísu verið af vanefnum,
en mjór er mikils vísir. Verða
vonandi sett myndarleg
spjöld hjá jurtunum I sum-
ar á Austurvelli og víðar. En
hvenær koma merkispjöld í
Hellisgerði og Lystigarðinn á
Akureyri?
Athugandi væri að setja
dálítinn blómafleka á
Reykjavíkurtjörn í sumar.
Flekann má gera á einfaldan
og ódýran hátt úr staurum
eöa tunnum og leggja við
stjóra, þar sem ekki er mikill
öldugangur. Á fleka þennan
skulu svo settir kassar með
sumarblómum, eða til dæmis
dagstjörnu og sverðlilju, sem
báðar þola vel raka. Hin fag
urrauðu blóm dagstjörnunn
ar mundu sóma sér prýðilega
á fleka nærri landi.
Mikið er nú rætt og ráð-
gert um grasgarð í Reykja-
vík, og vonandi tekst að
koma honum á fót áður en
langt um líður.
Wh
uinincýcirópf
öíct
Gerd Grieg
(Framhald af 1. síðu.'*
smáborgarans og þeirri ó-
gæfu, sem fylgir í spor þeirra
k!*afna, þegar þær eru born-
ar fram einstrengingslega.
Með hlutverk fara Valur
Gíslason, Jón Aðils, Lárus
Pálsson, Gestur pálsson, Reg-
ína Þórðardóttir, Katrin
Thors, Arndís Björnsdóttir,
Indriði Waage, Róbert Arn-
finnsson, Klemens Jónsson,
Ævar Kvaran, Baldvin Hall-
dórsson, Valdemar Helgason,
Lárus Ingólfsson og Þorgrím
ur Einarsson. Lárus Ingólfs-
son málaði leiktjöld. — Sagði
frú Grieg að samstarfið hefði
verið hið ágætasta.
sm/r
é kœtir
khreimr\
Gécujfá&i&id
Mauilr dU, »1 pefu
fylgtr bitngunwfi frá
SIGURÞÓR, HafnarstraeU
Margar gerBlr
fyrirliggjanca.
Bendum gegfi póatkröfu.
■iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiimii
„HerðÉreið"
Tekið á mótiú flutningi til
Vestmannaeyja daglega.
<•111111111111111*1111111111111111111111111111111111111111111111111111
| Plötur á grafreiti |
| Útvegum áletraðar plötur 1
I á grafreiti með stuttum I
1 fyrirvara. Upplýsingar á |
i Rauðarárstíg 26, simar: |
§6126 Og 2856. |
(iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiii,
EMILERAÐAR
1 Miðstöðvar- (
eldavélar
fyrirliggjandi
Lágt verð
1 Konráð Þorsteinsson |
Sauðárkrók
* -
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiniiiiHnM
Blikksmiðjan
GLÖFAXI
'IHRAUNTEIG 14- SÚtfl 73M.O
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII1IIIIIIIIUUMM
- —
Vörubíll
1 G.M.C. ’46 |
| 3—4 tonna til sölu. Mjög I
I lítið keyrður. í fyrsta I
Ifiokks standi. Mjög sann-I
Igjarnt verð. Upplýsingar |
Ihjá Þórarni Sigmundssyni I
{Mjólkurbúi Flóamúanna 1
| og í síma 82168.
llllllllllll■llllllllllllllllllmilll■lltmll•'mlmllllllllmnr
I Jörðin Fjarð- I
| arhorn 1
| í HRÚTAFIRÐI f æst til á- f
I búðar frá næstu fardög- 1
| um. Uppl. veitir séra Ein- |
|ar Guðnason, Reykholti. |
l Z
íiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiitiiuniiuu
Húseign til sölu á
stað á Akranesi
Húseignin Akurgerði 15, Akranesi er til sölu nú þeg
ar. f húsinu eru 2 íbúðir, og gæti komið til greina að
selja aðra þeirra eða báðar. Allar upplýsingar gefur
Bjarni Bjarnason Akranesi, sími 248, og sé tilboðum
skilað til hans fyrir 10. maí næstkomandi.
A ★ A
KHflKI