Alþýðublaðið - 31.03.1920, Síða 4
4
A.LÞÝÐUBLAÐIÐ
fyrir húseignir í Rvík greiðast eftir 1. apríl bæjar-
gjaldkeranum, sem veitir gjöldunum viðtöku á venju-
legum afgreiðslutíma kl. 10—12 og 1—5.
Gjalddagi á brunabótagjöldum er 1. apríl.
Borgarstjórinn í Reykjavík 30. marz 1920.
K. Zimsen.
Gætið hag^muria yðar.
Látið okkur leggja rafleiðslur í hús yðar núna.
— Með því fáið þér það ódýrt og fljótt af hendi leyst.
éCf. diqfmý. éCiti S JSjós.
Vonarstræti 8. Sími 830.
ofra 1. apríí
tek eg undirritaður við brunamálastjórastöðunni í
Reykjavík og verður mig, fyrst um sinn, að hitta
daglega kl. 11—12 á skrifstofu bæjargjaldkerans,
Tjarnargötu 12.
Sig. eSjörnsson.
ctrá 1. aprílp. á.
er afgreiðsla íslandsbanka opin kl. 10 til 12 og 1 til
5 hvern virkan dag.
c%anfíasíjórnin.
Xo!i koniuignr.
Eftir Upton Sinclair.
Önnur bók:
Prœlar Kola konungs.
(Frh.).
Eftirlitsmaðurinn sat við skrif-
borð sitt, með vindil í munninutn.
Hann var að skrifa, og hélt því
áfram unz vörðurinn var farinn út
og hafði lokað á eftir sér. Þá
snéri hann stóli sínum við, kross-
lagði fæturnar, haliaði sér aftur á
bak og mældi hinn unga verka-
mann, sem stóð frammi fyrir hon-
um í óhreinum, bláum verka-
mannafötum, með úfið hár og föl-
ur yfirlits, eftir fangelsisvistina.
„Jæja, ungi maður“, sagði hann,
„þú hefir skemt þér töluvert hér
í héraðinu?“
„Ó, já, eg kvarta ekki“, ansaði
Hallur.
„Unnið á okkur stórsigur, ekki
svo? En segðu mér, hvað held-
urðu eiginlega, að þú hafir upp
úr þessu?"
„Alec Stone, spurði mig líka
að því", svaraði Hallur. „Eg held,
það sé þýðingariaust, að útskýra
það. Eg efast um, að þér trúið
frekar en Stone á það, að menn
vinni, án þess að fá peninga".
Eftirlitsmaðurinn tók vindilinn
út úr sér og sló úr honum ösk-
una. Steinhljóð, meðan hann virti
andlit Halls fyrir sér. „Þú ert
skipulagsmaður verkamannanna?"
„Nei“, svaraði Hallur.
„Þú ert vel upp alinn", hélt
hinn áfram. „Þú ert ekki verka-
maður, það eitt er víst. Hver
borgar þér?"
„Jú, þarna er þaðl Þú heldur
að ekkert verði gert, nema fyrir
peninga".
„Já, jú“, sagði Cotton, „ef þú
vilt ekki segja mér, hver þú ert,
segðu mér þá hvað þú vilt?"
„Eg vil gegna vogareftirlits-
manns starfa mínum".
Hinn sendi frá sér reykjarstrók
þvert yfir herbergið. „Og þú held-
ur, að þú fáir leyfi til þess?“
„Onei, það held eg ekki?“
Cotton blés frá sér öðrum reykj-
arstrók. „Koma félaginu bara í
klípu, eða hvað? Hálfgerður hvatn-
ingamaður?"
„Yður þóknast víst að kalla
mig svo“.
„Jafnaðarmaður?"
„Það kallið þér mig líklega
lfka“.
„En má eg spyrja: hvað kallar
þú þig sjálfur?"
„Eg kæri mig ekki svo mjög
um nafnið. En eg held að eg sé
næst því að vera stjórnleysingi*.
Mótorlampar viðgerðir og
hreinsaðir brennarar í prímusa-
viðgerðinni Laugaveg 12. Fljótt
og vsl unnið.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Ólafur Friðriksson.
Prentsmiðjan Gutenberg.