Tíminn - 14.09.1954, Síða 8

Tíminn - 14.09.1954, Síða 8
ERLEM YFIRLIT f DAG: ltíkisstjórahjörid í IVeiu York 38. árgangur. Reykjavík. 14. september 1954. 205. bla$. Fellibylur í Japan jafnast að styrk við 1000 vetnissprengjur Hcil [»©rp sójiast burt í flcðuui eða g’raf- ast í skriðum, mikið eigna- og m^nntjon Tókíó, 13. sept. — Mesti fellibylur, sem um getur í sögu Japans er nú skollinn yfir syðstu eyjar landsins og hefir valdið ógurlegu tjóni. Fellibylurinn fer meö allt að 200 km. hraða á klst., og verður um eitt dægur að ganga yfir Japans- eyjar. Fólk reynir að ganga sem tryggilegast frá öllu áður en ósköpin ganga yfir, þótt það kunnj að stoða lítið. Flóðbylgja og skriður fylgja fellibylnum. Á eyjunni, sem hann hefir þegar náð til, hafa heil þorp sópast burtu annað hvort í flóðbylgjum eða grafist undir skriðum. Bretar í varnar- samtök Evrópu Bonn, 13. sept. — Adenauer kanslari og Eden, utanríkis- ráðherra Breta ræddust við í dag. í yfirlýsingu, sem þeir gáfu út, að viðræðunum lokn um, segjast þeir hafa orðið sammála um, að komið yrði á varnarsamtökum V-Evrópu ríkja, er verði með þeim hætti, að Bretar geti einnig orðið aðilar að þeim. V-Þjóð verjum verði leyft að endur- vígbúast, en þó að fengnu fullu samþykki Frakka. Ade nauer mun einnig hafa fall- ist á að haldin’ verði nívelda ráðstefna í London innan skamms til að ræða þessi mál. 4—500 Iiðsforingj- ar handteknir í Persíu Teheran, 13. sept. Fyrir helg ina komst upp um stórfelldan njósnahring kommúnista í Persíu. Búið er að handtaka 435 liðsforingja og auk þess marga almenna borgara. Sagt er, að lögreglan leiti nú 60 liðsforingja, sem fari huldu höfði. Menntamálaráðuneytið tilkynnir, að 12 kennarar, sem taldir voru kommúnistar, hafi verið reknir, en verið er að rannsaka mál 60 annarra. Njósnasamtök þessi stefndu m. a. að því, að koma af stað óeirðum um allt landið og knýja þannig þingið til að full gilda ekki samninginn, sem gerður var fyrir skömmu um vinnslu og sölu olíu frá Persíu. Sambandslaust er við eyna að mestu, svo að fregnir eru óljósar. Eignartjón er gífur- legt og vafalaust hefir einn- ig orðið mikið manntjón. 1000 vatnscfnissprengjur. Veðurfræðingar segja að styrkleiki fellibylsins sé á- líka og '1000 vatnsefnis- sprengjur. Svæðið, sem hann tekur yfir á leið sinni er um eitt þús. km. á breidd. Hugs- anlegt er, að nokkuð kunni að draga úr krafti hans, eftir því sem leiö hans lengist, þótt síðustu fregnir virðast ekki bera það með sér. Viðbúnaður. Allir hamast sem mest þeir mega til að vera sem bezt undirbúnir, er ósköpin dynja yfir. Menn njörfa niður húsa þök með stálvírum, negla hlera fyrir dyr og glugga, flóðgarðar við strendurnar eru styrktir með sandpokum o. s. frv. Björgunarsveitir og önnur hjálparstarfsemi hef- ir verið skipulögð af hinu opinbera. | IVaiiðlending I (Framhald aí 1. síSu). og tókst þeim það á sléttum söndum fyrir sunnan Loð- mund, að því að Rúnar tel- ur. Voru þarna prýðileg lend ingarskilyrði, í 2000 feta hæð, en erfitt reyndist að finna vindáttina og háði það mest. Voru í vélinni um nóttina. Er þeir félagar voru lentir fóru þeir úr vélinni til að at- huga aðstæöur, en blindþoka var þá fallin á, og vildu þeir , ekki yfirgefa flugvélina, því þeir voru hræddir um að l finna hana ekki aftur. ÍBjuggu þeir því um sig í vél- inni og, létu fyrirberast þar ! um nóttina. Þeir voru vel ! klæddir, en æði kalt var þó í vélinni, enda rok og rign- ing úti fyrir. Mat höfðu þeir til tveggja daga. Heyrðu tilkynninguna í útvarpinu. Stuttbylgjutæki var í vél- VtxtitJ Gömul kona varð fyrir strœtis- vagni á Lækjartorgi og beið bana Um klukkan fjögur á laúgardaginn varð það slys á Lækj- artorgi, að 75 ára gömul kona varð fyrir strætisvagni. Sjúkra bifreið flutti konuna þegar í Landsspítalann og lézt hún þar nokkrum klukkustundum síðar af meiðslum þeim, er hún hiaut. — Konan mun hafa ætlað að taka sér fari með umræddum strætisvagni, en vagninn far ið af stað fyrr en konuna varði, með þeim afleiðingum, að hún rakst utan í vagninn og féll á götuna. Sjúkrabif- reig kom þegar á vettvang og flutti konuna í Landsspital- ann. Var hún mikið þjáö og andaðist um nóttina, þá bú- in að vera að mestu rænu- laus frá því er slysið vildj til. Ekki mun strætisvagns- stjórinn hafa vitað neitt af slysinu fyrr en kallað var til hans, er hann var kominn út í Austurstræti. Mikið byggt í Grafarnesi Frá fréttaritara Tímans í Grafarnesi. Allmikið er um bygging- arframkvæmdir í Grundar- firðl í sumar. Þar er unnið að byggingu fjögurra verbúða, sem hafnarsjóður þar kemur upp. Er ætlunin að heima- bátar hafi þar útgerðarað- j stöðu og þegar þessar verbúð ir verða tilbúnar skapast að- staða fyrir útgerð fleirj báta frá Grafarnesi. Eitt íbúðarhús er í smíðum í Grafarnesi og undirbúin bygging fleiri íbúðarhúsa. Þá ' hefir kaupfélagið í smíðum nýtt verzlunarhús á staðnum. Lítill reknetaafli ísafjarðarbáta Frá fréttaritara Tímans á ísafirði. Reknetabátarnir frá ísa- firði komust loks á sjó í fyrra. dag, en aflinn var lítill í þess ari fyrstú veiðiferð. Ver var með 50 tunnur, Einar Hálf- dáns með 40, en aörir minna. í gær var afli reknetabát- anna enn minni og var ekki hægt að segja, aö þeir hefðu orðið síldar varir nema einn, sem fékk 25 tunnur úr lögn- inni. Skiikinútíð (Framhald af 1. síðuh og vandasöm. Friðrik náði jafntefli með þráskák. Skák Guðm. S. gegn Golombek leit hættulega út, en Guöm. átti næg úrræði og varð jafn tefli. Guðm. P. vann peð gegn Barden, en tók á sig hættu, og leystist skákin upp í jafntefli. Clarke átti peði og skiptamun undir og tapað tafl, var einnig í tímahraki, er slysið skeði. Ingi lék af sér tveimur mönnum í ein- um leik. 2* l/2 sigur snérist í iy2 ósigur. Júgóslavía vann Holland 3—1 og Rússland vann Svíþjóð 3,5—0.5. inni, en það kom ekki að not um, vegna þess að tiönin var ekki rétt. Hins vegar höfðu þeir meðferðis lítið ferða- útvarpstæki, sem heyrðist vel í, og þar heyrðu þeir tilkynn ingu um, að flugvélarinnar væri saknað. Höfðu þeir von- að, að ekki myndi fréttast, að þeir hefðu lagt af stað, og aöstandendur þeirra þyrftu ekki að óttast um þá ag á- stæðulausu. Bjartara um morguninn. Á mánudagsmorguninn létti nokkuð til, var sæmilega bjart yfir þeim, en dimmt í kring. Reyndu þeir flugtak og tókst það ágætlega. Flugu þeir upp um gat á skýjunum, og flugu í suð-vestur. Sáu i þeir nokkru síðar Markar- I fljót og flugu niður með því. Fóru síðan yfir Múlakot til þess að láta fólk vita, að þeir væru heilir á húfi. Til Reykja víkur komu þeir um 10,30 og 1 vissi flugturninn um ferðir þeirra, og var leit þá hætt. Þeim félögum leið ágætlega og hafði flugvélin ekkert lask I azt. — J kosningarnar í I»ýzkalundi: Jafnaðarmenn juku fylgi sitf í Slésvík og Holfsefalandi Bonn, 13. sept. — Jafnaðarmenn unnu 5 ný þingsæti í kosn- ingunum til landsþingsins í Slésvík-Holtzetalandi, sem fram fóru s. 1. sunnudag. Kristilegir demókratar töpuðu einu þing sæti og heildaratkvæðamagn flokksins lækkaði verulega. Kosningaúrslitin eru almennt túlkuð sem ósigur fyrir ut- anríkisstefnu Adenauers kanslara, þar eð þau mál voru mjög á oddinum í kosningabaráttunni. Kristilegir demokratar eiga nú 25 þingmenn á landsþingi fylkisins og jafnaðarmenn jafnmarga. Flóttamannaflokk urinn fékk 10 menn kjörna, hafði áður 15. Búizt er við, <xð sama stjórn muni verða við völd áfram í fylkinu, en þar var samsteypustjórn kristi- legra demokrata, fióttamanna flokksins og frjálsra lýðræðis sinna. Sigur jafnaðarmanna. | Foringjar jafnaðarmanna halda því fram, að úrslitin beri vott um, að almenningur sé orðinn fráhverfur stefnu Adenauers í utanríkismálum, en aðhyllist æ meir viðhorf jafnaðarmanna, sem vilja láta efna til fjórveldaráð- stefnu sem fyrst um Þýzka- land og vinna með öllum ráð um að sameiningu landsins. Danskir engan fulltrúa. Danska þjóðarbrotið í Slés vík-Holtzetalandi fékk nú engan fulltrúa kjörinn á þing en átti áður 4. Orsökin er m. a. sú, að dansksinnaðir jafn- aðarmenn fylgdu að þessu sinni þýzkum skoðanabræðr- um sínum að málum. Jafn- framt mun þetta að nokkru skýra fylgisaukningu jafnað- armanna. Síðustu fréttir af skákmótinu Rétt fyrir miðnætti barst blaðinu eftirfarandi frétt frá skákmótinu í Amsterdam: Czernach vann Guðmund Guðmundsson, Aloni gerði jafntefli við Guðmund Ágústsson. Friðrik á góða biðskák en Guðmundur Pálmason á vonlitla biðskák. Önnur úrslit, sem fróðleg þóttu í gær, voru þau, að Euwe vann Unzicher, Bot- vinnik cg Alexander gerðu jafntefli. Holland vann Vestur-Þýzkaland. íþróttaleiðtogi heiðraður á Akureyri Frá fréttaritara Tímans á Akureyri. Ármann Dalmannsson, for maður íþróttaráðs Akureyrar átti sextugsafmæli á sunnu- daginn. Hann er kunnur fyr ir ötult starf í þágu íþrótta- Ábúð hafin á fjórum nýbýlum við Hvolsvöll Frá fréttaritara Tímans á Hvolsvelli. í nýbýlahverfinu við HvolsvöII er nú ábúð hafin á fjórum býlum og var hafinn búskapur á hinu fjórða I sumar. Land þetta var tekið til ræktunar og nýbýlastofnunar 1948. Nýbýlastofnun þessi er á vegum landitóms ríkisins, og hefir hvert býli til umráða 30—40 hektara ræktanlegs lands, sem að vísu er fremur magurt en slétt og auðunnið. Nýbýli þessi stunda aðallega mjólkurframleiðslu en hafa einnig nokkra garðrækt. Á tveim þessara nýbýla búa menn, sem fluttu úr Reykjavík og hófu þarna bú- skap. Er töluvert um það, að menn, sem búsettir hafa ver ið í kaupstöðum hugsi til bú- skapar, ef þeir geta fengið hæfilegt jarðnæði. í kauptúninu að Hvolsvelli eru nú þrjú íbúðarhús í smíð ' um. Líklegt að meira en helmingur Ólafsfjarðarbúa syndi 200 m. Reykjávík vinmir slöSngt á llafnarf jörð í iniiliyriSiskpppitiiuii — 14206 Iiafa synt Nú eru aðeins tveir dagar eftir í samnorrænu sundkeppn- inni og berast fréttir af mikilli aðsókn á sundstaði víða um landið. Á sunnudaginn höfðu 48% íbúa Ólafsfjarðar synt, og talið er víst, að yfir 50% muni synda þar. Er þetta 6% meira en 1951, en Ólafsfjörður var þá langhæstur. í Reykjavík hefir þátttaka verið ágæt undanfarna daga, og er líklegt, að þátttakenda- tölunni frá 1951 verði náð. í fyrradag syntu 274 í sund- höllinni, en 242 í sundlaugun um, eða samtals 498. Alls hafa synt í Reykjavík 14206 eða 23.5%. í innbyrðiskeppni við Hafnarfjörð og Akureyri hefir Reykjavík dregið mikið á. í Hafnarfirði hafa 1305 synt eða 24.6%, en á Akur- eyri um 1200 eða aðeins 16%. íslendingar. Notiö vel þessa tvo síðustu daga og gerið sig- ur íslantfls mikinn í samnor- rænu sundkeppninni! ,j

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.