Tíminn - 16.09.1954, Qupperneq 1
M SLHSfc.
ftltrtjdrl:
Mrarlnn Þórarlnason
Ótgelandl:
írjJn*óknarfiokkurlnn
Bkrlfstoíur 1 Edduhútl
Préttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusíml 2329
Auglýsingasíml B1300
Prentsmiðjan Edda.
38. árgangur.
Reykjavík, fimmtudaginn 16. september 1954.
207. blaS.
„Eins mig fýsir alltaf þó - aftur að fara í göngur"
I*essa tlagana Jeggja gangnamennirnir á heiðarnar. Á Norðuriandi, Ausiurlandi og í Horgarfjarðardöluni
mun yfirleitt hafa verið lagt af slað í fyrradag og í iengstu göngur fyrr. Á Suöurlandi er lagt á staö þcssa
dagana, ofurlítið misjafnt eftir Iengd gangna. Nú mun víða vera kominn nokkur snjór á afrétti, og fcð
hefir streymt niður. Léttir það að sínu Ieyti göngurnar, en gerir þær erfiðari um smölun og rekstur. Senn
renna hvítir fjárhópar niður hlíðar til rétta, og allir fagna fénu af fjalli. Réttardagurinn er enn einn
rnesti tyllidagur ársins, og hraustur og fallegur fjárstofn gerir þá ánægju enn óblandnari. Myndin sýnir
nýja steinsteypta rétt í uppsveitum Árnessýslu. Slíkar réttir rísa nú ein eftir aðra, og fararskjótarnir til
réttar eru nú bílar fremur en hestar, fénu jafnvel stundum ekið hcim í bíl frá réttinni. Tíminn óskar
gangnamönnum góörar ferðar í göngurnar.
Glæsilegar samkomur
Framsóknarmanna í
Skagafirði og A-Skaft.
ITm síðustu helgi héldu Framsóknarmenn í Skagafirði og
Hornafirði héraðssamkcmur, sem tókust ágæta vel. Voru þær
mjög fjölmennar og fóru í alla staði hið bezta fram.
,Hvíta bókin/ um landhelgismál ís-
lands lögð fram í Evrópuráði í gær
Tillaga Breta rædd í laganefad í dag
/ gær var útbýtt á þingi Evrópuráðsins hinni „hvítu bók“ íslenzku
rikisstjórnarinnar um stækkun íslenzku fiskveiöilandhelginnar. Bókin
nefnist „The Icelandic Efforts for Fisheries Conservation. Eru þetta
minnisatriði ætluð fulltrúum Evrópuráðsins aðeins.
Efni bókarinnar er fyrst
inngangur, þar sem raktar
eru í stuttu máli orsakir þess,
að fiskveiðilandhelgin var
stækkuð og hin brýna nauð-
syn á friðun fiskimiðanna.
Þá kemur stutt grein um þýð
ingu fiskveiðanna fyrir ís-
lendinga, og þar næst er rætt
um áhrif friðunarinnar og
löndunarbann brezkra út-
gerðarmanna. Þá eru rakin
áhrif þau, sem orðið hafa af
friðuninni, lögmæti þessarar
ráðstafana samkvæmt al-
þjóðalögum og að síðustu
niðurstöður.
Þá eru að síðustu birtar
þær reglur og lög, sem út
hafa verið gefin um þessi
mál, og orðsendingar, sem
farið hafa í milli ríkisstjórna
Breta, Belgíu, Frakklands,
Hollands annars vegar og ís-
lands hins vegar.
Tillaga Breta og fleir, ríkja
Kaupfélagið leggur
bændum ti! byggingamenn
Frá fréttaritara Tímans á Kirkjubæjarklaustri.
Mikið er um húsabyggingar hér í nágrannasveitunum í
sumar, bæði peningshús og íbúðarhús. Kaupfélag Skaftfell-
inga hefir tekið upp nýbveytni, sem bændur kunna vel og
léttir mönnum byggingar. Hún er sú, að hafa í förum flckk
byggingamanna, sem hjálpar við byggingarnar.
Það er trésmíðaverkstæði
félagsins í Vík, sem annast
umsjón þessa starfs, en því
veitir forstöðu Matthías Ein-
arsson. í þessum bygginga-
flokkum eru 3—4 menn og
hafa meðferðis nauðsynleg
smíðatæki. Slá þeir upp
steypumótum fyrir bændur
og einnig hefir flokkurinn
stundum steypuvél meðferöis
og steypir. Eru menn fegnir
þessari hjálp og þykir verkið
ganga greiðlegar en ella.
Starfsemi þessi hófst í fyrra
en hefir aukizt mjög í sumar,
þar sem mönnum finnst hún
gefast vel. VV.
um að taka friðunarráðstaf-
anir íslands á dagskrá Evr-
ópuráðsins mun verða rædd
í laganefnd þingsins í dag, og
flytur Hermann Jónasson,
fulltrúi íslands í nefndinni;
þá ræðu. Hins vegar er ekki
búizt við að málið komi á dag
skrá þingsins sjálfs að sinni.
Austfjarðabátar
stunda síldveiðar
austur í hafi
Frá fréttaritara Tímans
á Seyðisfirði. |
Þrír Austfjarðabátar stunda
síldveiðar langt austur í hafi,
eða á annað hundrað sjó-
mílur austur af íslandi. Afli
hjá þeim hefir verið misjafn,
en aðfaranótt þriðjudagsins
fengu þeir ágætau afla.
Valþór frá Seyðisfirði fékk
um 180 tunnur úi einn; lögn
þá um nóttina. Voru skipverj
ar heilan sólarhring að salta
þennan afla um borð og gátu
ekki látið reka nóttina eftir.
Hinir bátarnir létu þá.reka,
en afli var þá lítill. Virðist
síldin á þessum slóðum vera
í torfum. Fá bátarnir mikinn
afla, þegar þeir hitta á síld-
ina, en geta svo fengið netin
svo til tóm upp úr sjónum,
þegar heppnin er ekki með.
Héraðshátíð Framsóknar-
manna í Skagafirði var hald-
in að Varmahlíð og hófst kl.
5 síðd. Sóttu hana á fimmta
hundrað manns. Jón Jónsson,
bóndi á Hofi setti samkomuna
og stjórnaði henni, en Stein-
grímur Steinþórsson, félags-
málaráðherra, flutti aðalræð-
una, er var tekið með afbrigð-
um vel. Leikararnir Klemenz
Jónsson og Valur Gíslason
skemmtu með leikþáttum og
Gunnar Einarsson frá Bergs-
skála flutti frumort Ijóð. Að
síðustu var dansað. Var þetta
bæði ánægjuleg og glæsileg
héraðshátíð.
Héraðshátíð Framsóknarfé-
laganna í Austur-Skaftafells
sýslu var haldin í Höfn í
Hornafirði s. 1. sunnudags-
kvöld. Óskar Helgason, sím-
stöðvarstjóri, setti hana og
stjórnaði henni. Ræður fluttu
Rannveig Þorsteinsdóttir, lög
fræðingur, og Páll Þorsteins-
son, alþingismaður, og var
máli þeirra vel fagnaö. Sig-
urður Ólafsson söng einsöng
og Skúli Halldórsson tónskáld
Jarðskjálfta vart
í Grindavík
Klukkan rúmlega níu í
fyrrakvöld varð vart jarð-
hræringa í Grindavík. Fundu
menn jarðskjálftakippi fram
eftir nóttu og í gærmorgun.
Um hádegisbilið í gær komu
svo nokkrir kippir, er voru svo
snarpir, að hlutir í húsum inni
rótuðust til.
Ekki hafa þó borizt fregnir
af frekari jarðskjálftakippum
þarna síðan um miðjan dag í
gær.
lék á píanó. Hjálmar Gíslason
söng gamanvísur og flutti
gamanþætti. Samkomugestir
voru eins margir og húsið frek
ast rúmaði eða hátt á þriðja
hundrað.
Friðrik gerði jafn-
tefli við Szabo
Friðrik Ólafsson tefldi vel
og gerðj jafntefli við ung-
verska stórmeistarann Sz-
abo í 3. umferð. Unnu Ung
verjar því ísland með 3,5—
0.5. Guðm. S. tapaði fyrir
Kluger, Guðm. Ág. tapaði
fyrir Barzca og Ingi tapaði
fyrir Gereben. í 3. umferð
vann Þýzkaland Svíþjóð
með 4—0. (Tölurnar snér-
ust við í blaðinu í gær). Ar-
gentína vann Búlgaríu 2.5
—1,5, Júgóslavía v.anri Bret-
land 3.5—0.5, Holland og
Tékkóslóvakía skildu jöfn
2—2, og einnig Rússland og
ísrael 2—2. Efst eru nú
Rússland og Júgóslavía með
9 vinninga. ísland hefir 3.5
vinninga, þar af hefir Frið-
rik fengið tvo. Svíar eru
neðstir með 2 vinninga.
Skákum íslands
frcstað
Samkvæmt erlendum út-
varpsfréttum í gærkveldi var
þetta að frétta af skákmót-
inu: Frestað var leik íslands
og Búlgaríu vegna forfalla
Búlgara. Júgósl. vann ísrael
3-1. Þjóðverjar höfðu 1,5 gegn
0,5 hjá Bretum. Rússar höfðu
(Framhald á 7. síðu.)
Mikill þorskafli hjá báturn,
sem stunda veiðar í Aðalvík
Frá fréttaritara Tímans á ísafirði.
Uppgripaafli af þorski er hjá bátum, sem’stunda veiðar í
nætur á Aðalvík. Sáu sjómenn í gær miklar torfur af þorski
þar.
Eins og áður var sagt frá í
Timanum fór vélbáturinn Ein
ar þangað fyrst til veiða, en
í fyrradag fór vélbáturinn Ás-
dís, sem er 12 lestir, þangaö
líka. Eigandi hans er Pétur
Njarðvík. Átti hann nótina,
sem notuð hafði verið á Einari
og hóf veiðar með henni í
fyrradag. Kom báturinn þá
með 10 lestir úr fyrstu veiði-
ferðinni og var á leið til ísa-
fjarðar með aðrar 10 lestir í
gærkveldi.
Netagerð Vestfjarða setti
upp nýja nót handa skipverj-
um á Einari og öðrum bát,
Andvara, sem er með Einari
um nótina. Þessi nýja nót er
hringnót, stórriðin fyrir þorsk
inn. Hún er 70 faðma löng og
14 faðma djúp og öfluðu bát-
arnir 15 lestir i þessa nót í
gær á fyrsta degi.
Var farið með þann afla á'
Andvara til ísafjarðar, en.
veiðunum var haldið áfram 4
Einari.
Sjómenn sáu miklar torfur
af þorski á þessum slóðum í
gær og þykir mönnum mjög
fiskilegt þar. Margir vilja fara
þangað til þorskveiða með
nætur, en erfitt er að fá þær,
þar sem hörgull er á efni i næt
urnar. j