Tíminn - 17.11.1954, Page 2
2
TÍMINN, miffvikudaginn 17. nóvember 1954.
260. blað.
Tugþúsunda virði af skartgripum
stolið að eigendunum
Óvenjíilegur þjófnaðisr í tveim skart-
grijiavcrzlumim Kau|imannaliafnar
Skartgripaþjófnaðarnir í Kaupmannahöfn á föstudag í
vikunni, sem leið, hafa verið mikið ræddir í Norðurlanda-
blöðum undánfarna daga. í skartgripaverzlun nokkurri var
stolið skartgripum fyrir um 15 þús. danskar krónur og frá
gullsmíð í borginni var stolið verðmætum steinum að verð-
gildi 33 þús. d. kr. Voru hinir verðmætu gripir teknir fyrir
framan augu eigendanna, án þess aö þeir yrðu nokkurs varir.
Um hádegisbilið á fimmtudaginn
var kom maður nokkur inn í fyrr-
nefnda skartgripaverzlun. Maður-
inn talaði sænsku, og sagðist eiga
ameriskan kifnningja, sem hefði
áhuga fyrir að kaupa skartgripi, og
baðst leyfis þess að mega kynna
hann fyrir eiganda verzlunarinnar
daginn eftir.
í innsiglaðri öskju.
Leyfið var óðsótt, og um 10 leytið
morguninn eftir komu mennirnir
aftur. Sá þeirra, sem talaði sænsku,
bar einkennishúfu með merki SAS
flugfélagsins, og kynnti sig sem
Svenson, kaptein, en félagi hans
kvaðst heita Winter, og starfa á veg
um ameríska hersins.,
Mönnunum var nú sýnt mikið úr-
val dýrmætra skartgripa, og að lok-
um valdi sá ameríski tvenna eyrna-
lokka, þrjá kvenhringa, armband
og hálsfesti, sem allt var úr gulli og
skreytt dýrmætum steinum. Fyrir
skart þetta samþykkti maðurinn að
greiða 15 þús. d. kr. Hann lagði síð-
an gripina í öskju, sem hann hafði
meðferðis, og innsiglaði hana með
límbandi, er hann einnig hafði haft
með sér. Að því búnu skrifaði hann
nafn sitt á öskjuna og afhenti hana
skartgi'ipakaupmanninum, en
kvaðst mundu sækja hana á laug-
ardagsmorgunn og greiða þá hið
tilskylda verð.
Létu ekk sjá sig.
En þegar ekkert bólaði á útlend-
ingunum á laugardaginn, fór kaup-
manninum að þykja háttarlag
þeirra all grunsamlegt. Hann ákvað
því að opna öskjuna, og þarf vart
að lýsa undrun hans, þegar hann
komst að raunum að skartið var
Utvarptð
ÚtvariJÍð í dag.
Fastir liðir eins og venjulega.
18.55 íþróttaþáttur (Atli Steinars-
son).
20.30 Erindi: Að liðnu sumri (Arn-
ór Sigurjónsson).
20.50 Einsöngur: Primo Montanari
syngur (plötur).
21.05 „Já eða nein“. — Sveinn Ás-
geirsson hagfræðingur stjórn-
ar þættinum.
22.10 Útvarpssaga,.n: „Bréf úr
myrkri" eftir Þóri Bergsson;
III. (Andrés Björnsson).
22.35 Harmoníkan hljómar. — Karl
Jónatansson kynnir harmon-
íkulög.
23.10 Dagskrárlok.
TJtvarpið á morgun:
horfið, en í þess stað voru í öskj-
unni nokkrir 25-eyringar. Hann
gerði iögreglunni þegar aðvart, og
áður en langt um leið hafði lög-
reglumönnunum tekizt að leysa þá
gátu hvernig þjófnaðurinn hefði átt
sér stað. Það upþlýstist, að sænsku-
mælandi maður — vafalaust Svens-
son, kapteinn — hefði fyrir nokkr-
um dögum keypt tvær skartgripa-
öskjur í gullsmíðaverzlun einni í
borginni. Eftir það var lausnin ekki
svo erfið. Ameríkumaðurinn hefir
haft báðar öskjurnar í vasanum,
og aðra þeirra hefir hann verið bú-
inn að innsigla fyrirfram. Síðan
hefir honum tekizt að skipta á
öskjunni með skartinu og hinni,
sem 25-eyringarnir voru' í, meðan
á samtalinu stóð í verzluninni.
Flýðu þegar land.
Eftir því, sem menn géta sér til,
munu náungarnir svo hafa farið
úr landi sem skjótast að þjófnað-
inum loknum. Alþjóða lögreglu var
þegar gert aðvart, og lýsingin á
þjófunum send henni. Einnig var
leitað til SAS flugfélagsins varð-
andi upplýsingar um hinn dular-
fulla kaptein Svensson. En um helg
ina síðustu hafði ekki tekizt að hafa
hendur f hári þjófanna, þótt líkur
bendi til þess að þeim takizt ekki
til langframa að fara huldu höfði,
þar sem fyrir hendi eru allnákvæm-
ar lýsingar á þeim báðum.
Annar þjófnaður upplýstst.
Þegar gullsmiður einn í borginni
heyrði um þennan þjófnað, og
hvernig hann hafði verið framinn,
varð hann óttasleginn mjög, því
að tveir menn, sem komu heim við
lýsingu þá er gefin var út af skart-
gripaþjófunum tveim, höfðu einmitt
heimsótt hann á föstudaginn um-
rædda. Þeir höfðu sagzt vera áhuga
samir um kaup á verðmætum stein-
um, og höfðu, að lokinni athugun,
valið séjr 3 steina ásamt tveim
hringum, prýddum verðmætum
steinum. Munir þessir voru um 35
þús. d. kr. virði. Þeir höfðu síðan
lagt munina í öskju og innsiglað
hana á sama hátt og í fyrra sinn-
ið. Þegar gullsmiðurinn braut inn-
siglin og opnaði öskjuna sá hann
aðeins nokkra smápeninga eins og
gimsteinasalinn hafði séð.
Það eina, sem gullsmiðurinn
hafði fram að færa til viðbótar
fyrri lýsingu mannanna, var það
að sænskumælandi maðurinn hefði
ekki haft SAS merki í húfunni, en
aftur á móti hefði þar verið mynd
ásjáandi
af gylltum vængjum, svo sem títt
er á flugmannshúfum.
Sömu listir leiknar víðar.
Skýrt hefir verið frá því að lög-
reglan í París, Brússel og Vínarborg
hafi komizt á snoðir um þjófnaði
þar í borgum, sem útfærðir hafa
verið á sama hátt, með tveimur
öskjum, og einmitt hafa verið t:ð-
astir hjá gullsmiðum og skartgripa-
sölum. Er ekki ólíklegt að þgssir
sömu menn, sem frömdu þjófnað-
ina í Kaupmannahöfn, séu líka
valdir að einhverjum hinna í öðr-
um löndum, og gerir Kaupmanna-
hafnarlögreglan sér því enn meira
far um að afla upplýsinga um dvöl
þeirra þar, og bröttför þaðan, en
ella.
Sandgcrðl
(Framhald af 1. slðu).
vegna- vertíðar í Sandgerði.
Verið er að endnrbyggja fisk
hús það sem fauk fyrir
skemmstu og frystihús er í
byggingu hjá Miðnes h. f.
Þá er einnig meira byggt
af íbúðarhúsum í Sandgerði
um þessar mundir en áður og
eru alltnörg íbúðarhús þar í
smíðum. GJ.
Vænir dilkar í
Strandasýslu
Frá fréttaritara Tímans
á Hólmavík.
Meðalþungi dilka, sem
slátrað var hjá Kaupfélagi
Steingrímsfjarðar á Hólma-
vík nú í haust var 16,36 kg.
Slátrun lauk um miðjan
okt. Slátrað var bæði á Hólma
vík og Kaldrananes samtals
6113 kindum, samtals 100864
kg., og er það 1100 kindum
fleira en í fyrra. Meðalþungi
dilka var þá 16,4 kg. ÓJ.
Nýtt blað
X dag kemur út nýtt blað,
er nefnist „Frón“ og er ætl-
un þess að flytja greinar um
öll þau mál, er efst eru á
baugi hverju sinni, svo sem
greinar' um stjórnmál, bók-
menntir, listir, íþróttir og
aðrar fræðandi greinar, er
allir hafa skemmtun af að
fylgjast með. — Blaðið er
prentað • í prentsmiðjunni
Rún og hefir afgreiðslu sína
þar fyrst um sinn, — blaðið
er 8 síður að stærð. Útgef-
andi Fróns er Kristmundur
Ólafsson.
Frá Rithöfundafélagi Islands
Með því að blaðaskrif hafa
orðið, og nokkuð á huldu, um
tvo fundi í Rithöfundafélagi
íslands, þykir rétt að það
komi skýrt fram, hvað um
var að ræða.
Ályktun um herstöðvamál
ið var borin fram og sam-
þvkkt óbreytt á fundi félags-
ins 31. okt. Hún hefir verið
birt í blöðum. Umræður um
efni tillögunnar uröu engar.
Formaður félagsins (H. Hjv.)
lagði áherzlu á, að tillög-
unni yrði frestað til annars
fundar og hún boðuð í dag-
skrá, en það var fellt. For-
maður gerði engar frekari at
hugasemdir um afgreiðslu
málsins, en tilkynnti á stjórn
arfundi síðar, að hann mundi
biðjast undan formennsk-
unni. Á dagskrá félagsfund-
ar 14. nóv. var gert ráö fyrir
kosningu formanns til næsta
aðalfundar. Engar deilur, og
raunar engar umræður, hafa
verið í sambandi við þetta.
Ég lagði fram á fundi 14.
þ.m. svofellda tillögu:
„Fundurinn ályktar að fela
stjórninni að undirbúa og
leggja fyrir næsta aðalfund
tiilögur um það, að tekin
verði í lög félagsins bein á-
kvæði um:
að: allar veigamiklar tillög-
ur, sem bera skal upp til
atkvæða á félagsfundi,
skuli boöaðar i dagskrá
fundarins.
að: formanni sé rétt, ef svo
hefir ekki verið, að fresta
tillögu til annars fundar,
enda geti og tiltekinn
fjöldi fundarmanna kraf
ist að svo verði gert.“
(Samkomulag varð um að
fella niður einn lið úr tillög-
unni, með þvi að efni hans
fælist raunverulega í hinum
tveimur).
Lýsti ég því, að um frekari
ágreining væri ekki að ræða
c.f minni hálfu, ef þessi til-
laga yrði samþykkt, eða önn
ur jafngild. Ella mundi ég
biðjast undan formennsk-
pnni og lagði fram svofellda
athugasemd um það:
„Síðasti fundur Rithöfunda-
félags íslands var til þess
boðaður sérstaklega að ræða
hagsmunamál rithöfunda og
listamanna almennt og skýra
frá markverðum atriðum í
þeim efnum. Nú var borin
fram í miðjum klíðum á fund
inum ályktunartillaga um
herstöðvamálið, miðuð sér-
staklega við söfnun undir-'
ckrifta, sem einn stjórnmála'
flokkur eða tveir hafa eink-
um haft forgöngu fyrir. En
cllum er augljóst og vitan-
legt, að aðrir flokkar telja í
þessu vera pólitískan andróð
ur gegn sér.
Vilji Rithöfundafélag ís-
lands taka til umræðu og á-
lyKtunar slíkt örlagamál sem
herstöðvasamninginn, þá
bæri því fyrst af óllu að
hefja þær umræður yfir póli
tískt dægurþras og stjórn-
málabrellur. En hitt er í öðru
lagi óháð persónulegum skoð
unum, jafnvel um hin mestu
velferðarmál þjóðarinnar, ef
þau á v annað borð skipta
stjórnmálaflokkum í landinu,
að pólitískar illdeilur heyri
ekki sérstaklega undir hags
munafélag _ rithöfunda og
fundi þess. Ég tel það gagn-
stætt e$li máls og farsælleg-
um félagsháttum, að hægt sé
fyrirvaralaust að breyta slíku
félagi í pólitíska flokksdeild,
þegar vill.“
Tillagan um lagabreytingu
var samþykkt samhljóða og
með nær öllum atkvreðum.
Var þá um engan fresari á-
greimrig að ræða, enda vann
fundurinn af samhug að öðr-
um málum, sem fyrir lágu,
um almenna hagsmuni rit-
höfunda.
Æthugasemdir þessar erU
birtar með vitund og sam-
þykki annarra stjórnar-
manna félagsins.
Helgi Hjörvar.
Maðwrinn minn,^
BENEDIKT SVEINSSON,
fyrrv. alþingismaðwr,
lézt að morgni 16. þ. m.
Guðrún Pétursdóttir.
ÓLAFUR HVANNDAL,
prentmyndasmíðameistari,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
fimmtwöaginn 18. þ. m. — Athöfnin hefst kl. 1,30.
Vandamenn.
-*
Fastir liðir eins og venjulega.
19.30 Lesin dagskrá næstu viku.
20.30 Daglegt mál (Árni Böðvars-
son cand. mag.).
20.35 Kvöldvaka: a) Jóhann Sveins-
son cand. mag. frá Flögu flyt-
ur erindi: Frá Lofti ríka Gutt-
ormssyni. h) Flutt verða lög
eftir Árna Björnsson (plötur)J
c) Jón Jóhannesson les úr ljóða
bók sinni: „f fölu grasi". d)!
Ævar Kví^ran leikari flytur
efni úr ýmsum áttum.
22.10 Upplestur: „Lækning“, smá-’
saga eftir Ólaf Hauk Árnason
(Höskuldur Skagfjörð).
22.35 Sinfónískir tónleikar (plötur).
23.10 Dagskrárlok.
Útvarpið í dag:
ÍVAR HLÚJÁRN. Saga eftir Walter Scott. Myndir eftir Peter Jackson 104