Tíminn - 16.01.1955, Page 4
4 „
TÍMINN, sunnudaginn 16. janúar 1955.
12. blað.
Greinargerð frá sparifjársöfnun skóiabarna
Það hefir mikið verið um 1
það spurt, hvernig vegni
þeirri ungu starfsemi, sem
nefnd hefir verið Sparifjár-
söfnun skólabarna, hver sé
sú reynsla, sem fengist hafi,
og hver árangur. Hefir því
þótt rétt aS birta eftirfar-
andi greinargerð
í stuttu máli getum vér
sagt, að starfsemin hafi í
heild gengið mjög vel og raun
ar betur en vér bjuggumst
við. Vér teljum, að flest öll
bðrn um land allt á barna-
skólastigi, hafi nú fengið 10
kr. gjöf frá Landsbanka ís-
lands, eins og til*var ætlast,
og munu að lokum öll fá
hana. Flest munu börnin
vera búin að stofna spari-
sjóðsbækur, til 6 mánaða eða
10 ára, og má i því sambandi
geta þess, að sparisjóðsbæk-
ur til 10 ára eru sennilega
fleiri en upphaflega var bú-
izt við. Ekki eru nákvæmar
tölur fyrir hendi um það,
hversu mikið fé hefir verið
lagt inn í þessar sparisjóðs-
bækur, en það fé mun þó
nema verulegri upp.hæð.
Sparimerki hafa verið seld
í öllum barnaskólum kaup- |
staðanna, einnig í barnaskól j
um nokkurra þorpa og svo í
mörgum innlánsstofnunum
víðs vegar um land. Sala
sparimerkjanna hefir yfir-
leitt gengið prýðisvel. Sú sala
hófst ekki fyrr en um vetur-
nætur, og þá aðeins í nokkr-
um skólum. En allvíða ekki
Í5’rr en um og úr miðjum
nóvembermánuði, svo að
reynslutíminn er allur mjög
stuttur. Það er því ekki við
því að búast, að sjáanlegur
Bcrn í skólabckk með sparisjóðsbækurnar sínar.
árangur sé mikill.
Ennþá liggur lítið fyrir af
tclum, sem ástæða er til að
birta, og sem vænta má enn
minna af þeim upplýsingum,
sem meira virði eru og eink-
um er stefnt að, en það er
hið uppeldislega markmið
bessarar starfsemi. Þó er nú
vitað, að ekki óverulegar fjár
hæðir eru nú komnar á vöxtu
í innlán&stofnunum, sem ella
hefðu sennilega farið aðrar
og óþarfari leiðir, og að fjöldi
barna hefir á þann hátt
kynnst sparisjóðsbók, spari-
sjóði og banka, og sum þeirra
þá kannske eignast þann
skilning á fjármunum, að
ekki sé alveg sjálfsagt að
eyða hverjum eyri jafnóðum
og aflað er. En þetta er meg-
inatriði þessa máls, sem þó
verður naumast unnið að
með árangri nema með eins
konar verklegri kennslwr og
því er sjálf söfnunin nauð-
synleg. Mælt er og af kunn-
ugum, að sælgætiskaup
barna hafi minnkað.
Af upplýsingum frá skól-
unum, sem þegar eru fyrir
hendi, má ráða, að þar hafi
verið seld merki fyrir á fjórða
hundrað þúsund krónwr. Þar
eru skólar með frá 11 krón-
um á bárn að meðaltali til
90 króna, en þó flestir með
30—40 krónur á barn að með
altali. Þetta er mikil söfnun,
rrJðað við erlenda reynslu,
þar sem hér er ekki nema
um 1—iy2 mánaðar starf að
ræða. Auk þessarar merkja-
sölu, sem fram hefir farið í
skólunum, hafa svo ýmsar
innlánsstofnanir selt börn-
(P’ramhald & 7. siðu)
Yfirlýsing frá Nýja
myndgistarfélaglnu
Nýlega birtist í dagblöðum
bæjarins tilkynning frá Fé-
lagi ísl. myndlistarmanna um
væntanlega þátttöku íslend-
inga í norrænni listsýningu í
Róm, og hyggst félagið eitt
saman að hafa alla forgöngu
í málinu fyrir íslands hönd.
Vegna tilkynningar bessar
ar, óskar félag okkar að taka
fram það, sem hér fer á eftir:
í öllum hinum Norðurlönd-
unum starfa mörg listamanna
■ félög og hefir ekkert einstakt
félag forgöngu í málum eins
og þessu, heldur nefndir, sem
kosnar eru af listamannastétt
inni í heild. Hér starfa nú þrjú
félög myndlistarmanna, en
eitt félagið hefir enn haldið
! þeim forréttindum að hafa
umboð fyrir Norræna list-
bandalagið, og stafar það frá
þeim tíma, er það var eina fé
lagið. Þegar um er að ræða
þátttöku íslenzku þjóðarinnar
í sýhingum. erlendis virðist
það augljóst mál, að lista-
mannastéttin öll verði að
standa að .baki slíkri þátttöku
og að réttur allra listamanna
sé jafn hvar i félagi sem þeir
eru.
Hið háa Alþingi hefir sam
þykkt að styrkja sýningu
þessa af slíkri rausn, að ís-
lenzkir listamenn hafa aldrei
fyrr haft iafn rúman fjárhag
til að vanda sem bezt til sýn-
ingar eins og nú, og er allri
stéttinni skylt að þakka þá
vinsemd og skilning, sem það
hefir sýnt þessu máli. Og til
að styðja að góðri samvinnu
listamanna hefir Alþingi sett.
það skilyrði fyrir fjárveiting-
unni, að öll listanrnnpafélögin
vinni saman. Samþykkt Al-
þingis er svohljóðandi:
„Vegna þátttöku íslenzkra
myndlistarmanna í samnor-
rænni listsýningu í Róm. Und
irbúning og tilhögun á þátt-
töku þeirra í sýningunni skal
ákveða með samþykkt
Menntamálaráðuneytisins kr.
100.000.00, enda annist 2 full
trúar Félags ísl. myndlistar-
manna, 2 fulltrúar NJ'ja mynd
listarfélagsins og 1 fulltrúi fé
lagsins Óháðir listamenn
val og aðrar framkvæmdir“.
En í stað þess að taka þessu
höfðinglega tilboði hefir Fé-
lag ísl. myndlistarmanna nú
útilokaö samvinnu við hin
listamannafélogin tvö með
því að kiósa sýningarnefnd
einsamalt og heimta eiriræði
í þessu máli í skjóli foiTétt-
inda þeirra, se'm áðui var
minnz^ og þar með'svíþt'öll
listamannaf élögin áður-
nefndri fjárveitingu.
Þar sem hér ér berléga geng
ið á siðferðilegan rétt okkar
og auk þess gengið á snið við
samþykkt Alþingis úra sam-
vinnu listamannafélaganna,
munum við ekki taka þátt í
þessari sýningu nema sam-
komulag náist í tæka tíð milli
félaganna um undirbúning
sýningarinnar og sýningar-
nefnd sé skipuð samkvæmt
fyrirmælum Alþingis.
Reykjavík, 14. janúar 1955.
Nýja myndlistarfélagið.
Vinnið ötullega að útbreiðslu T Í Itt A IS S
UNDRA-ÞVOTTAEFNIÐ BLAA
llusmæonr! Reyni® OMO undra
])voí(adufiið BLÁA. Aldrcl hcflr
vcrið eins auðvelt að þvo þvottinn
Sáldrið hinu ilmandi bláa OMO yfir vatnið og
hrærið í. — Leggið þvottinn í bleyti í OMO-þvæl-
ið stutta stund. — Sjóðið þvottinn, ef þér álítið
þess þörf, en það er ekki nauösyr.legt. — —
j Ekkert þvottaduft, sem enn hefir verið fund-
f ið upp gjörir þvottinn hvítari en OMO.
ALLT BR SVO
HVÍTT SVO |
IL/V\ANDI / £
OMO er algjörlega óskaðlcgt
OMO cr iilátl
OMO er hczt
Mer
BtÁTTÍ
Það er árangur^rikast að nota OMO án
þess að blanda það með öðrum efnum! —
X-OMO 2-T924-5T
---Omo hefur farið sigurför um allan heim