Tíminn - 20.01.1955, Page 3
15. blað.
TÍMINN, fimmtuðaginn 20. janúar 1955.
3,
Dánarminning: Arnljótur Guðmundsson
Hinn 13. janúar síðastlið-
inn andaðist á Landsspítal-
anum Arnljótur Guðmunds-
son lögfræðingur, fyrrum bæj
arstjóri á Akranesi, aðeins
42 ára. Enda þótt hann ætti
oft við vanheilsu að búa, kom
dánarfregnin sviplega og ó-
vænt. En þótt æviár hans
yrðu ekki fleiri, var ævi-
starfið orðið merkilegt og
eigi' alllítið.
Arnljótur sál. var yngstur
þeirra systkinanna, barna
hinna þekktu og mikilhæfu
hjóna, Guðmundar prófess-
ors Hannessonar og konu
hans, Karólínu ísleifsdóttur,
prests að Stað í Steingríms-
íirði. Hann bar nafn föður-
frænda síns, Arnljóts Ólafs-
sonar, alþm. og prests að
Bægisá..
Hann er fæddur í Reykja-
vík 29. júní 1912. Lauk stú-
dentsprófi þar 1932 og laga-
prófi með góðri fyrstu ein-
kunn árið 1938. Vann síðan
í Landsbankanum, en varð
fulltrúi hjá borgarstjóran-
um í Reykjavík árið 1939 og
gegndi því starfi þangað til
hann var kosinn bæjarstjóri
á Akranesi í ársbyrjun 1942.
Bæjarstjóri var hann til 1.
nóv. 1946, en sagði því þá
lausu, og varð þá framkv.stj.
H.f. Hvalur í Hvalfirði, enda
átti hann mikinn þátt í stofn
'ún þess mikla fyrirtækis og
var þar meðeigandi. Nokkr-
um árum síðar stofnsetti
hann annað fyrirtæki: Kjöt
og Rengi. Hætti hann þá
framkvæmdastj órn H.f. Hval
ur, en gaf sig allan við hinu
uýja fyrirtæki sínu og rak
það til dauðadags. Árið 1948
kvæntist hann Sigríði, dótt-
ur Haralds prófessors Sigurðs
sonar frá Kaldaðarnesi og
Dóru, konu hans. Lifir hún
nú mann sinn ásamt tveim
ungum börnum þeirra, syni
og dóttur.
Margt mætti rita um ævi
og starf Arnljóts sál., þótt
hér verði aðeins stiklag á
stóru. Ég, sem þessar línur
rita, var honum samtíða er
hann var bæjarstjóri á Akra
nesi. Við áttum eðlilega mik-
ið saman að sælda í hafnar-
nefnd, bæjarstjórn og við
margháttuð önnur málefni
þar í bænum. Hann var mjög
vel gefinn, athugull og stillt-
ur, drengur hinn bezti og
einn hinn vandaðasti og
heiðarlegasti maður sem ég
hefi þekkt. Hann var fremur
dulur í skapi, laus við allar
persónulegar ádeilur, en
starfsamur og einbeittur að
hverju sem hann gekk.
Hlaut hann því viðurkenn-
ingu og virðingu allra sem
honum kynntust, jafnt sam
herja sem andstæðinga í
stjórnmálum. Dáðist ég oft
að því hve sýnt honum var
um að leggja málin laglega
fyrir bæjarstjórn og hafnar-
nefnd, hve mjög hann vand-
aði ajllan undirbúning
þeirra og reifaði þau ljóst og
skilmerkilega. Hann kom
þess vegna miklu í fram-
kvæmd fyrir bæinn og höfn-
iná á Akranesi, og mun Akra
nes bera þess minjar um
langa framtíð. Byggingarmál
og hafnarframkvæmdir voru
hans mestu áhugamál, enda
var honum í blóð borin hag-
sýni og framkvæmdaþrá.
Hann lagði sig jafnan all-
an fram við úrlausn þeirra
verkefna, sem honum voru
falin og varð oft mikið á-
gengt. Átak það, sem gert
var undir hans forustu í hafn
armálum Akráness, vakti að
verðleikum alþjóðarathygli,
og þó alveg sérstaklega hin
örugga og giftusama fram-
ganga hans í því máli. Hann
keypti fyrir bæinn og lét
flytja frá Englandi til Akra-
ness fjögur geysistór stein-
ker, sem svo var sökkt og
notuö í hafnargarða á Akra
nesi. Þetta var þá alger ný-
lunda. Síðan hafa mörg
byggðarlög hér heima og er-
lendis farið að hans dæmi
um slíka hluti og gefist vel.
Þetta átak varð Akranesi
giftudrjúgt, því hafnaískil-
yrðin þar gerbreyttust til hins
betra við þessar aðgerðir.
Þá keypti hann einnig tvær
ferjur í Englandi og voru
þær notaðar og eru enn not-
aðar við hafnargerðina á
Akranesi. Hann lét hefja trjá
rækt innan við Akranes í því
| skyni að mynda þar skjól-
! belti og hefir því verki verið'
áfram haldið síðan. Hann
skildi við bæjarsjóð og fyr-
irtæki hans skuldlítil, enda
var hann glöggskyggn og að
gætinn í fjármálum.
Við Akurnesingar munurn
jafnan minnast Arnljóts sál.
með hlýjum huga og djúpri
þökk fyrir þann mikla og
góða skerf, sem hann lagði
til umbóta og framfara í bæn
um okkar. Við vottum ekkju
hans og systkinum og öðr-
um hans nánustu, djúpa sam
úð okkar við hið skyndilega
fráfall hans.
Þórhallur Sæmundsson.
Miðstöðvarofnar
Miðstöðvarofnar fyrirliggjandi.
EanpféLng IlafnfirsiiisBH'a,
Byggingavörudeild. — Sími 9292.
larnaskólinn aö Varmaiandi
Greinarg'erS forsseanns skólanefndar
Nýir kaupsaraning-
ar á Skagaströnd
Nýlega voru undirritaðir
nýir kaupsamningar á Skaga
strönd. Samkvæmt þeim
hækkar dagkaup verkamanna
úr 9,00 í 9,25 kr. á klst. og
næturvinna við fiskvinnu
hefst kl. 8 að kvöldi í stað kl.
10 aö kvöldi áður. Dagvinnu-
kaup kvenna hækkar úr 6,60
á klukkustund, eins og það
er í Reykjavík upp í 6,84. Mið
að er við grunnkaup í ofan-
greindum tölum, bæði hvað
snertir kaup karla og kvenna.
Þá hafa sjómenn á Skaga-
strönd undirritað nýja samn
inga, og hækkar lágmarks-
kauptrygging þeirra úr 1400
í 1930 kr. á mánuði, en hluta
skipti verða sjómönnum aft-
ur á móti óhagstæðari, þar
sem nú veröa þar tekin upp
svokölluð helminagskipti.
Nýr og vandaður
bátur til Flateyrar
Á 25 ára afmæli Lands-
smiðjunnar í gær afhenti
hún eigendum 8. fiskibátinn,
sem hún hefir smíðað. Er það
40 lesta bátur, sem hlutafé-
lagið Barði á Flateyri kaup
ir og heitir báturinn Barði.
Er hann hið vandaðasta skip
og búinn sem bezt. Er hann
smiðaður eftir teikningu Egils
Þorsteinssonar í Keflavík en
yfirsmiður var Haraldur Guð
mundsson og verkstjóri Fáil
Pálsson. Skiþstjóri á bátn-
um \erður Björn Ingólfsson.
Er þetta briöji báturinn, se n
geröur verður út frá Flateyri.
Fer báturinn vestur nú eftir
helgina cg byrjar róðra.
MjélkBii’fræðiugffii*
segja upp samuiugiim
Aðalfundur Mjólkurfræð-
ingafélagsins samþykkti að
segja upp gildandi kaup og
kjarasamningi frá 1. febrúar
að því er Hannibal Valdimars
son forseti Alþýðusambands-
ins tjáði Tímanum í gær. En
félagið hefir þegar sent Al-
þýðusambandinu tilkynningu
um samningsuppsögnina.
Fundurinn samþykkti jafn
framt tillögu, þar sem skorað
er á stjórn A. S. í. að beita
sér fyrir því, að sem nánast
samstarf verði tekið upp milli
verkalýðssamtakanna og
vinstri fiokkanna hér á landi.
Herflugvél til Seyð-
isfjarðar með
jólaglaðning
Hermenn og starfslið varn
arliðsins á Keflavíkurvelli
höfðu fjársöfnun sín á milli
fyrir j ólin í því skyni að kaupa
jólaglaðning handa vistmönn
um íslenzkra elliheimila og
heimila fyrir munaðarlaus
börn. Sendar voru gjafir til
vistmanna slíkra stofnanna á
Akureyri, ísafirði, Norðfirði,
Vestmannaeyjum, Akranesi,
Hafnarfirði, Reykjavík, Hvera
gerði og Seyðisfirði. Það bar
til aö veður hamlaði því að
jólapakkarnir til Seyðisfjarð-
ar kæmust í tæka tíð með
pósti, en flugmenn úr 53.
björgunardeild hersins koniu
(Fi-amhald á 6. siðu).
Þrjú síðastliðin' ár hefir
verið unnið að byggingu
barnaskóla að Varmalandi í
Borgarfirði fyrir alla hreppa
Mýrasýslu utan Borgarness.
Formaður skólanefndar, sr.
Bergur Björnsson í Stafholti,
segir svo um mál þetta:
,,Mánudaginn 6. des. s. 1.
tók til starfa hinn nýi heima
vistarbamaskóli Mýrarsýslu
að Varmalandi. Vígsla skól-
ans mun síðar fram fara. í
skólanum er rúm fyrir 40
börn, en möguleikar á að
koma þar fyrir 52 börnum.
Skólinn mun starfa í tveim
deildum og er það eldri deild,
sem nú er komin til náms.
Kennslustofur eru þrjár, rúm
góðar og glæsilegar. Tvær
fullkomnar íbúðir.
Skólastjóri er Ólafur Ingv-
arsson frá Strönd, Rangárv.,
kennari Bjarni Andrésson
frá Stykkishólmi, ráðskona
Jóhanna Olsen.
Það munu ^era rúm 20 ár
stöan að fyrst var vakið máls
á því að byggja heimavistar-
barnaskóla fyrir Mýrasýslu á
heitum stað og gerði það
Daniel Kristjánsson frá
Hreðavatni. Einnig ritaöi sr.
Björn Magnússon síðar um
málið. Ritgerðin birtist í tíma
íiti Ungmennasambands
Borgarfjarðar, Svanir, 1.
hefti bls. 82. Líður svo nokk-
ur tími þanr.ig að ekkert var
gert, unz þáv. námsstjóri,
Bjarni M. Jónsson (veturinn
1941—42), átti viðtöl við
skólanefndir um sameiningu
skólahverfa og byggingu
heimavistarskóla fyrir sveita
lireppa Mýrasýslu. Boðaði
hann til fulltrúafundar í
þessu skyni, þar sem rætt
var uni að byggja skólann
fyrir fimm eftirtalda hreppa:
Hvítársíðu-, Þverárhlíðar-,
Norðurárdals-, Stafholts-
tungna- og Borgarhrepp.
Álftaneshreppur og Hraun
hreppur á Mýrum vestur,
vildu helzt star.^a saman u.v
skóiabyggingu.
Enn liðu mörg ár — eða
allt til vorsins 1951 -— að
veru’egur skriður komst á
málið. Stefán Jónsson náms-
stjóri mætti á sýslufunui »
Borgarnesi 11. maí 1951 og
var þar rætt um skóUn.ál
sýs'.unnar og kosið fræðsluráð
fyj'ir Mýrasýslu. '"Námsstjór-
inn taldi rétt að sameina
al!a lí.veppa sýslunnar um
byggingu heimavistarskóla
við Stafholtsveggjalaug og
sýslunefndin skoraði á ný-
kjörið íræðsluráð að hefjast
þegar lianda um skólabygg-
inguna. Að tilhlután fræðslu
málastj óra, samkv. bréf:
mennfamáiaráðuneytisins,
boðaði svo Stefán Jónsson
námsstjóri til fundar að
Varmalandi 21. júní 1951:
Fræðsluráð Mýrasýslu, Jón
Steingrimsson sýslumann í
Borgarnesi og oddvita allra
hreppa sýslunnar, auk for-
manna skólanefnda. Á fundí
þessum var endanlega sam-
þykkt að hefja byggingu skól
ans og bygginganefnd kjörin,
en hana skipa: Jón Stein-
grímsson sýslum., Andrés
Eyjólfsson, alþ.maður og sr„
Bergur Björnsson. — Vinna
hófst haustið 1951, en hlé
varð á um veturinn, unz tek-
ið var til af fullum krafti vor
ið 1952. Síðan hefir verið
unnið óslitið að byggingu
skólans undir stjórn yfir-
smiðsins, Kristjáns Björns-
sonar hreppstjóra á Steinum.
Teikningar að byggingunni.
gerði Sigvaldi Thordarson,
arkitekt. Er það samróma á-
lit allra, að öllu innanhúss só
mjög smekklega og hagan-
lega fyrir komiö, vinna öli
frábærlega vel af hendi leyst
og skðlahúsið glæsilegt. Skóla
stjórinn, Ólafur Ingvarsson,
hefir tjáð mér, að hann telji
skólann taka fram því, sem
hann hefir áður kynnst, og
ómetanlegan ávinning að í-
búöir og heimavist eru full-
komlega aðskilin. Einnig tek
ur hann fram að starfsskil-
yrði séu hin ákjósanlegwstw.
Heildarkostnaður við bygg
ingu skólans mun verða eitt-
hvað yfir 3 milljónir.
Gert er ráð fyrir að sund-
kennsla fari fram á staðnum
og voru búningsklefar við
sundlaugina endurbættir s. L
haust. í skólanum mun verða.
mikig sungig undir stjórn
Bjarna Andréssonar kenn-
ara, þar mun væntanlega
nám allt verða stundað aí
kappi og unnið ósleitilega.
Miklar vonir eru tengdar
við Barnaskóla Mýrasýslu að
Varmalandi, sem á aö leiða
börnin okkar til þroska og
frama um ókornin ár. Er það
einlæg ósk okkar allra, að
mikilvægt starf hans megi
giftusamlega takast.
Á s. 1. hausti voru af sveit-
arstjórnum Mýrasýslu kosnir
ír í skólanefnd: Anna Bryn-
jólfsdóttir, frú, Gilsbakkaý
Daníel Kristjánsson, skógar-
vörður, Hreðavatni, Leifur
Flnnbogason, bóndi í Hítar-
dal, Vigdís Jónsdóttir, for-
stöðukona, Varmalandi. Hinr:
30. nóv. s. 1. skipaði svo
menntamálaráðherra, Bjarni
Benediktsson, sr. Berg Björns
son, Stafholti, formann.
nefndarinnar.
AÐALFUNDUR
Farfus'ladeildffir Reykjjavíkur
verður haldinn að Café Höll þriðjudaginn 25. janúar
klukkan 8,30 siðdegis.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
STJÓRNIN.
Vinni& ötullíBga a& útbr*n&slu T I M A IV S-