Tíminn - 20.01.1955, Page 4

Tíminn - 20.01.1955, Page 4
TÍMINN, íimmtudaginn 20. janúar 1955. 15. blaS. i. Gubm.an.clur Þorsteinsson frá Lundi: Orðið er frjálst Kvittun til Benjamíns Sigvaldasonar Benjamín Sigvaldason rith. sendir mér kveðju sína í Tím- anum, 5. jan. s. 1. Mín er ær- an, að svo frægur maður skuli heiðra mig — enda virðist honum ekki vera það með öllu dulið. Tilefnið er smásaga, sem ég skráði í haust, og birt ist í síðasta jólablaði Tímans. í grein B. S. kennir fleiri grasa en beint koma efninu við; t. d. verður honum hug- stætt „skítkast1, sem hann kann að nefna í fleiri tilbrigð um, eins og sómir snjöllum rithöfundi. Ég mun ekki þreyta við B S. svo göfuga íþrótt, en láta mér lynda, þótt lesendur dæmi honum þar frægan sigur eftir frækilegum tilburðum. Fyrst rekur B. S. sig á undir fyrirsögn, sem telur söguna sanna, og verður til ásteyt- ingar. Því miður gagnar víst lítið þótt ég vildi „kyssa á“ viðkvæma blettinn — af því að ég setti ekki þessa undir- fyrirsögn. Aftur stóðu neðan við handrit mitt þessi orð: „Rétta skrásetningu staðfest ir með eigin hendi Sveinn Guðjónsson (sign.). Þessi grein hefir verið felld niður, og get ég heldur ekki að því gert. Þótt B. S. leggi töluvert út af því, sem hann heiðrar með því að nefna eftirmála við söguna, virðist honum sjást algjörlega yfir, að þar er skýrt fram tekið, að sagan sé skráð eftir þeim, sem sjálf ur lifði hana, en talar. af nokkrum þjósti eins og mér væri í sjálfsvld sett, hvernig ég „gjöri“ hana og „láti“ hana vera. í þessu greinir okkur verulega á. Mér þykir leiðinlegt, að B. S. skuli verða svona bumbult af þessu efni nú. Ég mun hafa orðið fyrstur manna til þess að segja honum það, vorið 1£53, að Sveinn væri reiður við hann fyrir ranghermi á þess ari sögu. Þá mótmælti hann því ekki með einu orði, en svaraði aðeins mjög hógvær- lega: „Ég var bara að hugsa um listina.“ Ég veit ekki betur en B. S. hafi tvisvar komið til Rauf- arhafnar síðan þetta var, sjálf ráður ferða sinna á einkabíl. Hefði honum þá verið auð- velt að finna Svein að máli og fá að heyra frá honum sjálfum, hvað þeim bæri á milli; væri og eðlilegast, að sá leiðrétti söguna, sem fyrst fór af stað með hana. Hefði þá mín íhlutun engin orðið. Sagan eins og ég skráði hana, er alveg eftir frásögn Sveins sjálfs — sem fyrr er sagt. Hefði því B. S. gjarna getað snúið sér beint til hans — með heldur minni bægslagangi, ef hann þykist geta leiðrétt minni hans um eitthvað, sem skipti verulegu máli. B. S. sannar það auðveld- lega, með „öruggum heimild um“, að Sveinn hljóti að hafa verið á Eyvindarstöðum sum arið 1896, því það sé eina árið, sem Emilía ráðskona sé þar. Verður þá af manntali ekki séð, að þar sé fleira fólk en bóndinn, dóttir hans og ráðs konan. (Honum virðist sjást yfir það, að næsta ár er aðeins húsvitjun, en ekki manntal, svo óljóst er, hvernig hann fær sönnun þess, að Emilía sé þar ekki lengur.) Af manntali 1898 sést, að árið áður (1897) hefir ísak verið kominn þang að ,og það sumar deyr Indriði, sonur hans, 2. ág., 1 y2 árs gam all. Það er líka eina sumarið, sem þessir bændur búa þ^r báðir, og verður því að ætla, að það sé þetta sumar, sem hin umrædda saga gerist. Mun B. S. varla gráta það, þótt Sveinn sé þá kominn á 13. ár, en mér finnst skylt að hafa það, sem sannast reyn- ist. Eyvindarstaðir virðast hafa staðið í eyði nokkur ár, þegar Flóvent fer þangað 1896. Verð ur þá skiljanlegt, þótt þröngt sé til húsa, þegar við bætist árið eftir, annar bóndi með fimm í heimili. B. S. ver nokkru rúmi til þess að ættfæra og skilgreina Lúsfreyjuna í Heiðarbót, og er það gott, svo langt sem það nær. Út frá því er hann held ur ekki lengi að sanna, að það sé gamla fóstran.hans Sveins, sem tekur á móti honum, þeg ar hann kemur af heiðinni — þótt ekki verði annað ráðið af frásögn Sveins en að hvor ugt þeirra kannist við hitt. Aðeins er sá munur, að áður fannst honum hún roskin, en nú er hún orðin ung! Mun lesendum ætlað að ráða af þessu, hve mikið sé á að græða svo skilríkum heimild armanni. Þessi fullyrðing er þó eitt af því, sem venjulegu fólki gengur illa að taka bókstaf- lega, jafnvel þótt B. S. dæm ist það rétt vera. Hugsanlegt væri líka, að til væri bæði sennilegri og góðgjarnari skýr ing, þegar þess er gætt, að húsfreyjan, sem þá er komin yfir fimmtugt, á tvær frum vaxta dætur, aðra átján ár-a, hina tvítuga. Hvað hindrað hafi hina rosknu húsfreyju frá að koma sjálf og tala við drenginn er varla við að bú- ast að finnist skráð í heim ildum, en fleiri hygg ég að trúa muni því, að eitthvað hafi komið þar til, annað en ræktarleysi. Þó þætti líklega einhverjum afsakandi, þótt drengur, sem nemur staðar hjá bæ, lítið umfram það, að seðja þar hungur sitt, setji sig ekki nákvæmlega inn í, hvernig háttað er á heimilinu stöðu þeirrar konu, sem svo vel og alúðlega beinir honum og greiðir götu hans. Vel gæti ég beðið B. S. af- sökunar um oftraust á gáfum hans, ef honum þykir víta- verð vanræksla af minni hálfu að telja ekki ærnar hjá Sveini — til tryggingar gegn hugsanlegu misminni hans — ærnar, sem hann gætti nokkr um árum áður en ég fæddist! Veit ég, að B. S. muni aldrei gera sig sekan um þvílíkt skeytingarleysi. Ekki deili ég við B. S. um, hvort vera kynni „listrænna“ að rekja slóð drengsins yflr heiðina nákvæmlega eftir ör- nefnum. Ég hafði ekki annað við að styðjast en sögu hans sjálfs, sem einn var til frá- sagnar, og sem tók fram, að hann hefði aldrei farið leið- ina og vissi aðeins deili á stefnu og hæstu fjöllum. Það eina örnefni, sem hann nefndi, „Hellurnar“, gat hann hafa fengið með síðari kynn um af heiðinni og þekkt aft ur. Ég hafði ekki þá tröllatrú á eigin listfengi, að geta bætt þar mikið um — nema þá á kostnað veruleikans. B. S. kann aftur reiprennandi ferðasögu drengsins, með ör nefnum og öllu, sem tilheyrir, miklu lengri og fyllri en hann sjálfur — og það, án þess að þurfa að tala við hann! Mega allir sjá, af þessu og fleiru, sagnritunarhæfileika hans, umfram meðalmenn, og ann ég honum að njóta þess að verðleikum. Þá virðist B. S. hafa hnotið um einhverjar hrjónur á yfir setusvæði Sveins. Vonandi hefir þó ekki sannazt á hon- um — né sannast í bráð, hið fornkveðna, að „þung eru gam alla manna föll“, svo hann hafi meiðzt alvarlega. Ég sagði Svein hafa setið ærnar í heiðinni milli Eyvindar- staða og Fjalia og þar inn af. Þar til B. S. sannar, að ein- hver bær hái suður að, eða suður fyrir þessa línu, hsld ég að þetta orðalag þoli alla hlutlausa athugun. Er dálítið einkennilegt, að hann skuli reyna svo marklitla hártog- un, sem vel gæti rýrt álit hans meðal fyrri sveitunga hans. Virðist hann þó hafa nokkurn grun um, úr hve há- um söðli hann hefir þar að detta, og kemur margur hart niður að lægra falli. B. S. kveður fast að orði um vasklega þjónustu sína við sannleikann og endar hug- vekju sína með skorinorðri fullyrðingu um, að ég sé eini maðurinn, sem dirfzt hafi að efa sannleiksgildi sagna sinna. Þetta er skýrt orðað. En mikið dæmalaust hefði þessi skörulegi eiginvitnisburð ur orðið miklu rismeiri í tign sinni og virðuleika, ef B. S. hefði skorðað hann ofurlítið með undirrituðum traustsyfir lýsingum nokkurra fyrrver- andi sveitunga sinna, t. d. erf ingja sr. Þorleifs á Skinna- stað, eða dætra Vigfúsar heit ins á Ferjubakka — já, jafn- vel Sigríðar Tómasdóttur, sem honum er að góðu kunn — svo aðeins sé nefnt fólk, sem auðvelt er að ná til. Er því ekki ólíklegt, að þetta geti orðið, þegar hann upphefur næst raust sína, til þess að sanna þjóðinni páfalegan ó- skeikulleik sinn í sagnfræð- inni. En þegar hann þarf næst að „skirpa úr klaufum sér“, er vonandi, að honum verði runninn svo móðurinn, aö hann snúi sér í rétta átt. Óska ég svo Benjamín alls góðs á nýbyrjuðu ári; m. a. glæsilegrar siglingar á dill- andi bárum listarinnar, inn- anum óbilgjörn sker veruleik ans, og sigursællar baráttu undir merki sannleikans. St. Reykjavík, 16. jan. 1955. Guðm. Þorsteinsson, frá Lundi. Mendcs-France og Adenauer láta vel af fnndi sínuni Baden-Baden, 15. jan. — í tilkynningu Adenauers og Mendes-France um viðræður þeirra gætir mikillar bjart- sýni. Telja þeir lagðan grund völl að góðri sambúð þjóða sínna í framtíðinni. Þeir urðu sammála um að biðja Bret- land og Bandaríkin að ábyrgj ast framkvæmd Saar-sáttmál ans og jafna ágreining varð- andi það mál. Foringi frjálsa demókrataflokksins, sem er stjórnarflokkur, hefir gagn- rýnt frammistöðu Adenau- ers í viðræðum þessum, seg ir ekkert hafa áunizt varð- andi Saar. Svar til Vegna ummæla Flugvallar- blaðsins þann 20. des. s. 1., þar sem segir, að ég hafi geng ið ,í Starfsmannafélag Kefla víkurflugvallar til að kjósa Stefán Valgeirsson, vil ég taka fram eftirfarandi: Er ég gekk í Starfsmannafélag Keflavíkurflugvallar, gerði ég það í þeim tilgangi að verða félaginu til gagns, sem fram ast ég gæti. Ég skal geta þess hér, að það var ég, sem fyrstur allra íslendinga á Keflavíkurflug- velli gerði tilraun til stofnun ar starfsmannafélags þar um sumarið 1947. Menn náðust að eins saman til tveggja funda, og ekki var fært að halda starfseminni áfram vegna þess, hversu íslendingar voru þar fáir og máttu sín lítils. Menn voru hundeltir, kallaðir uppreisnarmenn og þar fram eftir götunum. Ég skal jafn- framt geta þess, að reka átti mig af Keflavíkurflugvelli fyrir að draga íslenzka fán- ann að hún, er ég hafði verið beðinn um að annast í frí- stundum mínum. Samt vil ég geta þess, að samstarf mitt við Bandaríkjamenn hefir verið hérumbil undantekn- ingalaust mjög gott, öll þau ár, sem ég hefi umgengizt þá, hér heima og eins fyrir vest- an. En samt geta ávallt verið til menn, sem spilla og geta tafið fyrir samstarfi um tíma, sem dæmi það er ég nefndi hér á undan. Svo þörf er fyrir félagsskap manna alls staðar til að geta starfað saman að kröfum sínum og áhugamál- um. Af þessu getið þið séð, að ég muni vera þó nokkuð kunn ugur málefnum Keflavíkur- flugvallar, enda fáir starfað þar lengur en ég, í hartnær 8 ár. Sem betur fer náðist tak- markið, starfsmannafélag var stofnað. Ekki skipta nöfn manna mestu máli heldur hitt, hver félagsskapurinn er. Stefán Valgeirsson varð fyrir valinu sem fyrsti forustumað ur. Oft hevrði ég á máli manna, að sá maður ætti miklar þakk ir skilið, en samt því miður oft það neikvæða. Enda breitt út af vissum aðilum, sem vildu hann burtu úr félaginu. Það fer oft svo, aö þ'eir, sem vilja láta gott af sér leiða, fá hinar verstu skammir og vanþakklæti. Það sannaðist í þetta sinn, sem svo oft áður. Því skal ekki á móti mælt, að margt hefði mátt fara betur, en hægara er að finna að og setja útá en byggja upp starf semi sundurleitra hópa með mörg og misjöfn sjönarmið. Sem betur fer eiga nú starfs menn Keflavíkurílugvallar styrka og góða stoð, þar sem . er hæstvirtur utanríkismála ráðherra, dr. Kristinn Guð- mundss. Störfum hans í þágu Keflavikurflugvalíar er ekki hægt að lýsa í fáuih orðum, svo mikið afbragð tíefir hann leyst af hendi. Nsegir að nefna aðeins eitt dæmi af mörgum: Stofnun Vinnumálanefndar. Allir, sem starfa á Keflavík- urflugvelli, vita, hvaða störf þar hafa verið af hendi leyst, og er cþarfi að orðlengja það. Ég sagði í upphafi þessarar greinar, að ég hafi gengið í félagið til að geta orðið því að liði, sem framast ég gæti. Er ég sá, hvernig störf fundar ins voru, er ég var á, meðal annars það, að gera félagið pólitískt í þágu þeirra afla, er mest berjast á móti afskipt um hæstvirts utanríkismála- ráðherra, dr. Kristins Guð- mundssonar, af’ málefnum Keflavíkurflugvallar, og minnst vilja gera fyrir starfs mennina. í þess háttar félags skap vil ég ekki vera meðlim.' ur. Starfsaðferðir þessara pólitísku aðila, eru hinar sömu í hvaða félagi sem er, nægir að benda á t. d. Nor- ræna félagið. Smalamennska og kosningastarfsemi Heim- ■ dallar er þeim til .lítils sóma, og þurfa hugsandi menn að • vera vel á verði, og láta hluti ; sem þessa ekki endurtaka sig. Keflavík, 30. desember 1954. , Héðinn Jóhannesson. V^WAV.’/AV«V.V/.W.WWVrWVV.VA\VVVVVAWWWÍ j Bezt að auglýsa í TÍMANUM ;j

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.