Tíminn - 21.01.1955, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Skrifstofur f Edduhúsi
Fréttasfmar:
81302 og 81303
Afgreiðslusimi 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
39. árgangur.
Reykjavík, föstudaginn 21. janúar 1955.
16. blaS.
Bifreiðin rann 50 ra
og stórskemmdist |
Frá fréttaritara Tímans ,
_ í Stykkishólmi í gær. |
Á milli klukkan 2 og 3 í!
nótt voru tveir menn á tíu
lijóla vörubifreið frá Stykk
ishólmi á leið' út Skógar- J
strönd. Þegar kom útundi'r
bæinn Narfeyri, rann bifreið
in til á hálku og fór út af j
veginum að aftan. Bifreiða-
stjórinn reyndi þá að kom-
ast upp á vegínn annars
staðar en gekk erfiðlega.
Menniriffr fóru þá báðir út
úr bifreiðinni og hugðust
festa vír um stein fyrir of-
an veginn og draga bifreið
ina upp á veginn með vindu,
sem var framan á honum.
En rétt í því rann bifreið-
in mannlaus af stað aftur á
bak og stanzaði ekki fyrr
en hún hafði fariö um 50
metra. Halli' var þarna tölu
verður og varð mikill skrið
ur á bifreiðinnji. Var hún
mikið skemmd, þegar hún
stanzaði, enda var yfir
kaigaþýfí að fara og að síð-
ustu hafnað í moldarbarði.
Bifreiðán fór þó aldrei af
hjólunum. Hefðu mennirnir
verið í bifreiðinni', í þessari
ferð, hefðu þeir án efa orð-
ið fyrir meiðslum. KG.
Rafmagnsskömmt-
nninni aflétt á
Stöðvar verkfall matreiðslu-
ogframleiðslum. kaupskipin?
Sanmiiigum hætt í blli vcgua þess hve
mikið bcr á milli. Fyrstu skipin stöðvnð
Á míðnætti í fyrrinótt hófst verkfall matreiðslu- og fram-
reiðslumanna á kaupskipaflotanum, og voru tvö skip,
Reykjafoss og Skjaldbreið, þegar stöðvuð í gærkvöldi. Samn
ingafundir hafa staðið yfir síðustu daga og nætur en án
árangurs, enda ber mjög mikið á milli.
Akureyri
I gær var lokið við að
hreinsa krap úr þrýstilofts-
pípunni í nýju stöð Laxár-
virkjunarinnar, og er nú raf
magnsskömmtuninni, sem
verið hefir á Akureyri síðan
á sunnudag, aflétt. Mikiö
vantar þó á, að orkuverið
komi að fullum notum enn-
þá, og er spennan mjög lág.
Veldur það enn nokkrum
truflunum hjá iðnaðarfyrir-
tækjum á Akureyri og Húsa-
vík.
Herbert Bruggeman frá Santiago sést hér skríða undir flug-
vél sína til þess að vita hverju sættu einkennileg hljóð, sem
hann heyröi í tvö þúsund km. langri flugferð. Ilann fann
þar kött, sem hafði tekið sér far sem blindur farþegi í hjóla-
skotinu. Kötturinn var þó sæmiiega stýrisbrattur eftir
flugferðina.
Tvær útgáfur af Svörtum
fjöðrum Davíðs Stafáussonar
Úrval [júfia hans I nýnorskri iitgáfu
Bókaútgáfan Helgafell hefir sent frá sér þrjár bækur í
tilefní af sextugsafmæli Davíðs Stefánssonar, skálds. Eru
það tvær útgáfur af Svartar fjaörir og þýðingar á nokkrum
kvæðum Davíðs á nýnorsku eftir Ivar Orgland sendikennara.
Lýsing Tjarnarinnar
athyglisvert nýmæli
Borgarstjóri tckur vel tillögum hæjar-
fulltrúa Framsóknarflokksins um þctta
Björn Guömundsson, bæjarfulltrúi Framróknarflokksins
á bæjarstjórnarfundinum í gær, bar fram tillögu um lýsingu
tjarnarinnar að kvöld- og næturlagi og féllst borgarstjóri
á tillögur Björns og hét að leggja fyrir rafmagnsstjóra að
gera áætlanir um þær framkvæmdir í sambandi við endur-
bætur á bökkum tjarnarinnar, sem borgarstjóri sagði að
stæðu fyrir dyrum.
væri hún hættuleg í nátt-
myrkri.
Auk þess benti Björn á það,
að g'óð lýsing Tjarnarinnar
væri mikill fegurðarauki fyrir
bæinn og síðast en ekki sízt
yrði góð lýsing hennap til
þess að börn og unglingar
myndu nota sér betur skauta
svell og útivist. Benti Björn
á það, að með því væri stuðlað
að aukinni útivist unglinga,
sem væri heilsusamlegri en of
miklar inniverur í misjafn-
lega hollum samkomuhúsum.
Borgarstjóri féllst á þessar
tillögur Björns og hét því að
vinna að því að stuðla að lýs
ingu Tjarnarinnar með fyrir
mælum til starfsmanna bæj
arins.
Björn fylgdi tillögunni úr
hlaði með stuttri ræðu og
benti á, að Tjörnin væri frá
náttúrunnar hendi bæjar-
prýði, sem bæri að sýna full
an sóma. Benti hann á, að
lýsing Tjarnarinnar væri
nauðsynleg bæði af öryggis-
ástæðum, þegar Tjörnin er
auð eða með ótryggum ís. Þá
Önnur útgáfa af Svartar
fjaðrir er viðhafnarútgáfa
forkunnarvönduð og vel úr
garði gerð, í stóru broti. Hin
útgáfan er í litlu broti, prent
uð á þunnan pappír, ætluð
til að lesast upp til agna eins
og fyrstu útgáfur af bókinni,
segir Ragnar Jónsson í
skemmtilegum formála.
Þá mun mörgum þykja gam
an að sjá þýðingar Ivars
Orglands á ýmsum beztu
kvæðum Davíðs á nýnorsku,
en hún er undarlega lík ís-
lenzkunni. Nefnist sú bók
„Eg sigler i haust“ og hefst
á samnefndu kvæði.
í kvöld er hátíðasýning í
Þjóðleikhúsinu á Gullna hlið
inu eftir Davíð og einnig er
honum haldið samsæti í
Sj álf stæðishúsinu.
Sáttasemjari ríkisins heíir
haft deiluna til meðferðar, og
hafa fundir verið tvær nætur
og lauk kl. 6 í gærmorgun.
Taldi sáttasemjari tilgangs-
laust að halda áfram að sinni,
þar sem svo mikið bar á milli,
og hafa nýir samningafundir
ekki verið boðaðir.
Kröfur matreiðslumanna
eru m. a. þær, að mánaðar-
laun hækki um 10% auk 11%
styttingar vinnutíma og 30
klst. yfirvinnutryggingar sam
fara 40% hækkun á kaup-
taxta við yfirvinnu. Einnig
aukið irlof og sjúkrahlunn-
indi.
Framreiðslumenn krefjast
kauptryggingar, sem er mun
hærri en mánaðarkauptaxtar
sjómanna eða hásetá á kaup
Fjölraenn og ánægju
leg íramsóknarvist
í fyrrakvöld héldu Fram-
sóknarfélögin skemmtun að
Hótel Borg, er hófst með
hinni vinsælu Framsóknar-
vist, seiri spiluð var af fjöl-
menni og með miklu fjöri.
Eftir að góðum verðlaun-
um hafði verið úthlutað til
sigurvegaranna í spilunum,
sem einn ungur Framsókn-
armaður hafði gefið, flutti
Hannes Pálsson snjalla ræðu.
Síðan var sungið og dansað.
Um leið og formaður
skemmtinefndar, Jón Snæ-
björnsson, setti samkomuna,
(Framhald á 2. síðu).
skipum og vilja ekki fallast á
meðaltal af mánuðum ársins.
Skjaldbreið var fullhlaðið
vörum í gær og átti að leggja
af stað til Norðurlands en var
stöðvuð. Einnig stöðvaðist
Reykjafoss. Esja kemur til
Reykjavíkur í dag og á að
leggja af stað aftur á morgun.
Þannig munu kaupskipin
stöðvast eitt af öðru, ef samn
ingar nást ekki, og gæti svo
farið, að meginhluti kaup-
skipaflotans stöðvaðist þann
ig.
Afbragðsafli
Djúpavogsbáta
Frá fréttaritara Tímans
á Djúpavogi.
Afli hefir verið óvenjulega
góður hér í janúar. Vélbát-
urinn Víðir er búinn að fá
140 skippund. Hefir báturinn
að jafnaði fengið 15—18 skip
pund í róðri. Ýsa er um helm
ingur aflans. Annar minni
bátur, sem héðan rær, hefir
aflað minna. ÞS.
Tveir jarðskjálfta-
kippir ífyrradag
í fyrrakvöld og fyrrinótt
fundust tveir vægir jarð-
skjálftakippir í Reykjavík,
sá fyrri kl. 18,30, en hinn um
kl. 2,20 um nóttina. Samkv.
jarðskjálftamælum Veður-
stofunnar voru upptök jarð-
hræringanna á sama stað og
á laugardaginn eða um 10
km. norð-austur af Grindav.
Bóndadagurinn
er í dag
í dag er bóndadagurinn
— fyrsti þorradagur, og
halda margir hann liátíö-
legan að gömlum sið. í gær
var víða verið að undirbúa
þorrablótin, til dæmis sagði
fréttaritari blaðsins á Eg-
ilsstööum, að þar mundi
veröa fjölmennt þorrablót.
Viljayfirlýsing um samnings-
uppsögn fyrir 1. febrúar n.k.
I fyrradag var haldin hér
í Reykjavík formannaráð-
stefna verkalýðsfélaga við
Faxaflóa. Var þar teil um-
ræðu hvort sagt skyldi upp
íamningum fyrir 1. febrúar.
Á ráðstefnunni mættu full-
trúar frá 39 félögum innan
Alþýðusambandsins. Voru
flestir þeirrar skoðunar, að
vegna kjararýrnunar væri
ekki hægt að komast hjá upp
sögn samninganna. Nokkrir
fulltrúanna upplýstu að fé-
lög þeirra hefðu bundna
samninga fram að 1. júní.
Að loknum umræðum var
svohljóðandi viljayfirlýsing
samþykkt með öllum greidd-
um atkvæðum gegn einu:
„Ráðstefna verkalýðsfélag-
anna í Reykjavík og ná-
grenni haldin 19. janúar
1955 lýsir yfir. að hún telur
nauðsyn bera til að verka-
lýðsfélögin segi upp samn-
ingum sínum fyrir 1. febrúar
n. k. til að knýja fram kjara
bætur, svo að tekjur átta
stunda vinnudags nægi til
mannsæmandi framfærslu
meðalf j ölskyldu.“
Viljayfirlýsing þessi er
ekki bindandi fyrir hin ein-
stöku verkalýðsfélög og
munu þau nú halda fundi
fyrir mánaöamót og taka á-
kvörðun um hvort þau vilja
segja upp samningum eða
ekki.