Tíminn - 23.01.1955, Side 2
TÍMINN, sunnudaginn 23. janúar 1955.
2.
18. blað
Starfsemi líffærabanka vex ört og
bjargar fjölda mannslífa árlega
Ef svo illa stendur á, að þig vantar gerfiauga og átt heima
í Bretlandi, þarftu ekki annað en útfylla þar til gert eyðu-
blað og framvísa því í ráðuneyti, sem fjallar um styrkveit-
ingar, og mun þá verða séð fyrir því, að þú fáir augað. Sama
máli gegnir, ef þig vantar gerfifót, nema það eru aðrir aðilar,
sem verða við beiðni þinni á eyðublaðinu.
En þótt þróunin haíi leitt til þess,
að hið opinbera er farið að hafa
afskipti af málum þessum, eru
gerfifætur eins gamlir í sögunni og
stríð. Og gleraugu voru í notkun
meðan kinversk menning var enn
á unga aldri. í dag hafa orðið nokkr
ar breytingar í þessum efnum.
Miklu skiptirorðið að halda sjúkum
á lífi og gera þá heilbrigða með
hjálp annarra líkama, lifandi eða
dauðra.
Gerviraddbönd.
Brezkur læknir hefir nýlega ritað
grein, þar sem hann ræðir nokkuð
helztu nýjungar á því sviði læknis-
íræðinnar, sem fjallar um endur-
nýjun bilaðra líffséra. Læknirinn
segist nýlega hafa verið staddur á
járnbrautarstöð og þá undrazt rödd
eins járnbrautarstarfsmannsins. Að
spurður kvaðst maðurinn notast við
h'tinn raddkassa. Minntist þá lækn
irinn þess að hafa heyrt getið um
þetta tilfelli og síðar fann hann
skurðlækninn að máli, þann, sem
framkvæmdi aðgerðina,
Barkarkýlið tekiff.
Skurðlæknirinn sagði, að það
væri ekki með öllu satt, að maður-
inn gengi með raddkassa, en samt
sem áður væri þarna um mjög
évenjulegt tilfelli að ræða. Maður-
inn gekk með sjúkdóm í barkakýl-
inu, og þótt það væri tekið í burtu,
Þótti sýnt, að loftgangurinn mundi
stíflast seinna meir. Til að varna
pví að loftgangurinn lokaðist, settu
þeir slöngu í hann fyrir neðan til
að halda honum opnum. Maðurinn
hafði gaman af að synda í frístund
um sínum, en vitanlega var honum
drukknun vis, ef hann reyndi það
með öndunarfærin í þessu ástandi.
Hann var varaður við þessu, en
:nú kom hugvit mannsins sjálfs til
sögunnar. Hann leysti vandann með
;æki, er líktist einna helzt sjón-
pipu kafbáts og synti eftir sem áður.
Líffærabankar.
Víðs vegar hefir verið komið upp
■ i'ííajrabönkum með góðum árangri.
t:---- ■ ~-- ---------
Útvarpid
Ótvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
il,00 Messa í Laugarneskirkju.
3,15 Erindi: Hugleiðingar um
Hávamál frá sálfræðilegu og
siðfræðilegu sjónarmiði; síð-
'ara erindi (Símon Jóh. Ágústs
son prófessor).
.7,30 Barnatími.
20,20 Tónleikar (plötur).
,20,45 Leikrit: „Leikið á leirflautu",
gamanleikur eftir Lars-Leevi
Lestadius, í þýðingu Ragnars
Jóhannessonar. — Leikstjóri:
Ævar Kvaran.
:22,00 Fréttir og veðurfregnir.
.22,05 Danslög (plötur).
: 23,30 Dagskrárlok.
Ótvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
'20,30 Útvarpshljómsveitin.
20,50 Um daginn og veginn (Gísli
Ástþórsson ritstjóri).
21.10 Einsöngur: Primo Montanari
syngur; Fritz Weisshappel
leikur undir á píanó.
31,30 Útvarpssagan: „Vorköld jörð“
eftir Ólaf Jóh. Sigurðsson; V.
(Helgi Hjörvar).
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
32.10 íslenzkt mál (Bjarni Vil-
hjálmsson cand. mag.).
22,25 Létt lög (plötur).
23.10 Dagskrárlok.
Þar eru líkamshlutar geymdir, sem
teknir hafa verið úr lifandi fólki,
eða því sem er nýlátiö, og þessir
hlutir síðan græddii' í sjúklinga, er
þurfa endurnýjunar við. Allir hafa
heyrt getið um blóðbankana og
það eru fjölmargir, sem stöðugt eru
reiðubúnir til að gefa blóð sitt. Þau
líf, sem þessir blóðgefendur hafa
bjargað, eru óteljandi. En þörfin
fyrir blóðgjafir hefir aukizt að mun
síðan stríðinu lauk. Hvitoíæði (Leu-
kæmia) hefir farið mjög í vöxt síð-
ustu árin. Sjúkdómurinn stafar af
því, að hvítu blóðkornunum fjölgar
óstjórnlega. í eðlilegu ástandi eru
7,500 hvít blóðkorn í fermillimetra,
en þegar þessi sjúkdóimur hefir
haldið innreið sína, teljast þau
stundum 200.000. Þetta er tilefni
nafnsins á sjúkdómnum, en það
þýðir hvítt blóð.
Dreyrasýki.
Dreyrasýki er önnur tegund blóð-
sjúkdóms, þar sem blóðbankinn kem
ur í góðar þarfir. Margir þjáust af
þessum ættgenga sjúkdómi og hefir
hann lengi verið lægur í spönsku
konungsættinni, svo að eitthvað sé
nefnt. Dreyrasýkin er þannig, að
stöðug hætta er á, að sjúklingnum
blæði út, ef hann hruflar sig. Ef
dregin er úr honum tönn, eða ein-
hver önnur smávægileg aðgerð fer
fram, er illmögulegt að stöðva blóð-
rásina, af því að blóðið getur ekki
storknað. Ættgengi þessa sjúkdóms
er með einkennilegum hætti,
þar sem móðir flytur sjúkdóminn
til sonar, þótt konur fái ekki sjúk-
dóminn og menn geti ekki borið
hann. Þeir, sem þjást af dreyrasyki
verða alltaf öðru hverju að fá blóð-
gjafir.
Slagæffabankar.
Fyrir utan blóðbankana eru aðrir
bankar starfandi, sem gegna merku
og þörfu hlutverki. Meðal þeirra eru
slagæðabankarnir. Nýlega fékk hátt
settur maður í Bretlandi bót meina
sinna vegna þess, að í hann var
græddur slagæðarbútur og er hann
nú við góða heilsu. Að vísu tókst
þessi uppskurður ekki í Englandi,
en sjúklingurinn var þá fluttur til
Bandaríkjanna, en þar voru þessar
aðgerðir fyrst hafnar, og þar var
maðurinn læknaður. Stundum er
stóra slagæðin (aorta) sjúk eða úr
lagi gengin. Nú orðið er jafnvel
hægt að græða nýjan hluta í hana
og fjarlægja þann sjúka meö mjög
vandasamri skurðaðgerð. Að sjálf
sögðu er þá leitað til slagæðabank
ans. Slagæðasjúkdómar hafa venju
lega haft dauðann í för með sér, en
nú er fariö að koma í veg fyrir
hann með þessum aðgeröum og eiga
bankarnir ekki minnstan þátt í aö
gera það mögulegt.
Skipt um vélhula.
í þessu sambandi er vert að minn
ast þess, að tekizt hefir með ágæt-
um að skipta um vélinda í sjúklingi.
Samt er enn of snemmt að segja
nokkuð til fullnustu í þá átt, að
aðferðin hafi verið fullkomnuð, en
aðgerðin mun verða mikið notuð,
þegar fullnaðarreynsla er fengin.
Það eru margir, sem eiga við að
striða sjúkdóma, sem gera það að
verkum, að vélindað gegnir ekki
sínu starfi. Verður oft og tíðum að
gefa þessu fólki fæðu sína í gegnum
magann. Þegar öruggt er að hægt
sé að skipta um vélinda, mun þetta
fólk geta kyngt á ný.
Daufir fá heyrn og blindir sýn.
Þegar hafa tekizt aðgerðir, sem
veita daufum heyrnina í vissum til-
viff skurffarborffiff
fellum og blindum sýn. Heyrnar-
leysið er læknað með uppskurði og
er þá gervi-völundarhús sett í stað
þess, sem ekki vinnur sitt starf. Þeg-
ar um blindu er að ræða, er farið í
hornhimnubankann. Hornhimnan
er gluggi augans, og eins og á gler
getur komið móða á himnuna, og
þá er ekki hægt að sjá út. Þessum
sjúkdómi er varizt með augnlokun-
um, sem’ „fægja“ stöðugt „glugg-
ana“ okkar. En stundum sýkist
hornhimnan eða skemmist á annan
hátt, þá er farið í bankann og sótt
heilbrigð himna, sem er grædd á
augað í staðinn fyrir hina.
Þar eru einnig til starfandi beina-
bankar. Oft gengur illa að græða
saman bein í gömlu fólki. Þá er bein
fengið úr bankanum og saumað við
brotið, sem flýtir fyrir því að það
grær saman og styrkir það.
Hormafjarðarbátai*
CFramhald af 1. 6íðu).
og línupallurinn. Stýrishús
iff fylltist af sjó, og nokkur
?jór fór einníg í háseta-
klefa. Lítils háttar sjór fór
í vélarrúm, en vélin stanz-
affi þó ekki. Skipstjóri' á
Sigurfara er Sigurffur Lár-
usson.
Lagffist undír Stokksnes.
Eftir þetta hvarf báturinn
frá innsiglingunni og leitaði
austur fyrir Stokksnes. And-
æfði hann þar um nóttina og
varð ekki meira að.
Leitaff aff línunni.
Hvanney hafði átt eftir að
draga 14 línur, er veðrið skall
lá hún yfir línunni um
nóttina og varð ekkert að
hjá henni.
í gær var komið sæmilegt
veður. Fóru bátarnir þá út
aftur að leita línunnar og
fundu hana að mestu, Sigur-
fari hafði átt ódregnar 20
línur og Helgi 24. Afli var lít-
ill, því að bátarnir misstu
mest af fiskinum af línunni
við drátt í slíku veðri.
í dag var ekki róið, en bú-
izt við róðri í kvöld, ef veður
spá verður ekki slæm. AA.
sís
(Framhald af 1. Bíðu).
erfiðleikana heldur leggur
djarfur til baráttunnar og
sigrar. Aldrei hefir samvinn-
an á íslandi staðið jafn
traustum fótum og átt jafn-
margra kosta völ í barátt-
unni fyrir bættum líískjör-
um þess fólks, sem notfæra
vill sér félagskerfi og sam-
hjálp samvinnustefnunnar.
Starfsfólk SÍS og stjórn,
sýndi það greinilega í þessu
hófi, að menn telja það mikla
gæfu fyrir samvinnusamtök-
in í landinu, að þau skuli
hafa átt þess kost að njóta
starfs og leiðsagnar Vil-
hjálms Þórs og fylgdu þeim
hjónum margar góðar óskir
frá samstarfsfólkinu.
En jafnframt kom greini-
lega í ljós, bæði í ræðum og
samtölurn, að hinn ungi for-
stjóri SÍS og kona hans eiga
WWVWVWWWVWtfW<ftAiIWWWWWWWWWWWWWW,»
I ÞAKKIR \
;« Fyrir hönd sjúkrahússins að Egilsstöðum vil ég
í færa kærar þakkir öllum þeim félögum og einstakling- ■;
•l um á Fljótsdalshéraði, ásamt Kaupfélagi Héraðsbúa,
^ fýrir framlög sín smá og stór, til kaupa á Röntgentækj - 2«
!; um fyrir sjúkrahúsið á Egilsstöðum. ;I
,* .. Ennfremur þakka ég öllum þeim, er góðfúslega ^
;<‘ hafa hjálpað til við söfnun til kaupanna. >;
í Megi öll samtök í þágu góðra málefna ætíð sigra. I*
;■ ■*
*; Egilsstaðakauptúni, 14. janúar 1955. >
■■ •!
.■ STEFÁN PÉTURSSON ;»
í i
WAV2'AVWA%VWA’VW,Wi^VAV.VWAWAW.'//rt
Húseign á Akranesi til sölu
Járnklætt timburhús á steyptum kjalla á mjög góð-
um stað á Akranesi er til sölu og laust til íbúðar .nú
þegar. í húsinu eru 3 herbergi og eldhús, þvottahús og
geymslur í kjallara. Nánari upplýsingar veitir Valgarð
ur Kristjánsson, Akranesi, sími 398.
»5555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555:
Húsmæðraskólinn
á Hallormsstað
mun halda námskeið í saumum og vefnaði er hefjast
1. marz og námskeið í matreiðslu og garðyrkju, er
hefjast 1. april. Umsóknir sendist til forstöðukonunnar
fyrir miðjan febrúar.
ÁSDÍS SVEINSDÓTTIR.
«ÍSS555SS555555555555555555555555555555555555555SSSSSS*55555SS5555S5S55
Tllkynning
frá Skattstofu Reykjavíkur
Frestur til að skila skattframtali rennur út 31. jan.
næstkomandi. Skattstofan er opin til kl. 9 alla næstu
viku og veitt aðstoð við framtöl.
Skattstjóri
miklum vinsældum að fagna
meðal samstarfsfólksins.
Enda mun það samdóma á-
lit þeirra, sem þekkja Erlend
Einarsson, að varla sé hægt
að hugsa sér mann í þetta
vandasama starf, sem hefir
jafn mikla mannkosti og
dugnað til að takast á við þau
verkefni", sem hans hljóta að
bíöa. En jafnframt þessa
mikla starfstrausts hefir Er-
lendur til að bera það göfug-
lyndi, prúðmennsku og alúð,
sem gerir það að verkum að
hverjum samvinnumanni er
það ánægja að veita sam-
vinnustefnunni brautargengi
við hlið hans.
Jafnframt því sem þetta
veglega hóf var til þess hald
ið að kveðja forstjóra og
heilsa öðrum var það líka
árshátíð starfsfólks SÍS og
dótturfyrirtækj a þess.
(jfiierðiii
(Framnald ar 1. slður-
50—100 bílar stórir og smá-
ir, sem ekki komust leiðar
sinnar einkum vegna þess að
smábílar sátu fastir og
tepptu leiðina. Vegagerðin
sendi dráttarbíla og ýtur
þangað og tókst að greiða úr
og komust fólk og bílar leið-
ar sinnar, en nokkuð var lið-
ið á nótt, er greiðfært var
orðið. Áætlunarbílarnir frá
Reykj avík voru um 8—9 stund
ir og kornu ekki til Keflavík-
ur fyrr en kl. 1—2 í nótt. í
gær var færð sæmileg þarna.
Austan f jalls.
Að því er Grétar Símonar-
son mjólkurbústjóri tjáði blað
inu í gærkveldi var mjög þung
fært um sveitirnar austan
fjalls í gær. Voru mjólkurbíl
arnir mjög á eftir áætlun og
voru að koma alveg fram á
kvöld. Fimm eða sex bílar
munu hafa öxulbrotnað í gær
í ófærðinni. Heiðskírt veður
var þar í gær, en skóf nokkuð.
Mikill snjór í Hvalfirffi.
í gær var unnið að snjó-
mokstri á Hvalfjarðarleiðinni
sem varð ófær í fyrradag. Var
þar mikill snjór, einkum hjá
Þyrli. Var unnið báðum megin
frá, og í gærkveldi mátti
heita lokið við að opna leið-
ina, svo að hún verður væntan
lega fær í dag.
Iloltavörffuheiffi alófær.
Ekkert viðlit er talið að
koma bílum yfir Holtavörðu
heiði. Til dæmis má nefna,
að tveir Akureyringar lögðu
af stað frá Fornahvammi í
gærmorgun, en um hádegi
voru þeir aðeins komnir að
Krókslæk, og skruppu þá
heim í Fornahvamm til að
borða.
/ 7w&hm