Tíminn - 26.01.1955, Qupperneq 8
Mikið tjón á vélum og áhöldum er
stórt geymsluhús brann á Grenivík
I cldinum eyðilagðist dísiirafstöð, drátt-
arvél, veiðarfseri, útgerðarvörur ©g fleira
Frá fréttaritara Timans 1 Höfðahverfi.
Sl. laugardagskvöld kom ztpp elitur í stóru geymslíihúsi
tvílyftw á Grenivík og brann þaö til öskii á skömmum tíma
og alit, sem í því var, þar á meöal ?iokkrar verömiklar vél-
ar. Hefir eigandinn orðið fyrir stórtjóni, þar sem vélarnar
miiTiu hafa verið óváti-yggðar og húsið heldar lágt vátryggt.
Eigandi þessa húss var
Þorbjörn Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri, og stóð það í
fjöru skammt frá íbúöarhúsi
Erlendar fréttir
í fáum orðum
□ Dómur var í gær kveðinn upp
yíir Djilas og Dedijer í Belgrad.
Hlutu þeir skilorðsbundna
fan:avist. Yfirvöldin segja, að
hér sé fremur um viðvörun að
ræða en refsingu.
□ Mikojan verzlunarmálaráðherra
Rússa ög mikill valdamaður s.
1. 20 ár í Rússlandi, hefir látiö
af því embætti. Hann er Ge-
orgíumaður eins og Stalín.
□ Brezka fjármálaráðuneytið hef
ir gert áætlun um, að konur
skuli í framtíðinni fá launa-
jafnrétti við karlmenn. Verður
áætlun þessi framkvæmd í 7
áföngum.
Bandaríkjaþing
ræðir tillögur
forsetans
Washington, 25. jan. Full-
trúadeild Bandaríkjaþings
ræddi í dag tillögur Eisenhow
ers um, að Bandaríkin taki að
sér varnir Formósu og Fiski-
mannaeyja og veiti forsetan
um heimild til að gera nauð
synlegar ráðstafanir í því sam
bandi. Utanríkismálanefnd
deildarinnar leggur til, að
tillögurnar verði samþykktar.
Búizt er við að öldungadeild
in ræði tillögurnar á morgun,
en utanríkismálanefnd hefir
þær enn til athugunar.
hans. Húsið var uS mestu úr
timbri, en þó steinveggir á
tvær hliðar.
Kviknaði út frá ljósavél.
í húsinu var m. a. 12 kw
dísilrafstöð, sem veitti raf-
magn til heimilisins. Er tal-
ið, að eldurinn hafi kviknað
út frá þessari ljósavél. Vélin
var nýleg og því mikils virði,
og mun hún hafa eyðilagzt
alveg í eldinum.
Olíufötiu snrurígu.
Fólk dreif brátt að en
ekki varð ráðið við' eldinn
með þeim slökkvitækjicm,
sem fyrir voru, enda magn
aðist hann mjög fljótt. í
húsintí vorw nokkur hráolín
föt og sprungu þan livert
af öðru. Við það magnað-
tst eldttrinn óskaplega.
Dráttarvél eyðtlagðist.
í húsinu voru ýmsar vélar,
einkum landbúnaðarvélar
geymdar yfir veturinn. Drátt
arvél var þar og eyðilagðist
sömuliðis múgavél, áburðar-
dreifari og fleiri vélar og á-
höld.
Mikið af útgerðarvörum.
í húsinu var einnig allmik
ið af veiðarfærum, alls kon-
ar áhöldum til sjósóknar og
útgerðarvörur, sem allt eyði-
lagðist í eldinum. Útgerðar-
félag það, sem Þorbjörn veit-
ir forstöðu, gerir út tvo báta
frá Grenivík, og er tjón þess
mikið og tilfinnanlegt. Mun
varla of sagt, að tjónið af eld
inum auk hússins nemf hnudr
uðum þúsunda króna. Gott
og stillt veður var þetta
kvöld og tókst því aö verja
næstu hús. SG.
Bæjarkeppm í handknattleik
miaii Rvíkur og Hafnarfjarðar
Kqiiinsss Iieíst á fiistudag að Háðogalandi
Á föstudaginn kl. átta liefst í Hálogalandi bæjarkeppni í
handknattleik milli Revkjavíkur og Ilafnarfjarðar. Keppt
Terður í öllum flokkum og mun keppnin taka yfir tvö kvöld.
Keppt ve ðir* í vngri flokkunum á föstudagskvöldið, en í
Bieistaraílokki karla og kvenna á sunnudagskvöldiö.
Keppt verður um bikar,
Eem Ásbjörn Ólafsson, stór-
kaupmaður, hefir gefið og
hlýtur sá bærinn bikarinn til
varðveizlu, sem sigrar í fleiri
flokkum.
Liðin.
Meistaraflokkslið Reykja-
víkur verða þannig skipuð:
Kvfl. Geirlaug Karlsdóttir,
KR, Elín Guðmundsdóttir,
Þrótti, Sóley Tómasdóttir,
Margrét Hallgrímsdóttir, og
Fríða Hjálmarsdóttir, allar í
Val, Sigríður Lúthersdóttir,
Ármanni, Gerða Jónsdóttir,
KR, Lára Hansdóttir og Helga
Emilsdóttir, Þrótti og verður
hún jafnframt fyrirliði.
Karlaflokkur: Helgi Hall-
grimsson, ÍR, Hörður Felix-
son, Þórir Þorsteinsson, báð-
ir KR, Hilmar Ólafsson,
Fram, Karl Jóhannsson, Ár-
manni, Pétur Antonsson og
Sigurhans Hjartarson, Val,
Sig. Jónsson, Reynir Þórðar-
son og Ásgeir Magnússon, all
ir í Víking, en Ásgeir er jafn
framt fyrirliði liðsins.
Enn flóð á
Frakklandi
París, 25. jan. Flóðin í Sigmi
og Marne eru nú óðum að
réna. Einnig dregur úr vexti
ánna Rhone og Saone. Fólk,
sem flúið hafði heimili sín í
Rhone-dalnum og í Lyon er
að hverfa heim aftur. Hins
vegar er áin Garonne á Vestur
Frakklandi stöðugt að vaxa.
Hefir áin víða flætt yfir
bakka sína og í borginni Bor-
deaux er ástandið ískyggilegt.
Fyrir skömmu hurfu mikils-
verð skjöl, sem geymdu kjarn
orkuleyndarmál í London og
vakti það eigi lítinn þyt. Mynd
in sýnir sir Henrv Self, en úr
skrifstofu hans hurfu skjölin,
svo að það er ekki furða, þótt
hann sé áhyggjufullur á svip-
inn. Scotland Yard reynir nú
að upplýsa málið.
Veglegt þorrablót
í Borgarfirði
Frá fréttaritara Tímans
í Borgarfirði.
Á laugardag verður haldið
í Bæjarsveit hið árlega Þorra
blót hreppsbúa, sem jafnan
er ein vinsælasta og mesta
skemmtun ársins. Hefst það
með borðhaldi og verður
hangikjöt á borðum að venju,
en að því loknu upphefst
skemmtan af ýmsu tagi. Flutt
ar ræður, kveðnar gaman-
vísur, ortar innansveitar um
innlend efni og að lokum dans
að. Hreppsbúar fjölmenna
jafnan til þorrablótsins, sem
oftast stendur langt fram á
nótt.
Menntamál
Tímaritið Menntamál, sem
kennarasamtökin gefa út,
kom út skömmu fyrir jól, og
fóru þar saman þrjú síðustu
hefti árgangsins. Með þess-
um heftum tekur Broddi Jó-
hannesson, uppeldisfræðing-
ur, við ritstj órninni í staö
Ármanns heitins Halldórsson
(Framhald á 7. sI5u).
fftííögHi’ FertSmntíUifélags ísltmds: 2
Reist lítil gistihús og fenginn
sérfræðingur til ráðuneytis
Sljórn Fcrðamálafélagsins hélt fund með blaðamönnum
í gær og ræddi meðal annars um gistihúsvandræðin í Reykja
vík og möguleika á því að auka ferðamannastraum til lands
ins, en landið er að flestra dómi valið ferðamannaland frá
nátturunnar hendi.
Agnar Kofoed Hansen, for-
maður félagsins, hafði orð
fyrir mönnum á fundinum og
sagði frá þeim stórkostlegu
möguleikum, sem taldir eru á
því að fá mjög mikinn fjölda
flugfarþega til að dveija
nokkra daga á íslandi á leið
milli heimsálfanna.
Flugvélakostur landsmanna
er nú orðinn mikill, en hins
vegar mjög takmarkaðir
möguleikar til að hýsa það
fólk, er sækja vill landið heim,
og útlendir og innlendir menn
oft í vandræðum að koma sér
fyrir til gistingar þegar hing
að er komið.
Vantar tvö gistihús.
Telja forsvarsmenn félags-
ins hæfilegt að hér í Reykja-
vík yrðu byggð tvö hótel,
hvort með um 60 herbergjum.
Telur félagið að ekki eigi
að stuðla að frekari landkynn
ingu í því skyni að hæna hing
að ferðafólk fyrr en búið er
að sjá því fyrir svefnrúmi í
landinu.
Risahótelið.
Ferðamálafélagið er mót-
fallið þeirri hugmynd, er
ríkti á nýsköpunarárunum að
byggja bæri risahótel með
300 herbergjum, sem búiö var
að teikna af útlendingi, en
teikningin ein kostaði um 300
þús. krónur. Aðrar fram
kvæmdir urðu ekki í því máli
og þótti ýmsum óþarflega mik
ið að gert. Lítil hótel eru tal
in hæfa bezt staðháttunum
Heilsulindir íslands.
Gísli Sigurbjörnsson gat
þess á fundinum, að heilsu-
lindir íslands væru farnar að
vekja athygli erlendis. Þann
ig hefði kunnur læknir og sér
fræðingur skrifað bók um
lækningaböð og sagt, að ís-
land hefði meiri möguleika til
hvers konar leirbaða til heilsu
bóta en nokkurt annað land
í Evrópu. Benti Gísli á það,
að gigtarsjúklingar binda von
ir við slíkar lækningar og ef
slík heilsuhæli risu hér, væri
þar um öruggan ferðamanna
straum að ræða, sem þar að
auki væri ekki árstíðabund-<
inn.
Ferðalög útlendinga til
landsins vaxa með hverju ári.
Á síðasta ári sóttu landið
heim um 6000 erlendir ferða
menn og er talið að beir hafi
flutt inn í landið um 9 millj.
ónir króna, þótt lítill hluti
þess gjaldeyris kæmi i banka.
Reykjavík er verr sett. um
hótelherbergi en margir aðrir
staðir á landinu. Á sama
tíma og byggð hafa verið tvö
lítil gistihús í Mývatnssveit,
hafa tvö gistihús verið lögð
niður í Reykjavík og ekkert
bætzt við. En Ferðamálafélag
ið telur áríðandi, að nægilega
mörg gistihús séu víðs vegar
um landið.
Tillögur ferðamálafélagsius
nú eru þær, aö gefið verði
frjálsræði til byggingar gisti
húsa og stjórnarvöld stuðli að
því að fenginn. verði til lands
ins erlendur sérfræðingur, er
leiðbeint geti landsmönnum
varðandi móttökur erlendra
ferðamanna.
Ekki ástæða til að
eiga fund með
Malenkov
London, 25. jan. — Brezka
þingið kom saman í dag til
funda að loknu jólaleyfi þing
manna. Bevan og fleiri jafn
aðarmenn báru fram ýmsar
fyrirspurnir. Bevan spurði
meðal annars, hvort sir Win.
ston Churchill teldi ekki á-
stæðu til að láta einhliða ráð
stafanir Bandaríkjanna varð
andi varnir Formósu til sín
taka og einnig, hvort hættu-
ástand það, sem skapazt
hefði þar eystra gæfi ekki til
efni til þess að ,þeir Churchill
Eisenhower og Malenkoff
ættu með sér fund. Forsætis
ráðherrann taldi ástandið
ekki svo alvárlegt, að ástæða
væri til neinna slíkra aðgerða
Síeppt í mælskulist á kvöld-
vöku Stúdentafél. Reykjavíkur
Stúdentafélag Reykjavíkur
heldur kvöldvöku í Sjálf-
stæðishúsinu annað kvöld. Er
dagskráin vönduð að venju,
en sérstök nýlunda er
skemmtiþáttur, sem þar verð
ur fluttur. í þætti þessum
keppa stúdentar frá Mennta
skólanum á Akureyri og
Menntaskólanum í Reykjavík
í mælskulist. Stjórnandi verð
ur Einar Magnússon, mennta
skólakennari, en keppendur
verða Andrés Björnsson, cand
mag., Barði Friðriksson, hér-
aðsdómslögmaður, Bjarni
Guðmundsson blaðafiilltrúi,
Björn Th. Björnsson, listfræð
ingur, Jón P. Emils, héraðs-
dómslögmaður og Magnús
Jónsson, alþm. Dómendur
verða Einar Ólafur Sveins-
son, prófessor dr. phil og dr.
Halldór Halldórsson dósent.
Keppendur verða að halda
tvær tveggja mínútna ræð-
ur um efni, sem þeir fá fyrst
vitneskju um, er þeir skulu
hefja mál sitt.
Ekki mega þeir hika um
of eða endurtaka sig, ef þeir
vilja ekki hafa verra af.
Verða alls kyns fleiri gildrur
lagðar fyrir keppendur.