Tíminn - 28.01.1955, Blaðsíða 2

Tíminn - 28.01.1955, Blaðsíða 2
TÍMINN, föstudaginn 28. janúar 1955. 22. blað. Varð heimstræg fyrir að syngja dægurlag inn á eina hljómplötu Vinsældir dægurlagsins fara stöðugt í vöxt bæði hér og annars staðar. Birkilautin hefir nú að mestu vikið fyrir öðr am og nýrri lögum, eins og Brúnaljósin brúnu og Kom þú í hús mitt, (Come On-a My House). Mestum vinsældum eiga dægurlögin að fagna í Bandaríkjunum og þar mun að finna kunnustu dægurlagasöngvarana, eins og Bing Cros- by og Rosemary Clooney, sem sögð er standa næst því að taka sæti Crosbys í dægurlagasöngnum. Hann hefir meira að segja sjálfur fundið hana að máli, til að láta í Ijósi að- dáun sína á söng hennar og tilkynna henni, að álit hans sé, að hún sé sú bezta í þessari list. ^ ' Roosemary varð frœg svo að segja á einni nóttu. Að vísu hafði hún erfiðað mikið og lagt hart að sér til að ná þeim árangri, en slíkt íyrnist, þegar ævintýrið hefir gerzt. Nafn hennar hefir einkum orðið þekkt af söng hennar á plötum. .Hefir henni ekki vegnað eins vel, þegar hún hefir komið fram opin- berlega, aðallega vegna þes, að þeir vísu herrar gáfu henni aldrei gott tækifæri. Hins vegar fór svo, að þegar hún hafði leikið í kvik- .mynd í Hollywood, þótti sýnt að ýmsir málsmetandi menn höfðu rangt fyrir sér um þetta atriði. hegar fyrsta kvikmyndin með henni var frumsýnd, setti einn .af æðstu mönnunum hjá Paramountfélaginu hnefann í borðið og sagði: Þessi stúlka er ungfrú Crosby. Leyfið engum að kenna henni að leika. Og þar við situr. Hún fær að halda áfram áð vera náttúrubarnið og íara sínar eigin leiðir. .Aðalstjarnan hjá Columbía. Rosemary er aðalstjarnan hjá bandaríska hljómupptökufyrirtæk- Útvarpið TÚtvarpið í dag. Fastir liðir eins og venjulega. :19.15 Tónleikar: Harmóníkulög (pl.) 20.30 Fræðsluþættir: a) Efnahagsmál (Ólafur Björnsson prófessor). í b) Heilbrigðismál (Valtýr Al- bertsson læknir). c) Lögfræði (Rannveig Þor- steinsdóttir lögfræðingur). 21.05 Tónlistarkynning: Lítt þekkt og ný lög eftir íslenzk tón- skáld. 21.30 Útvarpssagan: „Vorköld jörð“ eftir Ólaf Jóh. Sigurðsson; VI. (Helgi Hjörvar). 22.10 Náttúrlegir hlutir: Spurningar og svör um náttúrufræði (Ing ólfur Davíðsson magister). 22.25 Dans- og dægurlög (plötur). 23.10 Dagskrárlok. Útvarpið á morgun. Fastir liðir eins og venjulega. .13.45 Heimilisþáttur (Frú Elsa Guð- jónsson). 16.35 Endurtekið efni. 18.30 Tómstundaþáttur barna- og unglinga (Jón Pálsson). :i8.50Úr hljómleikasalnum: Ýmis tónverk (plötur). 20.20 Takið undir! Þjóðkórinn syng ur; Páll ísólfsson stjórnar. — Gestur kórsins: Friðrik Bjarna son tónskáld. 21.05 Meistarinn sagði.... Sögur og tónlist frá Kína: Sam felld dagskrá búin til flutnings af frú Signýju Sen og Jóni Júlíussyni íil. kand. 22.10 Danslög (plötur). — 24.00 Dagskrárlok. Árnað heilla Trúlofanir. Nýlega hafa opinberað trúlofun iína ungfrú Guðbjörð Sigurðardótt- :ir frá Akureyri og Finnbogi Stefáns son frá Geirastöðum í Mývatns- sveit. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Jóhanna Þóroddsdóttir Búðum, Fáskrúðsfirði, og Helgi Selj an kennari, Seljateigi, Reyðarfirði: inu Columbía. Það er nú til húsa í gamalii kirkjubyggingu, og þar sem áður var sungið lagið: Áfram, kristnu hermenn, hefir dægurlagið haldið innreið sína. Meðal annarra má sjá Rosemary standa fyrir fram an hljóðnema og syngja um pilt, sem ekki vildi taka höndina af hné hennar. Má vera að þessi breyting hafi gengið nærri hjarta margra trúaðra á Manhattan, en Colum- bía græðir mikið fé og að syngja um piltinn, sem ekki vildi taka höndina af hné stúlkunnar, er eitt af hinum daglegu störfum. Ef reiknað er með kröfum þeim, sem Metropolitanóperan gerir til söngv ara, þá er Rosemary gjörsamlega laus við alla söngþjálfun. Hún hef ir aldrei hirt um að læra að lesa nótur, en segist geta séð á nótun- um, hvort lagið hækkar eða lækk- ar, en hins vegar ekki hve langt það gengur upp eða niður. „Come On-a My House.“ Rödd Rosemary þykir mjög sér- stæð og sveigjumikil. Kom það bezt í Ijós, er hún söng lagið: Kom þú í hús mitt. Meö því að syngja þetta lag inn á plötu hjá Columbía, varð hún fræg svo að segja á einni nóttu. Lagið og textinn var eftir þá frændurna, William Saroyan og Ross Bagdasarian, en 'þeir sömdu það í rútubíl fyrir einum tíu árum. Er lagið talið byggt að einhverju leyti á gömlu armensku þjóðlagi, en þeir frændur eru báðir Armen- ar. Lagið gekk ekki neitt, fyrr en Rosemary söng það. Einn 'gagn- rýnandi sagði, að það væri eins og lagið væri sungið af blindfullum Tyrkja niðri í djúnum brunni. Sann leikurinn er sá, að Clooney gerði eins mikið fyrir lagið og lagið gerði fyrir hana. Mitch Miller, einn af upptökustjórum Columbia hefir gef ið söngvurum, eins og Rosemary eftirfarandi ráð, og miðar hann þá við sölu í hljómplötum til aldurs- flokks 14—22 ára: Haldið laginu einföldu, kynþokkafullu og sorg- mæddu. Týnt er tímabil Fosters, þegar textarnir hljóðuðu svo: Nelly var hefðarkona, hún lézt í nótt. Nú er svo komið, að Nelly er ekki leng ur hefðarfrú, sern Stephen Foster hefði skilið. Nú segir Nelly piltin- um sínum að koma í hús sitt, eða æpir: Haltu mér, trylltu mig, kysstu mig. Rosemary gekk erfiðlega að fá réttan tón í lagið hans Saroy- ans. Miller gekk þá til hennar og sagði: „Hugsaðu þér Rosie, að þú sért að bjóða vininum þínum heim af því þú ætlar að giftast honum.“ ................................. Rosemary Clooney — kom þú í hús mitt Upp úr því söng hún lagið með þeirri aðferð, sem mörgum er kunn af hljómplötunni. Þar sem bláa grasið grær. Rosemary Clooney er ættuð frá Kentucky. Hún er fædd 23. maí 1928 og er dóttir húsamálara í Maysville. Hún á tvö systkin, Betty, sem er þremur árum yngri og bróS ur, sem heitir Nicholas. Foreldrar hennar skildu og þær systur gengu upp frá því á milli ættingjanna borg frá borg. Rosemary hefir aldrei setzt um kyrrt síðan. Eftir að hún varð fræg, hefir ein gatan í Mays- ville verið skýrð eftir henni og heitir Rosemarv Clooney stræti. Er þær systur fóru að eldast voru þær næstum alltaf syngjandi. Brátt fóru þær að syngja opinberlega og urðu fyrst kunnar í Cincinnati, þótt ekki væri um mikla frægð að ræða. Þær unnu mikiö, sungu á hlöðuböllum og veitingastöðum og höíðu sæmilegar tekjur. Það var á einum þessara skemmtistaða, sem kunnur hljómsveitarstjóri heyrði Rosemary syngja. Með aðstoð þessa hljómsveitarstjóra komst hún betur áfram, og hvarf nú Betty systir hennar úr sögunni. Innan tíðar var hún farin að syngja inn á p’öt ur hjá Columbía og eftir sigurinn þar fór hún að leika í kvikmynd- um, eins og áður segir. Rosemai'y er nú gift leikaranum José Ferrer. I Ragnar Jónsson | | hæstaréttarlögmaður I § Laugavegi 8 — Sími 7752 I | Lögfræðistörf og eignaumsýsla | Leikfélag Akraness sýnir franska gamanleikinn „ÆVÍNTÝRIГ að Hlégarði í Mosfellssveit, laugardaginn 29. janúar 1955 kl. 9 síðdegis. LEIKSTJÓRI: JÓN NORFJÖRÐ Leikfélag Akraness AUGLYSING frá Sambandi eggjaframleiðenda s.f. unrj stimplun eggja Samband eggjaframleiðenda (S.E.) hefir látið gera nýja eggjastimpla fyrir árið 1955, og eru þar með allir eldri stimplar úr gildi fallnir. Verzlanir og neytendur eru því varaðir við að kaupa sem stimpluð egg önnur egg en þau, er bera stimpil ársins —55, samanber auglýsingu Framleiðsluráðs land búnaðarins um eggjastimpla og verð á eggjum dags. 20. júlí 1948, en þar segir svo m. a.: „... .Stimpluð egg teljast eingöngu þau egg, sem eru með greinilegum stimpli viðurkenndra eggjasölusamlaga .... o.s.frv.“ Eggjaframleiðendum, sem ekki eru í S.E., skal bent á, að allir eggjaframleiöendur eða ' félagsdeildir þeirra eiga rétt á inngöngu í félagið. \ Stjórn Sambauds eggjaframleiðenda s/f. TIL SOLU TIL SOLU Yfir 250 bifreiðar Nýir verðlistar koma fram í dag. Við höfum sem alltaf endranær mest úrval alls konar bifreiða. — Verð oft ótrúlega hagstætt og góð kjör. Kynnið yður vetrarverðið. Nú er tækifærið að kaupa. Bifreiðasalan Bókhlöðustíg 7 — sími 82168. TIL SÖLU TIL SÖLU ffækjavinnustofan Höfum opnað raftækjavinnustofu að Kjartansgötu 1 (bílskúr) undir þessu nafni. Önnumst hvers konar raflagnir í hús, verksmiðjur o. fl. Einnig viðgerðir á raflögnum, rafmótorum og heimilistækjum. Sími 6059 GUÐMUNDUR JASONARSON löggiltur rafv.m. RAGNAR EIRÍKSSON rafv. ;55555$544$5545$SS55$5$5455555$SSC54445555S5S55SSS5555S$$$S54545$54$SS5$ <iáBii»-^g^»<Bisauai!ja!flgwgaa!awMaroaa^ssigrHgggaBTi»wri:ii' ........ ÍVAR HLÚJÁRN.Saga eftir Walíer Scott. Myndir eftir Peter Jacksonl21

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.