Tíminn - 16.02.1955, Síða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórariasson
Skrifstofur f Edduhúsi
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
39. árgangur.
Reykjavik, miðvikudaginn 16. febrúar 1955.
38. blað.
Frostið komið niður í 23
stig í frystihúsum í Eyjum
■Verkfallsverðir verkfallsmanna og atvinnurekenda standa
við öH frystihúsin í Vestmannaeyjum og gæta verkfallsmenn
ve! hverrar hreyfingar, sem verður í nánd við frystihúsin og
halda vörð dag og nótt.
í Hæstarétti, er hinn nýi réttarsalur var vígður 1949.
[ dag eru 35 ár liðin síðan Hæsti-
réttur hélt fyrsta dómþing sitt
í dag eru liðin 35 ár síðan Hæstiréttur hélt fyrsta dómþing
sitt. Lögin um Hæstarétt voru sett 1919, samkvæmt ákvæði
sambandslaganna, og gengu í gildi 1920. Fyrsta dúmþing sitt
liélt rétturinn svo 16. janúar 1920, tók þá við af Landsyfir-
réttinum, sem lagður var niður 22. des. 1919. Hákcn Guð-
mundsson, hæstaréttarritari, skýrði fréttamönnum frá
nokkrum atriðum úr sögu réttarins í gær.
Dómeoidur Hæstaréttar
voru upphaflega fimm, þar af
þrír er setið höfðu í Lands-
yfirrétti, þeir Kristján Jóns-
son, Halldór Daníelsson og
Eggert Briem, en nýir komu
I réttinn Lárus H. Bjarnason
og Páll Einarsson. Á fyrsta
dómþinginu sat Ólafur Lárus-
son sem varamaður Páls Ein-
arssonar. 1924 var ákveðið að
fækka dómurum í þrjá eftir
því sem sæti losnuðu í réttin-
um, og kom það til fram-
kvæmda tveim árum síðar.
1945 var aftur fjölgað í fimm
og hefir svo verið síðan.
Dómarar síðan.
Eftirtaldir menn hafa verið
dómarar í réttinum síðan
fjölgað var á ný: Árni Tryggva
son, Gizur Bergsteinsson, Jon
Áshjörnsson, Jónatan Hall-
varðsson, og Þórður Eyjólfs-
son. Forseti Hæstaréttar er
nú Þórður Eyjólfsson, en hann
er kjörinn til eins árs í senn
Vegleg húsakynni.
Hæstiréttur starfaði i hegn
ingarhúsinu við Skólavöröu-
stíg nær þrjá tugi ára, en síö
ar voru honum reist vegleg
húsakynni viö skrifstofubygg
inguna Arnarhvol og fluttist
í þau 1949. Fyrstu tvö starfsár
réttarins voru dæmd um 30
mál hvort árið, en árin 1952
og 1953 um 130 mál hvort ár.
Um 200 málum er nú. skotið
á hverju ári til Hæstaréttar.
Að jafnaði fer munnlegur mál
flutningur fram í réttinum
fjóra daga í viku. 28 starfandi
Hæstaréttarlögmenn eru nú í
landinu, og sjö eru nú að
ganga undir próf. Fyrstir
fluttu mál í réttinum Eggert
Classen og Sveinn Björnsson,
síðar forseti. Fyrsti ritari
Hæstaréttar var Björn Þórðar
son, en núverandi ritari er
Hákon Guðmundsson eins og
fyrr segir.
Ekki verður mikið um há-
tíðahöld í tilefni afmælis
þessa í Hæstarétti í dag. Þar
fer fram málflutningur í einu
máli árdegis, og flytja þeir
mál þar Hermann Jónasson
og Sveinbjörn Jónsson. Laga-
nemar munu heimsækja rétt-
inn, og dómsmálaráðherra hef
ir boð inni.
Þegar vélar frystihúsanna
voru stöðvaðar á laugardag,
var búið að koma frostinu í
húsunum upp í 28—30 stig, en
í gær var það komið niður í
23—25 stig. Ekki er talin
hætta á ferðurn fyrr en frost-
ið er komið niður í 18 stig, en
frostið fellur hægar, eftir því
sem lengur líður frá stöðvun
vélanna. Má því búast við, að
fiskurinn og síldin, sem geymd
eru í húsunum, þoli enn
nokkra daga stöðvun frystivél
Hermann Jónasson
anna, án þess að hætta sé á
skemmdum.
Tíminn átti í gærkveldi tal
við Óskar Gíslason, forstjóra
Hraðfrystistöðvarinnar i Vest
mannaeyjum, og sagði hann,
að ekki væri neitt ákveðið
hægt að segja um það, hvað
lengi húsin þyldu stöðvunina
án þess að hætt yrði á
skemmdum. En reynt yrði að
gera það, sem hægt væri, þeg
ar sú hætta stæði alveg fyrir
dyrum til að komast hjá því
mikla tjóni á einhvern hátt.
Setið á samninga-
fundi í Eyjum
Bæjarfógetinn í Vest-
mannaeyjum sat í gærkveldi
á sáttafúndum með samn-
inganefndum í sjómannadeil
unni cg tveim fulltrúum, öðr
um frá bæjarráði og hinum
frá skipstjórafélaginu. Var
búizt við, að fundurinn
stæði fram eftir allri nóttu
og reynt svo sem framast
má að ná samningum, enda
hefir aðkomið verkafólk til-
kynnt, að það muni fara frá
Eyjum, ef samningar náist
ekki nú þegar.
I*inysáltjhtunaríilUt(ja Framsóknarmanna á Ælþingi:
Hagnýting náttúruauðæfa lands-
ins og myndun nýrra atvinnuvega
Stórfelld framleiðsluaukning
búnaðarvara á fál.svæði KEA
Frá félagsráðsíiiiKÍi Kmijífr!. Eyfiröinga
Frá fréttaritara Tímans á Akureyri.
FéJagsráðsfwndur Kawpfélags Eyfirðinga var hah inn hér
á Aknreyri í gær og sóttu hann fulltrúar frá öllum féJags-
deildum nema þremur, en í félagsráði á sæti einn maður úr
hverrz deiJd.
A fundinum gaf Jakob Fri
mannsson framkvstj. KEA
bráðabirgðaskýrslu um rekst
urinn á síðasta ári. Samkv.
henni er Ijóst, að mjólkur-
framleiðslan á svæði Mjólk-
ursamlags KEA hefir vaxið
um 10,5%. Vörusala félags-
ins I heild mun hafa vaxið
um ca. 13%.
Þá óx sláturfjártalan hjá
félaginu á þessu hausti um
50% og ullarinnleggið um 80
%, og er nú öll ull lcgð inn
óþvegin, en síðan þvegin í
ullarþvottastöð SÍS.
Þessar tölur sýna geysi-
mikla aukningu landbúnað-
arframleiðslunnar á félags-
svæðinu, en aukning slátur-
fjárins stafar þó meðfram af
pví, að færú lömb voru seid
' til lífs vegna fjárskipta í önn
I ur héruð.
Kosin verði milliþiiiganefml, er geri tillög-
ur um þetta og skili áliti sem lyrst
Lögð hefir verið fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar
bess efnis, að kosin verði milliþinganefnd til að gera tillögur
um nýjar atvinnugreinar og hagnýtingu náttúruauðæfa.
Þingsályktunartillaga þessi er bcrin fram af þeim Hermanni
Jónassyni, formanni Framsóknarflokksins, Gísla Guðmunds-
syni, þingmanni Norður-Þingeyinga, Skúla Guðmundssyni,
þingmanni Vestur-Húnvetninga og Páli Þorsteinssyni, þing-
manni A.-Skaftfellinga. Tillaga þessi verðskuldar þjóðarat-
hygli, svo mjög sem efni hennar varðar hagsmuni og heill
þjéðarinnar á komandi tímum. Tillagan er á dagskrá
í sameinuðu þingi í dag og hefir Hermann Jónasson
framsögu fyrir hönd flutningsmanna.
Aukin tækni og menntun al
mennings samfara stööugri og
vaxandi fjölgun fólks í land-
inu gerir það bæði mögulegt
og nauðsynlegt, að auðlindir
landsins séu nýttar sem bezt
og nýjum atvinnugreinum
sköpuð vaxtarskilyrði. Þessi
tillaga er því mjög tímabær
og ekki öðru trúandi en Al-
þingi veiti henni brautar-
gengi.
Þingsályktunartillagan hljóð
ar á þessa leið:
„Alþingi ályktar að ltjósa
fimm manna milliþinga-
nefnd til að gera tillögur um
nýjar atvinnugreinar til
framleiðslu- og atvinnuaukn
ingar og hagnýtingu auðæfa
landsins í því sambandi.
Nefndinni er heimilt að ráða
sérfróða menn til að vinna
úr gögnum, sem fvrir hendi
eru, eða að vísindalegum
rannsóknum, eftir því sem
hún telur nauðsynlegt vegna
starfa sinna.
Nefndarkostnaður greiðist
úr ríkissjóði".
í greinargerð segir m. a.:
Fólki fjölgar nú um rúmlega
3 þús. árlega hér á landi og
fer sú tala stöðugt hækkandi.
Nú um skeið hafa margir at-
vinnu við framkvæmdir hjá
varnarliðinu og við þá miklu
fjárfestingu, sem nú er í land
inu, m. a. vegna óarðbærra
framkvæmda, er gera má ráð
fyrir að fari minnkandi.
Þegar framkvæmdum vegna
varnarliðsins er lokið, sem
vænta má að verði innan
skamms, þurfa að vera fyrir
hendi ný verkefni handa
þeim, er nú fást við óvenjuleg
verkefni og einnig handa því
fólki, sem við bætist. Til þess
að svo megi verða þarf fyrir-
hyggju, og má eigi lengur drag
ast að þjóðfélagið láti þessi
mál til sín taka.
Öflun fjármagns.
Hér þarf því fyrst að rann-
saka rækilega hverjar auð-
lindir land vort á og hversu
þær verða hagnýttar. Jafn-
framt er nauðsyn að afla fjár
magns til slikra framkvæmda
í tæka tið og á þann hátt, sem
fært reynist og þjóðinni hag-
kvæmast.
Rannsóknir og áætlanir.
Ýmsar rannsóknir og athug
anir hafa verið gerðar á und-
anförnum áratugum, sem að
(Framhald á 2. síðu)