Tíminn - 16.02.1955, Qupperneq 6
6
TÍMINN, miðvikudaginn 16. febrúar 1955.
38. blað.
Æ
PJÓDLEIKHÚSID
I Fœdd í gœr i
| Sýning í kvöld kl. 20.00
Næsta sýning laugardag kl. 20.
JÞeir Ieotnti í hnust
Sýning á fimmtudag kl. 20.
Gullna hliðið
Sýning föstudag kl. 0.00.
UPPSELT.
Aðgöngumiðasalan opln frá kl.
13,15—20.00. Tekið á móti pönt-
unum, sími: 8-2345, tvær línur.
Pantanir sækist daginn fyrir sýn
ingardag annars seldar öðrum.
%TÍ
Vængjablak
nætnrinnar
(Vingslag i natten)
Mjög áhrifamikil og athyglis-
verð, ný, sænsk stórmynd. Mynd
þessi er mjög stórbrotin lífslýs-
ing og heillandi ástarsaga, er
byggð á sögu eftir hið þekkta
skáld S. E. Salje, sem krifað
hefir „Ketil i Engihlíð'* og fleiri
mjög vinsælar sógur, hún hefir
hvarvetna verið talin með beztu
myndum Nordisk Tonefilm.
Pia Skoglund,
Lars Ekborg.
Sýnd kl. 7 og 9,
Síðasta sinn.
Svarta örin
Afar vlðburðarik og spennandi
riddaramynd, byggð á hinni
spennandi sögu R. L. Steven-
son.
Sýnd kl. 5.
NÝJA BÍÓ
Séra Caniillo
snýr aftur
(Le Retour de Don Camillo)
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Síðasta sinn.
BÆJARBiO
— HAFNARFÍRÐ5 -
Stríðstrumbur
Indíánanna
Óvenju spennandi og viðburða-
rík, amerísk kvikmynd í litum.
Gary Cooper,
Sýnd kl. 9.
Vanþahhlátt
hjurta
Sýnd kl. 7.
TJARNARBIO
Brimaldan stríða
(The Cruel Sea)
Þetta er saga um sjó og seltu, um
glimu við Ægi og miskunnarlaus
morðtól síðustu heirasstyrjaldar.
Myndin er gerð eftir samnefndti
metsölubók, sem komið hefir út
á íslenzku.
Bönnuð börnum innan 14 ára.
Sýnd kl. 7 og 9,15.
I•etta er
drengurinn minn
(Tiiat is my boy)
Hin sprenghlægilega ameríska
gamanmynd.
Aðalhlutverk:
Dean Martin
Jerry Lewis.
Sýnd kl. 5.
’X SERYUS GOLD X •
íl/xji_P\_JL/'\_n
w—irx/nj
010 H0L10W GROUND 0.10
■ piro YELtOW 8LA0E mni ty
LEIKFEIAG
r®^REYKJAVÍKUR
NÓI
Sjónleikur í 5 sýningum.
Brynjólfur Jóhannesson
í aðalhlutverkinu.
Sýning í kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðasala eftir kl. 2.
Frænka Charleys
70. sýning
annað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðasala kl. 4—7 og eft-
ir kl. 2 á morgun. Simi: 3191.
Fnska knattspyrnan
AUSTURBÆJARBÍÓ
Ógnir nœturinnar
(Storm Warning)
Óvenju spennandi og viðburða-
rík, ný, amerísk kvikmynd, er
f jallar um hinn illræmda félags-
skap Ku Klux Klan.
Aðalhlutverk:
Ginger Rogers,
Ronald Reagan,
Doris Day,
Steve Cochran.
[Bönunð börnum innan 16 ára. j
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
GAMLA BÍÓ
Slml 1475.
Söngur
fishimannsins
(The Toats of New Orleans)
Ný, bráðskemmtileg bandarisk
söngmynd í litum. Aðalhlutverk
in leika og syngja:
Mario Lanza
Kathryn Grayson
m. a. lög úr óp. „La Traviata",
„Carmen" og „Madame Butter-
fly“.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Síðasta sinn.
TRIPOLI-BÍÓ
Síml 1182
Nótt I stórborg
(Gunman in the streets)
Aðalhlutverk:
Dane Clark,
Simone Signoret
(hin nýja franska stjarna),
Fernand Gravet.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 16 ára.
Sala hefst kl. 4.
HAFNARBÍÓ
Siml 6444
| ILækuirhm Iicimnr
(Magnificent Obsesslon)
Sýnd kl. 7 og 9.
Brennimarhið
Afbragðs fjörug og spennandi,
amerísk ævintýramynd í litum.
Ricardo Montalban,
Cyd Charisse.
Sýnd kl. 5.
(Framhald af 3. Bíðu).
Blackburn 29 18 2 9 95-58 38
Leeds Unitd. 29 15 5 9 48-43 35
Notts County 28 15 4 9 53-46 34
Rotherham 28 15 3 10 63-51 33
Stoke City 27 12 8 7 39-28 32
West Ham 28 12 8 8 57-52 32
Swansea 28 12 7 9 59-51 31
Birmingham 26 12 6 8 52-29 30
Fulham 27 12 6 9 56-54 30
Liverpool 28 12 5 11 60-60 29
Bury 28 10 8 10 52-49 28
Bristol Rov. 28 12 4 12 59-56 28
Middlesbro 29 12 4 13 47-56 28
Hull City 27 9 8 10 32-36 26
Lineoln City 28 9 7 12 50-58 25
Nottm. For 28 9 5 14 35-44 23
Doncaster 26 10 3 14 40-64 23
Port Vale 28 6 10 12 31-52 22
Derby C. 28 6 6 16 41-56 18
Plymouth 29 5 • 7 17 39-64 17
Ipswich 28 6 2 20 43-71 14
Bljkksmiðjan
GLÓFAXI
HRAUNTEIG 14.
Simi 7236
Pearl S. Buck:
62.
HJÓNABAND
Eírlkur
Þorsteinsson
(Framhald af 5. síðu).
kvæmdamaður. Hann kann
því bezt að hafa mikið að
gera. Og framkvæmdir þær,
sem hann hefir ráðizt í á
Þingeyri, bera því glöggt
vitni, að hann er stórhuga og
myndarlegur athafnamaður.
Það er ekki eingöngu kaup-
félagið, sem notið hefir
starfskrafta hans og forystu-
hæfileika, þótt fyrst og
fremst hafi það átt hug hans.
Eiríkur hefir haft forgöngu
um flestar meiri háttar um-
bætur, sem ráðist hefir verið
í á Þingeyri seinustu tvo ára-
tugi. Hann lagði mikla vinnu
í að tryggja og koma í fram-
kvæmd stækkun húsnæðis
Núpsskóla, og vart hefir nokk
ur bóndi í byggðarlaginu hús-
að svo jörð sína á þessu tíma-
bili, að Eiríkur hafi ekki ver-
ið með í ráðum, enda hafa
flestir bændur því aðeins tal-
ið fært að hefja framkvæmd-
ir, að hans stuöningur væri
tryggður. Forysta Eiríks í vega
málum byggðarlagsins er
mörgum kunn.
Mér kemur ekki til hugar
að telja hér þau mál, sem Ei-
ríkur hefir hrundið í fram-
kvæmd. Þau eru mörg, og þótt
ég sé gerkunnugur starfi hans,
veit ég, að ýmsu mundi ég
gleyma. Hitt er mér jafn ljóst,
að eftir að Eiríkur var kjör-
inn alþingismaður, hefir hann
fengið aukið verkefni, sem er
við hans hæfi, og nú er það
ekki eingöngu Dýrafjörður,
sem nýtur starfshæfileika
hans og dugnaðar, heldur hef-
ir Vestur-ísafjarðarsýsla feng
ið þar verðugan fulltrúa, sem
hún getur treyst til að fylgja
fast eftir þeim málum, er
mestu varða fyrir byggðina.
Eiríkur á gott heimili. Hann
er höfðingi heim að sækja, og
margir hafa á undanförnum
árum notið þess að gista hjá
honum og Önnu Guðmunds-
dóttur, konu hans. Ég hefi átt
þar margar ánægjulegar
stundir og hefði gjarnan vilj-
að heimsækja þau og þeirra
góðu og myndarlegu börn í
dag, en verð að láta mér nægja
að senda vinarkveðjur og
heillaóskir.
Hjörtur Hjartar.
Ég sá Eirík Þorsteinsson
fyrst fyrir rúml. aldarfjórð-
ungi, þegar hann, Þá nýkom
inn frá prófi í Kennaraskól-
anum, gerðist starfsmaður
hjá Kaupfélagi Langnesinga
á Þórshöfn. Síðan höfum við
að jafnaði haft ýmislegt sam
an að sælda, og fundum okk-
ar ávallt bcrið saman öðru
hverju, ýmist norðan lands,
i sunnan eða vestarx. Og nú síð
það, fannst honum stundum að hann hefði sjálfur mótað
það með höndunum eins og myndhöggvari, sem mótar mynd
ir sínar í leir.
— Ég braut það saman og setti það innan í leðurhylki
og bar það í bandi um hálsinn eins og hamingjugrip. Hún
hló nú að þessari heimsku stelpu, sem hún hafði sjálf veriö
á þessum árum, blygðaðist sin hálft í hvoru fyrir hana en
þó um leið viss um„ að hann mundi ekki skammast sín
fyrir hana. Hann var aöeins hrærður.
— Hvers vegna sagðir þú mér ekki frá þessu strax? Þú
hefir haldið þessu leyndu fyrir mér öll þessi ár.
— Ég var búin að gleyma því.
— Hvað minnti þig á það núna?
— Ég veit það varla. Jú, ég býst við, að það hafi verið Mary
og Joel. William. Þau eru farin að draga sig saman.
— Þau. Hann kippti snögglega að sér hendinni. Hann
hafði ekki tekið eftir því. — Hafa þau sagfc bér það?
— Nei, en þau þurfa ekki að segja mér það.
Hann hugleiddi þetta undrandi og starði á hana. — Ég
veit ekki almennilega, hvernig mér gezt að því aö mægj-
ast viS Henry Fasthauser.
— En það er ekki hann heldur Joel.
— En hann er nauðalíkur föður sínum.
— Mary er líka lík mér.
— Mér gezt ekki betur að því fyrir það. Hann reis á fæt-
ur og tók að ganga um gólf í ákafa með hendur í vösum.
— Já, svona ferðu að því að gera vasana löðrandi af máln
ingu að innan, sagði hún áköf.
Hann kippti höndunum upp úr vösunum. — Þessi hjassi.
— Joel verður dugandi bóndi, sagði hún.
Hann svaraði þvi engu. Hann hafði raunar aldrei hugsað
um það, að börn hans og Rutar mundu giftast.
— Hverjum ætti Mary að giftast, ef það væri ekki ein-
mitt piltur eins og Joel? spurði Rut. — Hvar mundi hún
finna sér mann af öðru tagi?
ustu árin, eða síðan Eiríkur
var kjörinn á þing í Vestur-
ísafjarðarsýslu, árið 1952,
höfum við verið samstarfs-
menn á Alþingi, m. á. átt þar
sæti í sömu þingnefnd þau
þrjú ár og unnið saman að
ýmsum sameiginlegúm áhuga
málum Það er með góðar
ir.inningar í huga sem ég nú
árna honum og fjölskyldu
hans heilla á fimmtugsaf-
mæli hans í dag. .Sjálfur brá
hann sér heim til Þingeyrar
um síðustu helgi og dvelur
þar í dag meðal vandamanha
og vina í héraðinu, þa r sem
hann hefir unnið irrkinn
hluta af ævistarfi sínu til
þessa.
Það er ekki ætlan nín að
rita langt mál um Eirík Þor-
sttir sson eða störf hans urd
ararna áratugi. Til þess
m .nu aðrir verða, s<r.n hafa
verið samverkamenn í félags
málum Vestur-ísfirðinga og
geta um það talað af reynslu
srm þar hefir gerst. En álit
.manna í héraði á verkum
hans og verðleikum sagði til
sín, er þingmannaskiptin
urðu sumarið 1952, og Eirík-
iv var kosinn á þing með
hárri atkvæðatölu, eftir bar-
áttu, sem ýmsir töldu tvísýna.
Munu Þeir og vel hafa vitað,
hvað þeir gerðu, Vestur-ís-
firðingarnar, sem kusu Eirík
til alÞingisfarar, því að hann
hefir gengið hart fram fyrir
lcjördæmi sitt á þeim þremur
þingum, er hann hefir átt
sæti á. Hafa það ýmsir reynt
á þessum tíma, að Eiríkur er
málafylgjumaður mikill, og
lætur ógjarnan hlut sinn.
Þykir þá sumum nóg um, sem
verða vill, og verður þeim þó
varla með réttu ámælt, sem
vill gæta þess vel, sem hon-
um er til trúað. En víst er um
það, að Eiríki hefir unnist vel
í héraðsmálunum þennan
tíma svo að ekki sé meira
sagt. M. a. mun það ekki sízt
lians verk, að nú hefir verið
tekin ákvörðun um virkjun
fyrir Vestfirði og að hefja
framkvæmdir nú á næstunni.
Þá hefir og nú fyrir hans
frumkvæði verið hafizt handa
um að koma á vegarsam-
bandi við byggðir á Vestfjörð
um og var raunar byrjaður
að vinna að því máli áður en
hann tók sæti á AlÞingi.
Eiríkur Þorsteinsson er
maður hreinskilinn og hisp-
urslaus í tali, hefir sjaldan
formála að því, sem hann
hefir fram að flytja og segir
það oftast umbúðalítið. Hefir
það til að vera nokkuð hvass
í máli, og hirðir þá ekki hver
í hlut á. Andstæðingum er
hann harður í horn að taka,
en kann þó að gleyma því,
sem ekki er lengur þörf að
muna. Segir sig sjálfur harð
lyndan og óvæginn, en á þó
í fari sínu eiginleika, sem
vekja vinarþel fyrr en varír.
Svo sagði mér merkur maður
vestra, að engan mann þekkti
hann, sem meiri gleði hefði
eð því að verða öðrum að
liði en Eiríkur á Þingeyri.
Ekki veit ég, hvort hann er
skyldur Skegg-Brodda hinum
vopnfirzka, sem forðum hélt
uppi svörum á Öxarárþingi,
en miklar mætur hefir hann
á íslendingasögum og er þar
vel heima.
Baráttumenn þurfa að eiga
sitt Berurjóður. Það á Eirík-
ur á heimili sínu á Þingeyri.
Kona hans er Anna Guð-
mundsdóttir frá Syðra Lóni
á Langanesi. Hún hefir verið
honum góð kona og þau sam
hent í flestu. Barnahópurinn
er stór, og hin elztu nú fjarri
heimili sínu við starf eða
nám. Ein mesta ánægja Ei-
ríks í dag mun verða að fá
að vera heima og sjá framan
í glöð andlit nágranna og
samverkamanna. G. G.