Tíminn - 18.02.1955, Qupperneq 2
TIMINN, föstudaginn 18, febrúar 1955.
40. blaf.
r
<»0
Hryðjuverkafélagsskapur er boðar hvítt
drottiirvaid í Suöurríkjum Bandaríkjanna
Mynd sbsh Eu KIux Eilan sýnd í Austisrb.SnYr
Ku Klux Klan félagsskapurinn í Bandaríkjunum á rætur
rekja allt aftur til Þrælastríðsi'ns. Með köflum hefir starf-
semin legið niðri, en stöðugt risið upp aftur og þá hafa oft
og tíðum verið framin hryðjuverk, sem félagsskapurinn
verður að teljast ábyrgur fyrír, þótt að í sjálfu sér megi
ikenna óvönduðum meðlimum nokkuð um slíkar athafnir.
’Um þessar mundir er sýnd kvikmynd í Austurbæjarbíó, sem
nefnist Ógnir næturinnar. Er þar tekið til meðferðar af
:raunsæi og hlífðarleysi það versta, sem af félagsskapnum
getur stafað.
Einn kunnasti andstöðumaður Ku
Klux Klan í Bandarikjunum er rit
böíundurinn, Stetson Kennedy. —
Hann hefir hvað eftir annað hætt
jífi sínu til að geta betur gert sér
grein fyrir félagsstarfseminni og
,'jafnframt til að aðstoða lögregiu-
menn, þar sem þeir hafa verið fá-
unlegir til að skipta sér af málefn-
um Ku Klux Klan.
). Suðurríkjunum.
Suðurríkjamenn hafa aldrei fellt
aig við frjálslyndi Norðanmanna
gagnvart þeldökkum mönnum, eftir
ósigurinn í þrælastríðinu. Þótt á-
nauðugum mönnum væri gelið
írelsi, var það í fyrstu meira í orði
en á borði. Norðurríkjamenn nldu
þó fylgja þessu fast eftir, en það
var hægara sagt en gert. Andstaða
Suðurríkjamanna gegn þeldökkum
mönnum tók á sig margar myndir,
en allar miðuðu þær að því að að-
greina þá nógu rækilega frá hvít-
am og kenna þeim að óttast þá.
Jafnvel að koma það miklum ótta
inn hjá þeim, að þótt þeir væru
.jafningjar þeirra að lögum, þá létu
beir sig ekki dreyma um að fylgja
því eftir.
Ku KIux Klan.
Til að þetta næði fram að ganga
var stofnað til ýmissa félagasam-
taka hvitra manna. Urðu þessi íé-
lög sérlega áhrifamikil í stjórnmál-
nm. Á þessum umrótatímum verður
Ku Klux Klan félagsskapurinn til.
Hefir hann orðið sterkasta andstöðu
iareyfingin gegn aukinni réttarstöðu
heldökkra manna, þarna í Suður-
xíkjunum og ýmsar aðrar hreyfing-
ar, sem stofnað var til í sama augna
,-niði hafa sameinast Klan félagá-
skapnum. Gífurleg andstaða grípur
öðruhverju um sig í Bandaríkjun-
,im gegn starfsháttum Ku Klux
Klan, og hefir félagsskapurinn þá
hægt um sig á meðan élið líður hjá.
Eitt af því sem Stetson Kennedy hef
:ir gert sér far um að sanna, er það,
að féiagsskapurinn lifir stöðugt
góðu lífi, þó hann sé ekki eins at-
ióafnasamur og í annan tíma með
án mótmælaöldurnar ganga yfir.
Útvarpið
l&tvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
J0.30 Fræðsluþættir: a) Efnahags
mál. b) Rafmagnstækni. c)
Lögfræði.
Tónleikar (plötur).
Útvarpssagan.
Fréttir og veðurfregnir.
.‘21,05
:21,30
22,00
22,20 Náttúrlegir hlutir.
22,35 Dans- og dægurlög (plötur).
23,10 Dagskrárlok.
'íÚtvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
20,30 Upplestur: „Frú Pálina“. 6má
saga eftir Guðmund Daníels-
son. (Höfundur les).
Tónleikar: Guðmundur Jóns
son s öngvari kynnir gatnlár
singplötur.
„Þorraþræll“, sagukafli ftlr
Ara Amalds. (Höf. les).
Fréttir og veðurfregnir.
Passiusálmur (8).
Danslög, þ. á m. leikur liljóm-
sveit Kr. Kristjánssonar.
02,00 Dagskrárlok.
Hvítt drottinvald.
Nú nýlega er komin út i Englandi
bók eftir Stetson Kennedy, sem
hann nefnir, „I Rode With The Ku
Klux Klan“. Greinir Kennedy þá
frá því, hvernig hann gekk í lið
Klansmanna. Varð hann meðlimur
í einni deild þeirra og komst svo
langt að verða tilnefndur í ,,Murder
Squad" deildarinnar, eða morðsveit
ina. Eru ófagrar lýsingar í bókinni
af starfseminni. Kennedy haíði stöð
ugt samband við lögreglumenn í
þeirri boi'g, sem hann var staðsett-
ur. Höfðu þeir verið settir til höf-
uðs Klansmönnum af þáverandi rík
isstjóra, sem v'ar þeim andstæður,
en brátt fóru í hönd kosningar. Töp
uðu andstæðingar ' Klansmanna
kosningunum og fór saman að upp-
skátt varð um laumustarfsemi
Kennedy í félagsskapnum. Bjóst
hann við lítilli vernd úr því, en
komst þó lifandi á brott. Bók þessi
er mikil hrollvekja, þótt hún sé
sönn. Þar eru rakin tengsl nazista
og Klansmanna og birt mynd ;rá
sameiginlegu móti þeirra í Banda-
ríkjunum fyrir stríð. Kjörorð Klans
manna segir Kennedy vera „Hvítt
drottinvald" og með það kjörorð á
vörum taki þeir svertingja af lífi
án dóms og laga, ef þeim bíður svo
við að horfa, án þess að nokkur reki
stefna sé gerð út af því, ef ráða-
menn eru á þeirra bandi. Segir
Kennedy að þetta hvíta drottinvald
sé ekki tómt mál, þvi Ku Klux Klan
njóti verndar í ólíklegustu stöðum,
enda það valdamikill félagsskapur í
Suðurríkjunum, að hann hafi stöð-
ug og mikil áhrif í kosningum.
Andróður gegn Klansmönnum.
Stetson Kennedy bendir réttilega
á það í bók sinni, að ekkert nema
gagnger upplýsing á starfsháttúm
Klansmanna gagni til að kveoa
þennan óíögnuð niöur. Saga Ku
Klux Klan sé það ljót, að hún kveði
sjálfkrafa upp sinn dauöadóm yfir
hreyfingunni, ef vitneskjan um
hana nái nógu mikiili útbreiðzlu.
Hefir Kennedy ritað margar bækur
um Klansmenn og starfshætti
þeirra og verður stöðugt að fara
huldu höfði til að haida lífi. Fíl-
djarfasta uppátæki hans var að ger
ast meðlimur í félagsskapnum. —
Gerði hann það til að segja frá
starfseminni sem sjónarvottur og
einnig til að koma ýmsum inngangs-
orðum þeirra á framfæri opinber-
lega svo þeir rugluðust í ríminu.
Hafði hann samband við útvarps-
stöð, sem útvarpaði daglega vissum
Gínger Rogers og Cochran í
myndinni Ógnir næturinnar.
Cochran leikur Klansmann.
skemmtiþætti, þar sem gert var grín
að öllu því leyndasta í félagsskapn-
um. Vissu því Klansmenn að uvikari
var á meðal þeirra, þótt þeir kæm-
ust ekki að því fyrr en siðar að bað
var Kennedy sjálfur, erkióvinur
þeirra. Gerði þessi vitneskja um
svikarann þeim m;ög óhægt urn vik
í kvikmyndinni í Austurbæjarbíó
er djarflega tekið á viðfangsefninu
og fjallað um það á mjög líkan hátt
og Kennedy gerir. Ung stúlka kem-
ur til bæjar i Suðurríkjunum til að
finna systur sína. Verður hún þá
sjónarvottur að því, er Klansmer.n.
klæddir í hinar hvítu skykkjur sín-
ar og með stromphetturnar, ræ;.a
manni úr fangelsi og drepa hann
Þetta er blaðamaður, sem ekki hafði
skrifað, eins og þeir vildu, og vekur
manndrápið mikla athygli. Ginger
Rogers leikur stúlkuna og gerir pví
góð skil. Kemur glöggt fram í mynd-
inni við hvern ofjarl er að etja, þar
sem Klansmenn eru annars vegar
en margir sem koma við sögu og
bera að nokkru leyti ábyrgð á þessu
morði, eru háttskrifaðir borgarbúar
Einnig er gerð grein fyrir því hve
ævinlega reynist erfitt að koína upp
um hryðjuverk Klansmanna. Óttinn
á þessum slóðum er það mikill '.'ið
þessa ofbeldishreyfingu, að það er
viss þrekraun að bera sannleikanum
vitni. I. G. Þ.
Sls’fíggá í IjKMgarjses-
kasaip Ijreiímsr
í gær um kl. 5,30 var
slökkviliðið kvatt að Laug-
arneskamp 18, en þar var
rnikill eldur í bragga, sem
enginn bjó í um þessar mund
ir.~*ífins vegar var hann not
aður sem geymsla. Slökkvi-
liðið var um klukkutíma aö
ráða niðurlögum eldsins, og
eyðilagðist bragginn að
mestu.
Benclar, Pilsstrengir,
Hvít og svört Teygja,
Tyllblúndur,
Mómullarblúndur,
Nylonblúndwr,
Nylonbroderie-blúndur.
Gluggatjaldakögur.
Stímur, Hlýrabönd,
Leggingar, Milliverk,
Hárbönd, Nylonhárnet,
Stoppugarn, Smellur,
Krókapör, Hárkambar,
Hárgreiður o. fl. smávörur.
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
íslenzk-erlenda verzlunarfélagið h.f.
Garðastræti 2. — Sími 5333.
Pan Amerioan World Airways
Alla laugardagsmorgna:
Frá Keflavík til Prestwick, Oslo, Stokkhólms, Helsinki.
Öll sunnudagskvöld: Frá Keflavík til New York.
Frá Prestwick er flugferð til London sama dag.
Flugfarmiða og flugfragt á nefndum leiðum félagslns
má greiða með íslenzkum krónum til og frá íslandi.
PAN AMERICAN notar aðeins Douglas DC-6B Super
flugvélar með loftþrýstiútbúnum (pressurized) far-
þegaklefum.
PAN AMERICAN flugvélar hafa bæði „Tourist" og
fyrsta farrými.
AÐALUMBOÐSMENN:
G. Helgason & Melsted h.f.
Hafnarstræti 19 — Símar 80275 og 1644.
4 113131
BiRKIKROSSVIÐUf?
5 mm
MAGHONYKROSSVIÐUR
(okola)
KRISTJÁN SIGGEIRSSOIW U.F.
LAUGAVEGI 13.
ÍVAR HLÚJÁRN.Saga efíir Walter Scott. Myndir eftir Peter Jacksorl39
21,00
21,35
22,00
22,10
22,20