Tíminn - 18.02.1955, Qupperneq 6

Tíminn - 18.02.1955, Qupperneq 6
6 TÍMINN, föstudaginn 18. febrúar 1955. 40. bluð. ÞJÓDIEIKHÖSIÐ Gullna hliðið > Sýning í kvöld kl. 20.00. UPPSELT. Faidd í gær Sýning laugardag kl. 20.00 og sunnudag kl. 20.00. Aðgöngumiðasalan opln frá kl. 13,15—20.00. Tekið á móti pönt- unum, sími: 8-2345, tvær línur. Pantanir sækist daginn fyrir sýn ingardag annars seldar öðrum. Beriætti bréfberinn Leikandi létt og skemmtileg .ý amerísk gaman mynd í eðiilegum litum. í mynd þessari, sem einn ig er geysi spennandi leika hinir alþekktu og skemmtilegu leik- arar. Robert Cummings, Terry Moore og Jerome Courtland. Bönnuð innan 10 ára. Sýnd kl. 5, 7, og 9. i NÝJA BÍÓ Glæpur og refsing (Raskolnikof Áhrifamikii frönsk mynd, gerð eftir hinni heimsfrægu skáldsögu með sama nafni eftir P. Dosto- jefski, sem komið hefir út í ísl. þýðingu. Aðalhlutverk: Pierre Blanchar, Harry Baur, Magdeleine Berubert. Danskir skýringartextar. Bönnuð börnum innan 1G ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. BÆJARBÍO — HAFNARFIRDI - VanþuhUUítt hjarta Sýnd kl. 9. Allra síðasta kvöldsýning. ,,Viljans mer1ii“ sýnd á vegum Kaupfélags Hafn- arfjrðinga kl. 8. Ókeypis aðgangur meðan hús- rúm leyfir. TJARNARBÍÓ Brimaldan stríða (The Cruel Sea) Þetta er saga um sjó og seltu, um glimu við Ægi og miskunnarlaus morðtól síðustu heirosstyrjaldar. Myndin er gerð eftir samnefndri metsölubók, sem komið hefir út á íslenzku. Bönnuð börnum innan 14 ára. Sýnd kl. 7 og 9,15. Þetta er drengurinn minn (That is my boy) Hin sprenghlægilega ameriska gamanmynd* Aðalhlutverk: Dean Martin Jerry Lewis. Sýnd kl. 5. J X SERVUS 60LD X- frOí=C=k>3 U.iD m HOLLOW GROUND YELLOW BLADE 0.10 m ni !IÆ! rREYKJAyÍKUR^ Frænka Charleys 70. sýning í kvöld kl. 8. Aðgöngumiðasala eítir kl. 2. — Sími: 3191. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< AUSTURBÆIARBÍÓ Úgnir næturinnar (Storni Warning) Óvenju spennandi og viðburða- rik, ný, amerísk kvikmynd, er fjallar um hinn illræmda félags- skap Ku Klux Klan. Aðalhlutverk: Ginger Rogers, Ronald Reagan, Doris Day, Steve Cochran. Bönunð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. GAMLA BIO Siml 1475. i Brottning rœningjunna (Rancho Notorious) Spennandi og vel gerð ný banda- rísk kvikmynd tekin í litum. — Aðalhlutverk: Marlene Dietrich, Mel Ferrer ogArthur Kennedy. SMIJ Býnd kl ", 3 , BSm Ixmaa 16 ára í& eW aðg, Bala beísí kl. TRIPOLI-BÍÓ Síml 1182 Perlufestin (Dernier atout) Afar spennai.«. g bráðskemmti- leg ný frönsk sakamálamynd. — Aðalhlutverk: Mireille Balin, Raymond Roule- au, Pierre Renoir, Georges Roll- in.— Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð innan 16 ára. Danskur texti. HAFNARBÍÓ ] Slml 8444 Lækmrinn hcnnarj (Magnificent Obsession) Sýnd kl. 7 og 9. Ofjarl ræningjanna (Wayoming Mail) Viðburðarík og spennandi me- rísk litmynd. STEPHEN MC NALLY ALEXIS SMITH Bönnuð 16 ára. Sýnd kl. 5. Blikksmiðjan GLÓFAXI HRAUNTEIG 14. — Sími 7238 Hálfdán Bjarnason á Ítalíu Vegna ummæla Tímans í deilum um fisksölu til Ítalíu langar mig að segja aðeins fáein orð, og fellst þar eng- inn dómur um deilumálið. Halfaán Bjarnason frá Steinnesi er búinn að vera rúman aldarfjórðung heim- ilisfastur á Ítalíu. Hann kann ítölsku sem innfæddur ítali. Hann er mjög ljúfur og elsku legur maður í viðkynningu og mun eiga innangengt til flestra, sem hann vill kynn- ast eða hafa skipti við þar syðra. Halfdán mun hafa unnið upp markað fyrir íslenzkan saltfisk á Ítalíu miklu meira heldur en nokkur maður ann ar. Og hefir verið vel að því kominn, þótt hann hafi haft sæmileg laun fyrir vinnu sína og sérstaka lægni og dugnað. Held ég að Halfdán hafi oft gert íslandi ómetan legt gagn þar syðra við Mið- j aröarhaíið. Við kynningu af Halfdáni hefi ég fengið þá trú á hon- um, að hnnn sé traustur og góður íslendingur, sem vilji ættjörð sinni allt hið bezta — og sé mikil ánægja af að reyiiast henni sem beztur sonur — og útvörður í fjar- lægu landi. Þetta er skoðun mín á Haif dáni, og svipuð er hún reynd ar á ýmsum fleiri íslending- um, ,sem einhveirra orsaka vegna hafa hlotið það hlut- skipl i að ala aldur sinn, mik inn hluta ævi sinnar, fjarri fosturjarðar ströndum. Vigfús Guðmundsson. Kjaruorka . . . (Framhald af 5. siðu). ekki líða á löngu þar til mann- fólkið stæði gagnvart óleysanleg- um vandamálum. En svo er hinum nýju aðferðum, sem kjarnorkufræð ingar og landbúnaðarsérfræðingar hafa fundið, fyrir að þakka að þetta vandamál mun verða auð- leyst. i— — .. ----- -------- íslendingaþættir (Framhald af 3. síðu). Og nú er Sigga í Bóli 60 ára í dag. Margir þakklátir hugir hvarfla nú heim til hennar frá vinum hennar fjær og nær. Við þökkum henni íyrir hennar mörgu og góðu störf. Við þökkum henni fyrir góða viökynningu, ástúð ina og gleðina, félagsstarf- semina og margt og margt fleira. Og um leið og ég þakka þér, Sigga í Bóli, öll góð kynni um hálfrar aldar skeið eða meir, óska ég þér að þú megir lengi lifa hér með okk ur og blanda geði við okkur, vera þátttakandi í störfum með okkur í þarfir sveitarinn ar, vera þátttakandi í gleði okkar eins og við í þinni, og vera sameinuð okkur ef erf- iðleika ber að höndum. Ég óska þér innilega til hamingju með þetta merkis afmæli. Þinn vinur Stjáni í Eznholti. f ÚR og KLUKKUR. — Við- | | gerðir á úrum ok klukkum. I Póstsendum. | JÓN SIGMUNDSSON I skartgripaverzlun Laugavegi 8 ■111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 Pearí S. Buck: 64. HJONABAND að brúðarkjóll Mary var líka blár, og hann horfði á hana í undrun yfir því, hve mjög hún líktist Rut í fljótu bragði. Hann átti í höggi við þá óþægilegu tilfinningu, að hann væri að gifta Rut þessum unga bónda í svörtu og aðskornu föt- unum. En í aðra röndina fannst honum þessi tilfinning kát- leg. Þegar giftingunni var lokið, fann hann, að eitthvert band var slitið milli hans og Mary, dótturbandið. Hann sá hana standa við hlið eiginmanns síns í þessum litla gesta- hópi. Nú hugsaði hún ekki um neina aðra en sig og Joel, og hún mundi aldrei framar hugsa um neina aðra nema böriv þeirra. Mary mundi vernda eiginmann sinn, hvað sem í skærist, vegna þess aö hann var hennar, og hún mundi elska börn sín, ekki af því að þau voru börn, heldur vegna þess að hún átti þau. í hjarta sínu kvaddi hann hana og óskaöi henni blessunar. Hugur hans hvarflaði til Jill, sem var að bera vínkönnur og kökuföt meðal gestanna, en hann færði sig ekki nær henni. Fólk kom hægt og hikandi til hans og mælti til hans gætilega. Þetta fólk var enn feimiö við hann, því að hann hafð lifað sem ókunnur maöur meðal þess öll þessi ár. En hann hafði lært að umgangast það, lært að hlusta og brosa og svara í einföldum og almennum orðum. Þetta fólk hrædd- ist allan hátíðleik og skrautyrði, svo að hann varaðist það. Hann hlustaði á samræður manna umhverfis sig. — Jæja, Sieger. En hvað þú átt þarna myndarlegan dótt- urson? Þetta var slátrarinn, og rautt andlit hans afmynd- aðist í brosi. — Já, hann fór að ganga fyrir sex mánuöum. Ég vona, að þú eignist svona myndarlegt barnabarn sem fyrst, Barton. Barnabörn. William hafði aldrei hugsað um barnabörn. Barnabörn hans og Rutar, jæja, þá var að taka því. — Ég vona, að ég verði eins hamingjusamur með þau, Sieger. — Já, það er engin hætta á öðru, hlakkaði í Sieger. — Þetta eru fallegustu brúðhjón. William brosti. Hann leit á brúðhjónin eins og slátrarinn. Já, Joel og Mary voru efnileg brúðhjón. Þau mundu vafa- laust auka kyn sitt. En hvernig færi ef eðli hans birtist á ný í börnum Mary? Vegir náttúrunnar voru kynlegir. Hún lék alltaf á menn og skóp fólkið eins og duttlungar hennar buðu. Allt í einu fannst honum hann vera ákaflega einmana í hópi þessa sundurleita en góðlátlega sveitafólks. Rut var í hinum enda stofunnar, önnum kafin við brúðkaupskökuna, sem Mary átti að fara að skera. Hann sá andlit hennar rjótt og fjörlegt í ákafa starfsins. Hún hafði bakaö brúðkaups- kökuna sjálf alveg eins og móðir hennar hafði gert, þegar hún giftist. Uppskriftin var nákvæmlega hin sama, en mundi árangurinn verða eins góður? Hann smeygði sér gegnum mannþröngina svo að litið bar á, unz hann kom að stiganum .Hann gekk hægt upp stigann og inn í herbergið, sem hann notaði til að geyma í myndir sinar og málaraáhöld. Hann hafði skrifborð þar. Við það settist hann og leitaði í huga sér um heim allan að einhverri manneskju, sem hann gæti talað við. Svo dró hann að sér pappírsörk og byrjaði að skrifa bréf til Elise. Hall var farinn, og Mary var farin, og heimilið samdi sig að þeim breytingum eins og þau hefðu aldrei verið til. Joel fór í stríðið, og Rut og Mary ræddust oft við í hálfum hljóðum án þess aö aðrir heyrðu. En þótt Mary kæmi oft heim til for- eldra sinna, varð hún aldrei hluti af því framar, og William vissi, að hún mundi aldrei veröa það héöan af. — Sæll, pabbi, sagði hún þegar hún kom og hitti hann. — Hvernig líður þér? — Vel, sagði hann, þakka þér fyrir, Mary. Mánuðirnir liðu, og hann sá, aö hún var vanfær, en honum varö ekki meira um það en einhverja vandalausa bænda- konu hefði borið fyrir augu hans í þvi ástandi. Á slika hluti mundi Rut aldrei minnast. Einn daginn mundi hún koma inn til hans og segja rólega: — Mary er búin að eignast lítinn dreng — eða litla stúlku. Og hann mundi svara jafn hirðuleysislega: — Er allt með felldu? Það mundi vafalaust vera svo, og þá væri ekki meira um þetta að segja. Hann sinnti lítt um Jill, því að hann málaði flestum stund- um þetta ár. Honum leið óvanalega vel, og var fullur áhuga og starfsþrótti, ef til vill sumpart vegna þess, að þetta var óvenjulega þurrviðrasamt ár. Hann skrifaðist nú reglulega á við Elise, og fann hvatningu í löngum, vingjarnlegum bréf- um hennar. Bréfið, sem hann fékk frá henni í apríllok þetta ár, flutti þær fregnir, að yngri sonur hennar, Reginald, sá ljóshærði, væri fallinn. Þá tók hann fram litlu myndina af þeim bræðrum, því að hann hafði aldrei sent Hall hana, og athugaði mynd hins fallna pilts vandlega. Úndarlegt að þessi ungi piltur skýldi vera hrifinn úr tölu lifenda: Honum fannst sem einhver nákominn væri dáinn, því að í bréfum sínum hafði Elise oft sagt nánar fregnir af sonum sínum, Don og Rex, eins og hún kallaði þá. Þeir skrifuðu móður sinni afbragðs góð bréf, álei.t hann, leiftrandi af. fjöáen þó af miklum lífsskilningi. Hann sá stundum bréf þau, sem Hall skrifaði móður sinni. Hann skrifaði aðeins henni, stutt, hversdagsleg bréf. og voru helztu fréttir þeirra, hvað hann át og drakk, eða hvar hann dvaldi hverju sinni. Síðan vék hann að því, sem hann vildi láta hana senda sér. En þessi

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.