Tíminn - 17.03.1955, Blaðsíða 5

Tíminn - 17.03.1955, Blaðsíða 5
63. blað. TÍMINN, fimmtudaginn 17. marz 1955. 5 Fimmtml. 17. mars Hversvegna er þörf umbótastjórnar? í stjórnmálayfirlýsingunni, sem samþykkt var á nýlokn um aðalfundi miðstjórnar Framsóknarflokksins, er látin í ljós mikil ánægja yfir störf um ráðherra flokksins á und anförnu starfsári. Þaö er lýst ánægju yfir störfum fjár málaráðherra, pn undir for- ustu hans hefir afkoma ríkis ins enn orðið hagstæð,- þrátt fyrir verulega skattalækkun. Það er lýst ánægju yfir störfum landbúnaðarráöherra en undir forustu hans hefir verið hafist myndarlega handa um rafvæöingu dreif- býlisins og landbúnaöinum verið tryggð framlög til mik- illa framkvæmda. Loks er svo lýst ánægju yfir þeim miklu umbótum á fram- kvæmd varnarmálanna, er komið hefir verið á undir forustu utanríkisráðherra. Því verður vissulega ekki neitað, að á öllum þessum sviöum hefir náðst mikill á- rangur. Þessi árangur hefði ekki náðst, ef Framsóknar- flokkurinn hefði dregið sig í hlé eins og stjórnarandstöðu flokkarnir og þannig hefði skapast algert stjórnleysi í landinu. Þessi árangur rétt- lætir það fullkomlega, að Framsóknarflokkurinn tók heldur þann erfiða kost að hafa samvinnu við Sjálf- stæðisflokkinn en að láta skapast stjórnle.vsi í landmu. Sá árangur, sem hér hefir j náöst, má hins vegar ekki villa mönnum sjón á því, að mikilla umbóta er þörf á mörgum sviðum þjóðmál- anna. Einræðlgandi ríkir í stjórri dómsmála og mennta mála. Sjávarútvegsmálin eru í miklum ólestri og þar hald- ið verndarhendi yfir óheppi- legu einokunarkerfi. Verzlun armálin þarfnast mikilla end urbóta. Haldið er uppi skipu lagsiáusri fjárfestingu og þrífst í skjóli þess okur á peningum og vhmu og ýmis- legur annar ósómi. Meðal launastéttanna ríkir tor- tryggni í garð þjóöskipulags- ins og það veldur stöðugum kaupdeilum og skæruhern- aðL Gjaldmiðilinn skortir því næga tiltrú, og fylgir öllu þéssu jafnvægisleysi og ör- yggisleysi í þjóðarbúskapn- um. Það’er af öllum þessum á- . stseöum, sem- aðalfundur mið ■stjómar flokksins telur núv. stjórnarsamstarf neyðarúr- ræði, þótt það sé betri kost- ur en algert stjórnleysi og ýmsum góðum málum megi þoka áleiðis í skjóli þess. Það er af þessum ástæðum, sem aðalfundurinn telur það „þjóðarmeln, að ekki eiga, eins og- sakir standa, sæti á rilþingi nægilega margir Framsóknarmenn til að mynda ríkisstjórn með öðr- um umbótasinnuðum fulltrú um hins vinnandi fólks“. Það er af þessum ástæðum sem aðalfundurinn telur nauðsyn legt, að sköpuð verði skilyrði fyrir ríkisstjórn, er geti not- lð tiltrú og stuðnings verka- lýðssamtakanna. Megfinoifsök þess, að siík Etjórn hefir ekki verði mögu ieg, um lengra skeið, er sú, Jón Kristgeirsson, kennari: Ferðamolar í Ameríkuferð Winnipeg í íebr. 1954. j í raun og sannleika er ekki alveg hægt að verjast þess, að láta sér bregða i brún, eða jafnvel að verða hálf gramur vði að kynnast því, hversu lítið er kennt um ísland í skólum vestan hafs, og hversu menn þar eru almennt fáfróðir um land okkar og þjóð. En bæði er það, að land þeirra vestanmanna er víðlent mjög og fjölbyggt og gef- ur því æðimikið námsefni, og hins vegar höfum við sjálfir, að svo miklu leyti sem ég þekki til, ekki gert neitt til þess, að reyna að koma smákafla inn í kennslubæk- ur þeirra, eða á annan hátt unnið að því að lands okkar væri h'tið eitt getið þar í skólum. Þó hycg ég að þetta væri vinnandi vegur. Ég hefi átt tal um þetta við ýmsa skólamenn hér, og mun athuga það enn betur, áður en ég hverf heirn. Vert cr þó að geta þess, að ís- landi eru gerð góð skil í nýrri al- fræðibókum enskum. Komið hefir það fyrir mig einstöku sinnum hér í álfu, að eskimóar eru nefndir í sambandi við land mitt og þjóð. Ég reiðist því. Og veit ég ekki af hvaða ástæðum. Því að eskimóar eru mesta heiðursfólk, og okkur hvítum mönnum ferst ekki að stata mikið f sambandi við þá. Ég kom eitt sinn inn í kennslustofu, þar sem fríð kennslukona var að kenna 16 ára unglingum teikningu. Þetta var auðsjáanlega góður bekkur. Börnin voru falleg og mennileg. Ég sagði kennslukonunni að hún hefði sömu vinnubrögð og Unnur Briem í Miðbæjarskólanum heima. ún tók því vel og hélt allmikinn ræðu- stúf um hve eskimóar væru list- fengir 1 mörgum greinum. T. d. væri skinnklæðagerð þeirra alveg frábær, og ýmislegt fleira taldi hún upp þessum „löndum" mlnum til ágætis. Auðsjáanlega til að geðj- ast mér og sýna að hún væri ekk- ert blávatn. Að því loknu bauð hún mér að segja bekknum eitthvað heiman að frá mér. Þáði ég það, og börnin fengu leyfi til aö spyrja mig á eftir. Tíminn leið fljótt, og þegar hringt var út, vissu^ börnin áreiðanlega, að engir eskimóar eru á íslandi ,og hafa aldrei verið. Þetta var hin ánægjulegasta stund. Annars ætti þetta eskimóatal í þessu sambandi ekki að vera neitt undrunarefni, því að þeir, sem ekk ert vita um ísland, en muna að það liggur á svipaðri breidd og mik- ill hluti Grænlands, Alaska og nyrztu héruð Kanada, sem allt er meira og minna byggt eskimóum, þá er ekki nema rökrétt að álykta að þeir séu einnig á íslandi. Og hið veglega nafn lands okkar bend- ir líka í þessa átt. Það er varla von að menn átti sig á því, að það er líklega Golfstraumjurinn, sem gerir aðallega bobb í bátinn. Áður hefi ég hér í blaðinu fretið um brúðu, sem telpur í 12 ára bekk Miðbæjarskólans bjuggu til og sett var á sýningu hjá UNESCO í New York, sem hefir það takmark að efla kynningu og vináttu allrar æsku. Brúða þessi fékk verðlaun á sýningunni, og er ég í haust heim sótti skrifstofu UNESCO. átti eg þar tal við aðra kvenna þeirra, er hafa framkvæmdastjórn UNESCO á hendi, og vegna íslenzku brúð- unnar greiddi hún götu mína á margan hátt þarna í borginni. Frú- in lét í ijós áhuga fyrir því að á- framhald yrði á þátttöku íslend- inga í sýningum UNESCO. Gat hún um dálítið breytt fyrirkomulag á þeim, þannig að framleiddir væru margir hlutir, sem hægt væri að selja. Verðinu yrði skipt á milli framleiðandans og stofnunarinnar, sem þá fengi ofuriítið upp í rekst- urskostnað- Engin skilyrði eru sett, nema að hlutirnir séu gerðir af börnum eða unglingum, og séu selj- anlegir. Það kom þvi til greina bæði ódýrir hlutir á 1—5 dali og eitt- hvað af mjög vönduðum, dýrari hlutum. Rétt er að hver lrlutur só greinilega merktur nafni og heim- ilisfang þess, sem hefir gert hann Þáð getur orðið upphaf að nánari kynnum milli kaupanda og fram- leiðanda. Merkið myndi vera nægj- anlegt með vel áfestum bréfmiða. Frúin te.lur öruggt að hún 6eti selt munina, ef þeir á annað borð eru þess verðir, því að hún hafi góð sambönd í því efni. Málefni þessu vil ég hér með koma áleiðis til allra barna og ung- linga á íslandi og allra handavinnu kennara þeirra og skátaíélaga, og einnig annarra, sem vlija eiga hlut að því. Að sjálfsögðu getur ekki orðið af endanlegum framkvæmd- um í því fyrr en jnæsta vetur. En það er kominn tími til að fara að hugsa rnálið og undirbúa það, ef eitthvað á að verða úr því. All- ar nánari upplýsingar hér að lút- andi mun Jónas B., fræðslufull- trúi, geta gefið, þegar til kemur. Ég mun líta inn til frúarinnar í heimleiðinni og ræða málið betur við hana. En ef til vill er ínálið komið á fullan rekspöl heima án þess ég viti, og er þá vel. -J'iiSKP 1 Það er óneitanlega nýstárlegt að ferð'ast um Vesturheim fyrir þann, sem aldrei hefir farið fyrr heim- anað, og ekki hefir litið upp frá skyldustörfum sínum. Þó kemur Ameríka mér engan veginn ókunn- uglega fyrir sjónir. Ég hefi kennt landafræði hennar um mörg ár og séð ýmislegt þaðan í kvikmyndum. New York kvaddi ég með nokkurri tregðu. Bæði af því að mér höfðu reynzt götur hennar frekar greið- ar og mér fannst ég eiga þar mörg verkefni ólokin. Þaðan hélt ég til Washington. Og var notalegt að svífa í Greyhound langferðabíln- urn eftir eggsléttum vegunum í haustblíðunni. Það var glaða sól- skin og veðrið líkast og þegar það er bezt í fyrstu réttum á íslandi, þótt þá væri síðari hluti desember- mánaðar. Vegir eru ýmist steyptir eða malbikaðir, og það sést ekkert rusl meðfram þeim. Umhverfið er notalegt og hlýlegt. Á milli borga og þorpa skiptist á í sífellu bleikir akrar, slegin tún og skógar. Bænda- býlin, mjallahvítar byggingar, með grænum, rauðum eða dökkum þök- um eru á víð og dreif urn slétt- una, og fer frekar lítið fyrir þeim. Leiðin liggur ofurhtið í átt til sumars meðan haldið er til Wash- ington, en sú borg er fríðust höf- uðborg í heimi, segja Baiidaríkja- menn. Og get ég vel skilið þeirra sjónarmið í því efni. Þarna gæti þvi verið margt girnilegt til fróð- leiks, fyrir þann, sem hefir falt fé og tíma. Mér notaðist tíminn frekar vel þarna eftir atvikum. Og vil ég aðeins nefna það hér, að mér gafst kostur á að skoða nokkuð löggjafarþinghús þeirra U. fa,- manna og þótti mikið til koma. Mér varð þá líka sérstaklega star- sýnt á hinar víðu graslendur, sem blasa við fram undan höllinni 1 dálítilli fjarlægð í miðri borginni. Það er auðséö, að þingmennirnir vilja láta græna litinn mýkja hug- arfarið. Þetta eru túnflákar mikiu vel hirtir með hávöxnum skógi til hliða. Graslendur þessar minna mig dálítið á túnin hans Þorsteins á Skálpastöðum í Lundarreykjadal. Ég geng dálítið um þessar fögru lendur, tek upp vasahnifinn og gref ofurlítið í svörðinn til að sjá, hvern ig jarðvegurinn lítur út. Þetta er auðsjáanlega frjósöm jörð, en ó- neitanlega finnst mér moldin á ís- landi fallegri og geðþekkari. Frá hinni glæstu höfuðborg ligg- ur leiö mín til norðurs í átt til vetrar. Veturblíðan er hin sama og umhverfi vegarins svipað og áður. fyrst í stað. Það er bezta rétta- veður. Og eiginlega minnir þessi ferð mig nokkuð á fyrstu réttar- ferðina mína, er ég var 10 ára. Blær náttúrunnar er hinn sami og litir himins og jarðar eru eins og þá var við Oddstaðarétt. Og verið getur, að eftirvæntingin sé svipuð En eftir því sem leiðin sækist norður, ber meira á nálægð vetrar. Norð- annepjan blæs á móti. Þaö fer að bera á fjúki og frosti og fyrr en varir er jörðin orðin snævi hulin. Öllu virðist hraka. Eyöi og tom hvílir yfir umhverfinu. Ég fað iðrast eftir að hafa skilið við hina björtu New York og haldið út í þann eymdardal, sem virtist blasa við fram undan. En teningunum er kastað og ei verður aftur snúið. Þegar að landamærunum kemur, er komin vetrarharka með 12 stiga frosti á Celsíus. Eftir það hætti ég að fylgjast mcð umhverfinu. Enda er komið fram yfir miðnætti. Loks er numið staðar á leiðarenda í Winnipeg. Með dræmingi og iðr- un skreiðist ég fram úr sætinu og lít út. Stjörnubjartur næturhim- inn hvelfdist yfir stórborgina. Það er ekki ólíkt um að litast og um vetrarnótt í Reykjavík. Það hýrn- aði yfir mér, og frá þeirri stundu hefi ég verið háður Kanada, og hefi lært að njóta margra þeirra þæginda, sem þar eru í boði. Ég er farinn að venjast kuldanum. Frost hefir verið og hefir það oröið mest 29 stig á Celsíus. Samt þykir vetur hér mildur. Leiðbeiningar að alltof stór hluti verkalýðs ins hefir af misskilningi fylgt öfgaflokki, sem stjórn- að er annars staðar frá. Strax og hinn lýðræðissinn- aði hluti þessa flokks klýfur sig frá öfgamönnunum, myndi skapast nýtt stjórnmálavið- horf í landinu. Það tvennt, '"sem nú þarf að gerast til endurreisnar íelenskym stjórn málum er ánnars vegar, að Framsóknarfiokkurinn eflist, og hins vegar, að lýðræðis- sinnaðir sósíalistar í Alþýðu- flokknum, Þjóðfvarnarflokkn um og Sósíalistaflokknum renni i eina fylkingu. íhaldsblöðin sýna, að það er þetta tvennt, sem aftur- haldið óttast nú me§t, 5á ótti á aö vera umbótamönnum vísbending og hvatning um það, sem gera þarf. um skó Neyt,endasamtök)i,n hafa gefið út bækling, sem nefn ist „Að velja sér skó“ og eins og nafnið gefur til kynna, eru í honum leiðbeiningar um að velja sér skó. Bækl- ingurinn er aö mestu þýddur eftir riti, sem gefið var út fyrir nokkru í Danmörku, en Kristjana Steingrímsdóttir, húsmæðrakennari, bjó hann til prentunar. Rannsóknarbeiðni Hermanns Jónas- sonar Það hefir að vonum vakið nokkra athygli, að Hermann Jónasson hefir farið þess á leit við dómsmálastjórnina, að hún fyrirskipi opinbera rannsókn í tilefni af þeim aðdróttunum Jónasar Jóns- sonar, að hann hafi verið meðeigandi og ráðunautur verzlunar Ragnars Blöndals h. f. og hafi jafnframt sem formaður bankaráðs Búnað- arbankans misnotað aðstöðu sína til þess að útvega þessu fyrirtæki lán hjá bankanum. Athygli þessi stafar vafa- laust mest af því, að menn eru orðnir því vanir í seinni tíð, að Jónas Jónsson dreifi út alls konar óhróðri um Her- mann Jónasson, án þess að því sé svarað nokkru. Þess hef ir ekki gerzt þörf, því að menn eru löngu hættir að taka mark á þessum skrifum. í þessu til felli stendur hins vegar sér- staklega á, þar sem bornar eru fram aðdróttanir í garð Hermanns sem bankaráðs- formanns í sambandi við mál, sem enn er meiri og minni Ieynd hulið. Hermann Jónasson hefði getað fengið þennan óhróður Jónasar ómerktan með því að fara í meiðyrðamál við hann, en slík málaferli hefðu hins vegar lítið upplýst. Jónas myndi hafa verið dæmdur, þótt hann hefði getað lagt sannanir á borðið. Opinber rannsókn veitir Jónasi hins vegar aðstöðu til að leggja allar heimildir sínar á borðið og að sleppa við málshöfðun, ef hann getur sannað mál sitt. Með því að hafna meið- yrðamálsleiðinni og óska eft- ir cpinberri rannsókn, hefir Hermann gefið Jónasi hið bezta tækifæri til að sanna mál sitt. Óhróðri Jónasar er hér því mætt eins drengilega og frek ast er kostur á. Vafalaust má telja, að dóms málaráðuneytið verði við þeim tilmælum Ilermanns að láta þessa rannsókn fara fram. Málgagn dómsmálaráð herrans hefir líka láfið í það skína. Það hefir einnig gefið í skyn, að „viðskipti Ragnars Blöndals og Búnaðarbankans verði skoðuð niður í kjölinn". En hví þá ekki líka Útvegs- bankans og annarar lánar- drottna Ragnars Blöndals? Það væri skrítið, að rannsaka aðeins samband Ragnars Blöndals við þann bankanna, sem fram að þessu hefir feng ið langsamlega minnst skakka föll af ógætilegum útlánum, en sleppa hinum lánardrottn unum. í sambandi við mál þetta, hefir annars komizt á kreik orðrómur um ý(ms vafasöm útlán banka og okurlánastarf- semi einstaklinga. Sagt er t. d. að viss bókafyrirtæki skuldi bönkum svo miljónum króna skiptir og smákaupmaður einn úti á landi skuldi ein- um bankanum yfir 12 milj. kr. Þá er sagt, að okurlána- starfsemi blómgist nú í stór- um stíl. Dómsmálaráðherra hefir upplýst á Alþingi, að erfitt sé fyrir dómsmálastjórn ina að upplýsa slík mál, því að hún verði að fara varlega á þeirri braut að bjfggja málshöfðanir á orðrómi. Það er vissulega rétt. Þess vegna ætti það vel að geta komið til athugunar, að Alþingi léti (Framhald á 7. slðu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.