Tíminn - 27.03.1955, Blaðsíða 1

Tíminn - 27.03.1955, Blaðsíða 1
Bfcrifstoíur i Edduhúil Frétta-slmar: 81302 og 81303 Aígreiðslusíml 2323 Auglýsingasimi 61300 Prentsmiðj&n Edda 39. árgangur. Reykjavík, sunnudaginn 27. marz 1955. 72. blaS. Stuttur samninga- fundur í gær Samningafundur var boð- aður með deiluaðilum í vinnudeilunni í gær og stóð fundurinn í um það bil 2 klukkustundir, án þess að árangur næðist. Var fundi þá slitið og hafði nýr fund- ur ekki verið boöaður seint í gærkvöldi. Hljómleikar Sin- fóníusveitarinnar Sinfóníuhljómsveit Ríkisut varpsins efnir til tónleika í Þjóðleikhúsinu á þriðjudags- kvöldið kl. 7. Stjórnandi verð ur Ólav Kielland, en tveir ungir einleikarar koma fram, sem ekki hafa áður leikið ein leik með hljómsveitinni. Eru það þeir Ynvar Jónasson og Jón Sen, sem leika í konsert fyrir tvær fiðlur og strengja sveit eftir Bach. Á þessum hljómleikum verð ur ennfremur fluttur sorgar- forleikur eftir Brahms og Fimmta sinfónían eftir Tschaikowsky. Hefir hún tvisvar áður verið flutt hér á landi. Afla vel í vari við Eyjar Frá fréttaritara Tímans í Vestmannaeyjum. Nokkrir Vestmannaeyjabát ar hafa getað sinnt veiðar- færum sínum vestan við Eyj- ar, en mestur hluti bátaflot- ans þar, hefir ekki komizt á sjó í heila viku. Fárviðri hef ir staöið dögum saman við Eyjar og þeir bátar, sem sinnt gátu veiðum, áttu veið arfæri sín í skjóli við Eyjarn ar. Nokkrir þessara báta hafa aflað vel. Þannig fékk t. d. vélbáturinn Baldur 30 lestir í fyrradag. Göngukeppni Vest- fjarðamótsins Frá fréttaritara Tímaris á ísafirði. Göngukeppni skíðamóts Vestfjarða var háð í Tungu dal sl. föstudag. Brautin var 16 km löng og sigraði Oddur Pétursson á 67:53,0 mín., sem er allgóður árangur. Annar varð Gunnar Pétursson á 68:20,0 mín., en þeir bræð- urnir keppa báðir fyrir Ár- mann í Skutulsfirði. Þriðji varð Árni Höskuldsson, Skíða félagi ísafjarðar, á 69,40,0 mín. Keppendur voru 9. Veð ur og færi var gott. GS. Málverkasýning Sigurbjörns Kristinssonar Um Jjessar mundir cr opin í ListamannasUálanum máiverkasýning Sig- urbjörns Kristinssonar, og vekur hún talsverða athy li. Hefir hún verið allvel sótt og hafa 15 myndir þegar selzt. Sýningin verður opin til mánaðamóta frá kl. 13—22 daglega. Myndin hér að ofan er af einu málverkinu á sýningunni, og nefnist það sjávarþorp. Sjómenn í Eyjum hefja á ný málarekstur út af gjaldeyrisfríðindum Kref ja útgerðarmenn um háar upphæðir fyrir gjaldeyrisfríðindi árin 1952 og 1953 Frá fréttaritara Tímans í Vestmannaeyjum. f Vestmannaeyjum eru nú að hefjast víðtæk málaferli út af gjaldeyrisfríðindum bátaútvegdns. Gera sjómenn nýjar kröfur til gjaldeyrisfríðinda þeirra, sem bátaflotinn hafði árin 1952 og 1953. Hefir Jón Eiríksson skattstjóri og lög- fræðilegur ráðunautur sjómannafélagsins í Eyjum höfðað mál gegn útgerðarfélögum í Eyjum. Atvinnurekendur í Hafn- arfirði sömdu við verkam. Ryrjað að vinna þar við uppskipun á fiski sem var að því kominn að eyðileggjast — Bæjarútgerðin í Hafnarfirði og nokkrir aðrir atvinnu- rekendur þar, gerðu í gær samninga við Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði, sem standa skulu þar til almennir samn- ingar verkamanna og atvinnurekenda eru komnir á og endi er bundinn á kaupdeilu þá, er nú stendur yfir. Var samið upp á 30% kau" hækkun þar til samið verð- ur hjá hinum félögunum og gilda þá sömu samningar hjá Hafnfirðingum og þeim. Það var bæjarútgerðin, er hóf þessa samninga í Hafn- arfirði og samdi fyrst, en síð an gerðust margir aðrir at- vinnurekendur þar, aðilar að þeim. Mikill fiskur var farinn að safnast fyrir í skipum í Firð inum og aðkomubátar, sem þaðan eru gerðir út i vetur, voru farnir að leita annað Mikil þátttaka í skíðagöngu Frá fréttaritara Tímans í Mývatnssveit. Sunnudaginn 13. marz fór fram hjá Reykjahlíð í Mý- vatnssveit 15 km skíðaganga Framh. á 2. síðu. með útgerðaraðstöðu s:na. Vinna hófst því í Hafnar- 'irði í gær og verður unnið þar í dag við að koma afl- anum undan skemmdum. Skákmót Hafnar- fjarðar Eftir fimm umferðir á skákmóti Hafnarfjarðar er staðan þannig, að Sigurgeir Gíslason er efstur með 4 vinn. inga. Stígur Herlufsen hefir 3.5. Magnús Vilhjálmsson, Sig. T. Sigurðsson, Jón Krist- jánsson og Ólafur Sigurðsson 3 hver, Þórir Sæmundsson 1.5, Ól. Stephensen og Trausti Þórðarson 1, og biðskák hvor, og Eiríkur Smith 1 vinning. Tefldar verða níu umferðir og er teflt á þriðjudögum og föstudögum. Eins og sést á vinningum er keppnin mjög tvísýn, því einn vinningur er milli fyrsta og sjötta manns. Fundur FUF um kjarn- orkumál er kl. 2 í dag Mun þessi málhöfðun vera byggð á úrskurði hæstarétt- ar í vetur, þó aðrir telji, að ekki sé hægt að byggja hér á sömu forsendum. Búið er að höfða mál gegn eigendum vélbátsins Baldurs og fleiri útgerðarfyrirtækj- am í Eyjum. Er krafist mik- illa fjárupphæða, sem sjó- menn telia sig hafa orðið af skipta vegna gjaldeyrisfrið- inda útgerðarinnar árin 1952 og 1953. Er hér um að ræða kröfur, sem nema mörgum milljón- um króna, þegar þær ná til allra útgerðarfyrirtækja í Vestmannaey j um. Margir Reyðfirðing- ar á vertíð syðra Frá fréttaritara Tímans á Reyðarfirði. Margir Reyðfirðingar eru nú farnir burt til vertíðar- starfa, eins og jafnan er um þetta leyti árs. Má gera ráð Framh. á 2. síðu. Hinn almenni fræðslufund ur um kjarnorkumál, sem Félag ungra Framsóknar- manna stendur að, verður haldinn í dag í Tjarnarkaffi. Frummælandi er Þorbjörn Sigurgeirsson, magister, og flytur hann fyrirlestur um atómvísindi. Á eftir verða frjálsar umræður, en mál þetta er hið athyglisverð- asta. Atómvísindi í þeirri mynd, sem þau eru nú, eru svo að segja ný af nálinni. Ótelj- andi möguleikar eru bundn Gullfoss og mðrg önnur skip halda sjó í fárviðri suðaustur af Eyjum Mikið fárviðri liefir staðið undanfarna daga á hafinu suðaustur af íslandi og eru þar mörg skip nú, sem ekki komast leiðar sinnar, svo nokkru nemi. Meðal þeirra er Gullfoss, sem er á útleið og vélskipið Oddur frá Vest mannaeyjum, sem er að koma með saltfarm til lands ins frá Hamborg. . Heyrðist til skipa á þess- um slóðum j gær og sögðu menn þá frá bví, að sama fárviðrið hefði staðið ailan daginn í gær, eins og und- anfarna daga. Enskur tcig ari, sem kom upp undir Eyj ar í gær frá Englandi hafði verið átta daga á leiðinni til landsins, sem venjulega hef ir tekið þetta sama skip þrjá sólarhringa að komast. Gef ur það nokkra hugmynd um að veður er ekki gott, þeg- ar stórum skipura gengur svo seint að kamast leiðar sinnar. Við Eyjar, undir Eiðinu og Hamrinum liggja mörg skip og komast ekki inn á Vest- mannaeyjahöfn til af- greiðslu. Meðal þeirra er strandferðaskipið Esja, sem búin er að bíða lengi við Eyjar. Hitt eru aðallega er- lend flutningaskip. Ekki er vitað um að neitt hafi orðið að hjá skipum þeim, sem lent hafa í þessu fárviðri. Skipin sem liggja undir Eyjum eru í góðu vari við Heimaey, en hin sem eru úti á hafinu suður og ast- ur af Eyjum lialda að mestu kyrru fyrir meðan ósköpin standa. ir þeim samfara vaxandí o>rkuþörf í heiminum. Þessi vísindi snerta okkur ekki síð ur en aðrar þjóðir, og ekki síður fyrir hað, að við eig- um hér mikla orku bundna í fallvötnum. Má búast við að kjarnorkan verði harður keppinautur fallvatnanna i framtíðinni. Þessi fundur í Tjarnar- kaffi verður óformlegur og geta fundarmenn setið yfir kaffi á meðan umræður fara fram. Ekki er að efa, að þessi athyglisverði fundur verður fjölsóttur. Þorbjörn Sigurgeirsson. j

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.