Tíminn - 29.03.1955, Blaðsíða 6

Tíminn - 29.03.1955, Blaðsíða 6
TÍMINN, þriðjudaginn 29. marz 1955. 73. blað, « PJÓDLEIKHÖSID Sinfóníu- | hljómsveitin tónleikar i kvöld kl. 19.00 Japönsk listdaussýning í kvöld kl. 21,00. miðvikudag kl. 20.00 Síðasta sinn. Fœdd í gœr Sýning fimmtudag kl. 20. Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 13,15—20.00. Tekið á móti Ýpönt- unum, sími: 8-2345, tvær línur. Ævintýri sölu- honunnar (The fuller brush girl) Aftaka skemmtileg og viðburða- rík ný amerisk gamanmynd, ein sprenghlægilegasta gamanmynd, sem hér hefir verið sýnd. Aðal- hlutverkið leikur hin þekkta og vinsæla gamanleikkona Lucille Ball. Bönnuð innan 14 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. GAMLA BlÖ Bíml 1478. Djöflaskarð (Deviis's Doorway) Afar spennandi og vel leikin, bandarísk kvikmynd, byggð á sönnum atburðum úr viðskipt- um landnema Norður-Ameriku og indíána. Aðalhlutverk: Robert Taylor, Paula Raymond, Louis Calhern. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð innan 14 ára. Síðasta sinn. NYJA BÍG Sími 1544. * Rássneshi cirhusinn Bráðskemmtileg og sérstæð mynd í Agfa-litum, tekin í fræg asta sirkus Ráðstjarnarrikj- anna. — Myndin er einstök í sinnl röð, viðburðahröð og skemmtileg og mun veita jafnt ungum sem gömlum ósvikna á- nægjustund. Danskir skýringartextar. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. BÆJARBÍÖ — HAFNARFIRÐI - París er alltuf París •Nýtízku úrvalskvikmynd gerð af snillingnum L. Emma. Sýnd kl. 7 og 9. T- m iLEIKMAG! rREYKJAyÍKDR^ Frænka Charleys 81. sýning annað kvöld kl. 8. Aðeins fáar sýningar eftir. Aðgöngumiðasala frá kl. 4—7 og eftir kl. 2 á morgun. Sími 3191. AUSTURBÆJARBÍÓ Dreymaudi varir (Der traumende Mund) Mjög áhrifamikil og snilldarvel leikin, ný, þýzk kvikmynd, sem alls staðar hefir verið sýnd við mjög mikla aðsókn. Kvikmynda sagan var birt sem framhalds- saga í danska vikublaðinu „Fam ilie-Journal“. — Danskur exti. Aðalhlutverkin eru leikin af úrvalsleikurum: Maria Schell (svissneska leikkonan, sem er orðin vinsæl- asta leikkonan í Evrópu). Frits von Dongen (öðru nafni Philip Dorn, en hann lék hljómsveitarstjórann kvikmynd inni: „Ég hef ætíð elskað þig“) O. VV. Fischer (hefir ver ið kjörinn vinsælasti leikari Þýzkalands undanfarin r). Fílharmoníuhljómsveit Bei- línar leikur í myndinnl. Sýnd kl. 5, 7 og 9. TRIPOLI-BÍÓ Blxal 1183 Brostnar vonir (Sabre Jet) Ný, amerísk litmynd, er jallar um baráttu bandarískra flug- manna á þrýstiloftsvélum Kó- reu, og um líf eiginkvennanna, er biðu I Japan eítir mönnum sinum. Myndin er tæknilega talin einhver sú bezt gerða flug mynd, er tekin hefir verið. fynd in er tekin með aðstoð banda- riska flughersins. Aðalhlutverk: Robert Stack, Coleen Gray, Ric- hard Arlem, Julie Bishop, Am- anda Blake. Sýnd kl. 7 og 9. Snjallir krakkar Hin bráðskemmtilega, þýzka gamanmynd, er allir hrósa. Sýnd kl. 5. Hafnarfjarð- arbíó Sími 9249. Lífið kallar Stórbrotin og áhrifamikil .iy frönsk mynd, byggð á hinni frægu sögu, Carriére, eftir '■ icky Baum. Miehel Morgan, Henry Vidal. Norskur skýringatexti. Sýnd kl. 7 og 9. Síðasta sinn. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦« TJARNARBÍÓ Útlagarnir í Astralíu (Botany Bay) Afar spennandi ný amerísk lit- mynd um flutninga á brezkum sakamönnum til nýstofnaðrar fanganýlendu í Ástralíu. Myndin er byggð á samnefnari sögu eftir höfunda „Uppreisn- arinnar á Bounty“. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Urn heimilishald Neytendasamtökin hafa sent frá sér enn einn leiðbein ingabækling, en fyrir aöeins hálfum mánuði sendu þau meðlimum sínum bækling- inn „Að velja sér skó“. Hinn nýi bæklingur, sem gefinn er út í samvinnu við Búnaðar- félag íslands, nefnist „Heim ilisáhöld“, og er saminn af Halldóru Eggertsdóttur, nám stjóra. Bæklingurinn er 64 síður og prýddur fjölmörgum myndum. Bæklingurinn verð ur ekki til sölu í bókabúðum, heldur aðeins sendur meðlim um samtakanna, en árgjaldið er aðeins 15,00 krónur og all- ir leiðbeiningabæklingar inni faldir í því. í formálanum að hinum nýja bæklingi segir m. a.: „Meginmálið fjallar um þær kröfur, sem við eigum að gera til efnis og mótunar hinna ýmsu áhalda, og, gef- ur nákvæma lýsingu á þeim tegundum, sem meðmæli hljóta.“ Neytendasamtökin hafa nú þegar gefið út fjóra bæklinga og fleiri eru í undirbúningi. Er því fræðslu- og upplýs- ingastarfsemi samtakanna kominn á góðan rekspöl, og ættu sem flestir að notfæra sér þetta tækifæri til auk- innar vöruþekkingar. Allir þeir sem orðnir eru 16 ára að aldri, hvar sem er á land- inu, geta orðið mðlimir Neyt endasamtakanna og nægir að hringja til skrifstofu þeirra, Aðalstræti 8, í síma 82722. Bæklingar Neytendasam- takanna eru allir gefnir úit í sama formi og innan skamms mun Neytendablaðið koma út í því formi, en í blaðinu verð- ur skýrt frá ýmsum öðrum þáttum í starfsemi samtak- anna og þeim málum, sem þau hafa unnið að að und- anförnu. Leikritasafn ... (Framhald af 4. síðu). eyðiey, ef leiklistarmenning þjóðarinnar allrar stæði þar ekki á bak við. Fyrir skömmu birtist sú fregn að í einu hér aði á Norðurlandi stæði til að byggja 5 félagsheimili al- veg á næstunni. Er ekki lík- legt annað en svipaðar áætl anir séu á prjónunum ann- ars staðar á landinu. í þess- um félagsheimilum öllum verður aðstaða til leikstarf- semi langt fram yfir það, er nokkurn tíma hefir verið úti á landsbyggðinni. Hvernig og með hverju móti ætla þau félagasamtök, sem að byggingu félagsheim- ilanna standa, að nota þessa aðstöðu? Hverjar eru þær kröfur, sem þau ætla að gera til sjálfra sín um efnisval leikrita, um sviðsetningu um hlutverkaskipun og starfsemi alla, er að leiklistinni lýtur? Svo mun margur áhugamað- ur um þessi mál spyrja bæði sjálfan sig og aðra. Svörin fást á næstu árum. En nokk- urn grun getur þaö gefið um það hvernig þau verða, hve mikill áhugi verður fyrir Leikritasafni Menningarsjóðs. P. H. J. .......... I Ragnar Jónsson | | hæstaréttarlögmaður 1 I Laugavegi 8 — Sími 7752 I Lögfræðistörf og eignaumsýsla M1IIIIIIIIIIIIIIII8IIIIBIIIIIII8IIIIIIIII88II8IIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIII lb Henrik Cavling, að raun um það, að Merete lifði ekki af saumum, heldur af kunningsskap sínum við karlmenn. Slíkur atvinnuvegur hafði verið með öllu óþekktur í Börstrup, en þótt Karlotta hefði haft kynni af slíku við lestur skáldsagna, var persónuleg kynning hennar af skækjulifnaði fullkomið reiðarslag. Merete hafði boðið henni í smásamkvæmi í herbergi sínu. Karlotta hafði þegið boðið með þökkum, því að einmanar leikinn sótti að henni. Gestirnir reyndust vera tveir karl menn á fimmtugsaldri. Þeir voru þegar orðnir nokkuð ölv- aðir, þegar Karlotta var kynnt fyrir þeim. Og þegar Karl otta komst að raun um það, að annar mannanna hafði ekki kynnzt Merete fyrr en kvöldiö áður og þó gist hjá henni, tók henni að skiljast, hvað hér var á seyði. Allur efi hvarf henni, er hún ætlaði að draga sig í hlé og afsakaði sig með þ.ví, að framorðið væri, og annar karl mannanna bauð henni hispurslaust þrjátiu krónur, ef hann mætti gista hjá henni. Reiöin blossaöi upp í Karlottu og hún hafði sagt fólkinu hreinskilnislega álit sitt á fram ferði þess. Merete hafði fengið sitt af þeirri ákæru, og af- leiðingin varð sú, að þær töluðust ekki við í þrjár vikur. Karlotta var því fegin, og þótt Merete færi að reyna að endurnýja kunningsskap þeirra að þeim tíma liðnum, reyndi hún að vera eins afundin og henni var mögulegt. Karlotta lokaði bréfinu. Hún hafði verið að skrifa Birtu, og nú skrifaði hún utan á umslagið. Henni kom til hugar að fara þegar niður með bréfið, en svo ákvað hún að geyma póstlagningu þess til morguns. Af reynslu vissi hún, að það var ekki þægilegt fyrir unga stúlku að vera á ferli í Kol- björnsensgötu svo seint að kvöldi. Hún ætlaði að fara að hátta, þegar drepið var á dyr. — Hver er þar? spurði hún áður en hún opnaði. — Það er bara ég, sagði Merete. Karlotta -opnaði og horfði spyrjandi á gestinn. Merete var ljóshærð og lagleg en far- in að nálgast þrítúgt, og fegurðin var farin að fölna. Hún var mjög smurð og förðúð. — Geturðu ekki lánað mér tvær þrjár krónur? spurði hún. Karlotta hleypti brúnum, og Merete flýtti sér að bæta við. — Ég þarf að skreppa út á Austurbrú, og ég á ekki einu sinni aura fyrir sporvagni. — Ég skal athuga það, sagði Karlotta rólega. Hún náði í veski sitt. Allir fjármunir hennar voru tíu króna seðill og sextíu aurar í smápeningum. — Ég hefi aðeins sextíu aura — í smáut — Lánaðu mér bara tíkall þangað til á morgun. Karlotta hristi höfuðið. — Það get ég ekki. Ég þarf að hafa hann mér til framfæris þangað til á næsta útborg- unardegi. — Það er nú samt alveg óhætt að lána mér tíkallinn, en ég skal ekki ásælast hann, láttu mig fá sextíu aurana. — Karlotta rétti henni aurana. — Ég vantreysti þér alls ekki, en ég á svo litla peninga. Merete hló hátt. — Drottinn minn dýri. Reyndu þá að vera hagsýn, áður en ljóminn fer af og tækifærið fer hjá. Með útliti þínu skyldi ég leika mér að því að hafa 200 kr. í tekjur á dag. Karlotta brosti gegn vilja sínum, og Merete. . misskildi brosið. — Gættu að því, góða mín, að ekki fari illa fyrir þér með allan þennan jómfrúdóm. Karlotta opnaði gluggann, þegar Merete var farin. Henni var óglatt. Þegar hún lá í rúmi sínu skömmu seinna, fann hún að tár komu í augu hennar. En hún vildi ekki gráta, það var tilgangslaust. Hún varð að horfast í augu við heim- inn. Hún var þó óhamingjusöm og einmana. Hún lagði saman hendur og bað kvöldbæn sína í hljóðj. Það hafði hún jafnan gert síðan um fermingu. Það veitti fró og frið í einverunni. Og síðan sofnaði hún. Stórverzlunin, sem Karlotta starfaði í, var í hjarta Kaup mannahafnar. í leðurvö'rudeildinni voru sex afgreiðslu- stúlkur auk deildarstjórans. Það voru tvær aldraðar konur, sem þarna höfðu unnið í áratugi, og fjórar ungar stúlkur. Karlotta var vinsæl meðal samstarfsstúlkna sinna. Það staf aði vafalaust af því, að afgreiðslufólkið fékk föst laun en ekki ágóða af því, sem því tókst að selja. Kæmi karlmað- ur inn í búðina og væri Karlotta ekki upptekin. sneri hann sér í níu tilfellum af hverjum tíu að henni. Karlotta reyndi af fremsta megni að temja sér hóg- væra en vingjarnlega framgöngu. Hún gat ekki að því gert, þött ýmsir viðskiptavinanna yrði hrifnir af fegurð henp ar. Hún reyndi ekki að auka á hana með fegurðarlyfjum, En fegurð Karíottu laðaði ekki aðeins að sér athygli við skiptavinanna, heldur einnig afgreiðshimanna í nj^stij deild um. Þeir reyndu að fá tækifæri til að skipta yið þ.ana orö- um, og deildarstjórunum var ekkert gefið um það, liye tíð- förult starfsmennirnir gerðu sér til hennar. Þet^a sjí’apaði ókyrrð í deildunum, menn undu ekki á sínum |tpðiji$i:;y|ð afgreiðsluborðin. Deildarstjórarnir litu því þessa upgu og fallegu stúlku fremur óhýru auga. Það var kvöld eitt hálfri stundu fyrir lokun, að Karlotta kom auga á hann. Hún var að afgreiða aldraða, efagjarna konu. Þetta var erlendur maður, sem hafði lcomið í deild- ina og fengið afgreiðslu hjá Karlottu tvo síðustu dagana. Karlotta áleit, að hann væri ítali. Hann virtist vera á fer

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.