Tíminn - 29.03.1955, Blaðsíða 7

Tíminn - 29.03.1955, Blaðsíða 7
73. blað. TÍMINN, þriðjudaginn 29. marz 1955. Hvar eru sklpin Sambandsskip: Hvassafell er í Keflavík. Arnar- fell er í Bvík. Jökulfell er í Vent- spils. Dísarfell er á Akureyri. Helga fell er f' New York. Smeralda . í Hvalfirði. Elfrida er á ísafirði. — Troja fór frá Siglufirði í gær áleiðis til Póllands. Jutland fór frá Torre vieja 23. þ. m. áleiðis til Austfjarða- hafna Thea Danielsen fór frá Torre vieja 26. þ. m. áleiðis til íslands. Rí kisskip: Hekla er i Reykjavík. Esja fór frá Rvík í gær vestur um land til A'kureyrar. Herðubreiö var á Horna firði í gær. Skjaldbreið er í Rvik Þyrill er á Vestfjörðum á norður- leið. Éimskip: Brúarfoss fer frá Akureyri um há degi í dag 28. 3. til Rvikur. Dettifoss kom til Rvíkur 26. 3. frá New York. Fjallfóss fer frá Hull 29. 3. til Rvik ur. Goðafoss fór frá New York 25. 3. til Rvíkur. Gullfoss fer frá Leith í dag 28. 3. til Kaupmannahafnar. Lagarfoss fór frá Rotterdam 26. 3 til Ventspils. Reykjafoss kom til Rvíkur 27. 3. frá Akureyri. Selioss íeí- frá Vestmannaeyjuin í dag 28 3. til Reyðarljarðar og þaðan til Bel fast og Dublin. Tröllafoss kom til Rvíkur 17. 3. frá New York. Tungu- ícss fer frá Hjalteyri á morgun 29 3. til Reykjavíkur. Katla fer vænt- anlega frá Siglufirði í dag 28. 3. til ÍFÍateyrar, Þingeyrar og Reykja- víkur. Ur ýmsum áttum Mæðrafélagiff heldur fund í Grófinni 1 kl. 8;30 í kvöld. Fundarefni: Ólafur Jó- hannesson prófessor talar um barns faðernisinál og Jón Oddgeir Jóns- son um slysahættu barna. Umferða kvikmynd. Konur eru beðnar að ijöl menna og taka gesti með sér. Frétt frá orffuritara. Forseti íslands hefir nýlega, að tillögu oi-ðunéfndar, sæmt þessa menn héiðúrsmerkjum fálkaorðunn ar sem hér segir fyrir störf 1 þágu Alþingis: Jóh Pálmason. alþihgjsmann otór riddarakross með stjörnu. JörUnd Brynjólfsson, forset^ Sáin einaðs Alþingis, stórriddarakross með stjörnu. Bernharð Stefánsson, alþirigismann, stórriddarakross. Gísla Jónssori, forseta efii d<.-ildai Álþingis, stórriddarakross. - Sigurð Bjarnason, forseta neðri deildar Alþingis, stórriddarakross. Þá hefir forseti einnig að tillögu orðunefndar, sæmt Jón Ásbjörns- son, hæstaréttardómara stjornu stórriddara fyrir embættisstörf 761 kr. fyrir 11 rétta. Bezti árangur reyndist 11 réttir leikir og var hæsti vinningur 761 kr. fyrir kerfi. Fyrir fastan seðil með kerfi með 11 réttum koma G79 kr. og einnig’ var helmingur þeirra seðla, sem voru með 16 rétta leilv seðlar með föstum röðum. 1. vinningur 433 kr. f. 11 rétta (2) 2. vinningur 82 kr. f. 10 rétta <21) Félag Djúpmanna í Reykjavík heldur spilakvöld í Tjarnarkaffi (uppi) fimmtudaginn 30. marz kl. 8,30. Félagar fjölmennið og takið með ykkur spil. Skemmti- nefndin. Étáskólafyrirléstur. Danski sendikennarinn við háskól ann, Erik Sönderholm lektor, mun fiytja íyrirlestur i I. kennslustofu háskóláns miðvikudaginn 30 marz kl. 8,30 s. h. um H. C. Anderson «g H. C. Örsted. Koiir. Munið sérsundtlma kvenna í sund liöllinni á þriðjudögum og fimmtu- dögurh kl. 8,30—9,45 síðdegis. Kjarnorkan (Framhald af 1. síðu.) kjarnorku hefði fengizt allt að því ótæmandi orkulind, sem skapaði möguleika til að hagnýta betur auðævi jarð- arinnar, auka matvælafram leiðslu og bæta hag allra jarðarbúa. Hagnýting kjarn- orkunnar ætti því að skapa veruleg tímamót í sögu mann kynsins. Rannsóknum væri nú svo langt komið, að tekizt hefði að byggja’kjarnorkuver, sem framleiddu rafmagn og gætu knúið skip, og nú væru á döf- inni áætlanir um stórvirkjan ir til að framleiða afmagn fyrir iðnað og almenning. Lík- legt væri, að í þeim löndum, sem fremst eru í kjarnorku- rannsóknum, hæfist á næst- unni stórfelldur iðnaður í sam bandi við framleiðslu kjarn- orkunnar, bæði til eigin nota og til útflutnings. Hér á landi ætti ekki að vera þörf á kjarnorkuverum til framleiðslu rafmagns fyrr en á næstu öld, en vel mætti vera, að íslendingar eignuð- ust skip knúin kjarnorku áð ur en þessari öld lyki. Var hinn bezti rómur gerð ur að þessu stórfróðlega er- indi Þorbjarnar og síðan hóf ust frjálsar umræður og fyr irspurnir. Eysteinn Jónsson fjármála- ráðherra, sem næstur tók til máls, þakkaði framsögumanni afbragðserindi. Sagði hann. að þar hefði mönnum verið sýnt inn í nýjan heim. Margt væri þar í þoku fyrir augum leikmanná, en mundi skýrast. Kvaðst hánn ætíð hafa haft þá trú, aö menn tortímdu sér ekki með atómsprengjum. Spurði Eysteinn, hvort ekki væri líklegt, að fá mætti kjarnorku til nytja úr fleiri efnum en úraníuin og þórí- um? Gæti úraníum og þórí- um ekki verið hér á landi í svo ríkum mæli, að vinnsla kæmi til greina? Mundi ekki verða erfitt fyrir litlu löndin að keppa við kjarnorkufram leiðslu stóru landanna? Gætu hau komið sér upp kjarnorkuframleiðslustöðv- um og væri ástæða fyrir okk ur að hugsa til slíks? Setj- um svo, að menn komi sér saman um að banna kjarn- orkuvopn og hafa eftirlit með að banninu væri hlýtt. Myndi eftirlit auðvelt, eða væri það torvelt? í hveriu er forusta Samein- uðu þjóðanna í kjarnorkumál um fólgin? Væri ekki skyn- samlegt fyrir Norðurlanda- þjóðirnar að hafa samstarf um kjarnorkumál? Eru kjarnorkumáliix ekki komin á þáð stig, að ástæða væri til fyrir okkur að taka meira tillit tH þeirra í námi en enn þá er. gert? Hvað geta íslendngar að- hafzt á næstunni til þess að verða ekki að eins konar forn leifum á atómöldinni? Þessi spurning hlýtur að verða áleit in á næstunni, sagði Eysteinn Jónsson að lokum. Næstut talaði Ingvar V.'i- hjálmsson og sagði, að ekki væri að heyra á því, sem haft væri eftir Búlganir., að Rúss- ar teldu kjarnorkustyrjöld stórhættulega sér. Kvaðst Ingvar álíta, að vatnsafl okk ar myndi duga ókkur lengi enn tll orkuþarfa. Jón Snæbjörnsson þakk ði Þorbirni Sigurgeirssyni af hálfu F U.F. Kvaðst hann hafa orðið var við þá skoðun, að orkuframleiðsla í kjarnorku- verum yrði brátt svo ódýr að vatnsafl gæti alls tkki keppt við þá framleiðslu. Bað hann framsögumánn góðfúslega að ræða skoðun sína á þessu mik ilvæga atriði. Gunnar Þorsteinsson spurði Þorbjörn, hvort framkvæmdar hefðu verið hér á landi lækn- ingar með geislavirkum efn- um. Svarað fyrirspurnum. Þorbjörn Sigurgeirsson tok því næst aftur til máls og svar aði fyrirspurnum í ýtarlegri og skemmtilegri ræðu Kom þar mikill nýr fróðleikur fram, enda mikið búið að spyrja. Þorbjörn sagði meðal ann- ars, að erfitt væri að spá um það, hvort kjarnorka yrði á næstunni unnin úr öðru en úr aníum og þóríum. Rannsóknir ættu sér stöðugt stað, en mal þessi öll hins vegar mjög i bernsku, þótt stórfenglegir at burðir hefðu gerzt. Ekki taldi hann líklegt að úraníum eða þóríum fyndist hér á landi í nægilegpm mæli til vinnslu. Til þess væri bergið of ungt hér. Hins vegar taldi hann iik- íegt, að stóru löndin myndu framleiða kjarnorku og selja öðrum frá stöðvum sínum áð ur en langt um liði. Myndu þeir, sem elck: hafa nægilegt bolmagn til að koma á fót slíkum stöðvum, þannig líka geta notið kjarnorkunnar Eftirlit með kjarnorku- framieiSjsiu talo'i Þorbjörn að gæti orðið mjög erfitt. Gætu stöðvar verið neðan- jarðar og fleira kæmi einnig tií, sem torveldaði slíkt eft- irlit. Sameinuðn þjóðirnar hafa nú tekið nokkra fornstn í kjarnorkumállam. Meffal annars gengist ^fyrir stofn- un kjarnorkuráffs Evrópu. Þetta ráff kallar saman ráð stefnu í Evrópu í sumar um framleiffslu kjarnorkunnar í friðsamlegUm tilgangi. Æskz'legt væri, að sem mest samvinna verði þjóða í milli um þessi mál og mjög heppi legt til c'.æmis, að smærri þjóffir vinni nokkrar sam- an. Þannig ættu Norffur- lönd til dæmis aff koma sér upp kjarnorkustöðvum í friffsamlegum tilgangi. Mjög er nauðsynlegt að auka almenna fræðslu um kjarnorkumál. Kenna þarf um kjarnorkuna eins og raf orkuna. Er ástæða til fyrir okkur að ala upp sérfræð- inga í þessum greinum. Við þurfum menn, sem þekkja þessi mál vel, og smáþjóðirn ar geta lagt til menn í sam- bandi við sameiginleg átök þjóðanna til að nýta kjarn- orkuna, enda þótt þær þjóð- ir, sem þannig leggja til sér- fræðinga hafi kannske ekki mikið fjármagn. Þótt menn tali um hugsan lega sigurvinninga í atóm- styrjöld, þá ber að taka slíkt tal með fyrirvara, sagði Þor björn ennfremur. Mönnum yrði það æ ljósara, hver voði fylgir slíkum átökum, og að enginn væri líklegur til að vinna sigur, þótt annað væri stundum látið í veðri valca. Ekki taldi Þorbjörn þó lík- legt, að mannkyninu yrði út rýmt í slíkri styrjöld. Eng- inn vissi hver áhrifin gætu orðið. Gæti valdið varanlegu heilsutjóni þeírra, sem eftir lifffu og niffjum þeirra. Ræffumaður taldi ákaf- lega ólíklegt, aff framleic'd verði ódýrari orka í kjarn- orkaverum en vatnsafls- orkaverum. Líklegt sé aff viff getum hagnýtt vatnsork wna meff góffum árangri framvegis, þótt aðrir korni sér app kjarnorkuverum. Ræðumaður kvaðst vita til þess að geislavirk efni hafi verið notuð til lækninga hér á landi 2—3 sinnum. Til dæm is til þess að draga úr fram- leiðslu rauðu blóðkornanna. Að lokum þakkaði fundar- stjóri Þorbirni Sigurgeirssyni fyrir frábært erindi og glögg og skýr svör við fyrirspurn- um. Mun það og mál allra þeirra, sem fundinn sóttu, að hann hafi heppnazt mjög vel og gefið fundarmönnum innsýn í eitt af höfuðvið- fangsefnum þeim, sem tækni þróun mannkynsins glímir við í dae. í í eldhús, baðherbergi, j \ bafnaherbergi, leikföng, | I glös (tvöfaldar), og á tau. I | Frímerkjasalan, j Lækjarg. 6 A. •MllllltlllllllllllllllllllimilUlillllUttUliHIMIIIIIIMIIIIII* UNIFLO. MOTOR 0IL Ein þffkkt, er hemur i stað SAE 10-30 [Olíufélagið h.f. SÍMI: 81606 •iiMUinimiiiiiiimiiiiiiiiiMiiiiiiiiuiMiiiniiii [ Jörðin Hurðarbak j I í Villingaholtshreppi í Ár | I nessýslu, er tii sölu og laus | ! til ábúðar í næstu fardög | | um. Áhöfn getur fylgt ef § í óskað er. Skipti á íbúð í | iReykjavík kemur til | | greina. Nánari upplýsingar | I gefur Pétur Jakobsson, j | löggiltur fasteignasali, | j Kárastíg 12, Rvík, sími | i 4492 og ábúendur jarða,r- | ! innar. •IIIIIIIIIIIMIIIMIIIIIIIIMMMIIIIIIIIIIIMMIIIIIIIIIIIIMIMIMia AUGLÝSING frá Yiiimiveiteiulasambamli íslands Að gefnu tilefni viljum vér minna félagsmenn vora á eftirfarandi úr lögum Vinnuveitendasambandsins: „Enginn félagsmaður má ráða til sín verkamenn, sem eru í verksvipting eða verkfalli hjá öðrum fé- lagsmönnum.“ „Þegar vinnustöðvun stendur yfir hjá einhverjum félagsmanni má enginn meðlimur sambandsins vinna á móti hagsmunum hans, t. d. með því, að taka að sér — án samkomulags við hlutaðeiganda sjálfan eða stjórn þeirrar deildar, sem hann er í — framkvæmd á verki, sölu á vöru eða efni, sem téður meðlimur hef- ir tekið að sér, eða á annan hátt nota sér aðstöðuna til þess að rýra viðskipti hans eða starfssvið. Framkvæmdanefndin getur, þegar vinnustöðvun stendur yfir eða er yfirvofandi, bannað félagsmanni að hafa viðskipti við tiltekna menn eða á sérstaklega ákveðnum sviðum, svo sem að selja tilgreinda vöru- tegund, og gjört aðrar slíkar ráðstafanir, sem hún tel- ur nauðsynlegar vegna afstöðu félagsmanna í vinnu- deilum. Ef einhver maður utan sambandsins vinnur á móti hagsmunum félagsmanna, sem eiga í vinnustöðvun, eru félagsmenn skyldir til þess aff hafa engin viðskipti viff hann, meffan á vinnustöðvuninni stendur.“ Vinnnvcitondasamband íslands. .WWWVMWWWWWWWWWWWWWWAWW INNILIGA ÞÁKKA ég öUum, sem glöddu mig meff í gjöfum, heimsólcnum og skeytum á sjötugsafmælinu. SIGURÐUR JÓNSSON Stafafelli. Vwwwwvwwuvvvwmvuvwvvwvwwv’wvvuwvvwvwwvk XX X N a M K S N KHfiK!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.