Tíminn - 29.03.1955, Blaðsíða 8
39. árgangur.
Reykjavík,
29. marz 1955.
73. WaS.
Kópavogsfruravarp-
ið til 1. uraræðu
Frumvarpið um kaupstaðar
réttindi til handa Kópavogs
hreppi var til 1. umræðu í
neðri deild Alþingis í dag.
Ólafur Thors, forsætisráð-
herra, flutti framsöguræðu
fyrir frumvarpinu. Rakti
hann orsakir þess að farið
er fram á kaupstaðarrétt-
indi. Hreppurinn væri nú
orðinn mjög fjölmennur og
því eðlilegt að þessi breyting
yrði gerð á stjórn hans. Einn
ig' tók til máls Lúðvík Jóseps
son. Umræðunni var frestað
og verður henni haldið áfram
í dag.
Sundmót KR í kvöld
í kvöld kl. 8,30 hefst sund-
mót KR í sundhöllinni. Keppt
er í 10 greinum og eru þátt-
takendur 53 frá 8 félögum,
þar af 4 utan af landi. í 100
m. bringusundi er reiknað
með að Þorst. Löve bæti enn
met sitt, en hann er í stöð-
ugri framför. í þeirri grein
er keppt um bikar, sem Vél-
smiðjan Sindri gaf. í 100 m.
skriðsundi kvenna er keppt
um Fl\|gfreyjubikarinn, en
þar mætast Helga Haralds-
dóttir og Inga Árnadóttir. í
200 m. skriðsundi er Pétur
Kristjánsson meðal keppenda
en hann var nærri meti í
þeirri grein nýlega. f 4x50 m.
bringusundi er reiknað með
að sveit KR verði nærri meti
en auk Löve keppir Sigurður
Jónsson, KR-ingur, en hann
hefir ekki tekið þátt í keppni
undanfarin ár.
Ölvaður maður settist undir
stýri og hvolfdi bifréiðinni
A sunnudaginn var bif-
reiðinni R-2736, sem er
Chevrolet 1953, ekið út af
veginum til Keflavíkur
nokkru fyrir sunnan Hafnar
fjörð. Hvolfdi bifreiðinni og
skemmdist mjög mikið. Bif-
reiðarstjórinn, sem á bifreið
ina, var að skemmta sér
ásamt tveim kunningjum
sínum, og ætluðu þeir til
Keflavíkur. Fékk hann mann
til að aka fyrir sig, og haföi
sá ekki neytt áfengis. Á leið-
inni skrikaði bifreiðin ög
fór ofan í holú á veginum.
Við það slasaðist eigandi
hennar, sem sat aftur í. Fór
sá, sem ók, þá aftur í til að
stöðva blóðrásiha, en maður
inn hafði skorizt á enni. Er
hann var kc<minn aftur í sett
ist ölvaður maður, sem sat
fram í bifreiðinni undir stýri
og ók af stað, og hugðist aka
til Hafnarfjarðar til þess að
ikil loðnuveiði við
sandana í öxarfirði
Frá fréttaritara Tímans í Húsavík.
Undanfama t'Iaga hefir allmzkil loðna veiðzt midan sönd-
unum í Öxarfirði. Hafa bátar frá Húsavík veitt þá loðnu
í smáriðnar nætur nokkuð djúpt undan söndunum, og ha?ia
mun ckki hafa rekið á fjörur þar eins og stundum áður.
Hins vegar hefir orðið vart við mikið loðnumagíi þarna á
firðinum.
góðum afla, en svo brá við,
að aflinn var mjög tregur.
Virðist litil fiskgengd í Skjálf
andaflóa. Hins vegar eru
margir togarar að veiðum
norðaustur af Grímsey og
afla mjög vel aö sögn. Sjó-
kuldi er sagður óvenjulega
mikill við ströndina, og er
flæðarmálið oftast krapað.
ÞF.
Bátarnir fóru með loðn-
una til Húsavikur, og voru
120 tunnur af henni frystar
þar tii beitu. Um 70 tunnur
af henni voru síðan seldar
til beitu innað Eyjafirði.
Lítill afli.
Húsavíkurbátar beittu
síðan loðnu og bjuggust við
Ný flugvél stórskemm-
ist í lendingu á Sandi
Frá fréttaritara Tímans
á Hellissandi.
Á sunnudaginn vildi það
óhapp til á flugvellinum við
Sand, að flugvél hlekktist á
í endingu. Var það hin nýja
farþegaflugvél, scm Sigurður
Ólafsson flugmaður hefir
keypt og var þetta fyrsta far
þegaflug hans á nýju vél-
ínni. Tveir farþegar voru
með Sigurði í vélinni og sak-
að: engan.
Óhappið vildi til með þeim
hætti, að flugvélin var að
lenda. Nokkur snjór var á
vellinum og var hann orsök
þess að flugvélinni hvolfdi,
þegar hún rann eftir braut-
inni að lendingu lokinni.
Vélin skemmdist mikið og
er ekki hægt að fljúga henni
fyrr en að afstaðinni við-
gerð. Báðir hreyflar skemmd
ust, rúður brotnuðu og stýri
laskaðist. MP,
ná í lækni handa kunningja
sínum. Varð sú ferð stutt,
því að hann fór út af vegin-
um og ók um 30 metra áður
en bifreiðinni hvolfdi. Þrír
menn í bifreiðinni sluppu
að mestu ómeiddir, en eig-
andi hennar meiddist og ligg
ur nú á sjúkrahúsi í Hafnar
firði. Mun hann vera óbrot-
inn en með áverka á höfði.
Umræður á Alþingi í gær um
skýrsfu ríkisstjórnarinnar
Kommiinistar vilja clckl láta reikna mcð
laiinahækkuii til opinberra starfsmanna
Allmiklar umræður urðu utan dagskrár í gær í neðri deild
Alþingis um skýrslu þá, sem ríkisstjórnin gaf út fyrir helg-
ina varðandi áhrif kauphækkanna á útgjöld ríkissjóðs og
þjóðarbúskapinn yfirleitt. Varð bert við umræðurnar, að
kommúnistar vilja ekki láta' gera ráð fyrir launahækkunum
hjá opinberum starfsmönnum í samræmi við þær kjara-
bætur, sem verkamenn og aörir, er þátt taka í yfirstandandi
vinnudeilu, kunna að fá.
Einar Olgeirsson lét fyrst
sem hann vissi alls ekki, að í
útgjaldahækkunum þeim, sem
taldar voru í skýrslunni og
leiða myndu af 7% eða 26%
kauphækkunum hjá þeim,
sem nú eiga í verkfalli, væri
innifalin tilsvarandi hækkun
á launum opinberra starfs-
manna. En er Eysteinn Jóns-
son fjármálaráðherra hafði
skýrt frá að svo væri, fann
Einar að því að reiknað skyldi
hafa verið með slíkri kaup-
hækkun, sem afleiðingu af
hækkuðu kaupi hjá fyrrnefnd
um aðilum.
Áf ramhaldandí sókn fyrir kaup
staðarréttindum í Kópavogi
Borgarafundur kouiuiiinistameirihlutans í
hreppsnefndinni honum til háðungar
Borgarafundur sá, sem kommúnistameirihlutinn boðaði til
í Kópavogi síðastliðinn sunnudag, sýndi Ijóslega, hve auman
málstað kommúnistar hafa í kaupstaðaréttindamálinu.
Þau furðulegu tíðindi gerð
ust að fundarboðendur neit-
uðu ag hefja umræður um
málið á fundinum, enda mark
aðist málfiutningur þeirra
af lélegri varnarstöðu og
hinni gamalkunnu aðferð
Finnboga Rúts og annarra
kommúnista, að sniðganga
umræður um sjálft máliö,
ræða ýms aukaatriði, níða
persónulega þá menn, sem
haft hafa forustu í þessu
hagsmunamáli Kópavogsbúa
og þvæia um málsmeðferö.
Það vakti sérstaka athygli
að kommúnistar voru i al-
gjörum minnihluta á fund-
inum, þrátt fyrir að þeir
væru fundarboðendur og
hefðu smalað á fundinn. Svo
augljós var meirihluti lýð-
ræðissinna að tillögur feng-
ust ekki bornar upp á fund-
inum.
Almenna kátínu vakti það
á fundinum þegar kommún-
istar voru að lýsa af miklum
fjálgleik „skoðanakönnunar-
atkvæðagreiðslu“ þeirri, sem
þeir vona að þeir geti gert
svo flókna, að engin skýr
viljayfirlýsing fáist úr. Eink i
um er þetta kátbroslegt vegna
þess að núi þegar liggur fyr-
ir óyggjandi viljayfirlýsing
um 800 Kópavogsbúa í mál-
inu. Má af því sjá að komm-
únistar tala ekki um „at-
kvæðagreiðslu“ sína, til þess
að kynnast vilja meirihlut-
ans, sem þegar liggur fyrir,
heldur til þess eins að tefja
málið.
Fundur þessi er enn ein
Fjolmenimi* fimdui*
iðnueina
Iðnnemasamband íslands
hélt iðnnemafund s. 1. sunnu
dag og mættu um 100 iðn-
nemar. Fyrir fundinum lágu
tvö .umræðuefni: Kjarabar-
átta iðnnema og Iðnskóla-
frumvarpið. Urðu miklar um
ræður um bessi mál og gerð-
ar ályktanir um þau.
Fjármálaráðherra ¥ýnui
fram á, að algerlega óraun-
hæft hefði verið, þegar tekin
Framh. á 2. síðú.
Samkoma að Sel-
fossi annað kvöld
Framsóknarfélögin f Ár-
nessýsln hafa almenna sam
komu í Selfossbíói an?ia‘ð
kvöld (miðvikndag),.er
hefst kl. híu. Formaður
Framsóknarfélags Árnes-
sýslu, Bjamii Bjamq:?pn,
skóiastjóri, set'ur. samkom-
una og stjórnar henni._ Jör-
undur Brynjólfsson ’íórsetz
sameinaðs Alþingis, verður
meðal ræöu'mafi'fíCL —: Valur
Gíslason og. Klemens Jóns-
so?i leíkarar sþemmta, og
Guðmundur Jónsson, óperu
söngvari, sypg'ur einsö?ig
með aðstoð Weisshappels.
Að lokum verður dansað. —*
Búist er yið fjölme?in?.
—" 1 ————■■
Séra Þorraóður
Sigurðsson Iátinn
Séra Þormöður Sigurðsson
prestur að Vatnsenda í Ljó'sa
vatnshreppi andaðist á Rík-
isspítalanum f Kaupmanna-
höfn þann 26. þessa mánað-
ar. Séra Þormóður var fædá
ur að Yztafelli 30. apríl 1903.
Hans mun verða nánar get-
ið hér í blaðinu síðar.
Öruggt, að Bandalag ríkja
V-Evrópu veröur stofnað
Efri dcild franska þingsins samþykkti síðast liðinn sunnu-
dag Parísarsamningana með yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða. Fcrustumenn vestrænna þjóða hafa mjög fagnað
þessum málalokum og telja að með þeim sé lagður grund-
völlur að öruggu samstarfi vestrænna þjóða til verndár lýð-
ræöi og friði í heiminum, jafnframt því sem undirstaða
hafi verið lögð að bættri sambúð Frakka og Þjóðverja.
sönnun þess að
Kópavogsbúa vill
arréttindi.
meirihluti
kaupstað-
Frakkar eru 10. þjóðin, sem
staðfestir samningana. Þess
er að vænta, að þær 5 þjóðir,
sem enn hafa ekki samþykkt
samningana muni nú hraða
því, en lönd þessi eru Bene-
lux-löndin, Danmörk og
Bandaríkin.
Rætt «m stórvehiaf«nd.
Fullgilding Frakka á samn
ingunum hefir glætt vonir
manna á ný um fund seðstu
manna stórveldanna. Eisen-
hower forseti sagði um dag-
inn áð Bandaríkin væri til-
búinn að sitja slíkan fund,
ef líkur væri fyrir einlægum
samkomulagsvilja allra aðila.
Búlganin, forsætisráðherra
Rússa, lýsti því yfir nú um
helgina, að Rússar væru einn
ig reiðubúnir að sitja slíka
ráðstefnu. Tilkynnt er að
Vesturveldin athugi nú ræki
lega þessi'ummæii Búlgan-
ins og jafnframt að umfæð-
ur hafi undanfarið átt sér
stað milli ríkisstjórna þeirra
um slíkan fund og þær viS-
ræður séu nú komnar á nýtt
stig, er Frakkar hafa endan-
lega staðfest Parísarsamn-
ingana og fyrirsjáanlegt er
að Bandalag V-Evrópuríkja
muni verða ag veruleika inn
an skamms.