Tíminn - 02.04.1955, Side 5
TÍMINN, Iauggrdaginn 2. apríl 1955.
S
77. blað.
I
Luugurd. 2. upríl
Iðnaðardeild Atvinnudeildar Háskolans rann-
sakar neyzluvatn allra kaupstaða á landinu
Verkefni deildarinnar hraðvaxandi og mest hagnýt .
rannsóknarefni í þágu almennings
og sérmenntun til að fram-
kvæma prófanir og túlka rétti
lega niðurstöður þeirra er
nauðsynleg. i litlu bjóðfélagi
virðist því eðlilegast að starf-
rækja miðstöð er geti sinnt
prófunum og rannsókoum
þeim, sem iðnaðurinn þarfn-
ast, jafnframt því sem bent
er á nýjar leiðir.
Iðnaðardeildinni er ætlað
að vinna í þessum anda og
vera slik miðstöð.
Eftirlit meS vörugæðum.
Eins og áður er getið er
deildinni ætlað að annast prcf
anir og rannsóknir fyrir opin
bera aðila, einstaklinga og
fyrirtæki. Þessi þáttur starf-
seminnar hefir vaxið mjög á
síðustu árum samfara aukn-
um skilningi á gagnsemi
slíkra athugana, auknu eftir-
liti með framleiðslu og aukn
um kröfum neytenda um
tryggingu á gæðum ýmis kon
ar framleiðslu og nauðsynja-
vöru. Fjölmargar vörutegund
ir, bæði neyzlu- og „kapital“
vörur eru þó að jafnaði ekki
tryggðar með gæðaprófunum,
aðrar svo sem olíur, benzm,
salt fóðurefni o. fl. eru próf-
aðar að staðaldri samkvæmt
óskum innflytjenda. Gæðu-
prófanir sem þessar hafa mik
ið gildi. Verðgildi kola er t. d
beint tengt hitagildi þeirra,
sement af ýmsum tegundum
hefir mismunandi eiginleika
eftir samsetningu, sama gildir
og steypustyrktarjárn og stál
o. fl. o. fl. Af innlendum
neyzluvörum, sem háðar eru
eftirliti, má nefna ýms mat-
væli og mjólkurvörur. Frjálst
eftirlit er hins vegar á niður-
suðuvörum, en framleiðendur
láta þó fylgjast með þeirri
framleiðslu að staðaldri, og
er sú starfsemi, ásamt með
rannsóknum á því sviði, í ör-
um vexti.
Til að gefa hugmynd um
starf það, sem unnið er á
þessu sviði eru hér gefnar
nokkrar tölur úr yfirlits-
skýrslu um starfsemina s. 1.
ár. Samtals voru rannsökuð
2819 sýnishorn, sem skipta
má í flokka þannig:
1. Fóðurefni ýmis konar
og útflutt fóðurmjöl 400
2. Matvæli ýmis konar og
niðursuðuvörui 379
3. Mjólk og mjólkurvörur 674
4. Eldsneytisolíur og
benzin 368
5. Byggingarefni ýmis
konar 289
6. Vatn 186
7 Gerlarannsókn á ílát-
um undir matvæli, og
vegna meðhöndlunar á
matvælum 314
8. Ýms steinefni og málm
ar 41
9 Önnur sýnishorn 166
Verkefnin hraðvaxandi.
í samræmi við aukningu
starfseminnar er stöðugt
reynt að bæta vinnuaðstöðu
og tækjakost. Nokkuö hefir
áunnizt í þessu efni á síðustu
árum. Þannig hefir gerlarann
sóknastofa deildarinnar fe.ig
ið stórbætt vinnuskilyrði í
húsi fyrirhugaðrar rannsókn
arstofnunar fyrir sjávarútveg
c<;g fiskiönað, við Skúlagötu
4. Til rannsóknarstofa fyiir
byggingarefni hefir verið afl
að nýrra og fullkominna
tækja fyrir togþols- og
þrýstiþolsprófanir og ný
„standard“ tæki til prófana
við malbikslagnir er verið að
taka í notkun. Á eínarann-
sóknastofunni gegnir sama
máli. Nýjum tækjum er ái-
lega bætt við eða gömul end
urnýjuð eftir því sem fjárhag
ur frekast leyfir hverju sinni.
Nú nýlega hefir þannig verið
sett upp nýtt fullkomið tæki
til ákvörðunar á eggjahvítu-
efnum í fóðurefnum o. fl. og
önnur aðstaða til efnagrein-
ingar á fóðurmjöli stórbætt.
Takmarkið að þessu leyti
verður að vera það, að búa
svo í haginn að stofnunin
geti gegnt hlutverki sínu á
hverjum tíma.
Neyzluvatnið rannsakað.
Af sjálfstæðum rannsókn
arefnum, sem verið er að
vinna að nú má nefna sem
dæmi rannsókn á neyzlw-
vatni og vatni, sem notað er
til iðnaðarþarfa, í öllum
kauptúnum og kaupstöðum
landsins.
Vatn er mikiívægt iðnað-
arhráefni og sem neyzluvara
stendur það í fremstu röð.
Það er því mikilvægt að vita
efnainnihald þess og gæði.
Vatn hérlendis er yfirleitt
talið gott. Þessari rannsókn
er ætlað að skera úr um,
hvort bessi skoðun er rétt,
jafnframt því sem þess er
vænzt að það geti orðið til
leiðbeiningar og vakið til
umhugsunar um gildi þess
að velja gott vatnsból, hvort
sem vatnið er ætlað til
neylu eða iðnaðar.
Hagnýt jarðefni.
Starfsemi jarðfræðings
deildarinnar er að mestu sjálf
stæð rannsóknarstarfsemi og
leit að hagnýtum jarðefnum.
Árangur þeirra rannsókna er
(Framhald ft 6. siðui.
Húsbygginga-
frumvarpið
í samningi þeim, sem stjórn
arflokkarnir gerðu við mynd-
un núverandi ríkisstjórnar,
var þetta einn liðurinn:
„Tryggt verði aukið fjár-
magn til íbúðabygginga i
kaupstöðum, kauptúnum og
þorpum, lögð áherzla á að
greiða fyrir byggingu íbúð-
arhúsa, sem nú eru í smiðum
og lagður grundvöllur að
því að leysa þetta mál til
frambúðar.“
Eins og eðlilegt var sam-
kvæmt verkaskiptingu í ríkis
stjórninni, kom það fyrst og
fremst í hlut Steingríms Stein
þórssonar félagsmálaráð-
herra að leita úrræða í þessu
gtórfellda vandamáli.
Hann hafði áður sem for-
sætis- og félagsmálaráðherra
í fyrrverandi stjórn beitt sér
fyrir stofnun Lánadeildar
siháíbúða. Lánadeildin hafði
gert ómetanlegt gagn, af því
að hún veitti lítilmögnum síð
ari veðréttarlán. Þeir eru
margir orðnir, sem eiga henni
að þakka, að þeir hafa eignar
hald á íbúð með þolanlegum
kjörum.
Hið fyrsta, sem félagsmála
ráðherrann gerði eftir að
gengið hafði verið frá stjórn
arsamníngnum, var að beita
sér. fyrir útvegun aukins fjár
magns handa Lánadeildinni
tjl þess að greiða fyrir bygg-
ingu íbúðarhúsa, sem voru í
smíðum.
Þá, var einnig skipuð nefnd
manna til þess að athuga
gaumgæfilega með hvaða
móti tryggt yrði nægilegt fjár
magn til ibúðarhúsabygginga
og á hvaða grundvelli helzt
væri hægt að leysa húsnæðis
vaniiamál þjóðarinnar til
frambúðar.
Nú hefir félagsir.álaráðhorr
ann f. h. ríkisstjórnarinnar
lagt fram á Alþingi „frum-
varp til laga um húsnæðis-
málastjórn, veðlán til íbúða
þygginga og útrýmingu heilsu
spillandi íbúða.“
Eru með frumvarpi þessu,
ef að lögum verður, mörkuð
tímamót í sögu húsnæðismál
anna.
íbúar kaupstaða, kauptúna
Og þorpa; sem engin lánsstofn
un hefir talið sér skylt að
veita lán, nema Lánadeild
smáibúða að því leyti, sem
hún hefir getað, eiga skv. frv.
að hafa tryggingu fyrir að fá
Í70 til 100 þús. kr. lán út á
íbúð, sem þeir byggja eða
kaupa handa sér sjálfum til
íbúðar.
Þá er í frumvarpinu ákvæði
um, að ríkissjóður leggi fram
fé til útrýmingar heilsuspill-
andí íbúðum.
Gerður hefir verið samn-
ingur Við Landsbankann til
tryggipgar því, að fé fáist til
lánveitinganna.
Um leið hefir Byggingar-
sjóði svéitanna verið tryggð
ar 12 milj. kr. til starfsemi
sinnar 1955 og 1956, hvort ár.
Þjóðbankinn hefir tekið aö
sér í sambandi við þetta mál
hlutverk, sem honum og for-
Etöðumönnum hans er til
sóma. Mun það ekki sízt vera
að þakka Vilhjálmi Þór banka
Etjóra. -
Jóhann Jakobssoni, for-
stöðumaður Iðnaðardeildar
Atvinnudeildar háskólans,
skýrði fréttamönnum í fyrra
dag frá störfum deildarinn-
ar og sýndi þeim starfsem-
ina. Hafði forstöðumaðurinn
að beiðni tekið saman eftir-
farandi yfirlit um starfsem
ina:
Iðnaðardeildinni er ætlað
að styðja að þróun iðnaöar í
landinu með því að vinna að
ýmsum sjálfstæðum rannsókn
um á hví sviði og jafnframt
annast prófanir og athuganir
fyrir opinbera aðila, einstak-
linga og fyrirtæki. í reglu-
gerð um starfssvið Iðnaðar-
deildar segir svo: „Iðnaðar-
deild annast rannsóknir í
þágu iðnaðar og verzlunar.
Rannsóknarefni eru einkum
þessi.
Rannsóknarefni.
1. Hvers konar iðnaðarhrá-
efni.
2. Orkulindir landsins aðr-
ar en fallvötn.
3. Efnavarningur, innlend-
ur og erlendur.
4. Matvæli, þar með taldar
mjólkur- og kjöt, neyzlu- og
nauðsynjavörur, þ. á. m. nið
ursuðuvörur.
5. Útflutningsaf urðh, lan 1-
búnaðar og sjávarútvegs,
nema öðruvísi sé ákveðið í
lögum eða samningum.
6. Fjörefni og öimur bæt:-
efni matvæla.
7. Gerlarannsóknir.
8. Jarðefni hvers konar
9. Byggingarefni.“
Af þessu er ljóst að starf-
svið deildarinnar er mjög um
fangsmikið og fjölbreytilegt.
Ef gera ætti öllum þessuin
greinum full skil, væri það
starf sem þarfnaðist stórauk
inna starfskrafta, fjár og hús
rýmis fram yfir það sem deild
in hefir nú yfir að ráða. Hvers
konar iðnrekstur hér á landi
ei^nú í örum vexti, og þess
er að vænta, að starfsemi Iðn
aðardeildarinnar eflist og auk
ist samfara þeirri þróun.
Prófanir fyrir einstaklinga
og opinbera aðila.
Allur iðnaður grundvallust
á prófunum og rannsókna-
starfsemi. Leit iðnrekandaiis
að bættum framleiðslu aðferð
um og betri framleiðslu er
driffjöður hagnýtra rann-
sókna. Fyrirtæki með tak
markaða framleiðslugetu og
sölumöguleika hafa erfiðar
aðstæður til slíkra prófana og
athugana af eigin rammleik.
Rannsóknatæki eru flest dýr
Ekki er í frumvarpinu að-
eins hugsað fyrir lánsfé til í-
búðarhúsabygginga. Þar er
einnig svo fyrir mælt, að hús
næðismálastjórnin skuli
vinna að umbótum í bygginga
málum með því m. a. að koma
á leiðbeiningastarfsemi í því
skyni að lækka byggingar-
kostnað og koma til leiðar
hvers konar umbótum í húsa
gerð og vinnutækni við húsa
byggingar. Gangast fyrir
tæknirannsóknum og kynn-
ingu nýunga í byggingariðn
aði með sýningum,_ námskeið
um og útgáfu rita. Útvega hag
kvæmar teikningar o. s. frv.
Ennfremur er húsnæðis-
málastjórninni gefin heimild
til þess að stofna til sam-
keppni milli þeirra, er taka
að sér íbúðarhúsabyggingar
með ’-Tú að bjóða lán þeim,
er taka að sér að byggja og
selja íbúðir af ákveðinni með
alstærð fyrir lægst verð.
Þessi hlið málanna er líka
mjög þýðingarmikil og fer
sannarlega vel á því, að um
leið og komið er upp lána-
kerfi fyrir almenning til þess
að styðja hann til aö koma
sér upp íbúðarhúsum, þá sé
einnig veitt aðstoð til þess að
hafa íbúðirnar hentugar, vand
aðar og þó svo ódýrar sem
hægt er.
Þjóðverjar standa þjóða
fremst í byggingarmálum,
eins og uppbygging borga V-
Þýzkalands eftir siðustu styrj
öld ber vott um. Hannes Jóns-
son félagsfræðingur fór fyrir
tilhlutun félagsmálaráðuneyt
isins til Vestur-Þýzkalands og
kynnti sér skipulag þessara
mála þar. Hann starfaöi síð-
an í nefndinni, sem vann að
undirbúningi frumvarps þessa
og munu fyrirmyndir um
sumt í frumvarpinu vera sött
ar til Þjóðverjanna og hafa
íengið hjá þeim reynslugildi.
Útgjöld ríkisins
vegna grunnkaups-
hækkana
Vegna 7% •
liækkunar:
Samkvæmt skýrslu ríkis-
stjórnarinnar um áhrif kaup
hækkana á ríkisbúskapinn
mun 7% grunnkaupshækk-
un hafa í för með sér hækk
un á útgjöldum ríkissjóðs á
næsta ári svo sem hér segir:
Hækkun launa ca. 12 milj.
Hækkun trygging-
arútgjalda, vega-
viðhalds, sjúkra-
kostnaðar o. fl. 5,2 —
Hækkun verðlags-
uppbóta vegna
vísitöluhækkunar 4,8 —
Samtals ca. 22 milj.
Þetta er eigi lægri f járhæð
en veitt er í f járlögum þessa
árs til brúargerða og raf-
orkumála.
Vegna 26%
hækkuuar:
Af 26% grunnkaupshækk-
un myndi leiða hækkanir á
ríkisútgjöldum á næsta ári
svo sem hér segir:
Hækkun launa ca. 42,2 milj.
Hækkun tryggingar-
útgjalda, vegavið-
halds, sjúkra-
kostnaðar o.fl. ca 18,5 —
Hækun verðlags-
uppbóta vegna
hækkunar á
vísitölu ca. 18 —
Samtals ca. 78,7 milj.
Þetta er eigi minna fé en
greitt er úr ríkissjóði sam-
kvæmt fjárlögum þessa árs
til nýbygginga vega, vegavið
halds, brúargerða, sam-
gangna á sjó, vitamála, hafn
argerða og flugmála.
' ' ..—- 1 ^
Þeir gömlu
góðu dagar
Aðeins fáein orð vegna
hins óstöðvandi lofsöngs, er
Morgunblaðið og Þjóðvilj-
inn syngja sí og æ um „Ný
sköpunar“-stjórnina sáluðu.
En hver voru gæði henn
ar? Hún keyþti nokkra tog-
ara fyrir lítið brot ai verð
miklum peningum, sem
landsmenn voru áður búnir
að safna saman með dugn-
aði og sparsemi. Og það var
nú meira þrekvirkið að telja
yfir 20% af þeim út fyrir
togarana!
En hvernig var svo við-
skilnaðurinn?
Jú, þeir félagar „rauðu“
og „blökku“ hafa Iengi gum
að af framkvæmdunum: Síld
arverksmiðja á Skagaströnd
fyrir 30—40 miljónir króna,
önnur álíka í Örfirisey, Hær-
ingur o. m. fl. af slíku tagi.
— Þegar þeir hrökkluðust í
sundur eftir rúm tvö ár með
hárreytingum og hrinding-
um, hafði dýrtíðin tekið helj
arstökk, auðmenn flutt pen
inga úr landi í stórum stíl,
bændurnir verið settir hjá
og svívirtir, grundvöllurinn
grafinn undan heilbrigðu
fjármálalífi landsmanna,
allar stórinnstæður erlendis
uppeyddar, aðeins loft í rík-
(Fxamhald á 7. Uiðu).