Tíminn - 23.04.1955, Page 1
Skriístofur í Edduhúsl
Préttaslmar:
81302 og 81303
Aígreiðslusími 2323
Auglýsingaslml 81300
PrentsmiðJ&n Edda.
íí
0
0
39. árgangur.
Reykjavík, laugardaginn 23. apríl 1955.
90. blac’*
Myndin sýnir hluta hafnarinnar í Klakksvík í Færeyjum.
Þarna er talin hætta á að komi til alvarlegra átaka, ef
danskt lögregluiið gengur þar á land í dag eða á morgun.
Klakksvíkingar ætla að leggja bátaflota sínum fyrir höfn-
ina, svo að skip komist ekki inn.
—nTTTT~i r~, ■■ i i ■ i ■ ~í i.t--—r; 'r^T-.-a*
Samningafundir stóðu í nótt
- þokast í samkomulagsátt
Samningafundir í vinnudeilunni stóðu yfir í nótt, og virt
ist þá nokkuð vera farið að ganga saman með deiiuaðilum,
þótt ekki væri búizt við, að fullt samkomulag næðist í nótt.
Einnig stóðu fundir í fyrrinótt.
Klakksvík í Færeyjum
Fundur var síðdegis í gær
og hófst að nýju klukkan níu
í gærkveldi. í gær mun aðal
lega hafa verið unnið að því
Húsavíkurbátar
mokafla
Frá fréttaritara Tímans
í Húsavík.
Mikill og góður afli er
þessa dagana. Stóru bátarn
ir, sem eru fjórir, róa aust-
ur að Sléttu og fengu þar
hlaðafla. Ilagbarður fékk
þar 27 þús. pund og Grímur
17 þús. pund. Minni bátarn
ir fá einnig góðan afla í FIó
anum eða út við Mánáreyj
ar. Loðna hefir veiðzt við
Öxarfjarðarsand. Virðist
þetta vera sama fiskgangan
og nú gerir mest vart við
sig við Langanes. ÞF.
að kanna hug stjórna félags-
samtaka atvinnurekenda og
verkalýðsfélaga til tillagna
og tilboða, sem fram höfðu
komið.
Mun nú svo komið, að nokk
uð er farið að þokast í átt
til samkomulags. Eftir því
sem blaðið hefir frétt, hafa
atvinnurekendur boðið 9 —
10% kauphækkun og einnig
rætt um stofnun atvinnu-
tryggingarsj óðs með fram-
lagi frá atvinnurekendum og
einnig frá bæ og ríki. Samn
inganefnd Dagsbrúnar mun
hins vegar hafa boðið lækk
un á kröfum sínum niður í
19—20% kauphækkun.
Ekki var fram komin nein
miðlunartillaga frá sáttasemj
ara i gærkveldi, og ekki vitað,
hvort hennar væri von, en
sáttanefndin mun hafa unnið
að þvi að kanna undirtektir
við hin ýmsu tilboð og að sam
ræmingu sjónarmiða.
e
Þorlákshafnarbátar
tví- og þríhlóðu í nótt
Óhemjumiklll afli rétt við landsteina
í gær var meiri landburður af þorski í Þorlákshöfn en
nokkru sinni fyrr á vertiðinni, og hefir þar þó verið mok-
afli marga daga. Munu hafa komið á land 160—170 lestir
af þeim sex bátum og einni trillu, sem þaðan róa. Varð einn
báturinn að þrísækja, en sumir að tvísækja.
Aflahæsti báturinn var bú-
inn að koma tvisvar að með
samtals 32 lestir en átti þá
ódregnar tvær netatrossur og
var hann að sækja í þriðja
sinn. Tveir aðrir voru búnir
að landa tvisvar með 20—30
leistir en sumir ókomnir að
úr seinni för um klukkan 8.
Alls voru þá komnar á land
í gær 140 lestir en áður höfðu
mest komið 155 lestir á ein-
um degi, og var búizt við, að
aílamagnið færi fram úr því
í gær, þegar allir væru komn
ir að. Eina trillan, sem þarna
rær, hafði.fengið fimm lestir
Framh. á 2. síöu.
Kemur til alvarlegra átaka, er danskt;
logreglulið gengur á land í Klakksvík?
Klakksvíkiugar s*áku cnu nýjan lækni og
cmbætíismcim frá Þórshöfn af höndum sér
NTB—Osló, 22. apríl. Allmikils óróa gætti í bænum Klakks
vík í Færeyjum í gær eftir að fvrsta orrustan við hin dönsku
yfirvöld var unnin. Nú búast Klakksvíkingar við viðameiri
heimsókn, þar sem eru 120 danskir lögreglumenn vopnaðir
vel. Er nú óttazt, að til blóðugra átaka dragi út af hinu gam
alkunna læknamáli. Klakksvíkingar hafa kallað alla úti-
legubáta sína heim og eiga von á bátum frá öðrum verstöðv-
um í eyjunum, og mun vera ætlunin að leggja bátaflotan-
um fyrir höfnina, svo að ekkert skip komist inn.
Læknamálið í Klakksvík á
sér langa sögu. Iialvorsen, yf
lrlæknir sjúkvahússins þar,
danskur maður, var í stríðs-
lok sakaður um samvinnu við
Þjóðverja á stríðsámnum,
rekinn úr danska og fær-
eyska læknafélaginu og sett
ur frá störfum. Var síðan
annar læknú- settur í hans
stað, en Klakksvíkingar slógu
slcjaldborg um Halvorsen,
fluttu nvja lækninn brott með
valdi og hafa síðan engan
annan lækni viljað. Hefir síð
an staðið i þófi milU yfirvald
anna og Klakksvíkinga, og
málið hvað eftir annað verið
rætt innan danska þingsins
og dönsku stj órnarinnar.
Herferðin, sem m»stókst.
S. 1. fimmtudag ákváðu yf
irvöldin að framkvæma fó-
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinimniiiiiiiiiiiiu
SSBUSTU FSSÉTTIRí
Seint í gærkveldi var sím
að til NTB frá Klakksvík,
að bæjarstjórn Klakksvík-
ur hafi sent landsstjórn-
inni í Færeyjum skeyti, þar
sem látnar eru í ljós áhyggj
ur um það, sem ske muni,
ef ráðagerðir stjórnarinnar
um að senda danskt lögreglu
lið til bæjarins. Því er hald
ið fram, að rangt sé að beita
valdi í þessu máli. Jafn-
framt hefir bæjarsíjórnin
snúið sér beint til dönsku
stjórnarinnar og beðið ura
að hætt sé við að beita valdi.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimiimiiiiii
gtúagerð og setja nýjan
laíkni í embætti í. Klakksvík
en flytja Halvorsen brott.
Var það lögreglustjórmn í
Þórshöfn, sem stóð fyrir liði
en ýmis færeysk yfirvöld einn
ig í förinni svo og lögreglu-
lið. Fóru þeir með strand-
ferðaskipinu Tjaldi. Einnig
*
Forseti Islands
í Molde 31. maí
NTB—Osló, 22. apríl. Til-
kynning frá Álasundi segir,
að Ásgeir Ásgeirsson forseti
íslands og frú hans muni
koma til Molde 31. mai, en 1.
júní mun bæjarstjórnin í
Álasundi halda síðdegis-
veilu fyrir forsetahjónin. For
setinn og fylgdarlið hans
héldu síðan áfram förinni
til Norðfjarðar.
var í förmni Dhal yfirlæknir
sem setja átti í embættið tjl
bráðabirgða.
Klakksvíkíngum kom eng
in njósn og þe*r vissu ekki,
hvað til stóð fyrr en emb-
ættismenn og lögreglumenn
gengu upp bryggjnna, en þá
brefdidst fregnin út sem eld
ur í sinu. Klakksvíkingar
þustu til, göturnar fylltust
aí fólk», og það réðst gegn
komumönmím. Skirntjór-
inn á Tjaldi sagði í viðtali
\ið fréttaritara, að ásókn
fólksins hefði verið svo
hörð, að embættismennirn
ir og lögregluþjónarnir
hefðu ekki átt annars kost
en taka til fótanna og
bjarga sér um borð. Jörgeí.i
sen lögreglustjóri meiddis.;
í andliti í þessum átökum.
Skipstjórinn segist ekki b.í
ast við að Klakksvíkinga:'
Iáti u?idan síga, þótt mefrl
liðsafli sé settur á land. <
C (Framhald á 2. s(5u!. j
Fíugvél bilar við
Þórshöfn
Frá fréttaritara Tímar. i
á Þórshöfn.
Vinna er nú í þann veg >
inn að hefjast á Heiðarfjalh.
Á miðvikudaginn var flc-gie
hingað með verkstjórann,
Ólaf Einarsson í flugvél frí.
Þyt. Þegar flugvélin var íi
þann veginn að leggja aí'
stað aftur, kom í ljós bilun
á hreyfli. Á fimmtudags •
morguninn kom Björn PáhJ
son í flugvél sinni. Hefii?
hann sennilega komið meb'
það sem bilað var í hinn l
vélinni, því flugvélin frii
Þyt flaug svo suður í fyrra >
dag, en tók ekki farþega.
-i7TiT-rrrrii5Si-i-—i —-—
Framsóknarféiag Kópavogs
telur atkvæðagreiðsluna
vera algjöra markleysu
„Fundur haldinn í Framsóknarfélagi Kópavcgs 25,
apríl, 1955, ályktar að lýsa yfir því, að hann telur eðlí.
legt, að atkvæðagreiðsla fari fram um kaupstaðar-
réttindamálið á þeim grundvelli, að íbúarnir, sam-
kvæmt kjörskrá, sem lögum samkvæmt átti að semja.
í febrúar s. 1., hafi rétt til þess að taka bátt í henni,
og að spurt verði einungis um það, hvort íbúarnir vilji
kaupstaðarréttindi eða ekki.
★ ★ ★
Atkvæðagreiðslu þá, sem hreppsneíndarmeirihlut-
inn hefir auglýst 24. apríl n. k. telur fundurinn him.
vegar markleysu eina svo sem augljóst er af eftirtölól
um staðreyndum:
1. Þátttaka í atkvæðagreiðslur.ni er byggð á kjörskrá.
samdri eftir manntali 1953, en á hana vantar hundr
uð íbúa, sem flutt hafa í hreppinn fyrir 31. desem->
ber 1954, og á henni er fjöldi manna, sem fluttii.*
eru burt úr hreppnum.
2. Félagsmálanefnd n. d. Alþingis beindi því til odd >
vita að haga atkvæðagreiðslunni þann 24. þ. m,
þannig, að einungis væri spurt um það, hvort Kópa.
vogsbúar vilja kaupstaðarréttindi eða ekki. Þessii.
neitaði oddviti og auglýsir þvert á móti atkvæða-
greiðsluna um tvö mál, þar af annað, sameiningu
við Reykjavík, sem að dómi Reykjavíkurbæjar ei
ótímabær svo sem samþykkt bæjarráðs Reykjavík -
ur í dag sannar.
★ ★ ★
Fáist ekki heilbrigð atkvæðagreiðsla um málið sjálfú
eftir nýjustu kjörskrá, telur félagið eina rétta grund-
völlinn til þess að meta vilja íbúanna, vera undirskrifú
arskjöl þau, sem 814 Kópavogsbúar á kosningaaldrn
hafa þegar sent Alþingi um mál þetta.
Af framangreindum ástæðum telur Framsóknar ■
félag Kópavogs atkvæðagreiðsluna 24. apríl sér óvið--
komandi og hvetur Kópavogsbúa til þess að taka ekkit
þátt í henni.“