Tíminn - 30.04.1955, Qupperneq 2

Tíminn - 30.04.1955, Qupperneq 2
- TÍMINN, laugardaginn 30. april 1955. 96. bla5. *. Jósefína litaði hárið rautt ti að tendra eld í hjarta Napóleons Mörgum þykir mikil hind í því að kvenfólk sé rauðhært og á þessum tímum rannsókna og vísindamennsku hefir rautt hár verið rannsakað og persónueigindir þeirra, sem bera það. Erfðafræðilegar rannsóknir hafa einnig farið fram í sam- band við rautt hár. Það hefir komið í ljós, að rauðu hári fylgja ýmsir líffræðilegir eiginleikar, sem á margan hátt mega teljast mikils virði. Hvað erfðaíræðinni viðkemur, þyk ir sannað, að til að barn fæðist rauðhært, sé ekki nóg að annað for eldrið sé rauðhært. Til að svo megi verða, þurfa bæði foreldrin að bera í sér eigindir hins rauðhærða, en Iháralitur foreldra þarf ekki að vera rauður. Aí þeim ástæðum geta fæðzt rauðhærð börn af foreldri með ann an háralit, án þess að nokkuð sé við það að athuga. Eigindir haldast, þótt litur breytist. Mörgum finnst leitt að vera með rautt hár og ber dálítið á því að börnum sé strítt á þessháttar. Sum um finnst þó rauða hárið viðkunn- anlegt — á öðrum, en þótt hárið sé eldrautt í æsku, breytir það stund um lit með árunum og verður rauð brúnt eða Ijóst með rauðum blæ. Báðir þessir háralitir eru mjög fagr ir. En vert er að gera sér grein fyrir því, að það er aðeins háraliturinn sem breytist. Manneskjan er sem sagt áfram rauðhærð í hjarta sinu, hvað sem litabreytingum liður. Þurfa meiri deyfingu. Við rannsóknirnar á rauðhærðum j hefir komið í Ijós, að þeim verður ísjaldan á að falla í yfirlið. Yfirlið eru mikið tíðari hjá öðrum aðilum en þeim rauðhærða. Sama máli gegn ir um deyfingar. Við skurðaðgerðir þarf rauðhært fólk að fá stærri skammt af deyfilyfjum en annað fólk. Hins vegar er að sjálfsögðu engin vandi að deyfa það. Hvers vegna þessu er svona háttað hefir ekki verið svarað, en vísindamenn telja að þetta stafi af ráðríki sjálf- virka taugakerfis hins rauðhærða. Sjálfvirka taugakerfið skiptist í tvær greinar og vilji maður skýra mun þeirra og afstöðu hvors til ann ars, má segja að þau hafi gagnverk andi áhrif innbyrðis. Ef manneskja reiðist, tekur hið svokallaða sympat íska kerfi völdin, samtímis því sem starfsemi parasympatíska kerfisins minnkar. Það dýr, sem hefir mjög virkt parasympatískt kerfi er skjótt Jcan Simmons sem Elisabet I. í myndinni Dóttir konungsins. Þessi skapríka enska drottning hafði erft rauðan háralit föður síns, Hinriks áttunda. Frumvarp um lax- og silungaveiði Fram hefir verig lagt á Alþingi frumvarp til laga, um lax- og silungsveiði og er það bálkur mikill, 117 grein- ar alls og skipt í 7 kafla. Ffv. er flutt af ríkisstjórninni, en samið af nefnd þeirri, er skipuð var af landbúnaðar- ráðherra með bréfi 21. júlí 1954 til þess að endurskoða lög um lax og silungsveiði. í nefndinni voru Pálmi Hann- esson, rektor, form. nefndar- innar, Björn Ólafsson, Giss- ur Bergsteinsson, Gunnlaug- úr Briem og Þórir Steinþórs- son. Auk þess hefir veiðimála stjóri Þór Guðjónsson starf- að með nefndinni. Ekki er gert ráð fyrir að frv. þetta verði afgreitt á þessu þingi, enda mjög á það liðið, en mál þau, er það fjallar um, eru umfangsmikil og snerta mjög hagsmuni og áhuga- mál margra manna. í öllum athöfnum. Þannig er það með köttinn. Ef til vill er talsvert sameiginlegt með taugakerfi rauð- hærðra og katta. Skapríkara fólk. Viðbrögð rauðhærðs fólks eru af fyrrgreiridum ástæðum talin harð- ari en venjulegt er. Verið getur að adrenalín og hormónar streymi örar en í öðrum. Ef þetta er rétt, er rauðhært fólk mjög vökult. Það á að geta, ef krafizt er, stokkið hærra og hlaupið hraðara en aðrir og skjótara að taka ákvarðanir. Það er gömul trú, að rauðhært fólk sé skapríkara en hinir litarflokkarnir. Þvkir þetta sannast á írum, en þar er rauðhært fólk í meirihluta. Minna nm afbrot. Þjóðtrú segir, að Júdas hafi verið rauðhærður, en sannað er að minna er um afbrot meðal rauðhærðra en annarra. Aftur á móti hefir þess gætt, að rauðhært fólk væri við- kvæmara og tæki nær sér ýmsar ákomur heldur en ljóshært og dökk hært fólk. Franskir rithöfundar munu eiga mestan þátt 1 því að koma þeirri skoðun inn hjá almenn ingi að rauðhærðar konur séu létt úðugar, en sagan sýnir, að rauðhærð ar konur hafa löngum haft mikið aðdráttarafl. Jósefína lét lita hár sitt rautt til þess að hún gæti frekar tendraði eld í hjarta Napóleons. Frægir málarar hafa sótzt eftir rauð hærðum fyrirsætum og í Róm og Egyptalandi létu konur lita hár sitt rautt í fegrunarskyni. Margir frægir menn hafa verið rauðhærðir. Þeirra á meðal er Hin- rik áttundi, Kólumbus, Eiríkur rauði, Sveinn tjúuskegg, Schiller og hver veit hver. á ak gleymingi í S.-Viet Nam Saigon, 29. apríl. — Bardagarnir í Saigon hörðnuðu enn í dag og má heita að alger borgarastyrjöld geisi nú í S-Viet Nam milli hersveita stjórnarinnar og sértrúarflokksins Binh Xyuen. Talið er, að ekki færri en 1500 manns hafi verið drepn ir í bardögum í borginni s. 1. sólarhring, en 2 þús. særðir, fyrir utan 20 þús. sem talið er að hafi misst heimili sín í stór- brunum, sem orðið hafa í íbúðarhverfum borgarinnar. Útvarpíð ÍJtvarpið í dag: Fastir liðir eins og venjulega. 20,30 Einsöngvar: Erna Sack og Richard Tauber syngja (plötur). 21,00 Vandamál um Sumarmál. — Gamanmál eftir Guðmund Sigurðsson. Rúrik Haraldsson ieikari sér um flutninginn. 22,00 Fréttir og veðurfregnir. 22,10 Danslög (plötur). 24,00 Dagskrárlok. Aðalbardaginn stendur um stórt revíu- og kvikmynda- hús, sem hersveitir stjórnar- innar hafa nú hertekið. Diem neitar oð víkja. Diem forsætisráðherra, sem sjálfur stjórnar persónu lega hernaðaraðgerðum stj órnarhersveita í borginni, hefir neitað að láta af hendi herstjórnina tú Vy, hershöfð- ingja, sem nú er á leið frá aðalstöðvum sínum til Sai- gon, en í gær skipaði Bao Dai keisari, sem stöðugt dvelst í S.-Frakklandi, hon- um að taka við stjórn hers- ins. Jafnframt skipaði hann forsætisráðherranum að koma strax til fundar við sig í Frakklandi. Diem hefir neit- að að verða við þessum til- mælum. Ringulreið. Vy hershöfðingi telur sig munu geta fengið mestan hluta af hersveitum stjórn- arinnar til fylgis við sig, en þegar svo sé komið muni hernaðaraðgerðir verða stöðv aðar. Hms vegar ætlar Diem ekki að láta sig fyrr en í fulla hnefana og er ekki ljóst hvað úr þessu vtJður, enda eru Vesturveldin sögð hafa hin- ar mestú áhyggjur af ástand inu. Styðja Diem. Diem hefir verið mjög and stæður kommúnistum og einn ig Frökkum. Hins vegar ber- ast fregnir um að Bandaríkja stjórn muni styðja Diem á- fram. Collins, sérstakur sendi maður Eisenhowers, sem und anfarið heflr gefið Banda- ríkjastjórn skýrslu um ástand ið í Suður Viet-Nam, lagði í dag af stað til Saigon. Leikril (Framhald af 8. bíöu). hvort leikritið verður sýnt úti á landi, eftir að sýning- um lýkur í Austurbæjarbíói. Leikendur eru þessir: Gísli Halldórsson, Helga Valtýs- dóttir, Jón Sigurbjörnsson, Knútur Magnússon og Einar Þ. Einarsson. Gunnar Han- sen leikstjóri málaði tjöld og gerði sviðið, sem er em stofa. Ekki er að efa að hér er um forvitnilegt leikrit að ræða, sem gaman verður að sjá hvernig þessir ungu leikend- ur fara rrleð. Tilboð óskast í brotajárn Magnið er 500-800 tonn og skal verðtilboð miðaö við tonn Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri, Skólavörðustíg 12, hinn 10. maí n. k. kl. 4. Nánari upplýsmgar í síma 4944 kl. 10—12 virka daga. Sala seiuliffseifina ríhisins Ú T B O Ð Tilboð óskast í útvegun og uppsetningu á frysti- vélakerfi í frysúhús á Seyðisfirði. Útboðslýsingar fást afhentar á skrifstofu minnk Lárus Jóhauuesson hrl., Suðúrgötu 4 ‘ssftssssss3ss35s3sss3s3assssss5ssasssssssssssssgsagss333sra,y**?,?*y>,«sft» ÞAKJÁRN fyrirl ifjf/j « n tii Ó. V. Jóhaimsson & Co. Hafnarstræti 19 Símar 7563 og 2363 GTarðeigendur í Reykjavík Garðeigendur eru áminntir um að greiða afgjald af leigugör'ðum fyrú 10. maí n. k., sé ekki greidd fyrir þann tíma, verða garðlöndin leigð öðrum. RÆKTUNARRÁÐUNAUTUR. Unglinga VANTAR TIL BLAÐBURÐAR í VOGAHVERFI, HAFNARFJÖRÐ (Suðurbær) Afgreiðsla Tímans Lindargötu 9A. — Sími 2323. »5i«s5S5íí»«ss555ísí3ss5a5asaassss5í5«S335aaasaíaa3ía«*53««»í3a5s&» sssasaasssaasssssasssíisaaa Atvinna Vegna stækkunar sjálfvúku símstöðvarmnar í Reykja vik, vantar bæjarsímann nokkra reglusama og lag- henta unga menn, til vinnu innanhúss í 1—2 ár. Fram tíðarstarf getur komið tú greina. Yngri umsækjendur en 17 ára verða ekki teknir. Kaup verður greitt sam- kvæmt verkamannataxta Dagsbrúnar. Eiginhandar umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist skrifstofu bæjarsím- ans í Reykjavík fyrir 14. maí n. k. •sgassssaiasssaaassssssasasssssssssssgssssssssssssasasssjssssggsgsgsssa Frá Húsmæðraskóla Suður- lands, Laugarvatni Fræðslu- og hvíldarnámskeið fyrir konur, verður haldið frá 7.—15. maí. Umsóknir sendist forstöðukonu skólans eða í síma 10, Laugarvatni. ^SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSÍSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSÍSSSSSSSíSSSSSSSSSSSSSSa

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.