Tíminn - 02.07.1955, Qupperneq 7
145. bla'ð.
Hvor eru skipin
Sambandsskip.
Hvassaíell er á Sauöárkróki. Arn
arfell fór 30. júní frá Reykjavík
áleiðis til New York. Jökulfell er
væntanlegt til Rotterdam á morg-
un. Dísarfell fór 29. júní frá New
York áleiðis til Reykjavíkur. Litla-
fell er í olíuflutningum á Faxa-
flóa. Helgafeil er í Ríga. Wilhelm
Barendz losar á Norðurfirði. Corne
lius Houtman fór 29. júní frá Mez-
ane til Húsavíkur. Cornelia B fór
29. júní frá Mezane til Reyðar-
fjarðar. St. Walburg er á ísafirði,
Robert Mærsk lestar í Álaborg.
Jörgen Basse er á Akureyri. Brasil
er í Hafnarfirði. Fuglen fór 27.
júní frá Torrevieja til Austfjarða-
hafna. Jan Keiken fór 28. júní frá
Torrevieja til Akureyrar.
Híkisskip.
Hekla kom til Kristiansand i
morgun á leið til Færeyja. Esja
kom til Reykjavíkur í gær að aust-
an úr hringferð. Herðubreið er á
Austfjöröum á norðurleið. Skja’d-
breið kom til Reykjavíkur í morg-
un að vestan og norðan. Þyrill er
í Álaborg. Skaftfellingur fór frá
Reykjavík í gær til Vestmanna-
eyja.
Eimskip.
■ Brúarfoss fer frá Reykjavík kl.
13 á morgun 2.7. til Seyðisfjarðar,
Norðfjarðar, Eskifjarðar, Reyðar-
fjarðar, Fáskrúðsfjarðar og þaðan
til Newcastle, Grimsby, Boulogne
og Hamborgar. Dettifoss fer frá
Þingeyri í dag 1.7. til Flateyrar,
Tsafjarðar, Siglufjarðar og þaðan
til Leningrad. Fjallfoss fór frá
Húsavík 30.6. til Bremen og Ham-
borgar. Goðafoss fer frá Stykkis-
hólmi í dag 1.7. til Akraness og
Reykjavíkur. Gullfoss fer frá R-
vík kl. 12 á morgun 2.7. til Leith
og Kaupmannahafnar. Lagarfoss
fer frá Vestmannaeyja á morgun
2.7. til Keflavíkur og Reykjavíkur.
Reykjafoss fer frá Rotterdam í
dag 1.7. til. Leith og- Reykjavíkur.
Selfoss fór frá Aðalvik 1.7. til Ak-
ureyrar, .Siglufjarðar, Húsavíkur
Raufarhafnar, Þórshafnar og það-
an til Svíþjóðar. Tröllafoss fór frá
New York 28.6. til Reykjavíkur.
Tungufoss er væntanlegur til Rauf
arhafnar í dag 1.7. Fer þaðan til
Raufarhafnar í dag 1.7. Fer þaðan
til Húsavíkur, Siglufjarðar og aft-
ur til Raufarhafnar og þaðan til
útianda. Drangajökull fór frá New
Ýork 24.6. til Reykjavíkur.
Flugferðir
Flugfélagið.
Millilandaflug: Millilandaflugvél-
in Gullfaxi er væntanleg til Reykja
vikur kl. 17 1 dag frá Stokkhólmi
og Osló. Flugvélin fer aukaferð til
Kaupmannahafnar kl. 23,59 í kvöld.
Sólfaxi fór til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 8,30 í morgun.
Flugvélin er væntanleg aftur til
Reykjavíkur kl. 20 á morgun.
Innanlandsflug: í dag er ráðgert
að fljúga til Akureyrar (2 ferðir),
Blönduóss, Egilsstaða, ísafjarðar,
Sauðárkróks, Siglufjarðar, Skóga-
sands og Vestmannaeyja (2 ferð-
ir).
Á morgun er ráögert að fljúga
til Akureyrár (2 ferðir) og Vest-
mannaeyja.
Loftleiðir.
Edda er væntanleg til Reykja-
víkur kl. 9 f. h. í dag frá New
York. Flugvélin fer kl. 10,30 til
Gautaborgar, Hamborgar og Lúx-
emborgar.
' Hekla er væntanleg frá Noregi
kl. 17,45 í dag. Flugvélin fer til
New York kl. 19,30.
Messur á morgun
Langlioltsprestakall.
Messa í Laugarneskirkju kl. 2
e. h. Séra Árelíus Níelsson.
Laugarneskirkja.
Mesa klukkan 11 f. h. Sr. Garð-
ar Svavarsson.
TÍMINN. laugardaginn 2. júlí 1955.
Dómkirkjan.
Messa klukkan 11 f. h. Sr. Ósk-
ar J. Þorláksson.
Hallgrímskirkja.
Messa kl. 11 f. h. Sr. Jakob Jóns-
son. Ræðuefni: Flisin og bjálkinn.
Elliheimilið.
Guösþjónusta kl. 10 árdefis. Sr.
Lárus Halldórsson frá Flatey pre-
dikar.
Hafnarfjarðarkirkja.
Messa klukkan 2 e. h. Minnzt 40
ára afmælis kirkjunnar og vígt
nýtt kirkjuorgel. Sóknarnefnd bjð-
ur öllum kirkjugestum til kaffi- (
drykkju í Alþýðuhúsinu að lok- ,
inni messu.
I
Sr. Garðar Þorsteinsson.
Fríkirkjan.
Messa kl. 11 f. h. (Ath. breyttan
tíma). Sr. Þorsteinn Björnsson.
Ur ýmsura áttum
Læknar fjarverandi.
Kristbjörn Tryggvason frá 3.6.—
3.8. Staðgengi’l: Bjarni Jónsson.
Guðmundur Björnsson um óá-
kveðinn tíma. Staðgengill: Berg-
sveinn Ólafsspn.
Þórarinn Sveinsson um óákveðinn
tima. Staðgengill: Arinbjörn Kol-
beinsson.
Jón G. Nikfilásson frá 20.6.—13.8.
Staðgengill: Óskar Þórðarson.
Páll Gíslason frá 20.6.—18.7. Stað
gengill: Gísli Pálsson.
Gunnar Cortes frá 25.6.—4.7. —
Staðgengill: Þórarinn Guðnason.
iHuldá Sveinsson frá 27.6.—1.8.
Staðgengill: Gísli Ólafsson.
Bergþór Smári frá 30.6.—15.8. —
Staðgengill: Arinbjörn Kolbeinsson.
Halldór Hansen um óákveöinn
tíma. Staðgengill: Karl S. Jónas-
son.
Eyþór Gurinarsson frá 1.7,—31.7.
Staðgengill: Victor Gestsson.
Valtýr Albertsson frá 27.6.—18.7.
Staðgengill: ‘Gísli Ólafsson.
Elías Eyvindsson frá 1.7.—31.7.
Staðgengill: Axel Blöndal.
Hannes Guðmundsson frá 1.7.—
3—4 vikur. Staðgengill: Hannes
Þórarinsson.'
3. fl. Þróttar’— Noregsfarar.
Æfing verður í dag, laugardag,
kl. 2 e. h. á Grímsstaðaholtsvellin-
um. Mætið stundvislega í búnings
klefanum á íþróttavellinum. Áríð-
andi rabbfundur á eftir í Þróttar-
skálanum. Frímann Helgason.
IVýtt orgel
(Framhald aí 1. síðu).
þýzkt og sett upp af þýzkum
sérfræÖingi: frá verksmiðj-
unni, sem er ein stærsta og
þekktasta orgelverksmiðja í
lieimi.
Orgelið er mjög stórt og
varð að breyta nokkuð söng
palli kirkjuimar til að koma
því fyrir. í því eru 2200 stórar
og smáar hljómpípur. Þær
stærstu nær því þrír metrar
að hæð en þær minnstu á
stærð við lítjnn blýant. Hljóð
færið er með 30 röddum, sem
valdar eru þannig, að hægt
er að leika allar húiar ólíku
stíltegundir tónverka.
Hafnarfjarðarkirkja er upp
haflega byggð eftir teikningu
Rögnvalds Ólafssonar. Kirkj
unni hafa verið gefnir margir
fallegir munir og gripir góð
ir, auk þess sem hún erfði
pródikunarstól, ljósahjálm
og fleira frá hinni gömlu
Garðakirkju, sem lögð var
niður.
Yfirleitt hafa Hafnfirðingar
sýnt kirkjunni sinni mikla um
hyggju og látið sér annt um
útlit hennar og umhirðu.
Ný gluggatjaldaverksmiöja
tekur til starfa í Reykjavík
Á laugardaginn var blaðamönnum boðið að skoða nýja
gluggatjaldaverksmiðju, sem tekin er til starfa hér í bænum.
Nefnist hún Gluggar h.f. og var stofnuð 21. október sl. For-
maður hlutafélagsins, Þorvaldur Ari Arason, stud. jur. sagði
að tilgangur félagsins í höfuðdráttum væri sá, að framleiða
og selja allt fyrir glugga og gluggana með.
Þorvaldur sagði ennfrem-
ur, að fyrirtækið myndi ann
ast uppsetningu hvers kon-
ar gluggatjalda og gera
teikningar og áætlanir fyrir
allar gluggaskreytingar og
gluggasmíði. Þetta á aö vera
almennt þjónustufyrirtæki
með allt viðvíkjandi gluggum
sagði Þorvaldur.
Gluggatjald á 7 mínútum.
Gluggar h.f. munu hefja
starfsemi sína í þremur grein
um og er fyrsti þátturinn haf
inn, framleiðsla á rúllugard-
inum og rimlagluggatjöldum.
Síðar mun sett upp glugga-
tjaldasaumastofa og verzlun
með gluggavörur og að lok-
um gluggaverksmiðja. Blaða
mönnum var sýnt hvernig
rimlagluggatjöld eru búin til
og tók sjö mínútur að gera
eitt tjald.
Faber-gerð.
Rimlagluggatjöldin eru af
Faber-gerð, en þess konar
tjöld hafa frá þvi um alda-
mót farið sigurför um allar
heimsálfur og eru nú fram-
leidd í 65 löndum. Faber-
merkið hefir hlotið viður-
kenningu fyrir beztu og full
komnustu sóltjöld fyrir lægst
verð. Er verksmiöjan í Skip-
holti 5 búin allra fullkomn-
ustu tækjum eftir Faber-
einkaleyfum og getur fram-
leitt 150 sóltjöld á dag. Glugg
ar h.f. hafa einkasölu á Fab
ervörum og hafa einir notk
unarrétt á P’aber-einkaleifum
Sérhverju Faber-sóltjaldi fylg
ir þriggja ára ábyrgðarskír-
téini. Ábyrgðin nær til rimla,
lyftibanda, velti og læsingar
tækja. Formaður Félags ísl.
iðnrekenda, Kristján Jóhann
Kristjánsson flutti fyrirtæk-
inu árnaðaróskir og kveðjur.
Núverandi stjórn skipa Þor
valdur Ari Arason, formaður
og meðstjórnendur Ásmund-
ur Einarsson, framkvæmda-
stjóri. Baldvin Tryggvason,
lögfræðingur, Jón S. Jakobs-
son, gkrifstofumaður og Jón
G. Tómasson, stúd. jur. Fram
kvæmdastjóri er einn hlut-
hafanna, Kristinn Þ. Michel
sen.
;
| Ragnar Jónsson
I hæstaréttarlögmaður
|
" Laugavegl 8 — Sími 7752
Lögfræðistörf
og eignaumsýsla
hefir fengtð að innan.
Sex manna nefnd hóf fjár
söfnun til orgelkaupanna fyr
ir þremur árum og hefir hún
unnið vel að framgangi máls
ins, svo sem verkm sýna. For
maður þessarar starfsnefndar
er Adolf Björnsson banka
fulltrúi.
í sóknarnefnd eru Gestur
Gamalíelsson kirkjugarðs-
vörður, formaður, Jón Gestur
Vigfússon, sparisjóðsgjald-
keri, ritari, Magnús Guðjóns
son útgerðamaður, gjaldkeri,
Ólafur Tr. Einarsson útgerð
armaður og Jóel Fr. Ingvars
son, skósmíðameistari og er
hann jafnframt meðhjálpari
og umsjónamaður kirkjunn-
ar. Ólafur H. Jónsson kaup-
maður er safnaðarfulltrúi. —
Hafa þeir notið þar leiðsagn-
ar sóknarprestsins síns, h'ns
ágæta kennimanns, séra Garð
ars Þorsteinssonar.
Þegar orgeUð verður afhent
kirkjunni við hátíðaguðsþjón
ustuna á sunnudaginn gefur
að líta margar endrbætur, er
gerðar hafa verið á krikjunni.
Þannig er búið að láta gólf
teppi á kirkjuna alla.. endur-
bæta málningu. En hið nýja
orgel veldur þó mestu um
hmn riýja svip. sem kirkjan
Fyrsti prestur Fafnarfjarðar
kirkju var ; éra Árni prófast-
ur Björnsson en eftirmaður
hans er séra Garðar Þor-
steinsson. Fyrsti organleikari
kirkj unnar var Friðrik
Bjarnason tónskáld, en eftir
maður hans er Páll Kr. Páls
son.
BiiiiuninuisiiiMUiii'
G I LB ARC O i
brennarinn er full- f
komnastur að gerð I
og gæðum.
Algerlega
sjálfvirknr
Fimm stærðir fyrir f
allar gerðir
miðstöðvarkatla
€sso)
(Olíufélagið h.f.j
| Sími 81600
= I
*■IUIIHIIHIIUIIHIUIIIMIUUmUIHUIUUUUUIIIMIlllllll*
I J E P P I
| Jeppabifreið ásamt kerru
| og varahlutum tU sölu. —
I Allt í fullkomnu lagi. Til
| sýnis og sölu á bifreiða-
[ stæðmu á horni Grettís-
I götu og Klapparstíg eftir
I kl. 2 í dag.
->HMUlUlltlHlfMHiniMM!fllllllllt!linUIMUaUIHI!Nllltoa
Kjarnorkustöðin
(Framhald af 5. síðu).
Dr. Lee Farr, sem hefir þessar
rannsóknir með höndum á stöð'inni
í Brookhaven, segir: — Hingað til
höfum við aðeins gert tilraunir með
sjúklinga, sem þjást af sérstaklega
illkynjuðu krabbameini, sem neínt
er „gliobastoma multiforma". Við
höfum framkvæmt um 30 geisla-
virkanir á 16 sjúklingum, sem
koma frá sjúkrahúsum, þar sem
sjúkdómur þeirra hefir verið álit-
inn algerlega ólæknandi. Til þess
að geta dæmt um árangur þessara
rannsókna, þarf hvert einstakt til-
felli mikillar yfirvegunar við. Slíkt
er mjög vandasamt, og vinna um
150 manns við rannsóknirnar. Með
al þeirra eru efnafræðingar, eðlis-
fræðingar, verkfræðingar og lækn
ar. Jafnvel þótt enn hafi ekki tek-
izt að lækna sjúkling, hefir okkur
oft tekizt að lengja líf sjúkling-
anna. Árangurinn bendir til þess
að við séum á réttri braut.
Sjúklinsurinn er lagður ofan á
kjarnorkutækið á til þess gert bcrð.
Með því að nota hreyfanlegan vegg,
sem geröur er úr blýi og stáli cg
vegur um 2 smálestir, er hægt að
stilla tækið á fullan kraft, og lækn
ar og aðrir vísindamenn geta fyigzt
með sjúklingnum þar til
geislavirkunin hefst Þá er veggnum
lokað, þannig að geislarnir beinast
aðeins að sjálfu heilaæxlinu
Áður en sjálf geislavirkunin hefst
er dælt upplausn, sem inniheldur
frumefnið bór í æðar sjúklingsins,
Ég verð þó að viðurkenna að upp
lausn þessi er nokkuð flókin, þar
sem bór eitt sér hefir ekki þau
áhrif, sem óskað er, segir dr Farr
Þegar bórinu hefir verið dælt i
handlegg sjúklingsins, fer það eftir
æðum hans og síast inn í líkam-
ann Upplausnin síast langt um
fljótar inn í sjálft æxlið, heldur en
í aðra hluta heilans. Reiknað er
Hygginn bóndi tryggir
dráttarvél sína
með að upplausnin hafi full áhrif
á æxlið 8—10 mínútum eftir að
henni er dælt inn. Geislavirkunin
hcfst því nákvæmlega 8 mínútum
eftir að upplausnin hefir verið gef
in.
Frumefnlð bór er ekki geislavirkt
en hefir þann eiginleika að geta
tekið til sín neutrónur, sem við það
verða geislavirkar. Þær leysast þeg
ar upp og senda um leið frá sér
alfageisla, sem hafa deyðandi áhrif
á selluvefina. En neutrónurnar
hafa aðeins áhrif á lítið svæði, sem
er að ummáli varla stærra en rautt
blóðkorn. Þaö kemur í veg fyrir
að hinir heilbrigðu selluvefir í krig
verði fyrir áhrifum af geislunum.
Dr. Farr hefir skýrt svo frá, að
valdir hefðu verið sjúklingar með
krabbameinsæxli í heila vegna þess
að við rannsóknir séu slík æxli
mun aðgengilegri en flest önnur. En
rannsóknir eru einnig hafnar í
Brookhaven á krabbameinsæxlum,
sem liggja dýpra í líkamanum, svo
sem lungnakrabba.
(Grein þessi er eftir blaðamann-
inn AUen Jensen, og birtist í Ber-
lingske Tidentíe fyrir nokkru.)
XX x
NflNKIN
KHfiKI