Tíminn - 20.09.1955, Page 4
TÍMINN, þiúðjudaginn 20. september 1955.
212. blað,
Þorbjörn Sigurgeirsson:
ÞUNGT VATN
Þjóðhátíðardagur fslendinga
Vatn er samsett úr tveim
frumefnum, vetni og súrefni.
í vatnsmólekúlinu eru tvö
vetnisatóm bundin einu súr-
efnisatómi. Öll vetnisatómin
eru þó ekki eins, heldur eru
þau af tveim gerðum, svokall
að létt og þungt vatn. Atóm
þunga vetnisins eru helm-
ingi þyngri en atóm létta
vetnisins, en í venjulegu
vatni eru iéttu vetnisatómin
í miklum meirihluta, um 6000
á móti hverju þungu. Móle-
kúl þunga vatnsins er sam-
sett úr tveim þungum vetnis-
atómum og einu súrefnis-
atómi. í öllu venjulegu vatni
er sem svarar 160—170 grömm
um af þungu vatni í hverju
tonni.
Þungt vetni fannst fyrst
árið 1932, en síðan hefir það
verið notað mikið við rann-
sóknir á eiginleikum atóm-
kjarnanna. Síðan kjarnorku-
ofninn kom til sögunnar hef
ir þörfin fyrir þungt vatn
aukizt mjög mikið, og með
hagnýtingu kjarnorkunnar
til almenníngsþarfa má bú-
ast við að notkun þungs
vatns eigi eftir að margfald-
ast frá bví sem nú er.
Þungt vatn tekur ekki þátt
í þeim kjarnabreytingum,
sem gerast í kjarnorkuofnin
um, heldur er það emgöngu
notað til þess að stöðva nev
trónur þær, sem losna við
kjarnaklofnunina, svo að þær
nái að sameinast kjörnum
kjarnakleifra efna áður en
þær þjóta út úr kjarnorku-
ofninum og haldi þannig við
kjarnaklofnuninni. Önnur
efni, svo sem venjulegt vatn
og grafít geta einnig gegnt
þessu hlutverki, en standa þó
langt að baki þunga vatninu
til þessara nota. í stóru kjarn
orkuveri, ssm notar úraníum
eða þóríum sem eldsneyti og
framloiðir rafmagn svo skipt
ir hundruðum þúsunda kiló-
vatta, getur verið þörf fyrir
þungt vatn, sem nemur
hundruðum tonna. Til þess
að gefa hugmynd um þörf-
ina fyrir þungt vatn í fram-
tíðinni nægir að minna á að
Bretar ætla að reisa 12 stór-
ar kjarnorkustöðvar á næstu
10 árum. Að vísu gera þeir
ráð fyrir að nota í þær grafít,
c-n ekki þungt vatn, en það
er fyrst og fremst vegna þess
að nægilegt magn af þungu
vatni er ekki á boðstólnum.
Ef þungt vatn væri notað í
stað grafíts þyrfti til þess
þúsundir tonna af þungu
vatni.
Framleiðsla á þungu vatni
er í því fólgin að skilja sund
ur létta og þunga vatnið í
blöndu þeirri, sem venjulega
er kölluð vatn. Þetta er erf-
itt viðfangsefni, því að eig-
ínleikar þunga og létta vatns
ins eru yfirleitt mjög svipað-
ii'. Þó er nokkur munur á.
Þannig er suðumark þunga
vatnsins 101.4 gráður í stað
100 gráða hjá léttu vatni.
Þetta gerir það að verkum,
að iétt vatn gufar auðveldar
upp en þungt vatn, og hægt
er nð aðgreina þessi efni með
endurtekinni eimingu. Önn-
ur aðferð, sem notuð er við
framleiðslu á þungu vatni,
er rafgreining. Við rafgrein
ingu klofnar vatnið í vetni
og súrefni, en þunga vatnið
er tregara til að klofna en
það létta, svo að mikill hluti
þunga vatnsins verður eftir
í leginum þegar vatn er raf-
greint. Norðmenn hafa lengi
notað þessa aðferð til fram-
leiðslu á þungu vatni, en til
framleiðslu í verulega stór-
um stíl kemur hún varla til
greína vegna þess að nægi-
legur n:arkaður fyrir létta
vetnið, sem fram kemur við
rafgreininp-una, er þá ekki
fyrir hendi, en ef það er ekki
notað, verður framleiðsla
þunga vatnsins mjög dýr.
Þriðja aðferðin, sem notuð
hefir verið við framleiðslu
á þungu vatni, byggist á mis
mun á efnafræðilegum eigin
leikum létta og þunga vetn-
isins. Þannig inniheldur t. d.
brennisteinsvetni, sem er í
snertingu við vatn, tiltölu-
lega minna af þungu vetni
en vatnið. Hve mikið atóm
þunga vetmsins sækja í vatn
ið. er undir hitastiginu kom-
ið. Við 0 gráður inniheldur
vatnið 2.5 sinnum meira
þungt vetni en brennisteins
vetnið, en við 100 gráður er
hlutfallið 1.9.
Þannig er hægt að láta
brennisteinsvetnið bera
þunga vetnið á milli, úr heita
vatninu í það kalda, og greina
að létta og þunga vatniö.
Þetta er sú aðferð, sem nú er
einkum notuð í Bandaríkjun
um við framleiðslu á þungu
vatni.
Tæknilegar og efnahags-
iegar upplýsingar varðandi
framleiðslu á þungu vatni eru
af skornum skammti. Hvað
snertir eimingaraðferðina er
þó hægt að gera sér nokkra
grein fyrir þessum hlatum
og nefna tölur, sem gefa ein
hverja hugmynd um fram-
leiðslukostnað og framleiðslu
getu. Eimingarverksmiðja,
sem framleiða ætti 100 tonn
af þungu vatni á ári, mundi
kosta á að gizka 500 millj.
kr. TU vmnslunnar þyrfti
um 2000 tonn af gufu á klst.
en það er hugsanlegt að fá
mætti þetta gufumagn á ein
hverju hinna stærstu jarð-
hitasvæða vorra með miklum
borunum. Út frá þeirri
reynslu, sem fengizt hefir af
borunum á jarðgufusvæðum
á íslandi, mú búast við að
kostnaðvir’nn við boranirnar
yrði sem svarar 10—20 millj.
krönum á ári Annan tilkostn
að við leksturinn má áætla
20—30 milljón krónur á ári
þannig að íekstrarkostnaður
inn yrði alls um 40 milljón
krónur á ári. Notkun hinnar
ódýru jarðgufu er mjög hag
kvæm fyrir reksturinn. í
Bandaríkjunum yrði kostnað
ur vegna gufunnar um 95
millj. kr. á ári.
Bandarikjamenn notuðu á
timabili eimingu til fram-
leiðslu á þungu vatni, en
hættu því bráðlega og nota
nú. eins og áður var sagt. að-
allega brennisteinsvetnis-að-
ferðina. Aðferð þessa telja
þeir mun hagkvæmari en eim
ingaraðferðina, og verð það,
sem þeir hafa sett á þnngt
vatn — 1 milljón krónur fyr
ir tonnið — byggist á þessari
aðferð. Annars h.-fa c-instök
atriði varðandi gcrð og rekst-
ur slíkra verksmiðja ekki enn
þá verið birt, og tilvera þess
ara verksmiðja varð ekki heyr
um kunn fyrr en á kjarn-
orkuráðstefnunrii í Genf. Þó
er vitað, að gufuþörfin við
þessa aðferð er miklu minni
en við eimingu.
Að órannsökuðu máli verð
r.r c kkert sagt með vissu nm
hvort eimmgaraðferðin eða
orennisteinsvetnisaðferðin
henti betur okkar staðhátt-
um, en við hvora aðferðina
sem hagkvæmari reynist ætti
notkun hinnar ódýru jarð-
gufu að hafa mikla kosti í
för með sér og tryggja arð-
vænlegan rekstur í sam-
keppni við aðra staði sem
ekki hafa jafn ódýra hita-
orku. Við framleiðslu þunga
vatnsins er engin hættx á
hráefnaskorti því að hráefn-
ið — vcnjulegt vatn — er alls
staðar fáanlegt í nægilegu
magni. Flutningur afurðarna
skapar heldur enga erfiðleika
þar sem magnið er svo lítið.
Eitthvað þorf af rafmagni til
þess að knýja dælur, en það
rnætti framleiða á staðnum
með jarðguíu. Af þessu leiðir
að verksmiðjuna mætti stað
setja þar sem gufan fæst ó-
dýrust og í nægu magni.
Ekki virðist ólíklegt, að fram
leiðsla á þungu vatni geti orð
ið stóriðnaður á íslandi í
framtíðinni.
Grein sú, se?n hér fer á{
eftz'r, birtist á unglingasiöu
ameríska bZaðsins The
ChFisfian Science Monitor
19. júlí síðasíZ. Höfnndur
hennar er ung stúlka, Char
ley Ann Perkins, dóttir Per-
kins sjóZzðsforzngja, senz
dvaZdi hér um tveggja ára
skeið og er Tnörgum hér aö
gó5u liunnur.
Viltu ekki koma með mér
í eins dags ferðalag til ís-
lands? Þú þarft ekki þykk föt,
því það er sumar, og hitinn
á suðvesturhluta landsins,
sem við .ætluð tú, er um 10
til 20 ítig á Celcius.
Við komum til höfuðborg-
armnar 17. júní í tæka tíð
tii að taka þátt í hátíðar-
höldum. sem haldin eru í til
efni af endurheimt sjálfstæð
is íslands og lýðveldisstofn-
uninni 1944.
Við getum fengið okkur
gönguferð snemma um morg
uninn til að kynnast borg-
inni áður en göturnar fyllast
í.f fólki. Göturnar eru þegar
skreyttar fánum og þar eru
tjaldbúðir, þar sem seldar
eru pylsur, sælgæti og gos-
drykkir. Margir búðargluggar
eru skreyttir með nellikum,
sem eru ræktaðar í nærliggj
andi gróðurhúsum. Einnig
eru útstilltar myndir af nú-
verantíi og fyrrverandi forset
um landsins og Jóni Sigurðs
syni, en sá síðastnefndi var
þjóðhelja íslendinga í bar-
áttu íyrir sjálfstæði þeirra.
Komdu svo með mér í heim
sókn td kunningja minna í
hádegisverð áður en hátiðar
höltíin hefjast. Þar fáum við
alíslenzkan mat, -súpu. kalt,
reykt kjöt (hangikjöt, almenn
ur hátíðaréttur), soðnar kar
töflur, niðursoðnar baunir og
sítrcnubúðing með þeyttum
rjóma. Þetta heimili og mörg
önnur, eru hituð upp með
hveravatni. Það eru íslenzk
málverk á veggjunum og fjöl
breytt. úrval af bókum. íbú-
arnir eru á mjög háu menn-
ingarstigi, og það eru alUr
læsir og skrifandi. Þegar við
komum í eldhúsið undrumst
við yfir að sjá rafmagnsupp
þvottavél, þvottavél, stóran
ísskáp og ýmisleg önnur ný-
tízku heimilisáhöld.
Nú skulum við flýta okkur
niður á torgið (Austurvöll) og
sjá þar samankomnar 3 skrúð
göngur, sem hafa byrjag á
mismunandi stöðum í bæn-
um. Mikill mannfjöldi hefir
safnast saman og margar litl
ar stúlkur og fullorðnar kon
nr eru í þjóðbúningi. Ungu
stúlkurnar eru ljósar yfirlit-
um og fallegar. en karlmenn
irnir eru grófgerðir og láta
ljóst liðað hár sitt vaxa
lengra en almennt er í Amer
riku.
Hljómsveitin spilar þjóðlög.
Skátar standa heiðursvörð f
kringum styttu Jöns Sigiirðs
sonar. Til vinstri við okkur
er Alþingishúsið. (Alþingi fs-
lendingar var stofnsett árið
930). Sömu megin er snotur
lútersk kirkja, þjóðkirkja,
þar sem fram fer hátíðar-
messa, og að henni lokinni
mun forsetinn, Ásgeir Ás-
geirsson, leggja blómsveig hjá
st.yttu Jóns Sigurðssonar. At-
hygli mannfjöldans beinist
að svölum Alþingis, þar sem
forsætisráðherrann flytur
ræðu. Næst kem'ur fram ieik-
kona klædd í ísl. þjóðbúning
(skautbúning), og fer með
langt ættjprðarkvæði.
Nú skulum við yfirgefa
torgið og fara suður á íþrótta
\öll, þar sem þróttmiklir ung
ir íþróttamenn taka þátt í
spjótkasti, kúluvarpi, hundr-
að metra hlaupi og glímu, sem
er elzta þjóðaríþróttin, and-
stæðingarnir fella hvorn ann
an með því að taka í leðuról
ar, sem eru um mitti og læri.
Nú er komið að hátíðarhöld-
um barnanna. Áhorfendurn-
ir hafa haft með sér regnhlíf
ar, og ætla ékki að láta rign-
ingarskúr eyðileggja skemmt
un sína. Við sjáum raðir af
samæfðum ungum stúlkum
sem sýna leikfimi. 10 ára
drengur skemmtir okkur með
harmoníkuleik. Síðan dansa
sælleg börn í þjóðbúningi
þjóðdansa.
Það er alltaf :meira að :sjá,
en það væri gott ráð að hvíla
sig hjá kunningjum, þar sem
við getum horft yfir fjöld-
ann á meðan við drekkum
mjólk og borðum rjómakök
ur. Eftir kvöldverð, s.em er
endurtekning á hádegisyerði,
förum við í Tívolí, lítinn
skemmtigarð, sem hefir ým-
islegt til skemmtunar,: og-ó-
keypis aðgang fyrir börn um
hátíðina. Það er méira til
skemmtunar fyrir fúllorðna
um kvöldið, m. a. tvísöngúr,
lúðrasveit og ræður. Guð-
mundur Jónsson, hinn þekkti
íslenzki söngvari, kehiur ein'n
ig fram.
Um klukkah 10. þegar.
komið var að því að dansa,
hefir mannfjöldinn tvístrast,
vegna veðursúis. Það er leið-
inlegt, því að á undanförn-
um árum, þegar miðnætur-
sólin hefir skinið, hafa göt
urnar verið þéttskipaðar
fólki, sem dansaði til kl. 2
um morguninn. Samt sem áð
ur halda stúdentarnir í dökk
um fötum með hvítar húfur
og annað ungt fólk áfram að
dansa (bifreiðum er ekki
leyfð umferð um aðalgöturn
(Pramhald á 6. 6í5u).
Auglýsing
UM IMSIGLIJN UTVARPSTÆKJA
Samkvæmt ákvæðum 34. og 35. greina reglu-
gerðar Ríkisútvarpsins, munu innheimtumenn
útvarpsins taka úr notkun að 8 dögum liðnum
frá birtingu þessarar auglýsingar, viðtæki
þeirra manna, er eigi hafa greitt afnotagjöld
sín. —
Athygli skal vakin á því, að viðtæki verða
því aðeins tekin undan innsigli aftur, að út-
varpsnotandi hafi greitt afnotagjald sitt að
fullu auk innsiglunargjalds, er nemur 10% af
afnotagjaldinu.
Skrifstofa Ríkisútvarpsins, 20. september 1955.
\V.\V.V.V/.VAV.V,V.V,V.V.V.,.V.V.V.V.’.V,V.*.V.V.‘
.J Gerist áskrifendur
l að T I M A N U M
j; Xskriftasími 2323 I
WAVAVV.-A'.V.V.VVAVAW.V.V.V.V.V.VV.V.VATO
KÓPAVOGUR
Atkvæðagreiðsla
utan kjörfundar við bæjarstjórnarkosningarn-
ar í Kópavogi fer fram daglega í Barnaskólan-
um kl. 20—22 nema laugardaga og sunnudaga
frá kl. 14—16.
Bæjarfógetinn í Kópavogi,
Guðmundur í. Guðmundsson, settur. .