Tíminn - 03.11.1955, Qupperneq 4

Tíminn - 03.11.1955, Qupperneq 4
á. TÍMINN, fimmtudaginn 3. nóvember 1955. 350. blaff. I slendingaþættir 1 Sextugur: Þorsteinn Sigurðsson, Víðidal í dag er Þorsteinn bóndi Sigurðsson í Víðidal á Pjöll- um sextíu ára. Þeir, sem ferð ast til Austurlandsins að sumrinu, verða þess varir, að bæjarleiðirnar sumar hverjar eru æðilangar. Milli Reykja- hlíðar og Grímsstaða eru 41 kílómetri, og milli Gríms- staða og Möðrudals 36 km„ en þaðan að Skjöldólfsstöð- um 45 km.Þeir, sem fara þessa leið austur, sjá til hægri hand ar spölkorn frá veginum reisu legan bæ milli Grímsstaða og Möðrudals er Víðidalur heitir og ber nafn af dalnum, sem hann stendur í. Þetta er bær Þorsteins. Bændurnir á þessum bæj- um eru útverðir byggðarinn- ar í sveitum landsins. Þeir eru lausir við margt það, sem fólkið í þéttbýlinu þekkir, en lifa frjálsir og starfa í sam- ræmi við móður náttúru í ríki sínu. Slíkum mönnum á íslenzka þjóðin sem heild margt að þakka. Þeirra vegna notast landið betur, þeirra vegna er framleiðslan meiri, og margur er sá maðurinn, sem á ferðalögum hefir kom- ið þreyttur og hrakinn á af- skekktu bæina og fengið þar hressingu bæði á sál og lík- ama. Einn af þessum bændum er Þorsteinn í Víðidal. Hann hef ir búið þarna í einangrun, lengi simalaus og einangrað ur og stundað bú sitt með prýði. Hann hefir bætt jörð- ina og gert hana betur hæfa til búskapar, unnið með fram þróun tækninnar að því að bæta og fullkomna iífsskil- yrðin fyrir komandi kynslóð- ir. Og jafnframt hefir hann eins og allflestir bændurnir og fólkið í strjálbýlinu hugs- að sjálfstætt og skapað sér skoðanir um menn og mál- efni. Múgmennskan nær ekki til hans. Þess vegna hefir hann alla tíð verið Fram- armaður, laus við að láta glepjast af fagurgala og kosn ingaloforðum, sem oftast reyndust tál eitt. Eg á enga betri ósk til handa Þorsteini sextugum, en að hann megi sjá börn sín verða útverði byggðamenning arinnar, eins og hann hefir sjálfur verið, verða sjálfstæð í skoðunum og aldrei renna inn í hóp múgmennskunnar eins og mörgum hættir við að gera í þéttbýlinu. Megi honum og hans end- ast sem lengst þrautseigja og þol fjallabóndans, megi hon um enn lengi auðnast að bæta býU sitt, fegra það og prýða, og megi blessun Guðs hvíla yfir honum og öllum hans niðjum. Og ég veit að hún gerir það, bví þar sem góðir menn fara eru Guðs vegir. 2. nóv. 1955. P. Z. «$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$5 UNGLING A vantar til að bera blaðið út til kaupenda á Grsmsstaðaholt Afgreiðsla TÍMANS SÍMI 2323. wnftamaUt Tilkynning vegna sívaxandi dýrtíðar og aukinna takmarkana á rekstursfé sjáum við oss tilneydda að taka upp nú þegar algert staðgreiðslufyrirkomulag. H.f. Kol & Salt Kolaverzlun Sigurðar Ólafssonar Kolaverzl. Gnðna Einarssonar & Einars W.V^VV.VW.V.VV.VAV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.W Gerist áskrifendur að T í M A N U M Askriftasími 2323 Tékkneskt fey^mgarefiu úr ashest-sementi ÓDÝRT — VARAXLECT ÖRLGCT GEGN ELDI Veggplötur - pilplötur - báru- %£"1,1 ■" ptötur - þakhellur. - Þrýsti- * \vatns-pípur, frárennslispípur jl og tengistykki.' Einkaumboö: Mars Tradinjí Company, Klapparstíg 20, — Sími 7373 l£5£ Czechoslovak Ceramics, Prag, Tékkóslóvakíu. *•*.**/. % * ogkostary&urminna Með því að nota Rinso fáið þér glæstast- an árangur. Það er ekki aðeins, ódýrara en önnur þvottaefni, heldur þarf minna af því og einnig er það skaðlaust hönd- um yðar og fer vel með þvottinn, því að hið freyðandi sápulöður hreinsar án þess að nudda þurfi þvottinn til skemmda. VERNDIÐ HENDUR OG ÞVOTT

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.