Tíminn - 22.01.1956, Síða 1
BkrUstofur 1 Edduhúsl.
Préttasímar:
81302 og 81303
Afgrelðslusíinl 2323
Auglýslngasíml 81300
Prentsmiðjaji Edda
40. árgangur.
Reykjavík, sunnudaginn 22. janúar 1956.
12 síður
Rítstjórl: vfi
tórarinn Þórarlnsaoa V
Ótgeíandl:
Pramsólmarflokkurlnii
18. blatf.
Ríkisstjórnin hefir ákveðið að beita sér fyrir
ráðstöfunnm til stuðnings sjávarútveginum
^amtökum útvegsmanna ílynnt iþetta
FriSarengii! vio fiotalaöím'
'fV' í!*'1 '
Við eyjuria Möltu í MiSjarðarhafi er ein mesta fiot3höfn við Miðjarðarhaf.
Þessi mynd er svolítið mótsagnakennd, þar sem hinn mikii friðarengill
við höfnina lyftir hendi yfir herskipin, sem eru að láta úr höfn. Þarna
hafa bækistöð brezk, frönsk og bandarísk herskip. Litfu austar er eyjan
Kýpur, bálkösturinn, sem nú hefir siegið eidi í.
Merkilegt tómstundafélag
stofnað á ísl. kaupskipi
Efna til ódýrra frótSleiksfer'ða me'San dvali'ð
er í erlemdum hafnarborgum og tefla á frívakt
, Á hinum löngu siglingum millilandaskipanna hafa sjó-
menn oftast, að minnsta kosti í sæmilegum ve'ðrum, nokkurn
tíma, sem tómstundir geta kallazt á frívaktinni. Skipverjar á
Arnarfelli stofnuðu á sjómannadaginn í fyrra félag til þess
að vinna að gagnlegri nýbreytni um notkun tómstunda á
frívöktum og í erlendum höfnum.
Aflað verði fjár í sérstakan sjóð til stuðníngs framleiðslumii
Greiða skal niður hluta af vátryggingargjaldi báía.
Koniið verði í veg fyrir verðfall á fiski innaniands með upp-
bótum á fiskverð vegna hækkaðs vinn^lukostnaðar og sér=
stakri viíinsluuppbót á smáfisk,
Framlag tií togaraútgerðar hækkað í 5009 kr. á úthaldsdag.
Bátagjaldeyrishlimnindin standi óbreytt.
Blaðinu barst í gær fréttaíilkynning frá ríkisstjórninni
um þessi mál, þar sem lýst er ráðstöfunum þeim, sem hún
hyggst beita sér fyrir, og er þess að vænta, að róðrar geti
nú hafizt þegar
heild.
í stað. Fréttatilkynningin fer hér á eftir í
Mun þetta vera fyrsta félag sinn
ar teg. á ísl. skipi og hefir vissulega
góðu og gagnlegu hlutverki að
gegna. Hafa slík félög rajög rutt
sér til rúms á erlendum kaupskip-
um að undanförnu og eru orðin
voldug samtök á danska kaupskipa
flotanum.
Fóru í hópí.erð í S-Ameríku.
— Það var þassi félagsskapur
frændþjóoanna, sem við tókum
Biðskákiraar tefldar
Þær tvær biðskákir, sem nú
eru iniiii Friðriks og Larsens,
ver'ða tefldar í kvöld í Sjómanna
skólanum og hefst taflið kl. 7,30.
Þetta er gert samkvæmt ósk
um keppenda. Ekki var teflt i
gærkvöldi. I
okkur til fyrirmyndar, sagði Jón-
as Einarsson, fyrsti stýrimaður á
Arnarfelli, er blaðamaður frá Tím
anum ræddi við hann um þessa
nýjung í félagslífi sjómanna. En
Jónas er formaður tómstundafé-
lagsins Ernir um borð í Arnarfelli.
Norræna sjómannakirkjan, sem
starfar í flestum hafnarborgum,
styður þetta starf mjög vel og þar
nutum við aðstoðar, þegar við fór-
um til dæmis í hópferð til þess
að skoða okkur um í Ríó í Brazi-
líu, þegar skip okkar var þar. í
Reykjavík er hir.s vegar lítil að-
staða ti.l þess að hjálpa erlendum
sjómönnum. í sjómannastofunni
hér er starfað vel við mjög þröng-
ar og erfiðar aðstæður, en ann-
ars ekkert gert fyrir sjómenn, er
til höfuðstaðarins koma, og þar
eiga ekki heima.
Nú mun í undirbúningi að
stofna tómstundafélög áhafna á
fleiri Sambandsskipunum og hafa
'Franxhald & 2. slffu.
„Á undanförnum mánuðum
hafa farið fram viðræður milli
fulltrúa ríkisstjórnarinnar og full-
trúa útvegsmanna og fiskframleið-
enda um starfsgrundvöll útvegsins
á árinu 1956. Hefir í því sambandi
verið aflað gagna um afkomu sjáv
arútvegsins á s. 1. ári og horfur á
þessu ári.
Athugun málsins og umræður
hafa leitt í ljós, að aðstaða sjávar-
útvegsins hefir versnað til muna,
einkum vegna aukins rekstrar og
vinnslukostnaðar, svo fyrirsjáan-
legt er, að útgerð og vinnslu sjáv-
arafurða verður eigi haldið áfram
án aukinnar aðstoðar frá því, sem
verið hefir.
Af þessum ástæðum hefir rík-
isstjórnin í dag ritað Laedssam-
bandi ísleazkra útvegsmanna
bréf, þar sem því er heiíið, að
bátaútvegurinn haldi þeim inn-
flutningsréítindum fyrir fram-
leiðslu ársins 1958, sem hann
naut á árinu 1955, þó þannig. að
engum nýjum vörum verði bætt
á bátalistann, og álag útvegsins
á inuflutningsskírteinin verði
óbreytt frá því, sem verið hefir.
Ennfremur hefir ríkisstjórnin
ákveðið að leggja til við Alþingi,
að fjár verði aflað I sérstakan sjóð.
Úr honum skal verja fé til þess
að greiða hluta vátryggingaið-
gjalds fiskibáta. Ennfremur til
þess að greiða vinnslustyrk á báta
meiri vinnslukostnaðar á smáfiski,
hvort tveggja til þess að koma í
veg fyrir verðlækkuti á fiskinum.
Þar eS ekki hefir þótt fært að
Daglega ekið yfir
bæta nýjum vörutegundum á
bátalistann, verði varið allhárri
fjárhæð úr sjóði þessum til þess
að kaupa og taka úr umferð óseld
innflutningsskirteini bátaútvegs-
ins.
Þá hefir ríkisstjórnin ákveðið
að leita heimildar Alþingis til
þess að greiða úr áðurnefndum
sjóði 5000 krónur til hvers togara
fyrir hvern dag, sem togaranum er
sannanlega haldið til veiða. Er
hér um að ræða hækkun á rekstr-
arframlagi til togaranna um 3000
krónur á dag, frá því sem verið
hefir.
Ríkisstjórnin mun næstu daga
leggja fyrir Alþingi frumvarp um
þetta efni og ráðstafanir til iekju
öflunar í þessu skyni, enda vænt
ir hún þess, að framangreindar
ráðstafanir verði til þess að vél-
bátaflotinn liefji veiðar nú þegar,
21. jan. 1956.
Frá fréttaritara Tímans
í Ólafsvík.
Færð er góð yfir Fróðárheiði
þrátt fyrir töluverðan snjó á Snæ-
fellsnesi og eru daglegir mjólkur-
flutningar yfir fjallið. Er mikill
munur á vetrarfærðinni og sam-
göngum, síðan lagður vegur kom
yfir Fróðárherði.
Akraborg afheut 25.
febrúar
Hinn nýi flóabátur. Skallagríms,
h. f., Akraborg, sem koma skal í
stað Laxíoss, or ninær fullsmíð-
aður og verður skipið væntanlega
afhent eigendum hinn 25. febrúar.
Smíði skipsins hefir. dregizt mjög.
mikið, þar sem það átti að vera
komið hingað til lands snemma
sumars á liðnu ári. Héldu illa
þeir samningar, er gerðir höfðu
verið um smiði skipsins.
Ef skipið verður afhent á þess-
um degi, sem boðað er, kemur
það hingað til lands fyrstu dag-
ana í marz, og mun þá sennilega
hefja ferðir milli Reykjavíkur,
Akraness og Borgarness fljótlega.
Batnar þá mjög aðbúð ferðafólks,
sem fer þessa leið. en venjulega
er mikill fólksstraumur með skip-
inu að sumrinu og raunar nú orð-
in mikil ferðalög milli Reykjavík-
ur og Akraness allan ársins hring.
Mozarts-hljómleikar í há
tíðazal Háskólans í dag
Tveggja alda minning tónskáldsins
Wolfgang Amadeus Mozart á tveggja alda afmæli í þessari
viku (27. jan.), og verður þessa frábæra snillings minnzt með
tónlistarkynningu í hátíðasal háskólans í dag (sunnudag) KL
5 síðdegis. Flutt verða af hinu ágæta hljómplötutæki háskól-
ans tónverk eftir Mozart.
Fyrst verður leikin Sinfónía
Concertante í es-dúr (K. 364), fyr-
ir fiðlu, lágfiðlu og hljómsveit.
Þetta er unaðsfagurt verk, en iil-
tölulega sjaldan flutt á hljómleik-
um. Einleikarar eru Isaac Stern
(fiðla) og William Primrose (lág-
fiðla), en Pabló Casals stjórnar
hátíðarhljómsveitinni í Perpignan,
þar sem þetta var hljóðritað á tón-
listarhátíð Casals.
Þá verða flutt tvö stutt atriði
úr óperunni Brúðkaupi Figarós,
þar sem fram koma einsöngvararn-
ir Erich Kunz (barítón, Fígaró),
Irmgard Seefried (sópran, Sús-
anna) og George London (bassi,
Almavíva greifi), kór Ríkisóper-
unnar í Vínarborg og Fílharmón-
íska hljómsveitin í sömu borg,
stjórnandi Herbert von Karajan.
Loks verður flutt sinfónía í g-
moll, nr. 40 (K. 550), leikin af
Rochesters hljómsveitinni undir
stjórn Erichs Leinsdorfs. Þetta er
tvímælalaust þekktasta og vinsæl-
asta sinfónía Mozarts og eitt a£
ástsælustu og mest dáðu hljóm-
sveitarverkum, sem til eru í öllum
tónbókmenntum heimsins.
Jón Þórarinsson, tónlistarráðu-
nautur, flytur inngangsorð um
tónskáldið og segir frá verkum
þeim, sem flutt verða.
Öllum er heimill aðgangur.