Tíminn - 09.02.1956, Side 7
33. blað.
TÍMINN', fimmtudaginn 9. febrúar 1956.
J
Hvar eru skipin
Skipadeild S. i. S.
Hvassafell fór væntanlega í gær-
köldi. áleiðis til Reykjavíkur. Arnar-
fell fór 3. þ. m. frá New York áleiðis
til Reykjavíkur. Jökulfell kemur til
Boulogne í dag. Dísarfell kemur til
Piraeus í dag. Litlafell er í olíuflutn
ingum á Faxaflóa. Helgafell er á
"Þorlákshöfn.
H.f. Eimskipafélag íslands.
Brúai'foss fór frá Hull 5.2. til
Reykjavikur. Dettifoss fer frá Rott-
erdam 9.2. til Reykjavíkur. Fjallfoss
er í Rotterdam. Goðafoss fór frá
Sauðárkróki 3.2. til Ventspils og
Hangö. Gullfoss fer frá Reykjavík
kl.8 í kvöld 8.2. til Leith og Kaup-
mannahafnar. Lagarfoss hefir vænt-
anlega farið frá New York 7.2. tit
Reykjavíkur. Reykjafoss fór frá
Reykjavik í morgun 8.2. til Akraness,
Keflavíkur, Hafnarfjarðar, Akureyr-
ar, Seyðisfjarðar, Norðfjarðar, Djúpa
vogs og þaðan til Rotterdam og Ham
borgar. Selfoss fór frá Reykjavík 1.2.
Væntanlegur til Ghent síðdegis í dag
8.2. Tröllafoss fór frá Reykjavík 6.2.
til New York. Tungufoss fer frá Rott
erdam í dag 8.2. til íslands.
Flugferðir
Flugfélag íslands h.f.
í dag er ráðgert að fljúga til Ak-
ureyrar, Egilsstaða, Kópaskers og
Vestmannaeyja. — Á morgun er ráð
gert að fljúga til Akureyrar, Fagur-
liólsmýrar, Hornafjarðar, Kirkjubæj-
arklausturs og Vestmannaeyja.
Loftleiðir.
Edda millilandaflugvél Loftleiða
var væntanleg til Reykjavíkur kl. 7
í morgun frá New York. Fiugvélin
fer áleiðis til Gautaborgar, Kaup-
mannahaínar og Hamborgar kl. 8.
Ur ýmsum áttum
Kvenfélag Langholtssóknar.
Aðalfundur kvenfélags Langholts-
sóknar verður næstkomandi þriðju-
dagskvöld kl. 20,30 í kjallara Laug-
arnessóknar.
Týndur fannst.
í færeysku blaði segir frá því, að
þangað kom íslenzkur togari til þess
að sækja menn. Er leið að hinum á-
kveðna brottfarartíma og allt var til
búið vantaði kokkinn. Upphófst nú
leit allmikil í landi, en allt kom fyr-
ir ekki. Kokkurinn var gjörsamlega
horfinn. Um kvöldið lét samt togar-
inn úr höfn og um svipað leiti fannst
kokkurinn. Færeyska blaðið segir
orðrétt:
„Kokkurinn sum íslendski trolarin
lá og bíðaði eftir henda dagin, varð
funnin umborð. Hann iá avdottin í
proviantrúminu,“ (Úr Degi).
Bolvíkingafélagið í Reykjavík
heldur aðal- og skemmtifund að
Tjarnarkaffi uppi í kvöld, kl. 20,30.
FáskrúftsfjörtSiir
(Framhald af 8. síðu.)
nýjú var keyptur í fyrra, hefir
atltaf síðan verið gerður út frá
Fáskrúðsfirði og leggur þar upp
afla; Lagði til dæmis upp mikið
af ágætum fiski í janúar, mcðan
almennt róðrarbann var í verstöðv
um syðra. Er það danskur bátur
um 50 lestir, Ingjaldur S.U. 80.
Nýlegur bátur með nýrri vél,
keyptur frá Danmörk.
Næsti báturinn, sem kom var
trébátur, byggður í Danmörk og
kom heim s.l. sumar. Heitir hann
Stefán Árnason og er 60 lestir.
Fyrir skömmu kom svo fyrri stál-
báturinn frá Ilollandi, Sigurbjörg,
sem er um 70 lestir og loks nú um
helgina Búðarfell, sem er eign
Kaupfélagsins ,eins og Ingjaldur.
Búðarfell og Sigurbjörg, sem
báðir eru stálbátar frá sömu skipa
smíðastöð, Holland Launch, Amst
erdam, eru svipaðir að stærð og
búnaði öllum.
Glæsileg fiskiskip.
Fjskibátar þessir eru hin glæsi-
legustu skip og búnir nýjustu tækj
um til siglinga og veiða, meðal
annars bæði með línu- og neta-
vindum. Upphitun í þeim er með
olíu og rafmagni. Aðalvélar þeirra
eru 200/240 hestafla diselvélar.
í éinum glugga á stýrishúsi er
hringsnúningsgluggi, sem alltaf
er hægt að sjá út um, hvernig sem
viðrar. Innviðir allir eru úr fægð-
um harðviði. Yfir þilfarinu, sem
er úr stáli er 60 mm þykkt harð-
viðarþilfar.
Með komu þessara tveggja báta
eru komnir til landsins fimm stál-
Greinar
(Framhald af 1. síðu.)
fyrr og nú og rekur sögu þessa
elzta þjóðþings í heiminum. Enn-
fremur sí^'rir Bjarni frá því, að
mikill meiri iiluti þjóðarinnar vilji
samvinnú við aðrar frjálsar þjóð-
ir — þess vegna hafi ísland geng-
ið í NATO. Bjarni ritar einnig
nokkuð i&n flokka á íslandi og
hlutföllin í undanförnum kosning-
um.
Agnar Kl. Jónsson ritar litla
grein um hernaðarlegt mikilvægi
íslands vegna landfræðilegu þess í
miðju AHanzhafi.
Margar aðrar greinar eru í‘ rit-
inu m. a. Ferðaþáttur frá Reykja-
vík eftir ritstjórann, 1100.ára saga
íslands éftir próf. Peter Foote.
Hinir göfggu vinir mínir — ís-
lendingar^— eftir Njálufræðinginn
frá Wale‘1; Gyýyn Jones. Grein um
bókmennur ísíendinga eftir próf.
Turville í^ter. Margar aðrar grein
ar eru í pðssu fróðlega og skemmti
lega tímáriti, svo sem eftir Paul
Henry Spaak, Lester Pearson,
Rene Mayer. H. C. Hansen o. fl.
Fjölda mörg íslenzk fyrirtæki
aug'lýsa I tímaritinu, sem fæst í
Bókaverzjun Snæbjarnar Jónsson-
ar hér í bæ.
Kýpur
(Framhald af: 8. síðu.)
um miskunnarlaust gegn ungling-
unum í Famagústa og megi marka
það af því, hve margir særðust.
Bretar neita þessu og segja að að-
eins hafi Verið hleypt af tveim
skotum Og annað hitt unglinginn,
sem bana beið; Er auðséð að þeim
þykir illt að eiga við mótspyrnu
ungmennanna. — Makaríos erki-
biskup hélt ræðu í dag og kvað
Kýpurbúa ekki mundu sætta sig
við neitt minna en fullan sjálfs-
ákvörðunarrétt. Tillögur brezku
stjórnarinnar væru óljósar og illt
að henda reiður á þeim.
Samkomulag um
fiskverð á Akranesi
Frá fréttaritara Tímans
á Akranesi.
Akranesbátar eru engir á sjó í
dag, enda ekki talið sjóveður í
gærkvöldi. Raunverulega er verk-
fall enn, þar sem ekki hafði verið
gengið formlega frá samningum
milli sjómanna og útgerðarmanna.
En ekki er nú um neinn teljandi
ágreining að ræða. Sjómenn gengu
að tilboðum útgerðarmanna hvað
fiskverð snerti með 66 gegn 28
atkvæðum, eú vildu fá þeirri
kröfu framgengt að vigt væri op-
in við höfnina allan sólarhringinn.
Að þeirri kröfu höfðu útgerðar-
menn ekki gengið í gærkvöldi, en
gert gagntilboð varðandi vigtina.
bátar frá Uöllandi. Líka þeir all-
ir vel, enda hafa Ilollendingar
langa og giftudrjúga reynslu að
baki um byggingar stálskipa. Hafa
byggt alla sína stærri fiskibáta úr
stáli síðan á ‘öðrum tug þessarar
aldar.
Stálbátar táldir heppilegir.
Bátarnir fengu báðir aftaka veð-
ur á heimleiðinni, reyndust hin
beztu sjóskip. Þeir eru rafsoðnir
í vatnsþéttum hólfum og er að
því mikið öryggi, þegar bruna, eða
leka ber'að höndum í rúmsjó.
Áhugi útgerðarmanna fyrir stál
bátum er nú mjög vaxandi bæði
hér á landl og víðar. Stafar það
ekki sízt af því, að viðhaldskostn-
aður þeirra er talinn miklu minni
en tréskipanna, en auk þess eru
menn áhyggjufullir vegna þurra-
fúans, sem nú gerir í vaxandi mæli
vart við sig t' eikarbátunum og tal
inn er stafa af því, að ekki er fá-
anleg lengur til skipasmíða eik af
þeirri gerð, sem heppilegust er
talin, hvað aldur snertir.
Tveir íslenzkir aðilar búa sig
nú undir það að byggja fiskiskip
úr stáli. Eru það Stálsmiðjan og
Landssmiðjan, sem mikla reynslu
hefir í byggingu fiskibáta úr tré.
Eru skepnurnar og
heyið tryggt?
McCarran-lögunum
verði breytt
Washington, 8. febrúar. — Eisen-
hower foi'seti hefir sent þinginu sér
stakan boðskap, þar sem hann hvet-
ur til breytinga á innflytjcndalögun
um. Eru þær helztar, að innflytj-
endatalan verði hækkuð úr 166 þús.
upp í 220 þús. árlega, dregið verði
úr ýmsum ráðstöfunum sem tryggja
áttu öryggi Bandarkjanna, t. d. verði
hætt að taka fingraför manna er
koma til stuttrar dvalar i Iandinu.
Dómsmálaráðherra 1 verði einnig
fengið meira vald til að ákveða i
einstökum tilfellum, hvort einhverj-
um skuli veitt dvalar- eða landvist-
arleyfi í Bandaríkjunum.
Ný réttarrannsókn
í Klakksvíkurmálinu
Landsrétturinn í Færeyjum
kemur saman í byrjun marzntán-
aðar og rannsakar að nýju mál
hinna átján Klakksvíkurbúa, sem
dæmdir voru fyrir hlutdeild í róst
unum þar í vetur. Yfir tuttugu ný
vitni verða yfirheyrð og er búizt
við að ýmislegt komi fram, sem
varpi nýju ljósi yfir deiluna í
heild.
Aðils.
Malakkaskagi verður
samveldisland
Lundúnum, 8. febr. — Lokið er
í Lundúnum ráðstefnu fulltrúa
ríkjanna á Malakkaskaga og
brezkra yfirvalda. Fallast Bretar á
að sambandslýðveldið á Malakka-
skaga fái fullt sjálfstæði innan
brezka samveldisins ekki síðar en
í ágúst næsta ár. Malajar skuli þá
sjálfir leggja til hermenn til land-
varna og baráttu gegn kommúnist-
um, en yfirhershöfðinginn verður
brezkur. Bretar fara fyrst um sinn
með utanríkismál og hafa rétt til
herstöðva í landinu.
Ný hljómplata
Filadelfíukvartettinn í Reykjavík syngur:
Hvar er mitt barn
Hve ljúft það nafnið
Fæst hjá Filadelfíu, Hverfisgötu 44, Reykjavík, og
Hljómplötudeild Fálkans, Laugaveg 24, Reykjavík.
Frá Byggingasamvinnu-
félagi Reykjavíkur
Miðhæð og rishæð hússins Bakkagerði 1 hér í bæ er
til sölu — Húsið er byggt á vegum félagsins og eiga
félagsmenn forkaupsrétt að því, lögum samkvæmt.
Þefr, sem vilja nota forkaupsréttinn, skulu senda skrif-
legar umsóknir til félagsstjórnarinnar fyrir 14. þ. m.
Félagsstjórnm
Afengisvarnaráð
hefir fengií nýtt símanúmer
82405
S$$S$Í$*?Í3$SSSSSSSSSSS$SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS$SSSSSSSSSSSS$$SSSS$SSS$
Stórt fyrirtæki hér í bæ óskar að ráða til sín stúlkur
til skrifstofustarfa. Verzlunarskólamenntun eða hlið-
stæð menntun nauðsynleg. Góð byrjunarlaun. Umsókn
með upplýsingum og mynd, sem endursendist, sendist
blaðinu fyrir hádegi n. k. laugardag merkt „Vand-
virkni“.
^ssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssei
Reglusaman mann
vantar á næturvakt.
Afgreiösla TÍMANS
Sími 2323.
Unglinga
vantar til að hera blaðið út til kaupenda í
Rauðarárholt.
Afgreiösla TÍMANS
Sími 2323.