Tíminn - 22.03.1956, Page 7
TíMINN, fimmtudaginn 22. marz 1956
7
HeiEdaráætlun um framkvæmdir úti á landi
á að verða til á nokkrum árum
nm
stuSœing við einstakar framkvæmdir
í gær var hér í blaðinu rakið aðalefni frumvarpsins um
ráðstafanir til að auka jafnvægi í byggð landsins, er þeir
hafa samið Gísli Guðmundsson alþingishíaShr og Gísli Jóns-
son alþm., og lagt var fram á Alþingi 1 fyrradag.
í greinargerð þeirri, er þeir láta
fylgja frv., koma fram ýmsar at-
hyglisverSar upplýsingar um mál-
ið allt og athuganir þær, sem þing
mannanefndin lét gera til undir-
búnings málinu. Hér er um að
ræða mjög þýðingarmikið málefni
fyrir þjóðfélagið í heild. Þykir
Tímanum því rétt að birta megin-
efni greinargerðarinnar.
„.... MeS bréfi ríkisstjórnarinnar,
dags. 29. júní 1954, var undirrituð-
um „með skírskotun til þingsálykt-
unar, sem samþykkt var á Alþingi
hinn 4. febrúar 1953, um undirbún-
ing heildaráætlunar í þeim titgangi j
að skapa og viðhalda jafnvægi í
byggð landsins" — falið að „vinna
að undirbúningi og semja heildar-
áætlun um framkvæmdir í þeim
landshlutum, sem við erfiðasta að-
stöðu búa sökum erfiðra samgangna
og skorts á raforku- og atvinnutækj-
um, samkvæmt því, sem lagt er til í
þingsályktuninni."
Fyrsta fundinn héldum við 12.
júlí 1954, en höfum nú haldið
samtals 44 fundi. Fundarstað höf-
um við haft í alþingishúsinu.
Starfsmenn höfum við ekki haft,
en Framkvæmdabanki íslands hef-
ir unnið fyrir okkur úr ýmsum
gögnum, sem aflað hefir verið.
.Skrifstofa Alþingis hefir séð um
vélritun og útsendingu bréfa. Höf-
um við yfirleitt reynt að haga svo
störfum, að ekki yrði af þeim stór-
felldur kostnaður fyrir ríldssjóð,
a. m. k. ekki á fyrsta stigi málsins,
. á meðan það enn hlaut að vera
nokkuð í óvissu livernig vinna
skyldi að verkinu.
Verkefnið.
Um verkefni það, sem okkur var
falið, þykir rótt að fara nokkrum
orðum. Það var, eins og í erindis-
bréfinu stendur, að undirbúa og
semja (heildar)áætlun um fram-
kvæmdir í þeim landshlutum, sem
við erfiðasta aðstöðu búa af sér-
stökum nánar tilgreinduifl orsök-
um, þ. e. vegna erfiðra samgangna
og skorts á raforku og atvinnu-
tækjum. Jafnframt var það fram
tekið, að tilgangurinn með því að
undirbúa og semja slíka fram-
kvæmdaáætlun væri sá að „skapa
og viðhalda jafnvægi í byggð lands
ins“. Af almenningi mun verkefn-
ið yfirleitt hafa verið skilið svo,
að okkur væri ætlað að benda á
leiðir til að skapa þetta jafnvægi
og viðhalda því. Sjálfir reyndum
við þegar í öndverðu að hafa störf-
um þannig, aö ætla mætti að þau
gætu orðið að gagni, livort sem
um væri að ræða að gera tillögu
um sérstakar ráðstafanir, áætlanir
eða heildaráætlun þá, sem nefnd
er í erindisbréfinu og ályktun Al-
þingis.
1 erindisbréfinu var okkur sór-
staklega fálið að hafa „samráð við
Fiskifélag íslands, Búnaðarfélag
Islands og Landssamband iðnaðar-
manna eftir því, sem ástæður
þykja til." Þegar á fyrsta fundi
var ákveðið að skrifa þessum að-
ilum og í bréfi, sem þeim var ritað
13. júlí 1954, var m. a. leitað álits
þeirra um nánari skilgreiningu á
landshlutum samkvæmt þingsálykt
uninni A. febrúar 1953. Ekki bár-
ust ákveðin svör um það atriði,
en hins vegar gagnlegar upplýsing
ar og greinargerðir um margt, sem
, máli skiptir, einkum frá Búnaðar-
félagi Jslands.
Gögn og álifsgerðir.
Störf okkar hafa aðallega verið
í því fólgin að safna gögnum og
leita álita. Skal nú liins helzta
getið:
1. Skýrsla frá Hagstofu íslands
um fólksfjölda í núverandi hrepp-
um, sýslum~ög kaupstöðum árin
1910, 1920, 1930, 1940 og 1953 á-
samt útreikningi um fjölgun eða
fækkun, %, á hyerjum stað.
Skýrsla þessi er gleggsta heimild-
in um breytingu þá, er orðið hefir
til ójafnvægis í byggð landsins um
nokkra áratugi, og fylgir hún grein
argerð frumvarpsins.
2. Svör Búnaðarfélags íslands,
Fiskifélags íslands cg Landssam-
bands iðnaðarmanna, þau er íyi'r
voru nefnd, ásamt skýrslum og á-
bendingum, er í þeim felast. Þá
var og leitað álits Iðnaðarmála-
stofnunarinnar um ýmis nánar til-
greind atriði varðandi möguleika
til iðnrekstrar í dreifbýlinu og á-
lit hennar í té látin.
3. Skýrslur og greinargerð frá
landnámsstjóra, m. a. um eyðijarð-1
ir og nýbýlamál.
4. Skýrslur um skiptingu útlána, |
fastra lána og lausra árið 1954, !
eftir sýslum og: kaupstöðum, svo ,
og um ríkisábyrgðir og greiðslur,
ríkissjóðs af ríkisábvrgðarlánum. ■
Skýrslur þessar. eru frá bönkum,
ríkissjóði og ýmsum opinberum
sjóðum og stofhunum. Höfum við
látið vinna úr skýrslum þessum
heildarskýrslu til bráðabirgða um
skiptingu fastra lána og lausra eft
ir sýslum og kaupstöðum.
5. Skýrslur um meðaltal skatt-
skyldra tekna einstaklinga pr. ibúa
í hverjum hreppi og kaupstað árin
1952 og 1953. Skýrslur þessar eru
gerðar af Hagstofu íslands.
6. Yfirlit um áætlaðan koslnað
við rafvæðingu þess hluta landsins
er ekki hafði rafmagn 1. jan. 1955.
Yfirlitið er frá raforkumálastjóra.
7. Greinargerð um hafnar- og
löndunarskilyrði ívrir togara á
Austfjörðum, Norðurlandi og Vest
fjörðum. Greinargerð bessi, eins
og hún nú liggur fyrir, er tekin
saman af Iðnaðarmálastofnuninni
í sambandi við athugun á skilyrð-
um til fiskiðnaðar. En í smíðum
er hjá vitamálastjóra fyllri skýrsla
um hafnir og fyrirhugaðar hafnar-
framkvæmdir og áætlaðan kostnað
við þær.
8. Skýrsla um vegakerfi landsins
og lausleg áætlun um kostnað við
að ljúka uppbyggingu þess. Skýrsl-
an er frá vegamálastjóra.
9. Skýrslan um símakerfi sveit-
anna ásamt áætlun um kostnað við
Hreppar, þar sem fólks-
fækkunin er meiri en 50%
Fróðárhreppur 68,3%
' Helgafelissveit 55,1%
Skógarstrandarhreppur 52,0%
Hörðudalshreppur 50.3%
Haukadalshreppur 51,2%
Skarðshreppur 59,6%
Flateyrarhreppur 55,2%
Rauðasandslireppur 59,6%
Ketildalahreppur 61%
Auðkúluhreppur 72,8%
Ögurhreppur 63,7%
Reykjafjarðarlireppur 55,6%
Nauteyrarhreppur 61,5%
Snæfjallahreppur 77.6%
Grunnavíkurhreppur 72,6%
Sléttuhreppur 100%
Hrófbergshfeppur 59,4%
Engilílíðarhreppur 59,2%
Vindhælislireppur 53,8%
Skefilsstaðahreppur 57,9%
Fjallahreppur 53,1%
Sauðaneshreppur 60,6%
Loðmundarfjarðarhrepp. 79,2%
Mjóafjarðarhreppur 51,9%
Helgustaðahreppur 55,9%
Bæjarhreppur 55,3%
Mýrahreppur 51,6%
Grafningshreppur 50,5%
sínialagnir til býla, sem ekki hafa
síma. Skýrsla þessi og áætlun cr
frá póst- og símamálastjóra og
sundurliðuð eftir hreppum og sýsl
um.
10. Skýrsla verðgæzlustjóra um
verð nokkurra helztu vörutegunda
á einstökum verzlunarstöðum.
Bréf til sveitastjórna.
Skýrslur þær og greinargerðir
sem getið er hér að íraman, bárust
okkur flestar síðari hluta árs 1954
og fj^rri hluta árs 1955. Hinn 15.
júní var svohljóðandi bréf fjöl-
ritað og sent 184 sveitastjórnum:
„Reykjavík, 15. júní 1955.
Ríkisstjórnin hefir falið undirrit-
uðum að vinna að áætlun um
„framkvæmdir í þeim landshlut-
um, sem við erfiðasta aðstöðu búa
sökum erfiora samgangna og
skorts á rafmagni og atvinnutækj-
um“, sbr. ályktun Alþingis 4. febr.
1953 um „undirbúning heildará-
ætlunar í þeim tilgangi að skapa
og viðhalda jafnvægi í byggð lands
ins." Með tilliti til þess verkefnis,
sem okkur er falið, höfurn við iát-
ið gera ýmiss konar skýrslur, þar
á meðal um mannfjölda og eyði-
jarðir. Mannfjöldaskýrslurnar eru
byggðar á manntölum 1910, 1920,
1930, 1940, 1950 og 1953. Ef íbúa-
tala í hreppi yðar árið 1953 er
borin saman við hæstu íbúatölu
tímabilsins 1910—1950, kemur í
ljós, að ibúum hreppsins hefir
fækkað um ....%. Eyðijarðir í
hreppnum voru .... í fardögum
1952.
Með tilvísun til þess, sem að
framan greinir, viljum við hér með
fara þess á leit, að þér svarið eft-
irfarandi spurningum:
1. Hver var íbúatala hreppsins við
manntal 1954?
2. Hefir orðið breyting á tölu eyði-
jarða síðan í fardögum 1952,
og þá hver?
3. Hafa verið byggð nýbýli í
hreppnum siðan 1936, og þá
hvenær? Eru nokkur þeirra í
eyði.
4. Hverjar teijið þið meginorsakir
til fólksfækkunar í hreppnum?
5. Eru, að óbreyttum framleiðslu-
og atvinnuskilyröum, líkindi til
þess, að íbúatala hreppsins fari
enn lækkandi? Ef svo er, hvaða
ráðstafanir eru þá, að yðar
dómi, hentugastar og viðráðan-
legastar iil að koma í veg fyrir
fólksfækkun?
6. Hver væri, að yðar dómi, hæfi-
leg íbúatala í hreppnum, miðað
við þá nytjun lands eða annarra
náttúrugæða, sem þér teljið
hæfilega og framkvæmanlega
innan 5—10 ára?
7. Væri það, að yðar dómi, til
hagsbóta fyrir hreppinn sem
heild, að eyðijarðirnar, allar
eða einhverjar, yrðu byggðar á
ný? Hverjar? (í þessu sambandi
getur t. d. þurft að athuga land-
X’ými til fjárbeitar).
8. Er hægt að fjölga jörðunum
með stoínun nýbýla, og þá hve
margra?
9. Er hægt að auka framieiðslu- og
atvinnumöguleika í hreppnum á
annan hátt en með eflingu land-
búnaðar og þá hvérnig?
10. Getið þér að öðru leyti bent
á hentugar, og að yðar dómi
viðráðanlegar ráðstafanir til að
skapa sæmileg afkomuskilyrði
fyrir vaxandi tölu íbúa í
hreppnum?
11. Á hvaða úrræði, sem vikið er
að hér að framan, viljið þér
leggja mesta áherzlu?
Hvers konar upplýsingar aðrar
eða tillögur, sem þér teljið rétt
að láta okkur í té og miðað geta
að því að skapa og viðhalda jafn-
vægi í byggð landsins, eru þakk-
samlega þegnar.
Svör yðar óskast send svo fljótt
sem þér hafið tök á, helzt fyrir lok
júlímánaðar þ. á.
Virðingarfyllst."
Eins og bréfið ber með sér var
það sent sveitarstjórnum í öllum
þeim hreppum, þar sem íbúar voru
færri árið 1953 en þeir höfðu ein-
hvern tíma áður verið samkvæmt
manntali 1910—50 eða jörð eða
Grænlendingum veiðitækni hagnýtari
en söguþekking
ÁlititS að nýtt kuldatímabil sé at> hefjast þar
Það væri mjög óheppilegt, ef Grænlendingar gleymdu
meS öllu hinum gömlu veiðiaðferðum sínum, sagði dr. phil.
Jörgen Troels-Smith á fundi Grænlandsfélagsins fyrir
skömmu, þar sem hann hélt fyrirlestur um gamla og nýja
menningarhætti eskimóa á Grænlandi. Að hans áliti væri
betra fyrir Grænlendinga nútímans, að læra að fara með
húðkeip (kajak) að hætti forfeðra sinna, en þótt hann lærði
eitthvert hrafl í mannkynssögu.
jarðir í eyði í fardögum 1952 sam-
kvæmt skýrslum landnámsstjóra.
Nú í lok febrúarmánaðar 1956
hafa okkur borizt svör frá 105 af
þeim 184 sveitarstjórnum, sem
skrifað var 15. júní 1955. Á síðast-
liðnu hausti var gert yfirlit um
efni þeirra svara, er þá höfðu bor-
izt. Jafnframt höfum við haft til at
hugunar hina fjölrituðu skýrslu at
vinnumálanefndar ríkisins um at-
vinnulíf, framkvæmdir o. fl. í bæj-
um og þorpum, sem send var al-
þingismönnum og ríkisstjórn á sín-
urn tíma.
Hcildaráætlun ekki tímabær.
Nú í vetur höfum við gert nokkra
heildarathugun á gögnum þeim,
sem við nú höfum í höndum sam-
kvæmt framansögðu og því, sem
úr þeirn hefir verið unnið. Við þá
athugun höfum við komizt að
þeirri niðurstöðu, að ekki sé tíma-
bært að svo stöddu og við þau
starfsskilyrði, sem fyrir hendi
hafa verið, að gera tilraun til að
semja heildaráætlun þá, sem þings
ályktunin frá 4. febrúar 1954 ger-
ir ráð fyrir. Við erum þeirrar skoð
unar, að til þess að hægt sé að
semja slíka áætlun, svo að hún
komi að verulegu gagni, þurfi að
koma á fót fastri, skipulagðri starf
semi við skýrslu- og áætlunargerð
með aðstoð ríkisstofnana, sem afla
upplýsinga hver á sínu sviði og
hafa sérfróða menn í þjónustu
sinni. Við teljum, að gögn þau, er
safnað hefir verið, séu mikilsverð
undirstaða slíkrar starfsemi í byrj-
un og veiti margs konar upplýsing-
ar um, hvernig þeirri starfsemi
skuii haga. Hins vegar lítum við
svo á, að athuguðu máli, að rétt sé
og aðkallandi, að ríkisvaldið geri
nú þegar sérstakar ráðstafanir,
sem séu til þess fallnar að stuðla
að jafnvægi í byggð landsins, og
að ekki sé ástæða til að draga að
hefja slíkar ráðstafanir, þangað til
heildaráætlun er tilbúin um „fram
kvæmdir í þeim landshlutum, sem
við erfiðasta aðstöðu búa sökum
erfiðra samgangna og skorts ,á raf
orku og atvinnutækjum". Við
hyggjum það eðlilega framvindu í
því máli, að slík heildaráætlun
verði til smám saman á nokkrum
árum, og byggist þá að sjálfsögðu
á minni áætlunum um framkvæmd
ir á takmörkuðum sviðum eða
svæðum. Að þessu verða sérfróðir
menn að vinna, a. m. k. að ein-
hverju leyti. Þeir, sem að því
vinna, munu a. m. k. stundum
þurfa að dvelja um lengri eða
skemmri tíma á þeim stöðum, sem
hlut eiga að máli, og hafa samráð
við sveitarstjórnir eða íbúa hlut-
aðeigandi byggðarlaga. En jafn-
frarnt því, sem unnið er að heild-
aráætlun eða einstökunx þáttum
hennar, cr nauðsynlegt að hefjast
þegar handa með stuðningi við ein
stakar framkvæmdir eða aðrar um-
bætur, sem auðsætt þykir að stuðli
að jafnvægi og að vera muni í sam
ræmi við áætlanir, sem búið er að
gera eða unnið er að.
Stofnun framkvæmdasjóðs.
Samkvæmt þessu sjónarmiði
skrifuðum við ríkisstjórninni 3.
jan. s. 1. og lögðum til, að lagt yrði
fram nokkurt fé til stofnunar fram
kvæmdasjóðs í því skyni að stuðla
að jafnvægi í byggð landsins, og
gátum þess jafnframt, að við
rnyndum innan skamms senda rík-
isstjórninni frumvarp til laga um
starfsemi slíks sjóðs. Samkvæmt
tillögu ríkisstjórnarinnar hefir A1
þingi síðan heimilað ríkisstjórn-
inni að verja allt að 5 millj. kr. af
greiðsluafgangi ríkissjóðs árið
(Framh. á 8. síðu.)
Fyrirlesarinn kvað það stað-
reynd, að sjávarhiti færi lækk-
andi við strendur Grænlands og
jöklarnir færu vaxandi síðari árin.
Kuldatímabil að hefjast.
Hann taldi mjög margt benda
til þess, að kuldatímabil færi í
hönd á Grænlandi og öðrum norð
lægum löndum. (Það virðist lítið
verða vart við slíkt hér á íslandi)
Kuldinn mundi leiða til þess, að
fiskurinn, sem nú gengur inn í
firði Grænlands hyrfi þaðan. Þá
myndi aftur verða mikil not fyrir
húðkeipana og hinar gömlu veiði-
aðferðir. Grænlendingar ættu allt-
af að vera sjálfkjörnir sigurvegar-
ar í keppni á húðkeipum á Ólym-
píuleikunum.
Lífsbaráttan var hörð.
Hann kvað það gott, ef unnt
væri að finna leiðir til að fiski-
menn gætu fylgt fiskinum eftir á
þessum slóðum og sumir teldu að
það væri hægt. Allir myndu þó
ekki geta þetta. Saga norrænna
manna á Grænlandi væri athyglis-
verð. Þegar loftslag kólnaði, tor-
tímdust þeir í samkeppninni við
eskimóana, sem lifðu af og áttu
þann sigur að þakka betri veiði-
tækni við þau skilyrði, sem græn-
lenzk náttúra hefir upp á að bjóða.
(Úr Informationen)
Kaupmannahöfn, 12. marz.
íslendingafélagið hélt íslend-
ingamót laugardagskvöldið 10.
marz. Formaðurinn, Höberg Peter-
sen, setti mótið mcð ræðu og lýsti
því yfir, að Þorfinnur Kristjánsson
prentari og ritstjóri hefði verið
kjörinn heiðursfélagi íslendinga-
félagsins fyrir 28 ára starf í þjón-
ustu félagsins. Þorfinnur Krist-
jánsson er fæddur í Reykjavik
fyrir um það bil 70 árum og dvaldi
þar öll æskuár sín. Hann lærði
prentiðn í Reykjavík, en gerðist
svo ritstjói'i „Suðurlands" á Eyrar-
bakka. Nokkru eftir að hann hætti
því, fluttist hann til Ilafnar og
hefir dvalizt þar síðan. Á mótinu
flutti Aðalgeir Kristjánsson cand.
mag. erindi um Víga-Hrapp. Erik
Sjöberg söng við mikla hrifningu
— einnig sagði hann fi'á kynnum
sínum við þá félaga sína við Kon-
unglega leikhúsið, Einar Kristjáns-
son og Stefán íslandi. Þorfinnur
þakaði hrærður fyrir þann heiður,
sem honum hafði verið sýndur.
Helgi Þórðarson, fornx. fclags ísl.
stúdenta í Höfn, færði Þorfinni
þakkir fyrir hönd stúdentafélags-
ins, svo og þeir Ármann Kristjáns-
son og Ólafur Albertsson, sem
færðu Þorfinni þakkir fyrir ágætt
samstarf á liðnum árum. Fundur-
inn þakkaði Þorfinni sérstaklega
fyrir ritstjórn hans á blaðinu
„Heima og erlendis", svo og fyrir
stöx'f hans og stjórn á „Islandsk
Pi-essebureau". Þorfinnur hefir
unnið dyggilega að því að hjálpa
fjölmörgum íslendingum til að
komast til íslands og heimsækja
landið, sem margir þeirra höfðu
ekki séð í áratugi.
Að loknum fundinum var dans-
að að venju fram yfir miðnætti.
Aðils.