Tíminn - 28.03.1956, Side 2
T í M I N N, miðvikudaginn 28. marz 1956,
Frv. uia aívinmíleysistryggingar samþykkt
H ilkrigöis- eg félagsmálaaeínd telur sér
ekki íært alS bera fram breytingartillögfir
þar sem frv. myndi fiá ekki ná afgreiíslu,
en |sá3 veeri samningsroí
3 amerískir lasasi
efaum í Bandarikjuaum. Þessiv
stúdentar fara: Mattiiías Á. Matt-
híesen, Örn Þór og Jón G. Tóm-
asson, allir eru þeir I iagadeild
háskólans. Hafa þeir félagar ann-
ast móttökur hinua amerísku
stúdenta meS mikiili prýði, ásamt
prófessor Ármanni Snievar og
Viihjálmi Þórhallssyni, stud. jur.
r-
Isleozkiim skák-
mönnum bo'ðið tii
I
Fær'ðu félaginu 60 bækur a'S gjöí.
3 íslenzkir laganemar fara vestur
Síðastliðinn laugardag komu 3 bandarískir lögfræði-
stúdentar hingað til iands á vegum Orators, Félags laga-i
aema í Háskóla íslands. Blaðamaður frá Tímanum spjallaðij
/ið þá félaga í gær og höfðu þeir ýmislegt a'ð segja. Þeir
róma allar móttökur hér á landi og báðu blaðið að flytjaj
illum þeim, sem greitt hafa götu þeirra, innilegt þakkiæti'
t'yrir gestrisnina. Þeir hafa mikið séð, en eiga margt eítir að
sjá og gera, þar sem þeir fara ekki til baka fyrr en 7. apríl. I
Þeir fara til Bessastaða í dag, en urn páskana er ráðgert að
peir fari flugleiðis til Akureyrar.
Þeir eru allir um það bil að Ijúka j
ögfræðiprófi við lagaháskólann í
\'ew York, og hyggjast þeii- allir
setja upp lögfræðiskrifstoíur að
prófinu loknu. Þeir eru mjög hrifn
:ir af öllum aðbúnaði við Háskólann,
en þeir búa á Nýja-Garði. Þeir hafa
tarið í tíma í lagadeildinni og
ikynnt sér þær kennsluaðferðir,
sem notaðar eru hér á landi, en
pær munu vera nokkuð frábrugðn-
ar kennsluaðferðum, sem olgeng-
astar eru vestra.
Gáfu Orator 60 bækur.
í gærkvöldi hélt Orator þeim hóf
1 Naustinu, og færðu hinir amer-
ísku gestir Orator að gjöf 60 bæk-
ur, sem allar fialla um lagakerfi og
lögfræði vestan hafs. Formaður
Oi’ators, Matthías Á. Mathíesen,
sagði blaðamanni Tímans frá því í
gær, að þetta gæti orðið vísir að
bókasafni Orators um lögfræðileg
“fni.
Lögfræðistúdentarnir segjast
bafa orðið hissa, þegar þeir stigu
hér út úr flugvélinni, því að á
laugardagsmorguninn var sól og
blíða, en þegar þeir fóru frá New
York, var snjór og kuldi. Þeir íuvða
sig á öllum amerísku bílunum, ný-
tízku húsum og vélunum.
Þrír stúdentar fara vestur.
Þann 13. apríl niumi þrír ís-
lenzkir laganemar fara vestur og
heimsækja lagaháskólann í New
York og kynnast mönnum og mál
I íyrraaag var frv. um atvinnuleysistryggingar afgreitt sem
iög í efri deild Alþingis. Heilbrigðis- og félagsmálanefnd deild-
arirmar rnælti með því, að frv. yrði samþykkt og hafði Karl
Kristjánsson framsögu fyrir áliti nefndarinnar. Karl Krist-
jánsson sagði m. a., að öll neíndin hefði verið sammála um,
ao í frv. mæíti margt beíur fara, en teldi sér ekki fært að
leggja fram breytingartillögur, þar sem þá yrði mjög vafa-
samt, að frv. næði axgreiðslu á þessu þingi, en það væri samn-
ingsrof, þar sem ríkisstjórnin lofaði við lausn verkfallsins
að leggja íram og afgreiða á þessu þingi frumvarp um at-
vinnuleysistryggingar.
ast fátækramál byggðanna og hafa
af þeirri ástæSu öðrum betri skil-
yrði tii þess að vita hvar þörfin er
mest.
Óheppileg skipting sjóðsins.
Framsögumaður taldi miög ó-
heppilegt, að atvinnuleysistrygg-
ingasjóðnum skuli nálega öíium
vera skipt í séreignir félaga, þar
sem það komi mjög ranglátlega
niður. Á þann hátt stuðli sjóður-
inn ekki að því jafnvægi í byggð
landsins, sem honum hafi verið
ætlað að gera og ætti að gera, ef
rétt væri að farið.
Karl kvað það skipta miklu máli,
að löggjöf þessi yrði endurskoðuð
að tveim árum liðnum og gæfist þá
tækifæri til að breyta því, sem af-
laga er nú í frv. að dómi allrar
nefndarinnar.
Karl taldi óeðlilegt, að hinir
tryggðu myndu ekkert greiða í
tryggingasjóoinn sjálfir. F.ins sagði
Karl, að það væri mjög óeðliiegt,
að sveitarstjórnir eigi ekki fuiltrúa
í úthlutunarnefnd bóta, — bæði
vegna þess, að sveitarsjóðir greiða
að einum fjórða iðgjöld til trygg-
inganna — og sveitarstjóniir ana-
Farþegarými í Akraborg er rúmgott, vist-
;t
Moskvu
Rússar ætla að tvö-
falda fiskveiðar
Moskvu, 27. mai-z. — Rússar hyggj-
ast tvöfalda fiskveiðar sínar fyrir
árslok 1960 miðað við árið 1955.
Munu þeir stórauka veiðarnar í
Berentshafi, norðanverðu Atlants-
hafi, Kyrrahafi og íshafinu. Þetta
hefir Moskvuútvarpið í dag eftir
sjávarútvegsmálaráðherra Rússa,
Alexander Iskoff, sem fyrir
skömmu heimsótti Noreg sem for-
maður sérfræðinganefndar, er
kynnti sér fiskveiðar Norðmanna.
Sagði ráðherrann að fiskiflotinn
yrði endurnýjaður og byggð stór
nýtízku fiskiskip. Véltækni við
fiskveiðarnar sjálfar myndi og stór
auka aflamagnið.
Afhending verðlauna í Guðjóns-
mótinu fór fram í Þjóðleikhúss-
kjallaranum í fyrrakvöld. Meðal
I gesta í hófinu var rússneski am-
j bassadorinn hér á landi. Elís Ó.
j Guðmundsson stjórnaði hófinu, en
j Guðmundur Arniaugsson afhenti
j fjórum fyrstu mönnum á mótinu
peningaverðlaun, en auk þess fengu
! rússnesku skákmeistararnir tvær
j bækur hvor, og Taimanov voi’u færð
j öll tór.verk Hailgríms Helgasonar.
j Sigurður Jónsson, formaður Skák-
sambandsins og Guðmundur S. Guð
mundsson, form. TR, fluttu ræður,
en Taimanov þakkaði af hálfu Rúss
anna. Meðal annars bauð hann rs-
lenzkum skákmönnum á Ólympíu-
skákmótið, sem háð verður í Mosk-
vu í september. Þá voru ýms
skemmtiatriði. Guðmundur Jóns-
son, óperusöngvari ,söng nokkur
lög við mikla hrifningu og Taim-
ancv lék á píanó nokkur verk, en
hann er frábær píanóleikari, sem
hefir haldið hljómleika víða og
hlotið góða dóma. Hófið fór hið
bezta fram, en það var haldið til
heiöurs rússnesku skáksnillingun-
um.
Sveit Brynjólís eíst
Eftir fimm umferðir í meist-
aramóti íslands í bridge er sveit
Brynjólfs Stefánssonar efst með
8 stig. Næst er sveit Harðar Þórð-
arsonar með 7 stig og svo sveitir
Ingvars Helgasonar og Ármanns
Jakobssonar með 6 stig.
Sjötta umferð var spiluð í gær-
kveldi og sjöunda og síðasta um-
ferð verður spiluð í dag.
Stjórn Skallagríms bauð ríkisstjórn og fleiri gestum a'ö’
skoða hinn nýja flóabát Akraborg í gær. Fór skipið sína fyrstu
ferð upp á Akranes í gærkveldi og mun fara fyrstu ferðina
til Borgarness á morgun. Síðan mun skipið hefja fastar
áætlunarferðir.
Sverrir Gíslason, formaður stjórn
ar Skallagríms, rakti í gær sögu
félagsins, sem átt hefði hina fyrri
flóabáta, Laxfoss og Suðirrland,
Með komu þessa nýja og vandaða
skips skapazt betri aðstaða en
nokkru sinni hefir verið fyrir hendi
til að reka vel farþega- og vöru-
flutninga milli Reykjavíkur, Akra-
ness og Borgarness.
Gísli Jónsson, alþingismaður,
rakti síðan byggingarsögu skipsins
sem varð tafsamari en upphaflega
stóð til. Sagði hann, að skipið væri
vel vandað. Fer vel um farþeganna
í hinum rúmgóðu sölum. Skipið er
nokkru stærra, en Laxfoss var, eða
357 brúttó smálestir.
Skipið er iitbúið sem farþega-
vöru- og olíuflutningaskip, og get-
ur flutt 250 farþega, 95 tonn af
vörum í tveimur farmrúmum og 76
af olíu, auk 5 bifreiða á þilfari.
í skipinu eru 2 salir fyrir far-
þega. Efri salur á þilfari með 7
borðum og sætum fyrir 34 farþega.
Neðri salur með 10 borðum og 50
sætum. Auk þess eru 4 farþega-
herbergi, þrjú 2ja manna og eitt
4 manna. Sætum má breyta í hvíl-
ur, svo að alls verða 38 svefnhvílur
í skipinu. Sérstakur sjúkraklefi er
í skipinu og er gengið í hann frá
aðalþilfari að aftan.
Allir salir og herbergi eru gerðir
ýmist af póleruðu birki eða ma-
hogny, og húsbúnaður allur og á-
klæði af beztu tegund.
Ibúðir skipverja eru góðar og
vistlegar.
Dr. Kristinn Guðmundsson, sam-
göngumálaráðherra, árnaði eigend
um hins nýja skips til heilla með
hinn glæsilega farkost og bar fram
þ’á ósk að skipið msétti í alla staði
verða happaskip, bæði fyrir eigend
ur og þá, sem þess eiga að njóta.
Skipstjóri á hinu nýja skipi er
Þórður Guðmundsson. 1. stýrimað-
ur Guðjón Vigfússon, 2. stýrimað-
ur Gunnar Ólafsson. Vélstjói-i Ósk-
ar Valdimarsson, 2. vélstjóri Har-
aldúr Lúðvigsson.
Rússamir tefla
fjöltefli
Skákmeistari Sovétríkjanna,
Taimanov teflir fjöltefli við valið
lið 40 stúdenta úr ýmsum árgöng-
um í Sjómannaskólanum kl. 1,30 í
dag. Skráðir keppendur hafi með
sór töfl.
í kvöld og annað kvöld tefla
hann og Ilivitsky fjöltefli á sama
stað, og er öllum heimil þátttaka,
en menn verða að hafa með sér
töfl.
VetrarferS
(Framhald af 12. síðu.)
hlutverk, sem Katrín Thors leikur
í Vetrarferð nú.
Sýningum á Jónsmessudraumi
er að ljúka og einnig sýningum á
Varnarmálm
(Framhald af 1. s:3u.)
Rökstudd dagskrá.
Annar minnihluti utanríkismála
nefndar, Sjálfstæðismenn, vilja af-
greiða tillöguna með röksíuddri
dagskrá. Ber hún með sér að þeir
þora í hvorugan fótinn að stíga í
varnarmálunum, en vilja þó með
öllum ráðum tefja brottflutning
hersins. Kemur þar og fram hreinn
og beinn misskilningur eða mis-
túlkun á tillögunni.
Þriðji minnihlutinn, kommún-
istar, vill orða tillöguna á annan
veg og lýsa andúð á Atlantshafs-
bandalaginu.
Ðr. Krisíinn Guðmundsson, ut-
anríkisráðherra, tók einnig til máls.
Svaraði hann nokkrum spurning-
um, sem fram komu til hans í dag-
skrá þeirri, sem Sjáifstæðismenn
flytja um tillöguna.
Þjóðvarnarmenn fluttu þá breyt-
ingartillögu við tillögu Framsókn-
armanna og Alþýðuflokksmanna,
að fyrsta málsgrein hennar íélli
niður.
KJarnfræSaRðfnd
(Framhald af 12. sfðu.)
son, deildarstjóri Búnaðardeildar
Atvinnudeildar Háskólans, og með-
stjórnendur þeir Gísli Fr. „Peter-
sen yfirlæknir, Gunnar Böðvars-
son yfirverkfræðingur jarðhita-
deildar raforkumálastjórnarinnar
og Steir.grímur Jónsson rafmagns-
stjóri.
Sérstakar starfsnefndir.
Stjórn Kjarnfræðanefndarinnar
hefir þegar haldið nokkra fundi
og m. a. skipað undirnefndir til
að fjalla um sérstök svið innan
starfssviðs aðalnefndarinnar og
munu þær gefa aðalnefndinni
skýrslur um störf sín. Starfssyið
undirnefndanna og formenn beirra
eru:
1. Framleiðsla á þungu vatni;
formaður Jakob Gísíason, raforku-
málastjóri.
2. Orkumál (rafveitur, hitavéit-
ur); formaður Steingrímur Jóns-
son, rafmagnsstjóri.
3. Heilbrigðismál; formaður
Gísli Fr. Petersen, yfirlæknir.
4. Landbúnaðarmál; formaður
Halldór Pálsson déildarstjóri Bún
aðardeildar Atvinnudeildar Há-
skólans.
5. Iðnaðarmál; formaður Jóhann
Jakobsson deildarstjóri Iðnaðar-
deildar Atvinnudeildar Háskólans.
6. Almennar rannsóknir og und
irbúningur að stofnun rannsókna-
stofu; formaður Þorbjörn Sigur-
geirsson framkvæmdastjóri Rann-
sóknaráðs ríkisins.
Kjarnfræðanefndin er stofnuð
með vitorði ríkisstjórnar fslands,
og mun nefndin reglubundið gefa
henni skýrslu um störf sín.
Manni og konu. Alltaf er uppselt á
íslandsklukkuna, en sýningum á
henni lýkur bráðlega vegna starfa
leikara annars staðar. Þá eru tvö
ný leikrit í uppsiglingu og er ann-
að þeirra verðlaunaleikrit Tryggva
Sveinbjörnssonar, Spádómurini).
Jón Kristjánsson sigraði í 15 km.
göngu á skíðalandsmótinu í gær
Frá fréttaritara Tímans á ísaflrði í gær.
15 km. gangan á skíðalandsmótinu, fyrsta grein þess, fór
fram í Seljalandsdal í dag í indælu veðri, 10 stiga hita og
ágætu færi. Jón Kristjánsson frá HSÞ bar þar sigur úr býtum.
Gengnir voru tveir hringir,
hvor 7,5 km. 16 keppendur voru
skráðir til leiks, en 13 komu og
tveir luku ekki göngunni. Jón
Kristjánsson, Þingeyingur, sigraði
á 65 mín 45 sek. Næstur var Gunn-
ar Pétursson, ísafirði, á 65 mín og
57 sek. Þriðji Árni Höskuldsson,
ísafirði, 67 mín 12 selc. Fjórði Odd-
ur Pélursson, ísafirði á 68 mín 29
sek. Fimmti Stefán Þórarinsson,
Þingeyingur á 68 mín og 59 sek.
Elzti keppandinn var Pétur Pét-
ursson, ísafirði, 53 ára gamall, og
átii liann 20 ára gönguafmælt um
þetta leiti. Hefir hann gengið í
flestum kappgöngum á ísafirði
þessi 20 ár. Pétur er faðir Gunnars
og Odds. Timi Pétur var 88 min.
og 46 sek. Virtist hann alveg ó-
þreyttur.
í aldursflokknum 15—16 ára
voru fjórir keppendur og voru
gengnir tíu km. Fyrstur var Krist-
ján Benediktsson. ísafirði. á 47 mín
56 sek. Annar Atli Dagbjartsson
HSÞ á 49 mín og 56 sek. Þriðji
Bragi Hjartarson, Akureyri á 50
mín og 38 sek.
í flokknum 17—19 ára varð að
fresta keppni, því að tveir af fjór-
um keppendum voru ekki komnir
til móts. Fer sú ganga fram á laug-
ardag um leið og 30 km. gangan.
Kl. 5 í dag verður keppt í stökki
við skíðaskála Ármanns á Dag.
verð'ardal, en þar er ný braut sem
stökkva má í 45 metra.
í kvöld verður mótið sett á ísa-
firði. — G. S.