Tíminn - 15.04.1956, Qupperneq 6

Tíminn - 15.04.1956, Qupperneq 6
T f M I N N, sunnudaginn 15. apríl 1956. r Rithöfundurinn Arthur Köstler Útgefandi: Framaóknarflokkurinn. Ritstjórar: Haukur Snorrason. Þórarinn Þórarinsson (áb.). Skrifstofur I Edduhúsi við Lindargötu. Slmar: 81300, 81301, 81302 (ritstj. og blaðamenn), auglýsingar 82523, afgreiðsla 2323. Prentsmiðjan Edda h.f. Brugðið upp mynd SJÁLFSTÆÐISMENN og Þjóðvarnarmenn .eppast við að endurprenta um- mæli kommúnista um formann Alþýðubandalagsins, sem hefir Eengið það hlutverk að leiða auðtrúa sálir í kommúnistaher- búðirnar. Er á það minnt, að varaformanni Alþýðubandalags- ins og öðrum stórvezírum komm únista hafi þótt lítið til Hanni- bals koma, og talið hans ráð Elausturslegt og vanhugsað fram til þess er hann gerðist þeim handgenginn og var dubbaður upp í formann í fyrirtæki komm únistaflokksins, án þess að hafa prókúruumboð fyrir flokkinn. Þetta er nokkur fróðleikur allt saman, en rétt er að minna á, að fortíðin er fleiri stjórnmála leiðtogum en Hannibaí óþægur Ijár í þúfu, og nægir þar að mirina á „kollsteypuna" 1944, er formaður Sjálfstæðisflokks- ins leiddi- kommúnista upp í stjórnarráð og fékk þeim æðstu völd í mikilvægum málum, og svo má um leið gjarnan rifja upp samstarf kommúnista og Sjálfstæðismanna í verkalýðs- hreyfingunni. Sagan er lær- dómsrík og íhaldsmenn þurfa sannarlega að umgangast hana með varúð ekki síður en komm- únistar. MIKLU GLEGGRI og skýr- ari mynd af hlutverki Hanni- bals en hægt er að sjá í lang- lokum Mbl. og Þjóðvarnarblaðs- ins, er dregin upp í örfáum setn ingum í stórblaðinu New York Times á sunnudaginn var. Fréttamaður blaðsins sat á fundi með Brynjólfi Bjarriasyni og Edvarð Sigurðssyni og spurði Brynjólf margs um menn og málefni á íslandi. Aðeins einu sinni í öllu samtalinu brá fyrir glettni og brosi á stein- hörðu andliti þessa gamla komm únisfaforingja, segir fréttaritar- inn. Það var þegar hann var spurður um álit sitt á ummæl- um, sem höfð voru eftir vopna- bróður hans, 'Hannibal Valdi- marssyni, að hann mundi snúa kommúnistum fylkingarinnar til nýrrar trúar. Það lá við að Brynjólfur hlægi hátt, er hann heyrði þennan brándara, og svo hristi hann kollinn yfir heimsku sumra manna. SAGAN ER EKKI LENGRI en myndin er skýr. Kommúnist- ar viía hvað þeir vilja og þykj- ast reikna sín dæmi rétt. En ör- lög Hannibals minna á ferðir einfaldra og fljótfærinna trú- boða inn í myrkviði frumskóg- anna. Þeir héldu að orð postul- anna mundu fara fyrir þeim eins og eldstólpi og vernda þá fyrir mannanna grimmd. En sumir þeirra komu aldrei aftur út úr myrkrinu. Slóð þeirra er til viðvörunar og hefir minnt seinni tima menn á, að málóðir prédikarar fara fyrstir í pott mannætanna. Alit önnor tóntegund GREINAR ÞÆR, sem New York Times er um þessar mundir að birta um íslenzk stjórnmál, og æsmgaskrif Mbl. um samþykkt Alþingis í varnarmálunum, eru tvær lærdómsríkar andstæður. „Ályktun íslendinga lýsti í eðli sínu ekki fremur andúð á Bandaríkjunum eða Atlants- hafsbandalaginu, en t.d. á Sviss. Hefði kosningin staðið í milli Bandaríkjamanna og Rússa, er ekki neinum vafa undirorpið, að Banjlaríkin mundu hafa sigr- að með yfirgnæfandi (over- whelmingly) meirihluta“. Þetta hófsamlega og skynsam lega mat hins erlenda blaðs á atburðunum hér, minnir á um- mæli forustumanna Bandaríkj- anna um daginn, sem einnig voru í allt annarri tóntegund en æsingaskrif Sjálfstæðismanna. Það er því ekki út í hött, að segja, að Mbl. og forustumenn Sjálfstæðisflokksins séu að verða „amerískari en Ameríku menn“ í öllum málflutningi. Hrollur í „sjálfstæSisheijum^ jPN MBL LÆTUR ekki þar við lenda. Eftir að hafa heimtað að íslend- ingar leggðu sjálfsákvörðunar- rétt sinn í varnarmálinu í hend- ur erlendra þjóða og mælt fyrir hersetu um ófyrirsjáanlega Eramtíð, hvað sem líður yfirlýs- ingunum frá 1951 og aðstæðum i veröldinni, og gengið feti fram ar en nokkur ábyrgur aðili í Bandaríkjunum í öllu þessu, bætir það gráu ofan á svart með því að brígsla andstöðuflokki sínum í stjórnmálabaráttunni hér um kommúnisma. Þannig haga siðlausir áróðursmenn sér, þegar í óefni er komið og búið ar að knésetja þá í málefnaleg- um umræðum: Þú ert bölvaður kommúnisti, er síðasta hrópið i flóttanum. Morgunblaðið smíðar sér sjálft stökkpallinn til þess að geta steypt sér út í þennap áróð- ur. Það skrökvar ummælum upp á einn af þingmönnum Framsóknarflokksins og leggur síðan út af þeim í þeim anda, að flokksþing Framsóknar- manna, sem ^aarkað* ákveðaa afstöðu í innanlands- og utan- ríkismálum, hafi verið eins og „samkoma í einhverri kommún- istasellu". Hafa menn nú heyrt annað eins í opinberum mál- flutningi? Og þessi -hróp koma frá sama fólkinu, sem leiddi kommúnista inn í stjórnarráðið, í fyrsta og eina skiptið, sem þeir hafa þangað komið. ÞESSI SIÐLAUSU og jafn framt heimskulegu skrif Morg- unblaðsins munu' sprottin upp af hræðslu. Hræðsla peninga- kónganria og venzlafólk þeirra, að nú muni senn Ijúka vistinni við kjötkatla ríkis-, nefnda- og bankavalds, yfirskyggir dóm- greindina, hrekur Mbl. út í að skrökva ummælum upp á nafn greinda menn (og setja tilvitn- unarmerki utan um þau) og upp nefna andstæðinga sína. Hræðslufylking íhaldsins virð ist ekki vita sitt rjúkandi ráð. Stundum setur hroll að auðug- um mönnum á elliárum. íhaldið er farið að hugsa um „annað líf“ eftir kosningarnar, og því geðjast ekki að því, sem það sér. Hann steypti sínii skurSgoSi af stalli fiegar fyrir stríS, og Iiefir síSan manna mest varaS viS ofbeldisfiyggjn kommónismans Ætla mætti að maðttr, sem ritað hefir fjórar bækur um æviferil sinn, lýst þar skapferli sinu, tilfinningum og skoð- unum, hefði skilið eftir allskíra og fullkomna mynd af sjálfum sér og þeim persónuleika, sem hann býr yfir. Þetta er þó ekki með öllu víst. Oft og einalt hefir raunin orðið sú, livort heldur það er viljandi eða ekki, að sjálfsævisagan hefir verið notuð eins og eins konar reykský, sem hin eiginlega innri persóna rithöfundarins getur notað sér til skjóls og falið sig í. Vægðarlaus við sjálfan sig. Fáir eða engir rithöfundar vorra tíma hafa venð opinskárri um sjálf an sig en Arthur Köstler. Það virð ist sem enginn hafi ílett jafn vægðarlaust ofan af sjálfum sér, ef svo mætti að orði komast, en hann. Vart er heldur hægt að eí- ast um, að tilgangur hans hafi ver- ið annar en Sá að segja okkur sannleikann — allan sannleikann. Þó er það ætíð þannig, að sjálfs- myndir virðast ávallt vera gæddar einhverjum sérstökum og fremur afskræmandi eiginleikum. Við þekkjum til dæmis ofur vel ákveð- in svipbrigði í andliti Rembrandts, eins og þau birtast í sjálfsmyndum hans, en myndum við þekkja mann inn af þessum myndum, ef við mættum honum Ijóslifandi á göt- unni? í þessum bókum birtist Köstler sem fremur taugaóstyrkur hug- sjónamaður, gæddur kaldhæðnis- legu raunsæi, sem gáfaður andans maður, er berst við hin djúpu og róttæku öfl hins innra manns. Köstler er einkennilegt sambland af heimsrnanni og ungum skóla- pilti í stuttbuxum, snilling og barnalegum sjálfbirgingi, skörpum fræðimanni og tunguliprum sjón- hverfingamanni. Enginn efast þó um gáfur og hæfileika mannsins. Köstler er lítill maður vexti, með hrafnsvart, hrokkið hár. And- litið ber jöfnum höndum vott um þreytu og skerpu. Fáir rithöfund- ar vorra tíma hafa fengið nokkra svipaða reynslu af samtíð sinni eða lært jafn mikið af þeirri reynslu. Umbrotátíð æskuára. Arthur Köstler er Ungverji að uppruria, fæddur í Búdapest 5. september árið 1905. Hann hlaul menntun sína aðallega í Vínarborg. Á árunum 1926 til 1931 starfaði hann sem frét'taritari í Mið-Austur londum, Paxús og Berlín. Árið 1931 tók hann þátt í leiðangri Zeppelin gi-eifa til Suðurheimskautsins. Elt- ir það dvaldi hann í Rússlandi, og ferðaðist mikið þar og í Mið-Asíu. Árin 1936 til 1937 var hann írétta- ritari enska blaðsins News Chron- iele í Spánarstyrjöldinni. Það end aði með því, að Franco lét taka hann fastan og varpa honum í far.gelsi. Honum tókst þó að kom- ast undan til Suðui’-Frakklands, en þar tók þá ekki betra við, því að , Viehystjórnin lét þegar í stað : setja hann í fangelsi. Er hann losnaði úr þeirri prísund, gerðist hann liðsmaður í útlendingaher- j sveitinni frönsku í Afríku. Á ár- unum 1941 og 1942 er hann síðan hermaður í vinnusveitum brezka hersins. í ’ iSrieri baki við kommúnismanum I Þannig hefir æviferill Köstlers !verið í hæsta máta margbrotinn ■ og litríkur. Hann hefir verið flugu- I maður rússneska kommúnista- Tlokksins og bóndi meðal Gyðinga í eyðimerkurbyggðum Palestínu. Köstler sneri hins vegar baki við kommúnismanum og liefir ætíð síð an verið fremstur í flokki þeirra menntamanna og rithöfunda, sem harðast hafa barizt gegn yfirgangi kommúnismans og því, sem nefnt hefir verið hið alþjóðlega komm- únistasamsæri. Þeir eru fáir, sem hafa jafn mikilvæga reynslu að baki sér og eru betur færir um að taka sér þetta hlutverk fyrir hend- ur, og fáir hafa gengið til verks af jafn miklurn ötulleik. Komm- únistar hafa heldur ekki sparað nein meðöl til þess að reyna að þagga i-aust Köstlers, en án árang /JJP- 'ú t*i Mynd eftir Ilerbiock í Washington Post. Nafnið á fófstallinum er: Stalín. Arthur Köstler steypti sínu goði af stalli þegar fyrir stríð. Nú feta kommúnistaleiðtogar um víða veröld í fótsporið ARTHUR KÖSTLER urs. Jafnvel George Qnvell, brezki rithöfundurinn, sem nú er látinn, og var vinur Köstlers, hefir ekki jhaft rneiri áhrif en Köstler í þá átt nð vekja rithöfunda og mennía menn á vesturlöndum af þeim draumadansi, sem þeir hafa tekið þátt í með kcmmúnistum á undan- förnum árum. Franx á ritvöllinn 1939. Iíerferð Köstlers gegn kommún- istum hófst með útkomu fyrstu bókar hans árið 1939, sem var í skáldsöguformi og nefndist „The Gladiators“, en þar lýsir hann hinni smánarlegu niðurlægingu hinnar hugsæiskenndu uppreisnar- stefnu af mestu snilld með saman- burði á henni og þrælauppreisn Spartakusar. Ári síðar kemur út bókin „Myrkur um miðjan dag“, sem er ekki aðeins bezta skáldsaga Köstlers, heldur einnig að öllum líkindum bezta pólitíska skáldsag- an, sem rituð hefir verið á undan- fömum áratugum. Hið óvenjulega og þanda jafnvægi, sem gerir vart við sig í þessari bók, er nærri undravert, þegar tillit er tekið til þess, að tilgangur höfundarins var að sýna fram á þá vonzku og hat- rammlega eðli, sem fyrirbæri það ,er nefnt hefir verið „pólitískur kommissar", hlýtur að hafa í för með sér. Listamaðurinn í Köstler gerði bók þessa að ennþá skemmti legri frásögu en þetta viðbjóðslega mannfyrirbæri gefur tilefni til, því honum tekst að fá lesandann til. þess að sjá og skilja, að deilan millum hins unga kommissars og hins aldna, menntaða bolsévikka á sér djúpar rætur og verður ekki auðveldlega leyst með slagorðum hvors um sig. (Þessi saga er til á íslenzku). Síðan hefir Köstler ritað þrjár skáldsögur, og þó margt sé golt unx þær að segja, þá getur engin þeirfa talizt eins góð og „Myrkur um miðjan dag“. Auk þess hefir hann ritað fjöldann allan af grein- um og ritgerðum og hafa sumar þeirra verið gefnar út í bókar- formi, „The Yogi and the Comm- issar“ (1945) og „The Trail of the Dinosaur (1955), og vel má vera, að þegar tímar líða verði bessi rit- gerðasöfn talin rnestu afrekin á rithöfundarferli Köstlers. Snýr sér nú að mannúðarmálum. Köstler er nú að mestu hættur að rita um koinmúnisma. Hann telur að hann hafi nú lokið við að flytja heiminum boðskap sinn, að annað hvort hafi rithöfundar og aðrir menntamenn á vesturlönd uni þegar gert sér grein fyrir því, að kommúnisminn er þjóðhættuleg falskenning, eða að þeir muni halda áfram að daðra við hana og leika sér þar með að eldinum. Arthur Köstler hefir þó á engan hátt lagt rit.störfin á hilluna. Hann hefir nú snúið sér æ meir -að ýms- um mannúðarmálum, eins og t. d. afnámi dauðarefsingar í Bhetlandi, þar §em hann er nú búsettur og öðrum skildum þjóðþrifamálum, og þar sem annars staðar kemur skýrt fram hin óvenju mikla skarp skyggni og sterka tilfinning, sem gert hefir Köstler að einunx öflug- asta talsnxanni þeirra, sem unnið hafa að því að vara heiminn við hættunni, sem hor.um stafar af út- | breiöslu hinnar kommúnistísktt 1 kenningar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.