Tíminn - 09.10.1956, Page 5
T í M I N N, þriðjudaginn 9. október 1956.
5
Úr ræðu forsætisráðherra
109 ára í dag: Jón Þórðarson
frá Núpum í Ölfusi
(Framhald af 1. síðu.)
að gera til að koma í veg fyrir at-
vinnuleysi hvar sem er á landinu,
og spyrna jafnframt í gegn verð-
bólguþróuninni? Hann benti á, að
áherzla sú, sem stjórnin legði á
viðreisn úti á landi væri ekki að-
eins í þágu fólksins, sem þar býr,
heldur miðuðu við hagsmuni þjóð-
félagsins í heild. Ef til vill ætti
Reykjavík mest undir því komið,
að þessi viðreisn tækist. Öllu þjóð-
félaginu stafaði hætta af auknum
fólksflutningum til Reykjavíkur frá
framleiðslustöðvunum úti um land.
Nefndin hefði þegar skilað á-
liti til ríkisstjórnarinnar í frum-
varpsformi, um togarakaup sam-
kvæmt stjórnarsáttmálanum, og
uin staðsetningu skipanna í aðal-
atriðum. Myndi frumvarp þetta
þegar lagt fyrir Alþingi.
í framhaldi af þessu benti for-
sætisráðherra á, hverja þýðingu
það hefði, að þau atvinnufj'rirtæki,
sem í byggingu eru, gætu sem fyrst
tekið að framleiða gjaldeyíisverð-
mæti fyrir þjóðarbúið, svo sem fisk
vinnslustöðvar, sem hafist hafði
verið handa um á sl. ári án þess
að tryggt væri fjármagn til að
ljúka þeim. Við þeim arfi og mörg
um öðrum, tæki stjórnin, og væri
stórfelit vandamál, sem reynt yrðði
að greiða úr eftir öllum færum
leiðum.
Þá gat hann um störf nefndar,
sem fyrrv. landbúnaðarráðherra,
Steingrímur Steinþórsson . setti , á
stofn til að gera tillögur um fram
kvæmd aðkallandi verkefna land-
búnaðarins og boðaði að von mundi
á frumvarpi, sem runnið væri und-
an rifjum þessarar nefndar á næsta
Alþingi.
Umbætur í banka-
og innflutningsmálum
Forsætisráðherra gerði grein fyr
ir verkefnum bankamálanefndar,
sem nýléga var skipuð. Hann taldi
höfuðnausyn bera til fyrir þjóð-
félagið, að koma í veg fyrir að
hagsmunasamtök gætu svo komið
ár sinni fyrir borð, að þau hefðu
vald yfir aðalbönkum þjóðfélags-
ins. í þessari fallgröf hefði þjóðin
þó lent við núverandi bankalög-
gjöf, og þyrfti að endurreisa sjálf-
stæði bankanna. Enginn framsækin
ríkisstjórn gæti heldur horft upp
á það, að andstæðingar hennar
réðu bankapólitík landsins. Yrði að
vænta þess að bankamálanefndin
legði á það kapp að ljúka störfum
svo snemma, að núverandi Alþingi
gæti gert nauðsynlega bragabót í
bankamálum landsins.
Um fjölgun ráðsmanna inn-
flutningsskrifstofunnar upplýsti
forsætisráðherra, að þar væri að-
eins bráðabirgðaráðstöfun að
ræða til að tryggja að þessi mik-
ilvæga stofnun starfaði í sam-
ræmi við stefnu stjórnarinnar
meðan unnið væri að undirbún-
ingi framtíðarskipunar þeirra
mála, og frv. um þau efni væru
í smíðum.
Aðgerðir stjórnarinnar í hús-
næðismálastjórn væru einnig gerð-
ar til að tryggja stefnu stjórnar-
innar nægilegt fylgi þar. Af tækni
legum ástæðum hefðt þótt heppi-
legra að fara þá leið að fjölga í
húsnæðismálastjórn fremur en að
stokka þar allt upp að nýju. Taldi
hann félagsmálaráðherra hafa ver-
ið þar á í'éttri leið eins og á stóð.
Rannsókn efnahags-
málanna
Ráðherrann rakti þær ráðstafan-
ir, sem gerðar hafa verið til að
fá sem gleggstar upplýsingar um
raunverulegt ástand í efnahags- og
framleiðslumálum. Enn væri þeirri
athugun hvergi nærri lokið, sagði
hann, en þegar lægi Ijóst fyrir, að
ekkert hefði verið ofsagt um á-
standið fyrir kosningarnar. Það er
löngu komið á daginn, sem Fram-
sóknarmenn sögðu fyrir að ráðstaf
anir Alþingis í vetur er leið,
mundu mundu ekki lengi duga. Nú
er að kajía-daglegt brauð,.að fram
l^ijS.slunni . sé , fleyft áfram með
bráðabirgðaaðgerðum, og blasir við
þaö siorieilciu vanuamal að afla
Hermann Jónasson
fjár í Framleiðslusjóð til að standa
undir þeim útgjöldum, sem lofað,
var fyrir stjórnarskiptin, og til að
greiða kostnað af þeim neyðarráð-
stöfunum, sem gerðar hafa verið
síðan.
Nýtt viShorf vinnu-
stéftanna
Forsætisráðherra taldi merkasta
ati’iðið í efnahagsþróun þjóðarinn-
ar síðustu 2 mánuðina tví-
| mælalaust samkomulag ríkis-1
valds og vinnustétta um stöðvun
kápþhlaups kaupgjalds. og verðlags.
. Það er nýtt, sagði ráðherrann, að
, stéttirna skuli af fúsum vilja falla
frá stighækkun kaups til þess að
unnt reynist að undirbúa varnar
‘Yáðstafanir í dýrtíðarmálum til
j frambúoar. Þetta sýnir vinsamlegt
| viðhorf almennings í landinu til
stjórnarstefnunnar og trú manna á
því að stjórnin muni gera sitt ítr-
lasta til að þjóðfélagsþegnar beri
í’éttlátan skerf byrðanna.
1
Fjármálakerfið er helsjúkt
I Um þá sérfræðilegu rannsókn,
| sem fram hefir farið til þessa,
■ kvaðst ráðherrann geta upplýst, að
, hún hefði staðfest i öllum grein-
um, að fjármála- og efnahagskerfi
þjóðfélagsins væri helsjúkt, og yrði
óumfiýjanlegt að gera stórfelldar
ráðstafanir til úrbóta. Hann ræddi
nokkuð um komu hollenzka hag-
fræðingsins, dr. Polaks, hingað til
lands, og um störf hans. Á þessu
stigi málsins er ekki unnt að skýra
frá álitsgerð þessa ágæta og mikils
metna sérfræðings í heild, en þó
er. hægt að nefna, að í niðurstö'5-
unni felst staðfesting á áliti okkar
á innviðum fjármála- og fram-
leioslukerfis þjóðfélagsins og á
nauðsyn gagngerðra endurbóta. En
það er unr leið rétt og skylt að
skýra frá þxí. sagði forsætisráð-
herrann, aö dr. Polak taldi að
’ dugnaSur íslenzku þjóðarinnar og
tækni vií5 framleiðslu, og svo
framleiðslumagnið sjáift, væri
svo mikið og stórkostlegt hjá svo
Iitilli þjóð, a;5 framtíðariiorfur
mættu kaiiast bjartar, ef þjóðin
liefði jafnframt þrek og sani-
heldni til að gera nauðsynlegar
skurðaðgerðir í efnahagsmálum
t;l að koma þci’.n á réttan kjöl.
Vegna sífellds og hættulegs áróð
urs er nauSsyniegt. að taka frani,
að ef rétt er á haldiS þarf hér
ekki að vera uni a3 ræða kjara-
skerðingu sem neinu nemur í
byrjun og hispurslaus fram-
kvæmd skynsamlegra ráSstafana
ætti að geta tryggt núvprandi lífs-
kjör þjóðarinnar.
Dr. Polak benti á leiðir, en gerði
ekki tillögur um hvaða leiðir yrðu
valdar, enda ekki um það beðinn.
Það er landsmanna sjálfra að á-
kveða það, og yfirlýst stefna stjórn
arinnar, að í þessum málum verði
haft fullt samráð við vinnustétt-
irnar, enda tilgangslaust að ræða
um einhverjar lækningar utan og
oftan við þeirra fulltingi.
Nú fara fram ýmsar framhalds-
athuganir með hliðsjón af álits-
gerð dr. Polaks. Hollenzki hag-
fræðingurinn lagði á það áherzlu
við stjórnina, að íslendingar ættu
á að skipa, sem hæfir væru til
hinna mikilvægustu trúnaðarstarfa.
Væru það í rauninni ekki ný sann-
indi, sagði ráðherrann. Álitgerðar
ei’lends sérfi’æðings hefði ekki sízt.
verið leitað vegna þess að um hana
gæti vonandi skapast meiri pólitísk
kyrrð. Hér væri engin flokkstengsl,
heldur sérfræðileg athugun, serrs
ofar stæði. Hins vegar væri Ijóst,
að stjórnarvöld þyrftu og ættu að;
eiga hið bezta samstarf við inn-
lenda hagfræðinga um framhalds-
athuganir.
Hann lagði á það áherzlu að
rannsókn á öllum greinum fram-
leiðslu og þjó'ðarbúskapar, sem
unnt mundi að byggja á, væri ekk
ert flýtisverk og þyrfti víða a'ð
draga að föng. En verkinu miðaði
vel og þegar fyrir Iægi niðurstaða
væri það stjórnarflokkanna að
sýna samheldni sína og dug við
að framkvæma nauðsynlegar úr-
bætur.
Efnahagsmálin mesta
viðfangsefnið
Ráðherrann taldi efnahagsmálin
mesta viðfangsefni stjórnarinnar,
enda hefði verið stofnað til sam-
starfsins á grundvelli nýrrar stefnu
í þeim efnum. Næst á eftir al-
mennri lausn fjármálavandræð-
anna kæmi almenn endurreisn úti
um land, en þar væri eitthvert
stærsta verkefni þjóðfélagsins. —
Loks væri mjög þýðingarmikið
að giftusamlega tækist að semja
um lausn herverndarmálsins og við
halda góðri sambúð við allar
þjóðir, ekki sízt vestrænar þjóðir,
sem okkur stæði næst um allt lífs-
viðhorf.
Málstaður íslands
á meiri skilningi að fagna
Ráðherrann taldi tvímælalaust
að málstaður íslands ætti nú meiri
skilningi að fagna erlendis en um
tíma, meðan fréttastarfsemi Sjálf-
stæðisflokksins var að kalla einráð
um túlkun atburða hér á landi.
Ófrægingarstríðið gegn landi og
þjóð hefði tapast í sumar. Það
væri stórsigur fyrir íslenzkan mál-
stað. Ráðherrann taldi Ameríku-
ferð utanríkisráðherra hafa orðið
til mikils gagns og hann fór lof-
samlegum orðum um Lester Pear-
son utanríkisráðherra Kanada og
taldi heimsókn hans hafa verið þýð
ingarmikinn atburð.
Um samninga sem framundan
eru, sagði hann m. a. að flestir ís-
lendingar mundu vissulega vilja, að
vel tækist að skipa málum íslands
í samstarfi við vestrænar þjóðir og
í fullu samræmi við heiður lands-
ins og hagsmuni. Að því mundi
stefnt í væntanlegum viðræðum.
Væri engin ástæða til að ætla, að
ekki tækist að leiða samningana íil
lykta í samræmi við þessi megin-
sjónarmið.
Þróun hagdeildar
í sf jórnarráSinu
Forsætisráðherra ræddi nokkuð
um hvernig íslenzkum efnahags-
málum hefði sífellt verið siglt í
strand á sí'ðasta áratug, og benti i
nauðsyn þess, a'ð til væri hagdeild
í stjórnarráðinu til að fylgj-
ast gerla með efnahagsþróuninni
og gefa aðvaranir í tima. Hann
varpaði fram þeirri spurningu,
hvort eins hefði farið í ofþennslu
fjárfestingar að undanförnu. ef
fyrir hefðu legið meiri upplýsing-
ar, og rökstutt álit um afleiðing
arnar. Hann nefndi ýmis dæmi
sem sýndu ósamræmið í efnahagS'
legum framkvæmdum, raunveru-
legri getu og heppilegri þróun verð
lags og fjárfestingarmála.Að meira
öryggi og heilbrigðari þjóðarbú-
skap mundi stefnt með endurskipu
lagningu upplýsingaþjónustu og
gagnasöfnunar undir leiðsögu sér
deildar.Hann tók frarn, að hér væri
ekki um að ræða þegar ákvarðaða
stjórnarframkvæmd, heldur væri
þetta álit sitt eftir kynni af ástand
inu i dag.
í dag á Jón Þórðarson fyrrum
bóndi að. Núpum í Ölfusi 100 ái'a
afmæli.
Jón er fæddur að Stóru-Hildisey
1 Austur-Landyejum 9. októbei
1856. Þar í Landeyjum ólst Jón
upp og er mór sem þessar línur
rita sá hluti ævi hans að litlu
kunnur. Mun ævi hans á þeim ár-
um ekki hafa verið að neinu leyl
frábrugðin því er gerðist og gekk á
þeim tímum. Ekki heldur að því.
að er hann hafði aldur til gerðist
hann sjómaour í Þorlákshöfn, eins
og ungra manna var háttur. Þó
hafði þetta kannske meiri áhrif á
ævi JónS én fléstrá fólaga hans,
því að í Ölfúsinu kynntist hanr,
konu Sinni Guðrúnu Símonardóttur
frá Bjarnastöðum er verið hefir
förunautur hans í síðastliðin 62 ár,
eða frá 16. júlí 1894. Varð þetta
til þess að eftir 7 ára búskap aust
ur þar, fluttu þau hjón að Núpum
í Ölfúsi láOl, og tóku þar við búi
eftir mág sinn og svila, Sæmund
Gíslason frá Reykjakoti, er þá var
látinn.
Eg man fyrst eftir Jóni sem 7
ára gamall strákur og langar mig
að lýsa honum sem þeim manni,
er ég kynntist í 28 ár — með nokkr
um or'ðum.
Jón var kvikur maður á velli, og
vel á sig kominn, enda maður
vinnufús og vinnugla'ður. Mun það
og hafa komið í góðar þarfir, þar
sem hann var eina fyrirvinna 3ja
gamalmenna og 3ja barna hin
fyrstu ár sín á Núpum. En með
því að Ölfusið er góð sveit og kann
vel að meta duglega menn, bún-
aðist Jóni þar brátt vel og voru
jafnan gnægtir í búi hans bæði fyr
ir fólk og fénað.
Jón er einn af hinum hljóðlátu
í þjóðfélaginu, og hefir ekki lagt
það í vana sinn að standa æpandi
á torgum og gatnamótum. En eng-
inn skyldi halda að hann hafi látið
sér lífið fyrir utan sig óviðkom-
andi. Áhugamál á hann mörg, og
mun þar tónlist og þjóðmál einna
fremst í flokki og enn í dag fylg-
ist hann jafnvel með Súezdeilunni,
sem innanlandserjum á stjórnmála-
sviðinu, og enginn veifiskati hefir
hann verið 1 skoðunum sínum á
þeim efnum.
Jón brá búi og fluttist til Reykja
víkur árið 1931 og hefir síðan átt
heimili að Baldursgötu 7. Þar býr
hann nú í hópi barna sinna og
fjölda afkomenda, því svo mikill
gæfuma'ður hefir hann verið, að
þurfa ekki að skilja við ástvini
sína, eins og möi’g gamalmenni
verða því miður að gera nú á tím-
um, og heilsa er slík í dag, a'ð
hann er fullkomlega fær urn að
njóta þessa merkisdags í hópi þess
ara ættingja. Mætti segja að eini
skugginn væri sá að hin aldi'aða
kona hans, er nú r.álgast nírætt,
er tæpast svo ern að hún geti
glaðst með honum sem skyldi.
Þegar ég minnist þessa garnla ög
gó'ða manns, get ég ekki varist
þeirri hugsun, hvílíkt ofboðslegt af
hroð sveitir landsir.s hafa goldió
í tapi alls þess góða og gegna fólks
er þær haia tapað í uppDyggmgu
káupstaðanna á 5 síouslu áratug-
um, og hvort það framlag sveit-
anna muni ekki stundum vanmet-
ið, þegar hæst er talað um bænda
stétt landsins sem ómaga á þjóð-
félaginu. En hvað um það. í dag
viljum við gleðjast með glöðum.
Við óskum afmælisbarniriu írini-
lega til hamingju og öllu skyld-
menni hans, og hvað sem satt lcann
að vera í því að „enginn sé sæll
fyrir sitt endadægur", vonum /við
að það sannist ekki á Jórii íörð-
arsyni.
Reykjavík, 9. okt. 1956.
Þorvaldur Ólafssori.
Vesæ! stjórnairandstaða
xæiui.i uagiiæuiiigúmi A'ð lokum ræddi forsætisráðher.
öru
síökkviliðiíiu
í Borgamesi
Frá fréttaritara Tíriians í
Borgarnesi.
Þegar heybruninn varð í.
Dragevri í Skorradal á firnmtudags
kvöldið, veitti slökkviliðíð Í Borg
arnesi mikilvæga aðstoð og er
þetta þriðji bruninn utap Borgar
ness ,sem það hefir hjálpað til að
kæfa á stuttum tíma.
Þegar slökkviliðið kom á staðinn
var eldur þegar orðinn magnaður
i hlöðunni en á stuttum tíma tókst
að slökkva með góðum tækjum.
Mikið skemmdist þó af heyi eins
og á'ður er sagt af eldi og vatni.
Von er þó til að hægt verði að
þurrka nokkuð af því heyi aftur,
sem vöknaði og látið var út úr
hlöðunni meðan barist var við eld
inn.
í sambandi við slíkar slökkvi
aðgerðir er mikilvægt að aðgangur
sé að rennandi vatni, eða góðu
vatnsbóli ekki lengra en 400 metra
frá brunasta'ð. Með hinum mikla
dælukrafti verða venjuleg vatns
ból og stórir brunnar þurrausið
á fáum mínútum, og þyrfti fólk að
reyna að stífla læki, þegar þaiinig
stendur f>. .. .■■ -
TRICHL0RHRE1NSUN
(ÞURRHflEINSUN)
BJ@RE
SOLVALLAGOTU 74 • SIMI 3237
BARMAHLÍQ G
ann nokkuð um vi'ðhorfið til stióm j
arinnar og minnti á vesöld stjórn-
arandstöðunnar, sem væri meiri en j
,,harkan“. Góður málflytjandi við-i
urkenndi jafnan það, sem sannað j
er, sagði hann, en svo blind er j
stjórnarandstaða Morgunblaðsins,
að hún hamast jafnvel gegn því,
sem ekki þarf um að deila. Slíkur
málflutningur er hraklegur, enda
er útkoman eftir því. Stjórnarand-
staðan „harða“ vekur fyrirlitningu,
jafnvel í eigin herbúðum. Síðan út-
lenda ófrægingarstríðið endaði
með ósigri, hefir einkum verið bar j
ist gegn verðfestingunni, en ekki
er uppskeran meiri þar. Til yfir-
breiðslu eru notaðar persónulegar
árásir á einstaka stjórnmálamenn.
í hundraðasta sinn er mér borin
valdasýki á brýn í Morgunblaðinp
í dag, sagði forsætisráðherra, ^og,
meta menn það eins og efni standf
til, og eins þá óbeinu yfirlýsingu,
að raðherrar SjaifstæoislioKKsins
hefðu verið sárnauðugir og kvaldir
í embættum öll þessi ár. Stjórnar-
andstaðan er ekki brjóstlasinn að
halda þessu a'ð fólkinu.
Samheldni Framsóknar-
manna
í ræðulok hvatti forsætisráð-
herra Framsóknarmenn til að
standa fast saman um viðreisnar-
stefnuna og sýna enn í verki þá
miklu einingu og þann flokkslega
dug, sem einkenndi Framsóknar-
flokkinn öðrum flokkum fremur í
kosningunum í sumar.
Var máli ráðherrans tekið með
dynjandi lófataki á þessum fjöl-
menna fundi.
Eysteinn Jónsson fjármálaráð-
herra. tók npgstur til máls,. og er
ræ'ðq han^ rakip, á-A,ðrir
ræðuuipnn voru: .Bjafpi. Maggýss.,
Rarinveig Þorsteinsdóttir, íljörtur
Hjartar og Björn Guðmundsson.