Tíminn - 28.10.1956, Qupperneq 1
t
■i
Fylgizt með tímanum og lesið
TÍMANN. Áskriftarsímar 2323 og
81300. Tíminn flytur mest og fjöl-
breyttast almennt lesefni.
40. árgangur.
12 síður
Skrifað og skrafað, bls. 7.
Lippmann ritar um alþjóðamál,
bls. 6.
Mál og menning, Munir og minjar,
Lífið í kringum okkur, bls. 5.
Reykjavík, sunnudaginn 28. október 1956.
40. árgangur.
Ungverska þjóðaruppreisnin magnast, en rússnesk
ur her streymir að og beitir æ meiri grimmd
Uppreisnarhugur í ö$rum leppríkjum Rússa:
A-þýzkir stúdentar beimta lýSræSi
og kommúnistaleiStogar víki
Varsjá og Berlín, 27. okt. — Fregnir frá Varsjá herma,
að mikil ólga sé undir niðri með þjóöinni, þóít kyrrt sé á
yfirborðinu að kalla. Margir af leiðtogum kommúnista í
verkalýðsfélögum og bæjar- og sveitarstjórnum hafa verið
reknir fyrir andstöðu við lýðræðislegri stjórnarhætti. Þá
er og sagt frá vaxandi ókyrrð fólksins í A-Þýzkalandi og i
Tékkóslóvakíu.
________________________j Þannig hafa íramkvæmdastjórar
flokksdeildarinnar í Varsjá og
j þrem öðrum borgum verið sieydd-
; J ir til að segja af sér, sökum þess
J að þeir beittu sér gegn lýðræðis-
■ legri stjórnarháttum. Einnig hefir
formaður pólska verkalýðssam-
bandsins verið rekinn. Frestað
hefir verið för pólsku samninga-
nefndarinnar, sem fara átti til
Moskvu ?. 1. föstudag til að semja
við Rússa um sambúð landanna og
brottflutning hersins. Er það
vegna atburðanna í Ungverjalandi.
Stúdentar mótmæla í Barlsn.
Frá V-Berlín 'berast þær fregnir,
að mikil ókyrrð geri vart við sig
í A-Þýzkalandi. Stúdentar í A-
Berlín hafa haldið útifund og kraf
izt þess að kommúnistaforingjum
landsins verði vikið frá völdum
og lýðræði komið á í landinu.
Fyrri fregnir skýrðu írá miklum
(Framh. á 2. síðu.i
Dr. Þorkell Jóhannesson,
háskóiarektor.
ERNO GERO
Uppreisnarmenn
skutn Gerö?
VÍNARBORG, 27. okt. — Járn-
brautarstarfsmenn, sem komu til
Austurríkis í dag, til að sækja
sjúkravörur fyrir heri uppreisnar-
manna, höfðu þær fregnir að flytja,
að Gerö, sem vikið var úr stöðu
framkvæmdarstjóra kommúnista-
flokksins í fyrradag, hefði í dag
orðið á vegi uppreisnarmanna og
verið skotinn.
„Við eigum aðeins í höggi við Rnssa“, segja
uppreisnarmenn. Múgmorð rússneska hers-
ins á varnaríausu fólki, konum og börnum
Nagy reynir aS bjarga sí jóm srnni,
rekur 15 Stalínista og leitar til ann-
arra flokka
Búdapest og Vínarborg, 27. okt. — Baráttustyrkur ung-
versku þjóðarinnar í uppreisn sinni gegn erlendu valdi og
innlendri kúgun, færist enn í aukana. í dag er 5. dagur upp-
reisnarinnar og fregnum ber saman um, að flestar stærri
borgir og héruð V-Ungverjalands séu algerlega á valdi bvlt-
ingarmanna, sömuleiðis suðurhluti landsins. Bardagar fara
harðnandi í höfuðborginni, norðvesturhluti hennar er sagð-
ur á valdi uppreisnarmanna. Fréttaritari brezka útvarpsins
segir uppreisnina orðna „að múgmorðum á saklausu fólki.“
Mikill rússneskur herafli er sagður hraða för sinni sem mest
hann má til Ungverjalands.
Hátíðíeg setning Háskóla íslands \ gær:
Brýn nauðsyn, að Isiendingar leggi
meiri rækt við náttúruvísindi,
'sagði dr. Þorkell Jóhannesson, rektor, í
ræðu sinni. - Taldi einnig ath.virði, að
menn Íykju stúdentsprófi fyrr en nú tiðkast
Háskóli íslands var settur með hátíðlegri athöfn í hátíða-
sal skólans í gær, fyrsta vetrardag. Forseti íslands var við-
staddur athöfnina ásamt allmörgum boðsgestum, starfsliði
skólans og að sjálfsögðu stúdentum.
Háskólahátíðin hófst með því,
að dómkirkjukórinn og Guðmund-
ur Jónsson fluttu háskólakantötu
Páls ísólfssönar við texta eftir
Þorstein Gíslason, og stjórnaði Páll
sjálfur flutningi kantötunnar. Þá
flutti rector magnifieus, dr. Þor-
Erfu búinn að seinka
klukkunni?
Þegar klukkan var tvö s. I. nótt,
var henni seinkað um eina klukku
stund og tekin upp rétt klukka
ó ný, þar sem vetur er genginn
í garð. Það er því ráðlegast fyrir
livern og einn að líta á klukkuna
og vita, hvort hann er búinn að
seinka henni, svo að hann fylgist
með tímanum.
kell Jóhannesson, prófessor, ræðu
skýrði frá starfi liáskólans og
mannaskiptum í kennsluliði og
bauð nýja kennara velkomna til
starfa. Hann gat og erlendra gesta,
er sótt hefðu skólann heim, og
skýrði sérstaklega frá starfi vík-
ingafundarins, er haldinn var á veg
um háskólans og þjóðminjasafns-
ins í sumar. Þá Jrakkaði hann og
gjafir, er skólanum hafa borizt frá
Davíð Scheving Þorsteinssyni lyf-
sala, ekkju og afkomendum Páls
Briem og ríkisstjórn Bandaríkj-
anna, en Bandaríkjamenn gáfu
skólanum dýrmætt safn bóka um
kjarnfræði og atómvísindi í sam-
bandi við stofnun íslenzkrar kjarn-
fræðinefndar.
Gildi náttúruvísindanna.
í ræðu sinni vék rektor að
nauðsyn þess að leggja meiri
rækt við náttúruvísindi hérlcndis
en verið hefir til þessa. Ilann
kvað þjóðinni lífsnauðsyn í
framtíðinni að liafa á að skipa
færum mönnum í þessum grein-
um, en nú væri svo háttað, að
tæpast fengjust hæfir menn til
kennslu þeirra í skólum lands-
ins og væri þó hlutur þeirra of
lítiil í námsskrám skólanna. ís-
lendingar geta ekki vænst þess
að verða forustuþjóð á sviði nátt-
úruvísinda, en þeir verða þó að
vera færir um að hagnýta sér
reynslu annarra þjóða í þessuin
efnum, sagði rektor.
Hann gat þess að sett hefði ver-
ið á stofn nýtt prófessorsembætti
í lífeðlisfræði við læknadeiidina
og yrði prófessor skipaður á næst-
(Framh. á 2. síðu.)
Fréttaritarar frá vesturlöndum
eru komnir til Ungverjalands og
fregnir farnar að berast frá þeim,
þótt enn sé af skornum skammti.
„VIÐ VILJUM BANDARÍSK
VOPN‘.
Brezka útvarpið hefir eftir
fréttaritara, sem ræddi við leið-
toga uppreisnarmanna í vestur-
hluta landsins: „Við viljum fá
bandarísk vopn, en ekki áróðurs-
pésa“. Offursti, sem stjórnaði her
uppreisnarmanna nálægt austur-1
rísku landamærunum sagði frétta j
mönnuin, að aliar helztu borgir I
vestan til við höfuðborgina væru I
á valdi uppreisnarmanna, svo og
mestur hluti norður héraðanna.
Að því. er liann bezt vissi, væri
einnig mesturhluti Suður-Ung-
verjalands á valdi uppreisnar-
manna.
„VIÐ BERJUMST EIN-
UNGIS VIÐ RÚSSA“.
Nú er svo komið, sagði þessi
foringi, að við berjumst aðeins
gegn rússneskum hermönnum. —
Herinn er annaðhvort með okkur,
eða þá hlutlaus. Öryggislögreglu-
mennina höfum við annaðhvort
drepið eða handtekið“.
„Við höldum íii Búdapest“.
Samkvæmt öðrum heimildum
sögðu foringiar uppreisnarmanna
á þessum slóðum fréttamönnum,
að þeir byggju sig nú undir að
stefna til Búdapest „til að hjálpa
félögum sínum þar“, og lil ann-
arra borga, þar sem rússneskt her
lið hefir náð undirtökunum.
Ferðanienn og starfsmenn er-
lendra sendiráð’a, sem komu í
morgun á bílum frá Búdapest
til Austurríkis segjast hvarvetna
hafa mætt stórum skörum upp-
reisnarmanna. Báru þeir fyrir sér
ungverska þjóðfánann, úr honum
var skorið einkennismerki það,
sem kommúnistar settu í hann.
Þá sáu þeir einnig margt ung-
verskra hermanna, sem voru með
uppreisnarmönnum. Einnig þeir
höfðu skorið af einkennisbúning-
um sínum einkeunisstafi flokks-
ins.
Frá höfuðborginni berast þær
fregnir, að rússneski herinn beiti
þar og annars staðar í landinu
óskaplegri grimmd. Ferðamenn
segjast hafa séð skriðdreka
skjóta á hópa af varnarlausu
fólki, konur og börn. Hafi fólk
legið í valnum ýmist látið eða
sært hundruðum saman. Rússar
hafi sett raðir af vélbyssum á
austurbakka Dónár í Búdapest
og stjórni allri umferð á helztu
(Framh. á 2. síðu )
Líkunum kastaö í
hrönnum í Dóná
LONDON, 27. okt. — Fregnir,
sem borizt hafa frá brezka sendi-
ráðinu í Búdapest, herma, að
blóðbaðið í Búdapest sé óskap-
legt. Einkum beiti rússneski her-
inn nú vægðarlausri grimmd og
skjóti á mannfjöldann. Fleiri
mönnum en þremur er bannaö
að safnast saman. T. d. um þaö,
hversu margir hafi fallið, er
sagt, að hersveitir hafi sézt vinna
að því að kasta líkum hrönnum
saman í Dóná. — Þá segir einnig
í fregnum frá Búdapest, að
hungur sverfi mjög að borgarbú-
um. Matarflutningar til borgar-
innar hafa engir verio þá 5 daga,
sem uppreisnin liefir staðið.
Vesturveldin kæra Rússa fyrir SÞ
New York, 27. okt. — Ríkis-
stjórnir Bretlands, Bandaríkj-
anna og Frakklands hafa kært
aðfarir Rússa í Ungverjalandi
fyrir öryggisráði Sameinuðu þjóð
anna. Kemur ráðið saman á
morgun, sunnudag, til að ræða
kæruna. Megin atriði liennar er,
að Rússar hafi gerzt sekir um
vopnaða íhlutun i Ungverjalandi
og gerzt sekir um brot á friðar-
samningum við landið, og enn-
fremur brotið gegn almenmun
mannréttindum.
Vitað var, að vesturveldin
höfðu þessa ráðstöfun í liuga.
Hafa ríkisstjórnir landanna rætt
málið í dag og gær. Lester Pear
son utanríkisráðherra Kanada
lýsti yfir þeirri skoðun sinni í
dag, að kæra bæri Rússa fyrir
öryggisráðinu vegna ofbeldis-
verka rússneska liersins á ung-
versku þjóðinni.