Tíminn - 16.11.1956, Side 1
Fylgizt með tímanum og lesið
TÍMANN. Áskriftarsímar 2323 og
81300. Tíminn flytur mest og fjöl-
breyttast almennt lesefni. «, 4
40. árgangur.
12 síður
Reykjavík, föstudaginn 16. nóvember 1958.
Ljóð frelsisins í ungv. útvarpinu,
bls. 4.
Skákþáttur Friðriks Ólafssonar
bls. 5.
Bretar og Frakkar fóru á bak við
Bandaríkjamenn, bls. 6.
„Það er aldrei að vita“, bls. 7.
261. blað.
olíuskorhir
París, 15. nóv. — Mjög tilfinnanlegur skortur á oUm.*i og
benzínl geri’- nú þegar vart við sig um alla V-Evrópu. Franska
stjórnin boðar að tekin verði upp alger skömmtun. Reynt
verði að lækka oliunotkun landsins um 20%. Ýmsar hömlur
verða settar við notkun olíuknúinna farartækja. Allir eim-
vagnar franskra járnbrauta, sem knúnir eru af benzíni, hafa
verið teknir úr notkun.
ICadar fellst á frjálsar kosningar, en
segist þá óttast ósigur konunúnista
StjóramáSanámskeið
Næsti fundur
lcvölH VI
í Bretlandi hefir magn olíu og
benzíns til iðnaðarfyrirtækja verið
lækkað um 10% frá því sem verið'
hefir undanfarið. Sagt er af ábyrg-
um aðilum að frekari lækkun muni
reynast óhjákvæmileg. Væntanlega
verði ómögulegt að komast hjá því
að benzín verði skammtað, en það
verði naumast framkvæmt íyrr en
um jól.
í Danmörku er ástandið mjög
alvarlogt, þar sem Danir hafa
fengið mikið af olíum sínum frá
Englandi. Hefir verzlunarmálaráð-
herranum verið veitt víðtækt vaid
til að gera nauðsynlegar ráðstaf-
anir í málinu og fyrirskipa skömmt
un, þegar honum sýnist nauðsyn.
Á Ítalíu er einnig yfirvofandi
mikill olíuskortur og mun iðnaður
bíða stórtjón af. Verður skömmt-
I un sett innan skamms. Frá Spáni
| er sömu sögu að segja, þar er ver-
I ið að undirbúa skömmtun og verð-
iur dregið mjög úr notkun olíu og
j benzíns, nema þá helzt til iðnaðar.
Fólk kemst nauilega tmdan,
er íbúSarliás brennur í HaínaríirSi
Frá fréttaritara Tímans í Hafnarfirði.
Snemma í gærmorgun varð vart elds í húsinu Norðurbraut
25 B og skemmdist það mikið af eldi og vatni. Innbú skemmd-
ist allt meira og minna. Húsið er ein hæð og ris, eign Ásgeirs
Einarssonar, málarameistara, sem bjó í húsinu ásamt fjöl-
skyldu sánni, alls fimm manns.
Þurfti að gera að meiðslum hans
Tryggvi
verður föstudags-
8.30 í Edduhúsinu.
Fundarefni verð-
ur: Erlendur her
á íslandi. Fram-
sögumaður:
Tryggvi Stefáns-
son. Fundarstjóri
Sigtryggur Vagns
son. Fundarritari
Eyjólfur Guð-
mundsson.
Ný framlialdssaga
í gær lauk framhaldssögunni hér
í blaðinu, Endurfundir í París, eftir
danska höfundinn Ib Henrik Cav-
ling. Blun nú blaðið ekki flytja
fleiri sögur þessa höfundar um
sinn en ný saga hefst þó í blaðinu
á morgun. Þess er að vænta að
sú saga verði vinsæl ekki síður en
aðrar framhaldssögur, sem blaðið
hefir flutt um dagana.
Það var klukkan 8,30, sem
slökkviliðið var kvatt að húsinu.
i sjúkrahúsi. Eigandi hússins hef-
. ir orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni,
Vai eldurinn orðinn magnaður, þar sem jnn^ú mun hafa verið
þegar það kom og logaði út. um
glugga og undir þakskeggi. Fljót-
lega tókst að ráða niðurlögum elds-
ins og reyndist hinn nýi háþrýsti
bíll slökkviliðsins vel við slökkvi-
starfið.
Fólkið bjargast nauðuglega.
Menn, sem voru að vinna þarna
skammt frá, urðu eldsins varir í
fyrstu. Gerðu þeir fólkinu aðvart
og kölluðu síðan á slökkviliðið.
Fólkið bjargaðist nauðuglega út úr
brennandi húsinu, t. d. varð Ás-
geir að bjarga sér út um glugga og
skarst við það töluvert á höndum.
Voru koiimir á
fremsia hlimnmeS
að beita 6. flotan-
um gegn Bretum
og Frökkum
London, 15. nóv. — BlaSið
Church Times, sem er hálfopin-
bert málgagn ensku kirkjunnar
segir frá því í dag, að Bandaríkja
stjórn hafi liótað því að beita
Breta og Frakka róttækum efna-
hagsþvingunum, ef þeir hættu
ekki strax hernaðaraðgerðum sín
um við Súez. Um eitt skeið hafi
Bandaríkjastjórn meira að segja
verið komin á fremsta lilunn með
að skipa 6. fiotanum að koma í
veg fyrir landgönguna, en frá því
hafi verið horfið og ákveðið að
beita aðcins efnahagsþvingununi,
Þegar við hafi bætzt, að olíuleiðsl
urnár frá Sýrlandi höfðu verið
sprengdar, átti brezka og franska
stjórnin ekki annars úrkosta en
beygja sig og lofa að liverfa brott.
Nú bjóða Bandaríkjamenn fjár-
hagsaðstoð og olíu, en þó því að-
eins að staðið verði við loforðið
um brottflutning liersins.
óvátryggt. Okunnugt er um elds-
upptök. G.Þ.
Gómúlka byrjar við-
ræður sínar í Moskvu
Moskvu, 15. nóv. — Gómúlka
pólski kommúnistaleiðtoginn kom
í dag til Moskvu ásamt föruneyti
sínu. Margir lielztu leiðtogar
Rússa tóku á móti honum, svo
sem Vorosliiloff forseti, Búlganin
forsætisráðherra og Krustjoff
framkvæmdastjóri flokksins. Gó-
múlka hélt stutta ræðu. Kvað
liann Pólverja í cinlægni vænta
vináttu Sovétríkjanna og liann
myndi ganga til samninga í anda
þeirrar kenningar Lenins að sniá-
ríki og stórveldi gætu lifað sam
an í friði og á jafnréttisgrund-
velli. Samningaviðræðurnar hóf-
ust strax eftir hádegi.
Hammarskjöld fær ekki að heimsækja Búda
pest. - Yerkamemi halda verkföllum áfram
Búdapest, Vínarborg og New York, 15. nóv. — Síðdegis í
dag barst srar írá Kadarstjórninni í Ungverjalandi við til-
mælum Hammarskjölds að hann fengi leyfi til að koma í
heimsókn til Búdapest. Er því hafnað, en sagt, að stjórnin
vilji gjarnan senda sérstaka nefnd til viðræðna við fram-
kvæmdastjórann í Rómaborg. 10 þús. manns fóru í kröfu-
göngu að þinghúsinu í Búdapest til að mótmæla nauðungar-
flutningi Rússa á ungum mönnum úr landinu. Verkfall er
enn í Búdapest, en Kadarstjórnin reynir samninga við verka-
menn. Hefir Kadar fallizt á að efnt verði til frjálsra kosninga,
sem nokkrir flokkar taki þátt í.
uðborgina. Býðst hún til að senda
sérlega sendinefnd til viðræðna við
hann í Rómaborg, er hann verður
þar á ferð. Verði rætt um aðstoð
við Ungverja og ályktunartillögur
þær, sem liggja fyrir allsherjar-
þinginu. Ekki er enn vitað, hvort
Hammarskjöld tekur þessu boði.
Samkvæmt heimildum, sem bor-
izt hafa til London, er því haldið
fram, að Rússar hafi flutt unga
menn nauðuga á brott i stórum
stíl. Óstaðfestar fréttir herma, að
tala brottfluttra nemi 4- 16 þús.
Tekur Hammarskjöld
boðinu?
Kadarstjórnin hafði áður neitað
beiðni um að eftirlitsmenn S. Þ.
fengju að koma til landsins. Nú
hefir hún einnig neitað Hammar-
skjöld um leyfi að heimsækja höf-
Maður slasast á höfði
í gær um kl. 6 var árekstur á
móts við Höfðaborg 74, var fjög-
urramanna Renault bifreið ekið
aftan á vörubifreið. Farþegi í fólks
bifreiðinni, Jóhann Hjálmtýsson að
nafni slasaðist talsvert á höfði og
var fluttur í slysavarðstofuna, þar
sem hann lá í nótt, en bifreiðar-
stjórann sakaði ekki. Renauit bílí-
iil mun hafa verið illa útleikinn.
Ivar Guðmuudsson
blaðafullt. löggæzlu-
liðs S. þ.
ívar Guðmundsson ritsl.ióri, sem
starfað hefir á skrifstofu S. þ. í
Kaupmannahöfn, var í gær skipað-
ur blaðafulltrúi löggæzluliðs S. þ.
i Súez. ívar kveðst munu halda
áleiðis til Napólí í fyrramáli'ð til
að taka þar við frekari fyrirskip-
unum. Aðils.
Fyrstu liermenairnir í gæzIuiiSi S. þ.
komu til Ismalía í gærdag
Napólí og New York, 15. nóv. — í dag hófust fyrir alvörn
flutningar á hermönnum í gæzluliði S. Þ. frá Napólí á ítalíu
til Súez-svæðisins. Fyrstu hermennirnir, sem fóru, voru frá
Danmörku og Noregi, alls nær 100 manna hópur. Lentu þeir
á flugvellinum við Ismailía. Burns hershöfðingi kannaði lið
sitt í Napólí í gær, en í dag er hann á leið til New York til
að ræða þar skipulag liðsins við samstarfsmenn sína. Stöðugt
berst meira lið til Napólí frá þeim ríkjum, sem senda her-
menn. Finnar hafa boðið 250 manna lið.
Hammarskjöld framkvæmdastjóri
er á leið til Rómaborgar, þar sero
hann mun kynna sér allt varðandi
skipulag og störf liðsins og hvern
ig unnt er að tryggja sem hezt að
það fái gegnt hlutverki sínu. Þá
fer hann og til Kaíró og ræðir þar
j við egypzk stjórnarvöld um dvöl
herliðsins og afstöðu Egypta til
þess.
6. flotinn flytur vistir
Margt er örðugt viðfangs í máli
þessu, eoda alger nýlunda að al-
þjóðasamtökin hafi her á að skipa.
Sagt er, að 6. flotinn bandaríski,
sem er á Miðjarðarhafi, muni taka
að sér að flytja vistir til liðsins.
Um hergagnaflutninga til liðsins
er enn nokkuð á huldu.
EURNS hershöfðingi,
sem hefir verið skipaður yfirmaður
gæzluliðs S. þ. við austanvert Mið-
jarðarhaf. Burns er Kanadamaður
og hefir í nokkur ár verið yfirmaður
vopnahiésnefndar S. þ. í Palesínu.
Hann er því öllum hnútum kunnug-
ur þar eystra. Myndin er tekin, þeg
ar hershöfðinginn steig upp í flugvél
sína í Tel Aviv fyrir nokkrum dög-
um og hélt til Kaíró.
Búlganín sendir
Eden og Mollet
nýja orðsendingn
Moskvu, 15. nór. — Tilkynnt
var í Moskvu í kvöld, að Búlganin
hefði sent forsæti.sráðherrunum
Moílet, Eden og Ben Gurion nýja
orðsendingu varðandi ástandið
við austanvert Miðjarðarhaf. Var
scndihcrrum þessara ríkja afhent
orðsendingin í kvöld. Sagt var og,
að orðsendingin niyndi birt orð-
rétt í rússneskum blöðum á föstu
dag.
Kadar á undanhaldi
Kadar, leppur Rússa í forsætis-
ráðherrastóli, reynir enn að ná
samkomulagi við verkamenn í land
inu, sem neita að taka up vinnu og
vilja heldur svelta en lifa undir
oki hernáms og kúgunav.
f hoðskap, sem hann sendi í
dag til verkamannaráðs þess, er
átt hefir í samningum við tiann,
segist hann geta falltzt á kröfu
þeirra um frjálsar kosningar
með þátttöku fleiri flokka en
kommúnistaflokksins.
Samkvæmt öðrum heimildum á
hann að hafa sagt í viðræðum við
verkamenn, að hann óttaðist að
kommúnistar biðu ósigur í slíkum
kosningum, ,en hann væri samt fús
að hætta á það.
Enginn fluttur nauSugur
nema....
Þá segir Kadar í svari sínu til
verkamanna, að liann hafi fengið
tryggingu fyrir því hjá Rússum
að' engir Ungverjar verði fluttir
úr landi. Þó eru engin ákvæði í
því samkomulagi að svo megi
ekki gera við þá, sem sekir reyn-
ast um „afbrot og hermdarverk“.
Er þetta ákvæði því ekki mikils
virði.
Nagy vill ekki ræða við
Kadar
Verkamenn krefjast að Nagy
fái fyrri stöðu sína sem forsætis-
ráðherra. Kadar segir, að honum
sé frjálst að taka þátt í stjórn-
málum, ef hann kjósi að fara á
brott úr júgóslavneska sendiráðinu.
Nagy hefir lýst yfir, að hann vilji
ekkert við Kadar ræða. Þá segir
að Kadar hafi sagzt skilja afstöðu
verkamanna varðandi hlutleysi
landsins, en þess verði að gæta,
að fasistar og heimsveldissinnar
noti það ekki að skálkaskjóli. Loks
hvetur hann verkamenn til að taka
upp vinnu hið bráðasta, annars
verði Ungverjar innan skamms
mestu beiningamenn í heimi.
Tékknesk sendinefnd
f London er bent á, að svar
I Kadars til verkamanna sé æði harð
neskjulegt, þótt undanhalds gæti
í mörgum efnum. Samt sé ekki úti-
lokað að það verði grundvöllur að
einhverju samkomulagi. í kvöld
kom tékknesk sendinefnd til Búda-
pest undir leiðsögu forsætisráð-
herrans. Á hún að ræða um efna-
hagssamvinnu landanna, en ósenni
legt þykir að hún sé komin í því
skyni að miðla málum, hvorki milli
verkamanna og Kadars eða þjóð-
arinnar og Rússa.