Tíminn - 14.12.1956, Side 8

Tíminn - 14.12.1956, Side 8
8 Hjarðfjós o g básafjás "'niiiiiimiiiiiiiiimiuuiiiiiiiiuuiiiuiiiiM BJARNI, skólastjóri að Laugar- vatni, er mér ósammála um sam- anburð á hjarðfjósum og básafjós- um, og virðist leggja lítið upp úr vísindalegum tilraunum, sem gerð ar hafa verið til þess að fá skorið úr því svart á hvítu, hvað hið rétta sé, eða i hvorum fjósunum kýrnar geri eigendum sínum betra gagn, skili meiri arði. — Ég mun ekki deila við hann um þetta, þess ger- ist ekki þörf, en ég held, að menn skilji hin misjöfnu sjónarmið okk- ar Bjarna af eftirfarandi: ÞEGAR ÉG VAR á landbúnaðar- svningunni í Moskva, kynntist ég rektor landbúnaðarháskólans í Ási '; í Noregi, og bauð hann mér að heimsækja sig, yrði ég á ferð í Noregi og hefði tíma. Þetta gerði ég nokkru síðar. Rektor lét sér annt um að sýna mér og láta sýna mér skólastaðinn og setja mig sem bezt inn í búreksturinn og það, sem skólinn var að láta gera, en þá stóð yfir tilraun um samanburð á gæðum á hjarðfjósum og bása- fjósum. Tveir kúahópar, sem áður höfðu staðið saman og fengið sama fóður og sömu hirðingu og þá reynzt jafnir, voru aðskildir, ann- ar látinn í hjarðfjósið, en hinn stóð kyrr á básum sínum. Að öðru leyti var allt óþreytt í hirðingu og fóðri. ÉG SKOÐAÐI báða hópana og spurði fjósamennina spjörunum úr. Sérstakur maður hafði það verk á hendi að vega fóður og mjólkj og taka af hvoru tveggja sýnis- horn og koma þeim til efnagrein- ingar. Hann hitti ég ekki, en fólk- ið, sem hirti kýrnar, hitti ég. Dóm úr þess var sá, að léttara væri að hirða kýrnar í hjarðfjósum, þær þrifust vel og væru mikið úti. Sýni lega yndu þær vel hag sínum, og þeir töldu, að þær mjólkuðu líkt og hinar, sem á básunum voru. Umsögn þeirra var lík umsögn Bjarna. En rektorinn, sem fékk allar viktanir á fóðri og mjólk, allar skýrslur um efnagreininguna á _hvoru tveggja, svo og skýrslur um, hvernig þungi kúnna breyttist, liann sagði þetta: Kýrnar í hjarð- fjósinu mjólka minna og þurfa þó nieira fóður en hinar, sem eru í básafjósinu. — Síðar komu niður- stöður tilraunarinnar og sýndu að kýrnar í básafjósinu gáfu eigend- um sínum mun meiri arð en hin ar, er í hjarðfjósinu voru. HVAÐ OLLI nú þeim misjöfnu dómum, sem fjósamennirnir ann ars vegar gáfu hjarðfjósunum, og rektorinn hins vegar? Báðir aðilar sögðu það, sem þeim fannst rétt, hvorugur vildi segja mér ósatt. En fjósamennirnir höfðu ekki aðstöðu til að grandskoða málið, og því varð skoðun þeirra önnur en rek- tors, sem skoðaði málið niður í kjölinn. Ég hygg, að sama sé orsökin að; mismunandi sjónarmiðum okkarj Bjarna. Nákvæmar vísindalegar tilraunirl hafa verið gerðar með samanburði á fóðrun kúnna í hjarðfjósum, sem^ byggð hafa verið til þess að gera! tilraunina, byggð eins og þau erui talin bezt, og í básafjósum, og það sýnir sig Ijóslega, að eigi að byggja fóðrun kúnua á einstaklingsfóðrun, j þ. e. fóðra hverja einstaka eftirj þöríum hennar, þá munar mikluj á því, hvað kýrnar í básafj.ósunum gefa eigendum sínum meiri arð en þær, sem í hjarðfjósum er.u. HVER ÚTKOMAN yrði, ef ekki væri um einstaklingsfóðrun að ræða, skal ég láta ósagt. Amerísk-1 ar tilraunir gætu bent til þess, að, þá gilti nokkuð annað, en ég veit.j ekki til þess, að mönnum á Norð-j urlöndum detti í hug að hverfa frá ] einstaklingsfóðrun. Þar vilja mennj fá sem mestan arð af hverri ein-j stakri skepnu og haga meðferð | þeirra og hirðingu eftir því. 15. des. 1958. Nýkomið Kvenlakkskór Páll Zóphóníasson. Sjötugur: Þor- steinn Björnsson, Hlíðarbr. 8, Hafnarfirði Þínar eigin götur gekkstu, gafst þig lítt að troðnunl slóðum, framhjá gömlum venjum vékstu. Varmann lagði af andans glóðum. Valdir þér af vinskap hreinum vini lífs um tímaskeiðin, barst þig vel og brást ei neinum, brött þó stundum væri leiðin. Margt eitt gekkstu frama fetið, framtaks prýði hjá þér kynnumst. Þorsteinn Björnsson, þín mun getið þegar góðra drengja minnumst. Mótaður af stofni sterkum, — stórhug slíkan þjóðin metur — kominn út af mönnum merkum, manndóms prýði á störfin setur. Það er ósk frá mér og mínum, meðan lífs þú treður grundir, að drottinn veiti þér og þínum þrotlaus gæði allar stundir. Hannes Jónsson frá Spákonufelli. Pistlar frá New York (Framhald af 6. síðu) Hann var einn af hvatamönnum þess, að republikanir fengu Eisen- hower í framboð fyrir sig. Utan- ríkismálin hafa alltaf verið mestu áhugamál hans. Hann hefir jafncn verið mikill andstæðingur einangr- unarstefnunnar og vil.iað sem víð- tækustu þátttöku Bandaríkjanna í alþjóðlegu samstarfi. Nýlega hélt hann t. d. ræðu, þar sem hann hvatti til efnahagslegrar aðstoðar við þjóðir, þótt þær væru ekki bein ir bandamenn Bandaríkjanna. Efnahagsaðstoð við slíkar þjóðir eykur viðnám þeirra gegn komm- únistum, sagði hann, og er okkur það óbeinn ávinningur, þótt þær fáist ekki til þátttöku í bandalög við okkur og samherja okkar. FLEST BLÖÐIN láta þá skoðun í ljós, að þótt Herter verði að nafni til undirmaður Dulles, muni hon- um ætlað að eiga drjúgan þátt í því að marka utanríkisstefnu Bandaríkjanna, ásamt þeim Eisen- hower og Dulles. Blöðin telja það jafnframt merki um vissa stefnu- breytingu, að Herter tilheyrir frjálslyndari armi republikana, en fyrirrennari hans, Hoover yngri, tilheyri hægri arminum. Flest blöð láta einnig það álit uppi, að Herter muni reynast vel í hinu nýja starfi. Frá fornu fari hafi hann þekkingu á utanríkis- þjónustunni. Hann viti sem fyrr- verandi þingmaður, hvernig skyn- samlegast sé að umgangast þing- ið. Hann hafi sem ríkisstjóri öðl- ast reynslu sem stjórnandi og skipuleggjari. Við þetta bætist svo mikil þekking hans á utanrík- ismál. Það sé og tvímælalaust, að hann sé glöggur maður og aðgæt- inn og hafi sérstakt lag á að vinna sér hylli þeirra og traust, er hann umgengst. Þá bendir og margt til þess, að demokratar sætti sig öllu betur við Herter en aðra þá leiðtoga republikana, sem hafa verið taldir líklegastir til að hljóta umrætt starf. Það getur haft mikið að segja, því að flest bendir tík, að demokratar muni á komandi kjör- tímabili halda uppi ákveðnari og sjálfstæðari utanríkisstefnu en þeir gerðu á hinu fyrra kjörtíma- bili Eisenhowers. — Þ. Þ. með háum og lágum hæl, fallegir og þægilegir. Barnaskór með innleggi. Karlmannainniskór úr flóka og leðri. Kvenbomsur I fyrir háan og lágan hæl | AIII vandaðar vörur. T í M I N N, föstudaginn 14. desember 1956, miuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiniiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuii: § -5 I ] Jólatorgsalan ( | byrjar á morgun á eftirtöldum stöðum: | | 1 | Horni Eiríksgötu og Barónsstígs, Vitatorgi og Hverfis- I M götu og Biómabúðinni Laugavegi 63. i = * E3 | Selt verður: 5 =3 | Jólatré, jólagreni, skreyttar hríslur á leiði, jólakörfur, | | 3 stærðir frá kr. 35.00 — kr. 50.00, þurrkuð blóm. Alls 1 | kon2r borðskraut, jólakerti, jólabjöllur, englahár I | o. m. fl. g 1 Athugið: = Á Laugavegi 63 fáið þér egg í jólabaksturinn á kr. 1 | 28.00 kg. | |. i fj Skoðið og reynið viðskiptin áður en þér verziið i = annars staðar. i = =3 MiiHiuvitmuN'uiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuniiiiininmuninmmiiiiuunnnnmmMiaM Bezt að auglýsa í TÍMANUM j Auglýsingasími Tímans er 82523 ...............................................Illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll I TILKYNNING I frá Sveinabakaríinu, Hamrahlíð 25. Nú höfum við aftur til sölu hin gamalkunnu kraft- | brauð, sem læknirinn Jónas Kristjánsson hefir mælt i með sem hollustu og næringaríkustu brauðum. Um leið | og þessi brauð eru holl, eru þau einnig bragðgóð. Revn- 1 ið þessi brauð í dag og þér munið kaupa þau framvegis. ^ Brauðin verða seld í eftirtöldum verzlunum: Verzlun Náttúrulækningafélagsins, Óðinstorgi. = Verzlun Árna Pálssonar, Miklubraut 68. 1 =3 Sæbergsbúð, Langholtsveg (Hlöðufell). Verzlun Halla Þórarins. § Kjörbúðin, Dalbraut, Laugarneshverfi 1 og bakaríinu, Hamrahlíð 25, sími 80952. j 1llillllflllllllllllllllllllllllllllllHM'lllllMI|aIIIIIUIIIIUIJI!UIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIHIllllHIIHIIIIIIIIIHIIIHIIIIIIIIIIIIIilB koverzlLin I SL ! Peturó 4ndn 'eóóonar | í Laugav. 17. — Sími 7345 | i Framnesv. 2 — Sími 39621 rillllUllllllllllllllllllllillllllllllllllllllHIIIIIIIIIIIIIIIIIHII rllllllllllllHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIHIIIIHIIIIMlMIIIHIIIIIII N.s. Dronoíng Alexandrlne M.s. Dr. Alexandrine fer til Fær- eyja og Kaupmannahafnar laugar- daginn 15. des. n. k. Farseðlar óskast sóttir í dag og á morgun. Flutningur óskast tilkynntur sem fyrst. Skipaafgreiðsla Jez Zimsen. Erlendur Pétursson. 1IIIIIIIIIIIIHIHI llllllllllllllllll lllll I llllllll lllllllllllllll ll'M ^V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V. Innilegar þakkir til allra þeirra, er færðu mér heilla- I; ..........I £■•zÆ!' Hrafnhildur Einarsdóftir, Hlíð. &4 frá ffúlt iU Þegar bók þessi kom fyrst út fyrir rúmum 50 árum, vakti hún geysimikla athygli vegna hins nýstárlega efnis hennar, en hún er öll rituð ósjálfrátt af hinum heimsfræga blaðamanni og ritstjóra William T. Stead, sem fórst í sjóslysinu mikla, er „Titanic“, stærsta skip heimsins á þeirri tíð, rakst á borgar- ísjaka á Atlantshafi og sökk. Einar H. Kvaran, rithöfundur, þýddi bókina á íslenzku þeg- ar eftir útkomu hennar á ensku og mun mörgu eldra fólki bókin minnisstæð, sem ein hinna merkustu bóka þessarar tegundar, er út kom á íslandi um það leyti. Bókin skiptist í 12 kafla, og eru fyrirsagnir kaflanna þessar: Lagt frá landi. — Júlía furðar sig á hinu nýja lífi. — Sæla himnaríkis. — Um sorg eftir dána menn. — Lög- mál andlegs þroska. — Þegar komið er yfir um. —■ Lífið hinum megin. — Að gera glufurnar stærri. — Samband við framliðna menn. — Opnar dyr að auðsæum leyndardómi. — Að glata sál sinni og finna hana. — Skilnaðarorð. Með því að „Bréf frá Júlíu“ hefir nú verið ófáanleg um árati’gi, en hið fagra efni þessarar bókar á engu síður erindi til lesenda í dag, en fyrir 50 árum, enda er hún eitt af önd- vegisritum spíritismans, liefir Sálarrannsóknafélag íslands nú gefið „Bréf frá Júlíu“ út að nýju handa félagsmönnum sínum, sem félagsbók þessa árs. — Nokkuð af upplagi bókarinnar verður til sölu í bókaverzlunum um land allt, svo að áhuga- menn um sálræn efni eigi þess kost að eignast bókina, þótt ekki séu þeir félagsmenn í S.R.F.f. „BRÉF FRÁ JÚLÍU“ er tæpar 200 bls. að stærð í sama broti og með sama frágangi og „Þjónusta englanna“, er út kom í fyrra (en er nú gersamlega uppseld), og kostar kr. 55.00 í bandi. Aðalútsölu bókarinnar annast H.f. Leiftur, Þingholtsstræti 27. Sími 7554.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.