Tíminn - 14.12.1956, Blaðsíða 12
Veðrið í dag:
Veðrið í dag: Norðaustan kaldi,
léttskýjað. ________„
Aðalímdur FulltróaráSs Framsékuar
lélagasina í Reykjavík
i k! •. Form. fulltrúaráísins er nú Benedikt
jf'^ Sigurjónsson hrl.
Aðalfundur fulltrúaráðs Framsóknarfél. í Rvík var haldinn
í Edduhúsinu s. 1. þriðjudagskvöld. Fráfarandi formaður
Björn Guðmundsson, forstjóri, setti fundinn og nefndi til
íundarstjóra Rannveigu Þorsteinsdóttur hdl. og Jónas Jó-
steinsson, yfirkennara, fundarritara.
Björn Guðmundsson flutti
skýrslu stjórnarinnar fyrir s. 1.
í tarfsár, Jón Snæbjörnsson, gjald-
l.eri fulltrúaráðsins las upp reikn-
inga og Bergur Óskarsson erind-
reki rakti í stórum dráttum starf-
semi Framsóknarfélaganna og íull
trúaráðsins á liðnu starfsári.
Nokkrar umræður urðu um
skýrslu stjórnarinnar og framtíð-
arverkefni Framsóknarmanna í
lteykjavík. Þessir menn tóku til
máls: Stefán Jónsson, Jón ívars-
ron, Sæmundur Friðriksson, Svein-
björn Dagfinnsson, Guttormur Sig-
urbjörnsson, Ólafur Jóhannesson,
Skúli Benediktsson, Sigurvin Ein-
arsson, Jón Skaftason, Hannes
l’álsson og Sveinn Skorri Höskulds
son. — Ræðumenn þökkuðu frá-
íarandi stjórn vel unnin störf.
Stjórn fulltrúaráðsins er nú
þannig skipuð: Benedikt Sigurjóns-
son, hrl. formaður, Rannyeig Þor-
.steinsdóttir og Jón Snæbjörnsson
oneðstjórnendur. í varastjórn voru
kjörnir Stefán Jónsson, Jón ívars-
fion og Sveinbjörn Dagfinnsson.
Hæsta og lægsta
smásöluverð í Rvík
Hæsta og lægsta smásöluverð
ýmissa vörutegunda í nokkrum
smásöluverzlunum í Reykjavík
reyndist vera 1. þ. m. sem hér
segir:
Rúgmjöl 2,40, 2,55. Hveiti 2,75,
S,30. Haframjöl 3,30, 3,90. Hrís-
grjón 4,80, 6,20. Sagógrjón 4,90,
G,85. Hrísmjöl 4,60, 6,10. Kartöflu
mjöl 4,65, 5,15. Baunir 5,70, 6,10.
Te Vs lbs. 3,65, 6,00. Kakao % lbs.
ds. 9,75, 13,75. Export 21,00, 22,00.
Suðusúkkulaði 76,00, 79,50. Mola-
rykur 4,60, 5,05. Strásykur 3,60,
3,85. Rúsínur 21.50, 23,20. Sveskj-
ur 23,50, 27,80. Púðursykur 4,10,
5,20. Þvottaefni útl. 350 gr. pk. 6,45
7,25. Þvottaefni innl. 250 gr. 3,00,
3,85.
Á eftirtöldum vörum er sama
verð í öllum verzlunum: Kaffi
(Framhald á 2. síðu.)
Góð síldveiði
Akranesbáta
Síldveiði Akranessbáta var mjög
góð í gær. Þrettán bátar íóru á
sjó og mun heildarafli þeirra hafa
verið um 4000 tunnur. Keilir var
aflahæstur, hafði 400 tunnur, en
margir hinna bátanna öfluðu um
og yfir 300 tunnur.
Nehrú og Rden
mumi ræðast við
London, 13. des. - Sir Anthony
Eden forsætisváðherra Bretlands
lagði af stað flugleiðis í dag frá
Jamaica til Bretlands. Hefir hann
dvaiist á eynni sl. þrjár vikur sér
til hvíldar og hressingar. Sagt er,
að Nehrú, sem kemur við í Lon-
don á leið sinni véítur um haf,
muni ræða við sir Anthony á
laugardag.
Maður íótbrotuar
í gærdag varð slys í Reykjavík,
maður nokkur fótbrotnaði er hann
var að dytta að bifreið sinni. Mað
urinn, Ingólfur Jóhannsson, var
að dæla lofti í hjólbarða er felgu
hringurinn skrapp af og varð Ing
ólfur fyrir honum. Hann fótbrotn
aði og hlaut önnur minni háttar
meiðsl að auki. Ingólfur var síð-
an fluttur á slysavarðstoíuna.
Hiti kl. 17:
Reykjavík -2 st., Akuryeri 0, Kaup
mannahöfn 5, París 8, London ð
New York 11. ,
Föstudagur 14. desember 1956.
Biðnr Eisenhower Rulganin fsess bréf
íega aS Rússar hveríi á hroti ór j
Ungverjalandi? 1
Washingtcn-NTB 13. des. —
Fréttamenn hér telja líklegt, að
Eisenhower forseii muni ein-
hvern næstu daga rita Bulganin
forsætisráðherra Rússlands bréf
og biðja hann þess að hlutast til
um að Rússar dragi her sinn á
brott frá Un-gverjalandi og stigi
þannig mskilvægt skref ti! þess
að bæta ástandið í heiminum, og
auka líkurnar fyrir afvopnun þjóð
anna. Það er haft eftir góðum
heimiídum í Washington, að skila
boð þessi hafi verið í athugun lijá
bandarískum ráðaniönnum í
Washington um mánaðartíma.
ERki er talið ósennilegt, aa í
bréfi þessu verði einnig svar Eis-
enhowers við síðasta tilboði Bul-
ganins um tillögu Bandaríkjanna
um cftirlit úr lofti með hcruaðar
Kátt er á jólunum kosna þau seuu...
undirbúningi
báða bóga.
og herstöðvum á
llndirbúnlngur jólanna er fyrir nokkru hafinn hjá flestum og ber bærinn þess merki að þau eru í nánd. —
Búðargluggar eru fullir af varningi og göturnar Ijósum skreyttar. Fleira fólk er á ferli en venjulega og það er
talsverð ös i verzlunum, einkum þó síðara hluta dags. Jólatréin eru komin til landsins og sala þeirra hafin.
Landgræðslusjóður hefir söluna með höndum og ein s'ilustöðin er á Laugavegi 9, þar sem myndin er tekin.
Stálu bifreið og óku
500 km undir fölsku
flaggi
Um helgina var stolið nýrri bif-
reið í Reykjavík. Var það Skoda-
bifreiðin R-6761 og hafði henni að-
eins verið ekið um 90 km enda
hafði eigandinn enn ekki tekið við
henni, en bifreiðin var geymd í
porti Olíufélagsins hf.
Á þriðjudaginn var svo Jón Hall
dórsson lögreglumaður á leið til
Reykjavíkur vestan af Snæfells-
nesi. í Hvalfirði kom hann að bif-
reið sem lent hafði út af veginum
og stóðu tveir piltar þar hjá. —■
Kannaðist Jón þegar við piltana,
enda hafði hann áður átt við þá að
etja í stafi. Þóttist hann og þekkja
bifreiðina er stolið hafði verið en
hún bar nú nýtt númer R-1065.
Ilafði hann ökuþóranna með sér til
Reykjavíkur og voru þeir þegar
yfirheyrðir.
Kom nú upp úr kafinu að þeir
piltungar höfðu ekið bifreiðinni á
að gizka 500 km veg og notazt við
hið falska skrásetningarnúmer alla
ferðina. En ævintýri þeirra fékk
sem sagt bráðan endi í vegarskurði
í Hvalfirði.
Samniugar um íán
til handa Bretum
Washington, 13. des. — Útflutn-
ings- og innflutningsbankinn í
Bandaríkjunum hefir byrjað samn
inga við brezka aðila um lánveit-
ingu til brezka ríkisins. Ekki var
í tilkynningu bankans frekar vik-
ið að lánsupphæð eða skilmúlum,
en sagt að fénu yrði varið til þess
að gera Bretum kleift að kaupa
vörur í Bandaríkjunum.
„Þú gafst mér allt“
Á morgun kemur út nýtt lag á
nótum eftir Ásbjörn O. Jónsson
við texta eftir Vilhjálm frá Ská-
holti, en útsetningu á laginu hefir
Carl Billich annazt. Er hér um að
ræða vals, sem var meðal úrvals-
laga í síðustu danslagakeppni, eni
lagið heitir „Þú gafst mér allt“.
Kommónistar tapa fylgi,
segir bandarískur JjingmaSnr
Spáir stefnubreytingu valdbafanna
austan járntjalds
Egypzkir skæruliðar láta nú mikio til
sín taka gegn Bretum í Port Said
Port Said, 13. des. — Hernaðaryfirvöld Breta og Frakka
hertu mjög í dag á öllum öryggisaðgerðum í Port Said. Egypt-
ar hafa sig meira í frammi og hyggjast gera brezku og frönsku
hermönnunum erfitt fyrir seinustu dagana. Ráðast skærulið-
ar úr launsátri á hermennina og gera þeim ýmsar skráveifur.
Ekki er þó kunnugt um að neinn brezkur eða franskur her-
maður hafi verið drepinn í þessum skærum. Röskur helming-
ur herliðsins hefir verið fluttur á brott.
College Station, Texas, 13. des.
Lyndon- Johnson, leiðtogi meiri
hluta Bandaríkjaþings, flutti á
miðvikudaginn ræðu á móti for
ystumanna bandarískra stúdenta
sem haldið var í Landbúnaðarhá-
skólanum í Texas. Ilann sagði að
Bandaríkin yrðu að vera viðbúin
þeim áhrifum sem viðburðir undan
farandi vikna kynnu að hafa á
kommúnistaforingjanna í Kreml.
Johnson sagði að nú væri mikil
breyting að gerast í heiminum.
Byltingin í Ungverjalandi væri
tákn um að mikil átök væru nú
innan hinna kommúnistalandanna
og það myndi marka framtíðina
hvernig foringjar kommúnista
brygðust við þessum átökum. Við
verðum að vera undir það búnir
að þróun málanna taki hvaða stefnu
sem vera skal, sagði Johnson. Við
verðum að hafa sama skilning á
málunum og fylgja sömu stefnu.
Johnson er nýkominn heim úr
hálfsmánaðarferð um Evrópu.
Hann kvað suma telja sig sjá fyr
ir endalok Sovétríkjanna en dró
í efa að slík bjartsýni ætti sér
stoð í veruleikanum og benti á að
enn væri margt kommúnistum til
styrktar.
Viðburðirnir í Ungverjalandi
hafa skelft allan heim, sagði .Tohn-
son, og þess vegna tapa kommún
ista fylgi alls staðar utan Sovét-
ríkjanna. Hann spáði því að þeir
gerðust þeim mun ósvífnari og her
skárri sem raunverulegur styrkur
þeirra þyrri.
Það sýnir þetta viðhorf að rann
sóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna
er bannað að koma til Ungverja-
lands, sagði Johnson. Kommúnistar
vilja ekki aðeins reyna að halda
glæpum sínum leyndum heldur
gerast þeir einnig æ ágengari og
ósvifnari.
Góð fjársöfnun
Veírarhjálparinnar
Skátar söfnuðu fyrir vetrarhjálp-
ina í vesturbænum í fyrrakvöld.
Söfnuðust alls 32.330 kr. og mikið
af fatnaði að auki. í fyrra söfn-
uðust í vesturbænum 20.521 kr. og
er því hækkunin í ár 60% og hefir
aldrei safnazt jafnmikið sem nú.
Margir skátar hafa gefið sig fram
til söfnunarinnar og vinna þeir
fyrir hana hið bezta starf. í kvöld
verður safnað í Kleppsholti og út-
hverfunum en í gærkveldi var safn-
að í austurbænum.
Ályktun samþykkt á fjölmennum
fundi í Félagi ungra Framsóknar-
manna í Reykjavík 12. desember
1956:
Fundur haldinn miðvikudaginn
12. desember í F.U.F., Félagi
ungra Framsóknarmanna í
Reykjavík, ályktar að lýsa yfir
Hervörður á götum hefir verið
tvöfaldaður. Þá hefir Egyptum í
borginni verið bannað að nota bif-
reiðar eða önnur ökutæki.
í morgun var kastað sprengju að
stuðningi sínum við nýafstaðnar
aðgerðir ríkisstjórnarinnar í varn
armálunum. En fundurinn legg-
ur áherzlu á, að framfylgt verði
stefnunni, sem mörkuð var um
brottför hersins í ályktun Al-
þingis, 28. marz 1956, svo fljótt
sem friðarhorfur vænkast í heim-
inum.
bifreið, sem brezkur liðsforingi ók
og særðist hann nokkuð. I einu
hverfi var skotið að hermanni á
verði, en ekki sakaði hann. Var síð
an leitað í hverfinu og fundust hjá
einstaklingum nokkrar vopnabirgð
ir og voru 7 Egyptar handteknir.
Enn er leitað að brezka liðsforingj-
anum, sem var rænt fyrir tveim
dögum. Vonlítið er nú talið, að
hann sé á lífi.
Butler forsætisráðherra sagði á
þingi í dag, að ekki kæmi til mála,
að S. Þ. fengju að nota brezk skip
eða tæki til að hreinsa Súez-skurð,
nema því aðeins, að brezkir starfs-
menn fengju þá einnig að nota
þau. S. Þ. hraða nú sem mest öll-
um undirbúningi að hreinsun
skurðarins.
StuSningor vio utanríkisstefnu
stjórnarinnar