Tíminn - 08.03.1957, Blaðsíða 1
Fylgist með tímanum og lesiB
TÍMANN. Áskriftarsímar 2323
eicoo. TÍMINN flytur mest og
fjölbreyttast almennt lesefni.
41. árgamgur
f blaSinn f dag:
Á spænskum búgarði umjól, bls. 4
Skákþáttur Friðriks, bls. 5.
J. Alsop ritar um Krúsjeff, bls. 6.
Silfur; önnur grein Tómasar
Tryggvasonar jarðfr., bls. 7.
56. blað.
Miki! baráita háö á þingi '
til verndar einkasölu
Sjálfstæðismenn telja voða á ferðnm, ef
fleirum en einum aðila verður heimilað að
flytja út sastfisk
Fisksölumálin voru enn til umræðu á Alþingi í gær og urðu
nokkuð fjörugar umræður um það mál enn sem fyrr og sner-
ust þær nær éinvörðungu um einkasöluréttindi SÍF.
Ólafur Thors og Pétur Ottesen
höfðu aðallega á hendi framsögu
í málinu af hálfu þeirra Sjálfstæð-
ismanna, sem vilja óbreytt skipu-
lag. Lagði Pétur einkum áherzlu á
hættuna, sem því væri samfara að
breyla skipulaginu, ef það yrði
gert, en Ólafur Thors flutti eink-
um varnarræðu fyrir SÍF og taldi,
að fiskeigendur myndu hafa í fullu
tré við að kúga sjávarútvegsmála-
ráðlierra til þess að falla frá að-
gerðum í málinu, jafnvel þó frum-
varpið yrði samþykkt.
Ólafi þökkuð lofsamleg
ummæli um SIS
Gísli Guðmundsson framsögu-
maður meirihluta sjávarútvegs-
nefndar í málinu tók til máls og
þakkaði Ólafi sérstaklega hin lof-
samlegu ummæli, er hann hafði
viðhaft um forstöðumenn Sain-
bands íslenzkra samvinnufélaga,
en Ólafur liafði mjög liælt þeim
fyrir kunnáttu og mikilhæfni í
viðskiptum. Benti Gísli á, að þess
ir menn hefðu nú einmitt látið
þá skoðun í ljós, er leitað var
álits SÍS um frumvarpið, að þeir
teldu núverandi skipulag ekki
heppilegt og lögðu til að minnst
tveimur aðilum yrði veitt heim-
ild til fisksölunnar.
Karl Guðjónsson hélt allhvass-
yrta ræðu um SÍF og taldi það
fjarstæðu að allir fiskeigendur
væru aðilar að samtökunum, sagði,
að sjómenn ættu til dæmis um
Sendiherra íslends
helming alls fiskjar, en hefðu eng-
an íhlutunarrétt hjá SÍF. Ekki
hefði þessi stofnun haft fyrir því
að kalla saman fulltrúafund til að
láta vilja umbjóðendanna ráða,
þegar fyrirtækið lagði hálfa aðra
milljón króna í smáíbúðabygging-
ar. sem standa ónotaðar í Morgun-
blaðshöllinni og mun skellurinn af
slíku ráðslagi því lenda á eigend-
um þess fiskjar, sem fyrirtækið er
að selja fyrir landsmenn. Karl
sagði, að ástfóstur Sjálfstæðis-
manna við fyrirtækið væri ekki >
einleikið. (
Lúðvík Jósefsson, sjávarútvegs- i
málaráðherra, tók til máls og rakti
nokkuð fullyrðingar þær, sem Sjálf
stæðismenn höfðu haft í frammi
við umræður um málið.
Nokkrir voru enn á mælenda-
skrá, er þessu framhaldi af gnn-
arri umræðu var frestað og fundi
slitið.
I gær hófst 4 kílómetra skíðagangan á íþróttasvæðinu í Laugardal. Þar hefir verið útbúin 500 metra braut, og
þarf því að ganga átta hringi í kring um svæðið til þess að ná fjórum kílómetrum. Brautina vigðu miklir í.
þróttafrömuðir, fór Benedikt Waage fyrir þeim, en á eftir honum gengu Bragi Kristjánsson og Þorsteinn Ein-
arsson. I dag munu skólanemendur fjölmenna í Laugardalinn, en almenningi mun gefast kostur á að Ijúka
þarna hinni sjálfsögðu skyldu sinni — að ganga fjóra kílómetra — á hverjum degi á næstunni. Þetti mynd er og
athyglisverð að því leyti að hún er fyrsta keppnismyndin frá íþróttasvæðinu í Laugardalnum. (Ljósm.: gaukur).
Fíokk
De
*
i
12 sáttafundir hafa verið haldnir
í farœannadeilnnni án árangurs
Lítið virðist þokast til lausnar í farmannadeilunni, þrátt
fyrir sífellda fundi sáttasemjara með deiluaðilum. Fundur
stóð í alla fvrrinótt frá kl. 5 í fyrradag til kl. 8 í gærmorgun.
i Alls hafa 12 sáttafundir verið haldnir samtals um 200 klukku-
| stundir, og hafa aWei verið haldnir svo langir sáttafundir,
þegar eitt fétag hefir átt í hlut, áður en samkomulag næðist.
í írao
Hinn 6. marz s. 1. afhenti Magn-
ús V. Magnússon íranskeisara
trúnaðarbréf sitt sem sendiherra
íslands í íran með búsetu í Stokk
hólmi.
(Frá utanríkisráðuneytinu.)
Tíu eða tólf skip munu nú hafa
stöðvast, og þeim fjölgar jafnt og
þétt. Lokið er að losa olíuna úr
Hamrafelli, en síðan varð skipið
að flýja upp í Hvalfjörð, þar sem
hvergi er til nógu stór höfn fyrir
það. Hásetar gengu á land af því
sem af öðrum skipum, en yfir-
menn eru um borð og reyna að
verja skipið áföllum. Öryggis-
leysi þess er þó mikið, einkum ef
stórviðri skylli á.
Sú venja hefir skapazt að skip
Afli Yestmannaeyja- og Keílavíknr-
báta heldur að glæSast
Grindavíkurbátar afla illa á línu en sæmilega í net
Aflinn er enn hvarvetna rýr í verstöðvum sunnan lands, en
virðist þó heldur vera að glæðast hjá Vestmannaeyja- og
Keflavíkurbátum. Hafa Vestmannaeyjabátar aflað sæmilega í
net undanfarna daga, en bezt hefir veiðin verið á handfæri.
Valera hlaut hreinan
írsku þingkosningunum
Eínahagsvandræði og atvinnuleysi
Flestir Vestmannaeyjabátar eru
hættir við línu, í gær reru aðeins
tveir bátar þaðan með línu. Afli
þeirra var mjög misjafn í gær, en
1 bátur fékk 1900 fiska Loðna er
gengin yfir, sagði fréttaritari blaðs
ins í Vestmannaeyjum í gær, og
menn vongóðir um betri afla þeg-
ar netafiskurinn kemur.
KEFLAVÍK.
Afli Keflavíkurbáta virðist held
ur vera að skána, í gær voru marg-
ir með 5—8 lestir, nokkrir fengu
9—10 lestir. Nóg er af loðnu undir
Krísuvíkurbjargi. Enn róa allir
bátarnir með línu, en 5 bátar hafa
lagt net, og fengu í þau 3—5 lest
ir.
AKRANES og GRINDAVÍK
Akranesbátar afla enn mjög illa
í gær var aflinn frá 2 upp í 5 lest
ir á bát. Loðna er eitthvað farinl
að ganga inn í flóann, og er nægi-
legt af henni til beitu. Grindavík
urbátar hafa aflað illa á línu, en I
netabátar hins vegar fengið mjög!
sæmilegan afla. Flestir eða allirl
bátar þar búast nú til netaveiði.
stöðvist, er þau koma í heimahöfn
í verkfalli. Arnarfell átti að fara
til Borgarness á dögunum, en
Sjómannafélagið mæltist til, að
það kæmi til Reykjavíkur og stöðv
aðist. Var því neitað. Gaf félagið
þá skipun til háseta að ganga af
skipinu í Borgarnesi. Ekki var
hægt að skilja skipið þar eftir, og
var því þess vegna siglt til Reykja
víkur.
Samgönguleysið er nú farið að
kreppa víða að. Mjög brýnir vöru
flutningar bíða, svo sem á olíu
þar sem víða er að verða skortur
á henni þótt undanþága hafi feng
izt í smáum stíl. Einnig er mjög
brýnt að fara að ljúka áburðar
flutningum á hafnir úti um land.
Auk þess mun svo senn fara að
bera á skorti á almennum neyzlu
vörum hér og hvar á landinu.
Sáttasemjari boðaði nýjan fund
í deilunni kl. 9 í gærkveldi.
Bandarískur flúg-
maður beið bana
á Keflavíkurvelli
Keflavík í gær. Tuttugu og
tveggja ára flugmaður í varnarlið
inu á Keflavíkurílugvelli lézt á
Keflavíkurflugvelli í gærmorgun,
er hann varð fyrir skrúfublaði
þyrilvængju, sem verið var að
setja í gang og búa til flugs. Fékk
hann höfuðhögg og lézt samstund i
is. Nafn hans hefir ekki verið birt
enn vegna aðstandenda hans.
DUELIN-NTB, 7. marz. — Uppgjafahermaðurinn í írskum
stjórnmálum, De Valera, kemur nú á ný fram á sjónarsviðið
sem forsætisráðherra landsins eftir að flokkur hans, Fianna
Fail, hefir tryggt sér meirihluta atkvæða í írsku þingkosn-
ingunum.
Lokaúrslit urðu kunn í dag og
hefir flokkur De Valera hlotið 77
þingsæti af 147 og þar með hrein-
an meirihluta á þingi.
De Valera er þekktur írskur
stjórnmáiamaður, hefir gegnt emb-
ætti forsætisráðherra um árabil.
Slagorð De Valera í kosningunum
var það, að eina leiðin til að leysa
efnahagsvandræði íra væri að
veita einum flokki meirihluta,
sem gæti einbeitt sér að verkefn-
unum, laus við hrossakaup þau, er
alltaf hlytu að fylgja samsteypu-
stjórnum.
MIKIÐ ATVINNULEYSI
Alvarlegasta vandamál fra nú
er atvinnuleysið, sem hefir gert
það að verkuni, að þúsundir fra
hafa flykkzt til Bretlands og
Bandaríkjanna í atvinnuleit.
Fianna Fail flokkurinn var
stofnaður árið 1920. í fyrri heims
styrjöldinni var De Valera hand-
tekinn af Englendingum og
dæmdur til dauða, en bandarísk
borgararéttindi hans urðu honum
til lífs og var dóminum breytt í
lífstíðarfangelsisvist.
Árið 1917 slapp De Valera úr
Mikíir flutningar til
Grænlands í sumar
Kaupmannahöfn í gær. — Sam
kvæmt upplýsingum frá dönsku
Grænlandsverzluninni verður ó-
venjulega mikið um flutninga til
Grænlands í sumar. Tólf skip haf^
verið leigð til Grænlandsferða, og
eru í þeim hópi nokkrir norskir
selfangarar, sem fara eiga nokkr-
ar ferðir til Austur-Grænlands.
DE VALERA
— stofnandi Fianna Fail
fangelsinu ásamt fleiri írum og þá
þegar var farið að vinna að undir*
búningi Fianna Fail. Hann var enn
handtekinn, en slapp aftur úr fang-
elsi Breta og fór huldu höfði um
stund.
HLUTLAUS í SÍÐASTA STRÍÐI
De Valera hefir aldrei gleymt
þeirri meðferð, er hann hlaut af
Breta hálfu. í síðasta stríði lýsti
hann yfir hlutleysi frlands og neit>
aði bæði Bretum og Bandaríkja-
mönnum um leyfi til að nota írsk-
ar hafnir sem herbækistöðvar fyp-
ir flota, er nota átti gegn þýzka
kafbátaflotanum á Atlantshafi.